Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Jakobskór Akureyrarkirkju syngur. Organisti er Petra Björk Pálsdóttir. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Bangsablessun, allir bangsar velkomnir í sunnudagaskólann. Um- sjón Sonja Kro æskulýðsfulltrúi og Jón Ágúst Eyjólfsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Þór Hauksson þjónar og prédikar. Krisztina Kalló Szklenár organisti. Kirkjukórinn leiðir söng. Sunnudagaskóli á sama tíma í safn- aðarheimili kirkjunnar í umsjón Önnu Siggu og Aðalheiðar. Kaffi og spjall á eftir. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Benja- mín Hrafn Böðvarsson guðfræðinemi annast samverustund sunnudaga- skólans. Félagar úr Kór Áskirkju syngja. Organisti Bjartur Logi Guðna- son. Kaffisopi í Ási eftir messu. Ástjarnarkirkja | Messa kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Prestur er Arnór Bjarki Blomsterberg. Sunnu- dagaskóli á sama tíma. Hressing og samfélag á eftir. BESSASTAÐAKIRKJA | Sunnudaga- skóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Um- sjón með stundinni hafa Sigrún Ósk og Guðmundur Jens. Messa kl. 17 í Bessastaðakirkju þar sem lögin hans Magga Eiríks verða í brennidepli. Ellen Kristjánsdóttir syngur með Lærisvein- um hans undir stjórn Ástvaldar Traustasonar organista. Sr. Hans Guðberg flytur hugleiðingu og þjónar ásamt Margréti djákna fyrir altari. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Toshiki Toma þjónar. Organisti er Örn Magnússon, kór Breiðholts- kirkju syngur. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Steinunnar Leifsdóttur og Steinunnar Þorbergsdóttur. Messu- kaffi á eftir. Ensk bænastund kl. 14. Prestur Toshiki Toma. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11. Samverustund með söng og leik. Brúðuleikhús, ratleikir, spurninga- leikur, bænir, söngur, tónlist, gestir. Umsjón Daníel Ágúst, Sóley Adda, Jónas Þórir og Pálmi. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaðakirkju og Antonia Hevesi. Messuþjónar aðstoða og heitt á könnunni eftir messu. Prestur Pálmi Matthíasson. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11, prestur Gunnar Sigurjónsson, organ- isti Sólveig Sigríður Einarsdóttir, Sam- kór Kópavogs syngur. Veitingar í safn- aðarsal að messu lokinni. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Inn- setning Sveins Valgeirssonar sem sóknarprests og Elínborgar Sturludótt- ur sem dómkirkjuprests. Séra Elín- borg prédikar. Helga Soffía Konráðs- dóttir prófastur. Dómkórinn og Kári Þormar organisti. Sunnudagaskóli á kirkjuloftinu. Messukaffi í safn- aðarheimilinu. Minnum á bílastæðin við Alþingi. FELLA- og Hólakirkja | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunn- arsson þjónar og predikar. Kirkjukór- inn syngur undir stjórn Arnhildar Val- garðsdóttur. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Kaffi og djús eftir stundina. Bangsadagur hjá Mörtu og Ásgeiri í sunnudagaskólanum. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Hljóm- sveit kirkjunnar leiðir sönginn. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón- usta kl. 14. Hjörtur Magni Jóhanns- son safnaðarprestur leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Ferm- ingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta. GLERÁRKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garð- arsson og Sunna Kristrún djákni þjóna. Barna- og æskulýðskór syngur undir stjórn Margrétar Árnadóttur kór- stjóra. Kvöldmessa kl. 20. Sr. Gunn- laugur Garðarsson þjónar. Kór Gler- árkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. Eftir fjölskylduguðs- þjónustuna og messuna verður létt spjall við foreldra fermingarbarna um tilhögun fermingarfræðslunnar í vetur. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Séra Sigurður Grétar Helgason þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og Hákon Leifsson stjórn- ar. Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkj- unnar kl. 11. Dans, söngvar, sögur og ærslagangur. Pétur Ragnhildarson hefur umsjón. GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Messa kl. 13. Séra Grétar Halldór Gunnarsson þjónar. Vox Pop- uli leiðir söng og organisti er Hilmar Örn Agnarsson. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Jón Ragnarsson þjónandi prestur prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar í kirkjukór Grensáskirkju syngja. Organ- isti Kristján Hrannar Pálsson. Heitt á könnunni eftir messuna. GRUND dvalar- og hjúkrunarheim- ili | Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrum þjónandi presta klukkan 14 í hátíðasal Grundar. Prestur er Sigurður Kr. Sigurðsson. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage org- anista. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur Leifur Ragnar Jónsson, organ- isti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríð- arkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Bryndísar Böðvarsdóttur. Meðhjálpari Guðný Aradóttir. Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi eftir mess- una. HALLGRÍMSKIRKJA | Fjöl- skyldumessa kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Inga Harðardóttir leiða stundina. Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Helgu Vilborgar Sigurjónsdóttur. El- ísabet Þórðardóttir leikur á orgel. Starfsfólk Sunnudagaskólans að- stoðar. Bænastund mánud. kl. 12.15. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8. Kyrrðarstund fimm- tud. kl. 12. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Ása Laufey Sæmundsdóttir héraðs- prestur prédikar og þjónar fyrir altari. Barnastarf í umsjá Þorgerðar Ásu Aðalsteinsdóttur. Kordía, Kór Háteigs- kirkju syngur. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Samskot dagsins renna til Krýsuvíkursamtakanna. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Kór Hjallakirkju leiðir söng und- ir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista. Prestur er Sunna Dóra Möller. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu og Markús og Heið- björt leiða hann. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barna- kirkja kl. 13 og almenn samkoma með lofgjörð og fyrirbænum. Halldóra Ásgeirsdóttir prédikar. Kaffi og sam- félag eftir stundina. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjón- usta sunnudag kl. 11. Kór kirkjunnar leiðir okkur í söng ásamt Arnóri organ- ista. Sr. Fritz Már þjónar ásamt messuþjónum. Súpusamvera verður í Kirkjulundi eftir messuna. Miðviku- daginn 26. september kl. 12 er kyrrð- arstund í kapellu vonarinnar. Gæða- konur bjóða upp á súpu eftir stundina. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 Sigurður Arnarson sóknar- prestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur, organisti er Peter Maté. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu Borg- um undir stjórn Grímu Katrínar Ólafs- dóttur og Birkis Bjarnasonar. KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta í Laugarneskirkju klukkan 20. Séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir predikar, Aðalheiður Þorsteinsdóttir leiðir sálmasöng við blóm og kertaljós og haldin verður bænastund. Á eftir verð- ur messukaffi. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11, léttur hádegis- verður að messu lokinni. Félagar úr Kór Langholtskirkju syngja undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar organ- ista, Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknar- prestur þjónar ásamt messuþjónum og Aðalsteini Guðmundssyni kirkju- verði. Hafdís Davíðsdóttir og Sara Grímsdóttir leiða sunnudagaskólann. LAUGARNESKIRKJA | Fjöl- skyldumessa klukkan 11. Sr. Eva Björk, Hjalti Jón, Gísli, Keli, Rebbi og Gabríel engill taka á móti kirkju- gestum. Fermingarbörn og messu- þjónar aðstoða við helgihaldið. Hress- ing eftir stundina í safnaðarheimili kirkjunnar. Á eftir verður Einnar-krónu mót Laugarnessóknar. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Ragnheiður Jónsdóttir sókn- arprestur þjónar fyrir altari og prédik- ar. Organisti Þórður Sigurðarson. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli í kirkjunni kl.13 í um- sjón Berglindar Hönnudóttur. www.lagafellskirkja.is LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Messa kl. 20. Óskar Einarsson stjórnar kór Lindakirkju. Sr. Dís Gylfadóttir þjónar. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sýning Siggu Bjargar, Blettur, á Torginu í safnaðarheimilinu verður opnuð að messu lokinni og fjallað verður um verkin í predikun. Umsjón Katrín, Heba, Jónína og Ari. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Kaffiveit- ingar og samfélag. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Upp- skerumessa og barnastarf kl. 14. Sr. Pétur predikar og þjónar fyrir altari. Messugutti er Petra Jónsdóttir. Radd- bandafélag Reykjavíkur sér um að leiða messusvör og söng. Organisti er Kristján Hrannar og ætlar hann að vera með smá haustjazz. Ólafur Krist- jánsson tekur á móti öllum. Eftir messuna er svartbaunaseiði og bráðabrauð í boði safnaðarins. SALT kristið samfélag | Sameigin- legar samkomur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Gestir frá Biblíuskólanum í Fjellheim koma í heimsókn. Efni: „Sjálfsmyndin á sam- félagsmiðlum.“ Ræðumaður Jörgen Storvoll. Barnastarf. Túlkað á ensku. SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Messa kl. 14. Prestur Sigríður Gunnarsdóttir, organisti Rögnvaldur Valbergsson. Kaffi og djús eftir messu. SELFOSSKIRKJA | Messa sunnu- dag kl. 11. Kirkjukórinn syngur, org- anisti er Ester Ólafsdóttir, prestur er Guðbjörg Arnardóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma, umsjón Jóhanna Ýr Jó- hannsdóttir ásamt leiðtogum. Upplýs- ingar á selfosskirkja.is og á Facebo- ok-síðu kirkjunnar. SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11, Bára og Malla leiða stundina. Rebbi kemur í heimsókn og kíkt verð- ur í fjársjóðskistuna, ávaxtahressing í lokin og mynd til að lita. Guðsþjón- usta kl. 14, Bryndís Malla Elídóttir þjónar. Tómas Guðni Eggertsson leik- ur á orgel og Kór Seljakirkju syngur, kaffisopi að messu lokinni. SELTJARNARNESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sókn- arprestur þjónar. Organisti safnaðar- ins leikur á orgelið. Leiðtogar sjá um sunnudagaskólann. Félagar úr Kamm- erkór kirkjunnar syngja. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safn- aðarheimilinu. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Friðrik J. Hjartar predikar og kveður eftir tæplega tveggja áratuga þjón- ustu í Garðaprestakalli. Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og Hans Guð- berg Alfreðsson þjóna fyrir altari ásamt djáknunum Margréti Gunn- arsdóttur og Helgu Björk Jónsdóttur. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Sunnudagaskóli á sama tíma. Kaffi- samsæti að lokinni messu í safn- aðarheimilinu til heiðurs prestshjón- unum Friðrik J. Hjartar og Önnu Nilsdóttur. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Messa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur Stefán Már Gunnlaugsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Fjölbreytt og fræðandi dagskrá. Hressing í safnaðarsalnum á eftir. ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Hafdís og Guðmundur. Messa kl. 14. Fermingarfræðsla er að hefjast og fermingarbörn og foreldrum þeirra sérstaklega boðið og fjallað verður um ferminguna aðallega á praktískan máta. Ester Ólafsdóttir á orgelinu, kór Þorlákskirkju, Baldur og Guðmundur. Orð dagsins: Jesús læknar á hvíldar- degi. (Lúk. 14) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Saurbæjarkirkja á Rauðasandi. ✝ Bergþóra Ás-geirsdóttir fæddist í Neskaup- stað 5. ágúst 1937. Hún lést á Hrafnistu, Boðaþingi, 3. sept- ember 2018. Hún var dóttir hjónanna Ásgeirs Bergssonar, f. 1909, d. 1966, og Ragn- heiðar Sverrisdóttur, f. 1909, d. 1993. Þeim varð þriggja barna auðið, en Bergþóra var í miðið og eina dóttir þeirra. Bræður hennar eru Sverrir Guðlaugur, f. 1933, og Hjalti, f. 1939, d. 2002. smiður og kafari um langt ára- bil. Þau gengu í hjónaband 4. nóvember árið 1961. Samúel lést 13. nóvember 2014. Börn Bergþóru og Samúels eru: Sigurður Ásgeir, f. 1962, kvæntur Rósu Hansen. Synir þeirra eru Ívar Örn og Arnar Freyr en fyrir átti Sigurður son- inn Anton Samúel. Davíð, f. 1966, giftur Kristjáni Andra Stefánssyni. Ragnheiður, f. 1968. Unnusti hennar er Krist- mundur Þórisson en fyrir á Ragnheiður dótturina Bergþóru Hörpu Stefánsdóttur. Yngst er Anna Berg, f. 1972, gift Stefáni Hrafnkelssyni. Synir þeirra eru Stefnir Ægir og Styrmir Ingi. Langömmubörnin eru átta tals- ins. Að ósk hinnar látnu fór útför hennar fram í kyrrþey frá Lindarkirkju í Kópavogi 20. september 2018. Bergþóra hóf ung að vinna fyrir sér. Þegar hún var 17 ára gömul eignaðist hún son- inn Sverri, f. 1955, sem Anna Bergsdóttir föðursystir henn- ar og Hermann Lárusson eig- inmaður hennar ættleiddu. Synir Sverris eru Maríus Hermann og Hjalti Þór. Seinna kynntist hún eiginmanni sínum Samúel Andr- ési Andréssyni, f. 1938, frá Strondum í Færeyjum, skipa- Elsku mamma. Þá kom að því að við áttum okk- ar hinstu kveðju hér á jarðríki þeg- ar við tók hjá þér ferðalag til sum- arlandsins. Ferð sem þú hefur, síðan veikindi þín hófust og drógu úr þér mátt, þráð að hefja. Skilaðu kveðju til pabba frá mér. Og þarna sé ég ykkur fyrir mér sitja andspænis hvort öðru, þú ögn glettin á svip og hann angurvær, taka spjall um hvað skuli gera í dag. Þannig voru ykkar stundir síðustu ár í Gullsmáranum, þar sem þið gátuð loksins átt rólega daga, enda nutuð þið þess að vera saman fara á rúntinn, spila, hitta vini og ferðast, og síðast en ekki síst notið samvista með fjölskyld- unni. Það var alltaf jafn yndislegt að koma til ykkar og fann ég vel yf- irvegun ykkar pabba, þessa ró sem bara þeir sem prufað hafa lífið geta búið yfir. Það var svo gott að vera hjá ykkur, spjalla og sötra kaffi og hlusta á heilræði er öll enduðu á einn veg: Þetta verður allt í lagi, elskan mín, vittu til, þetta lagast. Og það gerði það undantekningar- laust. Þannig var hún mamma, ráða- góð og ljúf. Lífið hafði kennt henni flest það sem hún vissi og kunni enda hafði það ekki alltaf verið létt að vera í hennar sporum. En mamma leit á erfiðleika sem áskor- un, eitthvað sem yrði að vinna með, hún var ákveðin, fylgin sér og ótrú- lega hugrökk kona. Ég sá það ekki alltaf þegar ég var yngri en þegar ég lít yfir farinn veg þá sé ég svo vel að mamma mín var ein hug- rakkasta kona sem ég þekki, hún gafst aldrei upp. Það er erfitt að kveðja og ég á oft eftir að vilja heyra í þér, fá góð draumaráð, spyrja um ættar- tengsl, fá ráð við erfiðum ákvörð- unum og svona mætti lengi telja. Takk fyrir allt, elsku mamma, hug- rakka og skemmtilega kona. Minn- ing þín lifir, skemmtilegu frasarnir og ótrúlegu uppátækin. Þú varst einstök. Þín dóttir, Anna Berg. Elsku Begga, að leiðarlokum langar mig að minnast þín. Það var aldrei lognmolla í kring- um þig, kæra tengdamamma, enda elskaðir þú að tala og varst oft hrókur alls fagnaðar. Það verður tómlegt án þín og enginn sem telur upp heilu ættliðina, en fólk var allt- af þitt áhugamál. Minni þitt var ótrúlegt og við grínuðumst með að þú fengir aldrei minnisglöp því þú héldir heilanum í góðri þjálfun. Siggi sagði stundum að þú myndir velja mig ef valið stæði milli mín og hans, en það er ekki erfitt að vera uppáhaldstengda- dóttir þegar engin er samkeppnin. Þótt við værum ekki alltaf sam- mála varstu mér ætíð ljúf og góð og ég gat verið viss um að eiga stuðn- ing þinn vísan á hverju sem gekk. Við göntuðumst með hvað þú ættir eiginlega mörg líf, þegar þú hvað eftir annað reist upp úr mikl- um veikindum, og þitt svar var „eins og kötturinn – nú er ég búin með þrjú af níu“. Þeim fækkaði þó hratt síðustu mánuði en öðru hvoru glitti í gömlu Beggu sem var svo fé- lagslynd og lífsglöð en skyndilega föst í ónýtum skrokki sem lét illa að stjórn. En nú ertu komin á betri stað og dansar með Samma þínum eða keyrir um ótroðnar slóðir í ferða- bílnum hans. Góða ferð elsku Begga mín og knúsaðu gamla frá mér. Rósa. Það er óhætt að segja að tengdamóðir mín hafi tekið mér opnum örmum frá fyrstu kynnum. Þau Samúel höfðu þá komið sér fyrir á síðasta heimilinu sem þau bjuggu sér í Gullsmára í Kópavogi þar sem hún tók á móti manni í dyrunum, oft kankvís í framan og spurði frétta af manni sjálfum og fjölskyldunni. Hún var áhugasöm um samferðafólk sitt og vildi gjarn- an að maður tyllti sér hjá henni í eldhúskróknum og spjallaði meðan hún sjálf sýslaði við að tína saman einhverjar veitingar, enda fór mað- ur aldrei svangur af hennar fundi sama á hvaða tíma dags mann bar að garði. Alltaf var hellt upp á könnuna og rétt eins og undir jökli virtist alltaf vera hægt að reiða fram reiðarinnar býsn af kræsing- um án nokkurs fyrirvara. Berg- þóra var enda vön því að halda stórt heimili meðan fjölskyldan óx úr grasi og það leyndi sér ekki að í eldhúsinu – og kannski í lífinu yf- irhöfuð – var hún vön því að hafa marga bolta á lofti. Hún var fædd og uppalin á Norðfirði og hóf þar búskap með honum Samma sínum sem kom þangað frá Færeyjum á sjötta ára- tugnum. Samúel vann lengi sem kafari við hafnarframkvæmdir og varð það til að fjölskyldan flutti sig ann- að slagið um set eftir því hvar verk- in var að finna, jafnvel til Færeyja um þriggja ára skeið en annars hér heima. Begga hafði lag á að láta eðl- isávísun vinna með sér og kunni að nýta hæfileika sína til að búa í hag- inn fyrir fjölskylduna og skapa sjálfri sér viðurværi á nýjum stöð- um. Hún hafði nefnilega nef fyrir viðskiptum og oftar en ekki kom hún sér upp rekstri þar sem þau slógu sér niður, oftast með verslun af einhverju tagi. Eftir að ungarnir flugu úr hreiðrinu og þau hjónin fluttu í bæinn nýtti hún líka hæfi- leika sína í eldhúsinu til að koma upp mötuneyti fyrir Visa Ísland og rak það um árabil við góðan orðstír. Og jafnvel þótt hún væri komin á löglegan eftirlaunaaldur þegar ég kynntist henni hafði hún ekki lagt árar í bát heldur tekið upp prjónana og skilaði af sér afburða fallegu prjónlesi. Við Davíð erum svo lán- samir að eiga bæði peysur og tátil- jur að ylja okkur við og sama á við um marga skjólstæðinga Hróksins og ýmissa góðgerðarsamtaka sem hún lét njóta krafta sinna í fjáröfl- unarskyni. Samband Davíðs við mömmu sína hefur alltaf verið náið og nær- andi fyrir þau bæði og eftir að hann fór að flakka með mér held ég varla að hafi liðið sá dagur að þau hafi ekki talast við í síma. Það hefur ver- ið þeim báðum mikilvægt og kannski skapað þeim ákveðið jarð- samband við minningar, tíma og staði sem ég veit að þeim hafa báð- um verið svo kær. Þetta er það sam- band sem ég veit að sárast verður saknað á mínum bæ og erfitt verður að venjast að sé ekki innan seilingar lengur. Það er huggun harmi gegn að minningin um Bergþóru mun lifa með okkur áfram, ekki bara í huga okkar heldur líka í ýmsum háttum afkomenda hennar sem auðvelt er að sjá hvaðan er komið. Eða hver getur sagt mér hvort lífsglaður, stríðinn, tilfinningaheitur prakkari eigi betur við um manninn minn eða mömmu hans? Kristján Andri Stefánsson. Bergþóra Ásgeirsdóttir Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Emilía Jónsdóttir, félagsráðgjafi Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.