Morgunblaðið - 22.09.2018, Síða 24

Morgunblaðið - 22.09.2018, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Stöðu mál-efna heila-bilunar á Íslandi er veru- lega ábótavant. Ítrekað kemur fram gagnrýni á hvernig málum er háttað en lítið virðist þokast hverju sem þar er um að kenna. Jón G. Snædal, yfirlæknir á Landspítalanum og sér- fræðingur í öldrunarlækn- ingum, orðar það svo í frétt í Morgunblaðinu í gær að þjónustan sé á margan hátt góð en of margir njóti henn- ar ekki. Jón hefur áhyggjur af því að nú séu stóru árgangarnir sem fæddust eftir stríð að komast á efri ár og á næstu 15 til 20 árum muni Alz- heimer-sjúklingum fjölga úr um 4-5.000 manns í 9-10.000 manns. Hann segir að vissulega þurfi að setja meira fjár- magn í málaflokkinn, en einnig megi grípa til ýmissa úrræða þannig að ekki þurfi dýrari leiðir í sama mæli. Hans helsta gagnrýni er sú að heildarsýn skorti. „Enn sem komið er er engin ákveðin stefna í málefnum þessa hóps hér á landi sem gerir að verkum að stundum vill verða að þær ákvarðanir sem eru teknar byggjast ekki á neinni heildarsýn, heldur bara á stöðunni eins og hún er í dag á þeim stað sem um ræðir,“ segir hann. Jón er ekki einn um að gagnrýna skortinn á heild- arsýn. Kári Stefánsson, for- stjóri Íslenskrar erfðagrein- ingar, segir það sama í samtali í Morgunblaðinu í gær. „Þetta er hluti af skorti á almennri heildar- stefnu í heilbrigðismálum og af því að Alzheimer-sjúk- dómurinn er algengur sjúk- dómur hjá eldra fólki og samfélagið er að verða eldra með hverju árinu,“ segir hann. „Þá kreppir skórinn náttúrlega sérstaklega þar.“ Í mars birtist í Sunnu- dagsblaði Morgunblaðsins viðtal við Steinunni Þórð- ardóttur, lyf- og öldr- unarlækni, sem hefur starf- að með sjúklingum með heilabilun í fjögur ár á Ís- landi eftir að hafa lært og starfað um árabil í Svíþjóð. Hún var ómyrk í máli og sagði stöðu fólks með heila- bilanir og aðstandenda þeirra afar slæma hér á landi. „Það slær mann hversu lítinn stuðning kerfið býður fólki, það er óhóflega löng bið í öll úrræði og margir aðstand- endur eru búnir á sál og líkama þegar þeir fá loksins aðstoð,“ sagði Steinunn í viðtalinu. „Ég hef séð allt of marga brotna algjörlega niður og gráta vegna aðstæðnanna sem þeir eru í.“ Steinunn gagnrýndi einn- ig skort á heildarsýn og fann að því að hér á landi hefðu stjórnvöld ekki mótað neina stefnu í málefnum fólks með heilabilunarsjúk- dóma. „Það er lykilatriði að hafa að minnsta kosti stefnu, að vita hvernig við ætlum að bregðast við vandanum sem blasir við. Það er enginn að kortleggja þetta, enginn að fylgjast með fjölgun þessara sjúklinga, enginn að gera áætlanir fram í tímann. Frá því ég hóf störf á Íslandi, 2014, hefur breytingin að- eins verið til hins verra, á aðeins fjórum árum. Þetta er ekki lengur spurning um einhverjar framtíðarspár, þetta er löngu byrjað að gerast.“ Steinunn gengur svo langt að segja að verði ekki brugðist við muni þetta steypa heilbrigðiskerfinu. Jón G. Snædal segir í Morgunblaðinu í gær að í vetur hyggist heilbrigðisyf- irvöld hefjast handa við að bæta úr ástandinu. „Við höf- um átt samtal við fulltrúa frá ráðuneytinu og ráðherra og við skynjum að það er áhugi á að skoða þessi mál heildstæðara en gert hefur verið hingað til,“ segir hann og vísar til þingsályktun- artillögu sem lögð var fram í vor. Eins og kemur fram hér fyrir ofan er löngu tímabært að gerð verði gangskör að því. Það gengur ekki að nota bútasaumsaðferðina í stað þess að fá yfirsýn yfir vandann og taka á honum í heild sinni. Vissulega mun kosta pen- inga að laga kerfið þannig að tekið verði á umfangi þessa sívaxandi vanda en með því að horfa yfir sviðið má ugglaust líka finna skil- virkari leiðir en í kerfi sem ítrekað sætir gagnrýni vegna skorts á heildarsýn. Brotalamirnar eru margar og það er ótækt að líf heilu fjölskyldnanna fari í upp- nám vegna þess að kerfið er vanbúið til þess að bregðast við vanda heilabilaðra. Heilbrigðiskerfið er ítrekað gagnrýnt fyrir skort á heildarsýn í málum heilabilaðra} Sívaxandi vandi Þ essa dagana stendur yfir her- æfingin Trident Juncture. Tölu- vert hefur verið fjallað um æf- inguna og sérstaklega ferð nokkurra stjórnmála- og embætt- ismanna um borð í flugmóðurskipið Harry S. Truman. Æfingin er til þess að æfa bandamenn okkar í því að verja eyjuna okkar og þjóðina. Eins og venjulega er nokkrum stjórn- málamönnum úr röðum VG falið að hrópa og mótmæla til einskis því enginn tekur mark á þessum hrópum lengur. Vinstri græn virðast hafa það að sérstöku markmiði að fórna trúverðugleika sínum er kemur að veru Íslands í Atlantshafsbandalag- inu (NATO) en í þau tvö skipti sem flokkurinn hefur tekið þátt í ríkisstjórn hefur þessu „prin- sippi“ verið strax ýtt út í horn. Nú er það gert til að geta setið til borðs með höfuðandstæðingnum. Afsökun formanns VG í þetta skiptið er að það sé í lagi að kasta „prinsippinu“ vegna þess að Alþingi hafi með lýð- ræðislegum hætti samþykkt þjóðaröryggisstefnu sem gerir ráð fyrir veru Íslands í NATO. Þar með getur VG hætt að þreyta okkur hin á þessum marklausu upphrópunum um NATO því ekki er þjóðarör- yggisstefnan að breytast. VG gæti reyndar fengið smá trúverðugleika á ný ef þingmenn flokksins flyttu breyt- ingatillögu við þjóðaröryggisstefnuna. En þá þarf formað- ur VG líklega að hætta að funda með hinum leiðtogum NATO. Um leið og þetta á sér stað eru fjármunir til „hern- aðarbrölts“ og „drápsæfinga“ auknir undir forsæti for- manns VG. Reyndar er utanríkisþjónustan að fá stóraukið fjármagn skv. fjárlagafrumvarp- inu eða nálægt 2.000 mkr. meira en á fjárlögum 2018. Skv frumvarpinu er aukið í öryggis- og varnarmál um nærri 300 mkr. en 422 mkr. í þróunarsamvinnu. Ráðuneytið og sendiráð fá aukningu upp á rúmar 680 mkr. Fyrir áhuga- menn um utanríkismál og stjórnmál á Íslandi er forvitnilegt að sjá hve mikið fer til öryggis- og varnarmála í samanburði við þróunarsam- vinnu undir forsæti VG. Þá er áhugavert að sjá að töluverð aukning fjármuna er í þróunarsjóð EFTA en sá sjóður er ætlaður til stuðnings ríkjum innan ESB sem ekki teljast jafn þróuð og þau sem þar fremst standa. Ekki fyrir svo löngu voru haldnar ræð- ur á Alþingi þar sem talið var skynsamlegra að nýta þessa fjármuni frekar til styrktar fátæk- ustu löndum heims en ríkjum Evrópusambandsins. Ríkisreksturinn þenst út og ekki útlit fyrir annað en að hann haldi áfram að gera það með núverandi ríkisstjórn. Von er á nýjum ríkisstofnunum, t.d. þjóðgarðsstofnun. Þar þarf líklega forstöðumann og sérfræðinga. Þá mun þurfa einhvern í móttökuna, fjölmiðlafulltrúa, mannauðsstjóra, bókhaldið o.s.frv. Það verður því áhugavert að fylgjast með Sjálfstæðisflokknum draga úr einkarekstri í heil- brigðisþjónustu og stækka báknið með sama hraða og VG tapar trúverðugleika sem hernaðarandstæðingur. gunnarbragi@althingi.is Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Heræfing í boði VG og báknið blæs út Höfundur er alþingismaður Suðvesturkjördæmis og varaformaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is S ólbakur EA 301 lagði að bryggju í Ghent í Belgíu í fyrrinótt eftir fjögurra sól- arhringa siglingu frá Ak- ureyri. Útgerðarfélag Akureyringa gerði skipið út í yfir 40 ár og bar það lengst af nafnið Kaldbakur EA 1. Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, segir að skipið hafi alla tíð verið farsælt og fengsælt. Nú sé það hins vegar komið á aldur og fari í brotajárn í Belgíu. Með brotthvarfi skipsins úr flot- anum er aðeins einn af stóru Spánar- togurunum sex eftir á veiðum fyrir ís- lenskt útgerðarfyrirtæki, en frystitogarinn Blængur er í flota Síld- arvinnslunnar í Neskaupstað. Öll voru skipin gerð út í áratugi til fiskveiða hér við land og reyndust yfirleitt mikil aflaskip. Miklar breytingar voru gerð- ar á sumum þeirra í áranna rás og nokkrum þeirra var breytt í frystitog- ara. Svo stiklað sé á stóru í sögu Spánartogaranna þá komu þeir til landsins á árunum 1973-1975. Þeir voru smíðaðir í Astilleros Luzuriaga S.A. skipasmíðastöðinni í Pasajes de San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni. Á áttunda áratugnum voru marg- ir skuttogarar keyptir til landsins og voru Spánartogararnir meðal stærstu skipanna í þessum nýja flota. Kaupin á þeim voru gerð með atbeina stjórn- valda og með ríkisábyrgð. Þrjú skip- anna fóru til Bæjarútgerðar Reykja- víkur, tvö fóru til Útgerðarfélags Akureyringa og einn Spánartogarinn til Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar. Byggt á sömu teikningu Spánartogararnir voru smíðaðir eftir sömu teikningu, 68,7 metrar að lengd, og var Bjarni Benediktsson RE 210 fyrstur í þessari raðsmíði. Bæj- arútgerð Reykjavíkur hf. gerði skipið út og kom það til heimahafnar 10 jan- úar 1973. Um tíma bar skipið nafnið Merkúr RE 800, en var selt í janúar 1987 til Sæbergs hf. á Ólafsfirði og fékk þá nafnið Mánaberg ÓF 42. Rammi hf. gerði skipið síðan út þar til það var selt til Múrmansk í Rússlandi í mars 2017. Júní HF var annar í röðinni, en skipið kom til Bæjarútgerðar Hafn- arfjarðar í byrjun júní 1973. Hvalur hf. keypti skipið og nafninu var breytt í Venus HF 519. Það var síðan selt til HB Granda. Venus var seldur til Grænlands árið 2015 og var það reyndar í annað skipti sem skipið var selt þangað, en sala tveimur árum áð- ur hafði gengið til baka. Snorri Sturluson RE kom til BÚR í október 1973. Ísfélag Vest- mannaeyja keypti skipið af Granda 2001 og gerði það út í nokkur ár. Snorri var síðan seldur til Petropav- lovsk á Kamchatka í Rússlandi 2008. Ingólfur Arnarson RE 201 kom nýr til Bæjarútgerðar Reykjavíkur í janúar 1974. Skipið fékk síðar nafnið Freri og var gert út af Ögurvík frá 1985, en Síldarvinnslan í Neskaupstað keypti skipið sumarið 2015 og heitir það nú Blængur NK. Kaldbakur EA 1 kom til Akur- eyrar skömmu fyrir jól 1974 og var gerður út af Útgerðarfélagi Akur- eyringa þar til nú að hann hefur verið selt til niðurrifs. Skipið fékk nafnið Sólbakur EA 301, er nýr Kaldbakur EA 1 kom til landsins frá Tyrklandi á síðasta ári. Rannsóknarskipið Poseidon var áður Harðbakur EA og kom til ÚA á Akureyri í mars 1975, síðastur Spán- artogaranna. Skipinu var breytt hjá Slippstöðinni Akureyri 2009 vegna nýrra verkefna og hefur m.a. verið notað til aðstoðar við olíuleit. Spánartogararnir hverfa hver af öðrum Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Í sparifötunum Sólbakur EA, áður Kaldbakur, siglir til móts við nýjan Kaldbak EA 1, sem kom til Útgerðarfélags Akureyringa í mars 2017. Gamli Kaldbakur var einn af sex Spánartogurum sem smíðaðir voru fyrir rúmum 40 árum. Kveðja Freysteinn Bjarnason, fyrsti yfirvélstjóri á Kaldbak, losaði land- festar fyrir siglinguna til Belgíu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.