Morgunblaðið - 22.09.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.09.2018, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Margar gerðir af innihurðum Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir frá Grauthoff. Mikið úrval, sjón er sögu ríkari! Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Margar gerðir af innihurðum Veritas Capital ehf. hefur keypt allt hlutafé í Stoð hf., Stoðtækjasmíði, en félagið er þjónustufyrirtæki á heil- brigðissviði á Íslandi og í Danmörku, stofnað árið 1982. Kaupverð er trún- aðarmál. Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas, segir aðspurð í samtali við Morgunblaðið að Veritas hafi horft í þessa átt lengi, eins og hún orðar það. „Við erum samstæða fyrirtækja sem eiga margt sameiginlegt með starf- semi Stoðar, þó á ólíkum markaði sé. Við viljum fjárfesta í fyrirtækjum sem tengjast okkur með rökrænum hætti og þar sem við teljum okkur geta lagt eitthvað af mörkum til að betrumbæta og finna leiðir til vaxtar fyrir bæði samstæðuna og viðkom- andi fyrirtæki,“ segir Hrund en Veri- tas sérhæfir sig í rekstri fyrirtækja á sviði heilbrigðisþjónustu og er móð- urfélag fyrirtækjanna Vistor hf., Dis- tica hf., Artasan ehf. og MEDOR ehf. Ekki sameinað dótturfélögum Ekki er langt síðan Veritas keypti tvö önnur fyrirtæki, Gengur vel og IceCare, en félögin voru sameinuð undir dótturfyrirtæki Veritas, Artas- an. Stoð verður hinsvegar ekki sam- einað öðrum dótturfélögum Veritas að sögn Hrundar, heldur rekið áfram sem sjálfstæður lögaðili. Er hugmyndin að vaxa frekar með uppkaupum fleiri fyrirtækja? „Já, ef það er skynsamlegt, og við finnum samstarfsfyrirtæki sem falla vel að okkar stefnu og starfsemi.“ Hjá Stoð vinna 36 manns, þar af 30 á Íslandi og sex í Kaupmannahöfn þar sem rekn- ar eru tvær verslanir. Fyrirtækið stundar eigin vöru- hönnun, en flytur einnig inn og selur ýmsar vörur, s.s. hjólastóla, spelkur og ýmis stoðtæki önnur. „Sérstaða fyrirtækisins er þó þjónustan sem það veitir, en það vinnur mjög náið með sínum viðskiptavinum, við smíði og aðlögun hjálpartækjanna,“ segir Hrund. Aðspurð segir hún að sóknarfæri séu erlendis sem innanlands fyrir Stoð. „Já, við erum öll að eldast, og eldra fólk er farið að haga lífi sínu með öðrum hætti en áður var. Það er virkara lengur og kröfur um lífsgæði meiri, og þegar ellikerling bankar upp á þá eru ýmis ráð til að hjálpa til. Við sjáum þennan markað sem einn þann mest vaxandi í heiminum, og með þessum kaupum erum við í fyrsta sinn að fara yfir á smásölu- markað, sem skapar tækifæri.“ Stoð velti um 900 mkr. á síðasta ári, en Veritas-samstæðan veltir um 17 milljörðum á ári. Aðaleigandi Veritas er Stormtré ehf. sem er í eigu Hreggviðar Jónssonar og bróður hans Jóhanns. tobj@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Lausnir Stoð selur m.a. rafmagnshjólastóla, og sérhæfir sig í heildar- lausnum fyrir fatlaða, aldraða, íþróttamenn og aðra. Veritas Capital kaupir Stoð hf.  Einn mest vaxandi markaðurinn BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is „Sjálfbærni skilar ekki bara sam- félagslegum og umhverfislegum ávinningi heldur líka fjárhagslegum ábata.“ Þetta segir Sandra Rán Ás- grímsdóttir, sjálfbærniverkfræðing- ur hjá verkfræðistofunni Mannviti sem á dögunum stóð fyrir fundi, ásamt Samtökum fjármálafyrir- tækja, um sjálfbærar fjárfestingar. Vaxandi áhersla á sjálfbærni Neel Strøbæk, framkvæmdastjóri sjálfbærni og samfélagsábyrgðar hjá danska ráðgjafafyrirtækinu Ram- bøll, hélt erindi og sagði meðal ann- ars frá vaxandi áherslum fjárfesta á sjálfbærni þegar kemur að bygging- arframkvæmdum. „Byggingariðnaðurinn verður sí- fellt alþjóðavæddari. Sem þýðir að það eru ekki bara Íslendingar að byggja íslenskar byggingar fyrir Ís- lendinga til að búa í. Bein erlend fjárfesting er orðin meiri og það sem við sjáum er að margir af þessum er- lendu fjárfestum vilja miða við al- þjóðlega staðla. Það er ekki nóg fyrir þá að hafa íslenska byggingarreglu- gerð,“ segir Strøbæk. „Sjálfbærni er eitthvað sem alþjóðlegir fjárfestar meta mikils. Þeir vilja fá alþjóðlegar vottanir,“ segir Strøbek. Sandra Rán tekur í sama streng og segir að alþjóðlegir aðilar hugsi í sífellt meiri mæli um sjálfbærni þeg- ar kemur að byggingarframkvæmd- um enda geti það skipt mjög miklu máli, ekki einungis út frá samfélags- legum sjónarmiðum heldur einnig fjárhagslegum. „Erlendir aðilar hafa sífellt meiri áhuga á Íslandi. Þá vilja þeir vera vissir um að þeirra fjárfesting sé að fara í það sem þeir vildu. Að þú sért að skjalfesta og sýna það svart á hvítu að þú sért raunverulega að uppfylla væntingar viðskiptavinar- ins,“ segir Sandra Rán. Hafa hærra söluvirði „Erlendis hafa kannanir sýnt að vottaðar byggingar hafa hærra sölu- og leiguvirði en þær óvottuðu og því sívaxandi krafa frá markaðnum um vottun. Þannig er markaðurinn að kalla eftir sjálfbærnimiðaðri hugsun og framkvæmdaaðilar að átta sig á mikilvægi vottunar til að verða við því ákalli,“ segir Sandra. Ásgeir Kröyer hjá fyrirtækjaráð- gjöf Fossa markaða sagði frá útgáfu grænna skuldabréfa en útgáfa slíkra skuldabréfa hefur aukist gríðarlega í nágrannaríkjum okkar undanfarin misseri enda bjóðast betri kjör fyrir slík skuldabréf. Það sem kemur eilít- ið á óvart er að stór hluti slíkrar fjár- mögnunar í Svíþjóð fer í að bæta lestarkerfið, almenningssamgöngur og byggingu fasteigna. „Við á Íslandi virðumst hika svolítið. Við sjáum ekki fjárhagslega virðið í því að huga að t.d. góðri innivist í byggingu þó að við séum meðvituð um mikilvægi hennar. Markaðurinn erlendis er kominn vel á veg þar sem verk- kaupar gera kröfu um þessi gæði frá hönnuðum og framkvæmdaaðilum. Það eru rannsóknir sem sýna fram á það erlendis að hjá þeim sem huga að sjálfbærni t.d. við byggingu skrif- stofuhúsnæðis gæti arðsemi slíkra fjárfestinga verið allt að 10-12% hærri en hjá þeim sem gera það ekki,“ segir Sandra. Sandra segir þetta einnig snúast um markaðssetningu. Á Íslandi sé nóg af grænni orku en að alþjóðleg fyrirtæki hugsi einnig um að húsin sem byggð eru séu hönnuð með sjálf- bærni að leiðarljósi. Danir hafa til að mynda náð miklum árangri á þessu sviði en Apple rekur t.a.m. gagnaver þar í landi sem byggist á grænni vindorku. „Við erum ótrúlega heppin með alla þessa grænu orku. Ef við fylgjum þessu eftir á öllum sviðum liggja þarna ótrúlega mörg tæki- færi,“ segir Sandra. Sjálfbærni fjárhagslega hagkvæm  Sjálfbærni þegar kemur að byggingarframkvæmdum hefur orðið sífellt mikilvægari  Rannsóknir sýna fram á 10-12% meiri arðsemi af fjárfestingum í fasteignum þar sem hugað er að sjálfbærni Vottun Kannanir sýna að vottaðar byggingar eru verðmætari en óvottaðar. Morgunblaðið/Hari Launavísitala í ágúst 2018 er 662,8 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Þar segir einnig að síðastliðna tólf mánuði hafi launavísitalan hinsvegar hækkað um 6%. Byggist á launarannsókn Launavísitala er samkvæmt upplýs- ingum á vef Hagstofunnar verð- vísitala sem byggist á gögnum úr launarannsókn Hagstofu Íslands og sýnir breytingar á verði vinnu- stundar fyrir fasta samsetningu vinnutíma. Launavísi- talan lækkaði Afkoma Laun hafa hækkað á árinu. 22. september 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 110.37 110.89 110.63 Sterlingspund 145.97 146.67 146.32 Kanadadalur 85.51 86.01 85.76 Dönsk króna 17.323 17.425 17.374 Norsk króna 13.445 13.525 13.485 Sænsk króna 12.484 12.558 12.521 Svissn. franki 114.2 114.84 114.52 Japanskt jen 0.9829 0.9887 0.9858 SDR 154.84 155.76 155.3 Evra 129.24 129.96 129.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 154.6288 Hrávöruverð Gull 1203.0 ($/únsa) Ál 2018.0 ($/tonn) LME Hráolía 79.44 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.