Morgunblaðið - 22.09.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018
100% Merino ull
Góð og hlý heilsársföt
Stærðir: S – XXL
Þinn dagur, þín áskorun
OLYMPIA Þegar frost
er á fróni
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Heimkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri
Lífland, Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum
Kaupfélag V-Húnvetninga • Borgarsport, Borgarnesi • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Höfn • Þernan, Dalvík
Siglósport, Siglufirði • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is
Mörg undanfarin ár hafa borg-aryfirvöld unnið að því hörð-
um höndum að búa til flöskuhálsa í
umferðinni í borginni. Í þetta brýna
verkefni hafa þau eytt umtals-
verðum fjárhæðum úr vösum út-
svarsgreiðenda og tengt þessu átaki
hefur ríkið líka sett milljarða króna
af skattfé almennings í almennings-
samgöngur.
Það fé, sem varið hefur verið í al-menningssamgöngur, hefur
engu skilað en fénu, sem borgaryfir-
völd hafa varið í flöskuhálsana, hef-
ur vissulega ekki verið sóað til
einskis.
Þau útgjöld hafa átt sinn þátt í aðhægja á umferðinni í borginni,
sóa tíma borgarbúa og auka meng-
un, allt eins og að var stefnt.
Það var þess vegna góður brand-ari þegar borgarstjóri
umferðarhnútanna hitti aðra
sveitarstjórnarmenn á höfuðborgar-
svæðinu ásamt sveitarstjórnar-
ráðherra á Bifreiðastöð Íslands í
gær og undirritaði viljayfirlýsingu
um að „eyða flöskuhálsum til að
bæta umferðarflæði“.
Og það var líka broslegt að þarvar rætt um nýja gjaldtöku rík-
isins og nýjar gjaldtökuheimildir
sveitarfélaganna.
Það er auðvitað vel við hæfi þegarbúið er að eyða milljörðum af
útsvari og öðru skattfé í að búa til
flöskuhálsa að almenningur sé lát-
inn sæta gjaldtöku til að eyða
flöskuhálsunum.
Ný flöskuhálsa-
gjaldtaka
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Aðskilnaður hjólandi og gangandi
umferðar á kaflanum Eiðsgrandi-
Ánanaust er á undirbúningsstigi.
Tvöföldun stígakerfisins kemur
vonandi til framkvæmda, a.m.k. að
hluta, árið 2019, samkvæmt upplýs-
ingum Jóns Halldórs Jónassonar
upplýsingafulltrúa hjá Reykjavík-
urborg.
Nýtt deiliskipulag strandsvæðis
Eiðsgranda-Ánanausta hefur verið
samþykkt. Skipulagssvæðið er um
5,5 hektarar og er eitt stærsta
græna svæðið í Vesturbænum og
hefur mikið gildi sem útivist-
arsvæði, segir í skipulaginu. Er eitt
af markmiðum skipulagsins að
bæta möguleika til útivistar árið
um kring. Einnig felst m.a. í tillög-
unni að bæta grjótvarnargarðinn á
svæðinu til að tryggja öryggi og að
setja inn í skipulag aðgreinda
göngu- og hjólastíga.
Stígurinn sem þarna er í dag er
bæði fyrir gangandi og hjólandi.
Hann er oft mjög fjölfarinn, sér-
staklega á sumrin, þegar margir
eru á ferðinni á hjólum.
Morgunblaðið/sisi
Á Seltjarnarnesi Hjóla- og göngustígar á Nesinu hafa verið aðskildir með
góðum merkingum. Þegar komið er í höfuðborgina er bara einn stígur.
Stefnt að því að tvö-
falda stíga á næsta ári
Stórt grænt svæði í Vesturbænum
Faxaflóahafnir sf. undirbúa smíði á
nýjum og öflugum dráttarbáti,
meðal annars með gerð útboðs-
gagna. Á stjórnarfundi í gær var
samþykkt að bjóða út smíði á drátt-
arbáti á grundvelli fyrirliggjandi
gagna.
Fyrir stjórnarfund var lagt
minnisblað Gísla Jóhanns Halls-
sonar yfirhafnsögumanns. Þar
kemur m.a. fram að sífellt stærri
farþegaskip koma til Reykjavíkur
og farþegafjöldi eykst samhliða.
Árið 2018 er áætluð samanlögð
tonnatala 5,9 milljónir og farþega-
rými fyrir 148.000 farþega. Árið
2019 er talan 7,6 milljónir tonna og
áætlað farþegarými fyrir 190.000
farþega.
Þá bendir Gísli Jóhann á að ný
skip Eimskips, sem verið er að
smíða í Kína, verði u.þ.b. 76%
stærri í brúttótonnum en núverandi
stærstu gámaskip sem sigla til Ís-
lands. Einnig sé það staðreynd að
veðurfarslegar aðstæður við nýjan
hafnarbakka utan Klepps eru verri
en við núverandi Kleppsbakka.
Mikil umferð stórra súrálsskipa
er að Grundartanga og í Straums-
vík. Þá er talsverð umferð stórra
olíuskipa í Helguvík og einnig í ol-
íustöðina í Hvalfirði.
Fram hefur komið að bátur með
80 tonna dráttargetu muni kosta á
bilinu 7,5-8,0 milljónir evra, eða ná-
lægt 1.000 milljónir íslenskra króna
og að smíðatími gæti verið 14-18
mánuðir. Í fjárhagsáætlun Faxa-
flóahafna sf. fyrir 2020 og 2021 er
gert ráð fyrir 1.000 milljónum til
kaupa á nýjum dráttarbáti. Magni,
stærsti dráttarbátur fyrirtækisins,
er með 40 tonna dráttargetu.
sisi@mbl.is
Mikil þörf er á öflugri dráttarbáti
Morgunblaðið/RAX
Munur Magni og skemmtiferðaskip.