Morgunblaðið - 22.09.2018, Page 28

Morgunblaðið - 22.09.2018, Page 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 Á leið heim frá Stokkhólmi á síðasta ári sat ég við hlið konu sem var á leið til Seattle. Hún var starfsmaður í aðal- stöðvum Starbucks þar í borg og flaug á Saga Class. Hún sagði mér að frá 2009 þegar Icelandair hóf flug til Seattle hefði hún nán- ast eingöngu flogið með félaginu í ferðum sínum til Evrópu, átta til níu sinnum á ári. Hún sagði ekki ólíklegt að þetta væri sjötugasta ferðin með Icelandair en jafnframt sú síðasta. Hún hefði ákveðið að færa sig yfir til British Airways og fljúga um London, Terminal 5 á Heathrow. Hún sagði sér líka mjög vel við Icelandair en hún þyldi ekki lengur að fljúga í gegnum Keflavík- urflugvöll. Í sömu viku var mér sögð svipuð saga af National Film Board of Canada, sem notað hafði Icelandair en ætlaði nú að færa sig yfir á önn- ur flugfélög í ferðum til Evrópu. Ástæðan var óþægindi og erfið- leikar við að skipta um flugvél í Keflavík. Eins og konan frá Starbucks orð- aði það: að þurfa að ganga úr flug- vélinni út í alls kyns veður, bíða í troðfullri rútu til að komast inn í flugstöð og olnboga sig þar í gegn- um mannþröng til að komast að langri biðröð í vegabréfaskoðun og bíða síðan eftir næstu rútu og svo út í rokið til að komast um borð í næstu flugvél. Því miður er þetta ástand sem farþegar upplifa of oft í Keflavík, sérstaklega farþegar Icelandair og WOW. Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem eitt sinn var besta skiptistöð í Evrópu, er nú sú versta og það er flugfélögunum dýrt. Sú ákvörðun, sem stjórn Isavia tók fyrir ein- hverjum árum að stækka ekki flug- stöðina með fleiri landgöngubrúm heldur að fjárfesta í útistæðum, hef- ur skapað þetta ástand. Stjórnin telur sig örugglega hafa réttmæta ástæðu fyrir ákvörðun sinni en það breytir því ekki að flugstöðin sinnir illa sínu hlutverki og farþegar upp- lifa hana sem erfiða og um leið þjónustu flugfélaga sem slæma. Tekjuleki sem hlýst af því að missa fasta viðskiptavini er eitt versta vandamál hvers flugfélags. Fastir viðskiptavinir koma aftur og aftur vegna þess að þeim líkar vel þjónustan og finnst að flugfélagið uppfylli vel þeirra væntingar. Þeir sætta sig við hærri fargjöld ef flugfélagið mætir þörfum þeirra og væntingum að öðru leyti. Ég veit ekki hve marga fasta við- skiptavini Icelandair hefur misst vegna slæmrar aðstöðu í Keflavík, en ef ég heyri af tveimur stórum í sömu vikunni eru þeir örugglega miklu fleiri. Hvort þeir skipta hundruðum, þúsundum eða tugum þúsunda er erfitt að segja. Tekjuleki af þessu tagi er nánast ósýnilegur en hann margfaldast hratt. Vörn flugfélaga er jafnan sú að styrkja sig á markaði með flug- áætlun sem hentar viðskiptavinum, hnökralausri þjónustu, samkeppn- ishæfu verði og stundvísi. Ice- landair, sem eitt sinn var eitt stund- vísasta flugfélag Evrópu, er löngu hætt að gefa út tölur um stundvísi, svo ekki sé minnst á WOW. Að- stæðurnar í Keflavík gera það nán- ast ómögulegt að ná flugvél út á tíma og hnökralaus þjónusta heyrir sögunni til. Tekjuleki sem af svona aðstæðum stafar á að vera óþarfur en hefur alvarlegri áhrif á afkomu en margir átta sig á. Flugfélögin hafa að mörgu leyti verið sjálfum sér verst. Þau hafa kosið að vaxa nánast óhóflega inn í aðstæður sem ráða ekki við vöxtinn og lækka þannig hjá sér þjónustu- stigið. Kapphlaupið um nýja áfanga- staði vestanhafs virðist án raunsæis enda bendir ekkert til að vöxtur síð- ustu tveggja ára sé arðbær. Það er vel þekkt í skiptistöðva- fræðum að til að hámarka hagnað af skiptikerfi þarf heimamarkaðurinn þar sem skiptistöðin er að halda ákveðnum styrk. Það stafar af því að hagkvæmustu flutningarnir eru til og frá heimamarkaði þar sem einingatekjur af farþega sem flýgur beint að heiman og heim eru hærri en af gegnumstreymisfarþegum. Þetta á við um Reykjavík, Amster- dam og Chicago og aðra staði þar sem skiptistöðvar hafa náð að blómstra. Það dytti engum manni í hug að setja upp skiptistöð þar sem enginn býr, svo sem í Síberíu eða Labrador, þótt staðsetning sé hag- stæð. Þar er enginn heimamark- aður til að tryggja afkomu stöðv- arinnar. Margt bendir til að hlutfall gegnumstreymisfarþega sé nú orðið svo hátt miðað við hlutfall farþega sem fljúga til og frá Íslandi að kerf- ið er ekki lengur arðbært. Lögmálið um minnkandi afrakstur er farið að bíta. Ég trúi því að þetta sé að minnsta kosti stjórnendum Ice- landair vel ljóst og vonandi verður skekkjan fljótt leiðrétt. Til að mæta óviðunandi aðstöðu í Keflavík ætlar félagið að opna nýjan skiptibanka. Brottfarar- og komutímar verða góðir fyrir markaðinn milli Íslands og Evrópu. Vestur um haf og að vestan eru tímar hins vegar langt utan þess tíma sem flest fólk vill ferðast á og má búast við að Icelandair þurfi að fikra sig enn neðar í fargjaldastigann til að fylla þessi flug. Aðstaðan í Keflavík kann að vera það skásta sem Isavia vill bjóða en hún dugar ekki fyrir góða skiptistöð og grefur augljóslega undan tekjum stærsta notanda flug- stöðvarinnar. Eitt sinn best, nú verst Eftir Pétur J. Eiríksson » Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar, sem eitt sinn var besta skiptistöð í Evr- ópu, er nú sú versta og það er flugfélögunum dýrt. Pétur J. Eiríksson Höfundur er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri hjá Flugleiðum og Ice- landair Group. petur@proaviation.is Við Íslendingar er- um eyjarskeggjar og auðvitað einkennist skapgerð okkar og viðhorf nokkuð af því. Er sjóndeild- arhringur sumra lítill og fer, þegar verst lætur, niður í mús- arholusýn. Sumir hér eru svo þröngsýnir og íhalds- samir að þeir mála skrattann á vegginn ef þeir horfa út fyrir landsteina, svo ekki sé nú talað um að gengið sé til samvinnu, samstarfs og tengsla við erlend öfl, þjóðir og ríkjasambönd. Alþjóðleg mynt er í huga margra illt mál og hættulegt og ógnun við sjálfstæði landsmanna, þó að gjaldmiðill landsmanna, blessuð krónan, hafi reynst hið mesta svikatól og bölvaldur, Svo má illu venjast að gott þyki. Helst verður að kalla þetta afdala- mennsku. Sem betur fer er verulegur hluti þjóðarinnar frjálslyndur, fram- farasinnaður og með víðan sjóndeildarhring og skilning. Þetta fólk skilur að ný samgöngutækni hefur fært þjóðir nær hver ann- arri síðustu áratugi og að jörðin er orðin einn vettvangur sem allt mannkynið verður að deila með sér. Á þetta við um öll svið; loft, láð og lög. Jarðarbúar eiga þetta allt saman og verða að deila því með tilliti til verndar, endur- uppbyggingar og nýtingar. Gagn- kvæmur skilningur, samstarf manna og þjóða og virðing við líf- ríki jarðar hljóta því að verða ein- kunnarorð komandi kynslóða. Stærð plánetunnar Jarðar er ekki meiri en svo að við getum ferðast hvert á jörð sem er á innan við sólarhring. Á síðustu dögum hafa afdala- menn landsins látið að sér kveða í vaxandi mæli og nú er hættan þriðji orkupakki ESB. Jafnvel mætustu menn, líka ritstjórar og fyrrverandi ritstjórar, hafa blásið í varnaðar- og hættulúðra. Mikið liggur við! Jafnvel er gengið í skrokk á félögum og samherjum, sem þó hafa reynst íhaldssamir vel í ýmsu öðru, og þeim brigslað um brot á grundvallarstefnu stjórnmálaflokka og hagsmunum og sjálfstæði þjóðarinnar. Þetta upphlaup finnst und- irrituðum með ólík- indum. Í 25 ár höfum við verið á innri markaði ESB, stærsta og öfl- ugasta markaði heims, með framleiðsluvörur okkar og þjónustu. Þetta hefur tryggt okkur besta mögulega verð fyrir afurðir okk- ar, en þær fara 80% til Evrópu. Á sama hátt höfum við haft aðgang að því vöruframboði annarra þjóða sem innri markaður ESB býður upp á – sennilega því besta í heimi – en það hefur tryggt okkur lægsta mögulega verð og mestu mögu- legu gæði á vöruaðdrætti okkar. Á sama tíma njótum við ferða-, dvalar- og starfsfrelsis í 31 landi, en gagnkvæm réttindi annarra ESB-búa hafa tryggt okkur að við gætum mannað öra uppbyggingu ferðaþjónustunnar, byggingariðn- aðarins og fyllt í eyður á ýmsum öðrum starfssviðum, þar sem inn- lendan starfskraft skorti. Þessi frjálsu samskipti og sam- keppni sem yfirstjórn ESB hefur jafnan tryggt að sé sem sann- gjörnust og réttlátust fyrir alla markaðsþátttakendur – líka og sérstaklega með tilliti til hags- muna og öryggis almennings og neytenda – hefur gert okkur Ís- lendingum kleift að rífa okkur fljótt og vel upp úr hruninu – sem reyndar aldrei hefði orðið ef hér hefði verið evra, ekki króna – og byggja upp meiri velferð fyrir landsmenn en áður þekktist. Þeir menn sem beittu sér fyrir inngöngu Íslands í ESB, í gegnum EFTA og EES-samninginn, eiga því miklar þakkir skildar fyrir þá framsýni og það frjálslyndi sem þeir sýndu, en þar standa fremstir í flokki Jón Baldvin, Björn Bjarnason og – undarlegt nokk – Davíð Oddsson. Vatns- og hveraorka okkar er auðvitað eins og hver annar varn- ingur sem gengur kaupum og söl- um á grundvelli framboðs, eft- irspurnar og markaðsverðs, kaupendum og neytendum til góðs, og má líkja henni við við- skipti með olíu, kol eða kjarnorku. Gildir það sama um orku lands- manna og hátæknivörur, flutnings- þjónustu, ál- og fisksölu – að ekki sé nú talað um ferðaþjónustuna – og aðrar afurðir. Ef gæði eru mik- il og kostnaður lágur höfum við allt að vinna og litlu að tapa með því að fara inn á stóran og öflugan markað, auk þess sem slíkur markaður veitir okkur sjálfum að- hald. Auðvitað verður að tryggja að við ráðum yfir eigin orku eins og annarri starfsemi og framleiðslu í landinu og mín skoðun á málinu bendir skýrt til að svo sé. Vísa ég þá einkum til minnisblaðs Ólafs Jóhannesar Einarssonar, lög- manns hjá BBA og fyrrverandi framkvæmdastjóra Eftirlitsstofn- unar EFTA, sem trúlega veit manna mest og best um þetta mál, en minnisblaðið var birt á vef at- vinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytisins. Á ráðherra, Þórdís Kol- brún, heiður skilinn fyrir að hafa beitt sér fyrir þessari faglegu og traustvekjandi úttekt á orkupakk- anum. Til viðbótar kemur að 30 aðrar evrópskar þjóðir, líka frændur okkar Norðmenn, Svíar, Danir og Finnar, hafa samþykkt þennan orkupakka og sjá sér hag í honum. Enginn vill hér afsala sér forræði og sjálfstæði frekar en við. Annað mál er svo það að við er- um hreint ekki inni á evrópskum orkumarkaði þar sem við erum ekki tengd því orkukerfi sem þar er. Til þess þyrfti sæstreng til Bretlands eða meginlands Evrópu sem óvíst er að komi nokkru sinni, en á meginlandi Evrópu er nánast ótakmarkaður aðgangur að vind-, sólar- og sjávarorku, en með nýrri tækni, sem líka er í örri þróun, má telja að meginlandið verði sjálfu sér nægt með hagstæða græna orku í framtíðinni. Fyrir undirrituðum er hér því á ferðinni stormur í vatnsglasi og þeir sem að honum standa mega gjarnan draga sig til baka til af- dala sinna og halda sig þar. Sjálfstæði fæst með því að nýta tækifærin í alþjóðasamskiptum Eftir Ole Anton Bieltvedt Ole Anton Bieltvedt » Við erum hreint ekki á evrópskum orku- markaði, þar sem við er- um ekki tengd því orku- kerfi. Til þess þyrfti sæstreng til Bretlands eða meginlands Evrópu Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu- maður og stjórnmálarýnir. Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.