Morgunblaðið - 22.09.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 22.09.2018, Síða 18
Lítill fiskur í stórri tjörn - samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtaka atvinnulífsins, verður haldinn í Norðurljósasal Hörpumiðvikudaginn 26. september kl. 08:15 til 10:00. Farið verður yfir afkomu sjávarútvegsfyrirtækja á árinu 2017 og samkeppnishæfni þeirra á alþjóðlegummarkaði, en um98%af afla af Íslandsmiðumer seldur þar. 08:15 -Morgunverður 08:30 -Opnunarávarp Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra 08:50 - SjávarútvegsgagnagrunnurDeloitte vegna ársins 2017 Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi, meðeigandi Deloitte 09:10 - Framtíðarhlutverk sjávarútvegs í íslensku efnahagslífi Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði, Háskóla Íslands 09:30 „Skip án stefnu siglir í strand“ Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Eskju 09:50 - Samantekt Heiðrún LindMarteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS Fundarstjóri er Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, viðskiptastjóri í sjávarútvegsteymi Arion banka. Skráning á skraning@deloitte.is | Aðgangur 3.500 kr. 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Heldur hefur ræst úr með korn- uppskeru á Suðurlandi eftir erfitt kornræktarsumar. Uppskeran verð- ur þó væntanlega þriðungi minni en í meðalári. „Ég var svartsýnn á þetta fyrr í sumar en uppskeran varð miklu meiri en ég þorði að vona,“ segir Jó- hann Nikulásson, bóndi í Stóru- Hildisey 2 í Austur-Landeyjum. „Uppskeran er misjöfn, þetta verðu ekkert toppár. Samt er kornið ótrúlega vel þroskað,“ segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Jóhann segist hafa getað sáð í klakalausa jörð við góðar aðstæður í lok aprílmánaðar. Hins vegar fór að rigna í maí og rigndi út júlímánuð og var heldur kalt í veðri megnið af þeim tíma. „Það var allt á floti,“ seg- ir Jóhann. Ólafur segir að vegna vorkuldans séu kornakrarnir gisnari og uppskeran verði minni en í með- alári. „Ég var orðinn heldur svart- sýnn á þetta. Kornið spíraði ekki nógu vel. Í raun og veru er ótrúlegt að það skuli vaxa korn upp úr ökrum sem fóru á flot í maí,“ segir Ólafur. Getur alltaf stólað á meðaltalið Jóhann og Ólafur segja að góð tíð í ágúst og það sem af er september hafi bjargað því sem bjargað varð í kornræktinni. Ólafur segir að engir frostskaðar hafi orðið á gróðrinum og engin stórviðri, enn sem komið er. Jóhann lauk þreskingu í byrjun vikunnar og nágrannar hans eru margir að ljúka uppskerustörfum. Ólafur á Þorvaldseyri þurrkar bygg- ið og það tekur lengri tíma. Hann reiknar með að ljúka þreskingu um helgina. Björgvin Þór Harðarson, bóndi í Laxárdal í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi, er með stórfellda kornrækt í Gunnarsholti. Hann er ekki byrj- aður að þreskja. Segir að kornið hafi þroskast seint út af slæmu sumri. „Ég er að bíða eftir að kornið þrosk- ist betur. Þótt það bæti ekki miklu við sig úr þessu er það enn að þorna sem skiptir máli því ég þurrka korn- ið,“ segir Björgvin Þór. Hann segist ekki hafa náð að sá í alla þá akra sem hann ætlaði og hætt áður en sáning var búin því hann hafi talið betra að sleppa því en að sá of seint. Nú sé komið í ljóst að lítið hefði komið út úr því sem seint var sáð. Bændur tala um að uppskeran verði á bilinu 2,5 til 3 tonn á hektara að meðaltali. Jóhann segir að bestu akrarnir hafi gefið yfir 4 tonn á hektara en þeir lökustu um 2 tonn. „Þetta jafnar sig á 3 tonn á hektara. Til lengri tíma litið getur maður allt- af stólað á meðaltalið. Það er reynsla mín af ræktun korns frá árinu 1991. Eitt ár féll úr þegar ég var að flytja mig á milli jarða og al- ger uppskerubrestur hefur aðeins orðið eitt árið, 1992, þá var ákaflega kalt sumar. Ef ég hefði haft þau af- brigði sem við höfum aðgang að núna þá hefði ég fengið uppskeru þá. Kría og önnur byggafbrigði sem Jónatan Hermannsson til- raunastjóri þróaði skila uppskeru 7- 10 dögum fyrr en þau innfluttu. Það getur skipt sköpum í erfiðum sumr- um. Ég rækta ekki annað en Kríu. Hægt er að fá meiri uppskeru af hinum afbrigðunum í góðum árum en afbrigði Jónatans skipta sköpum ef sumarið er kalt,“ segir Jóhann Nikulásson. „Uppskeran verður ekki eins og bestu árin, eftir svona sumar. Þetta er svipað og í kartöflunum. Við er- um ekki að kvarta undan því þótt svona ár komi á milli,“ segir Ólafur Eggertsson. Hann áætlar að upp- skeran geti orðið 2,8 til 3 tonn á hektara að meðaltali. Í góðum árum náist 3,5 til 4 tonn að meðaltali. Verðmæti hvers kílós eykst Þótt uppskeran sé minni en und- anfarin tvö ár er ekki víst að verð- mæti kornsins sé svo mikið minna því heimsmarkaðsverð á korni hefur verið að hækka vegna þurrka og Betur fór en á horfðist með kornið  Uppskera betri á Suðurlandi en búist var við eftir erfitt sumar  Um þriðjungs samdráttur Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Tilbúið í kýrnar Matthias Munk-Pedersen og Jóhann Nikulásson í Stóru-Hildisey 2 í stíu þar sem byggið er verkað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.