Morgunblaðið - 22.09.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 22.09.2018, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 ✝ GuðlaugSveinsdóttir fæddist 30. janúar 1929. Hún lést 15. september 2018. Móðir: Hólm- fríður Eyjólfs- dóttir, f. 20.8. 1892, d. 8.12. 1942. Faðir: Sveinn Eiríksson Sveinsson, f. 19.7. 1899. d. 25.2. 1989. Systkini: Elísabet, f. 8.9. 1926, d. 20.8. 1989, Hulda, f. 30.1. 1932, d. 19.8. 1992, og Guðbjörn, f. 11.4. 1936, d. 3.1. 2009. Guðlaug, Lauga eins og hún var oftast kölluð, ólst upp hjá foreldrum sínum á Fálkagötu 26 í Reykjavík til 15 ára aldurs, en þá lést móðir hennar af slys- 1957, Gústaf Geir, f. 4.11. 1960, Hólmar, f. 7.2. 1962, Sigurlaug, f. 2.12. 1963, Agla, f. 2.9. 1965. Fyrir átti Egill soninn Jónas, f. 3.9. 1946. Um fimmtugt fór hún aftur út á vinnumarkaðinn sem fisk- verkakona og lét málefni verka- fólks sig mikið varða. 1997 tóku þau þá ákvörðun að flytja til Spánar og keyptu sér fasteign þar. Á Spáni bjuggu Lauga og Egill næstu ellefu árin. Árið 2008 keyptu þau húsnæði á Lækjarbrún í Hveragerði en héldu áfram að fara til Spánar yfir kaldasta tímann allt til árs- ins 2012. Lauga átti við erfið veikindi að stríða síðustu árin en þau Eg- ill héldu heimili í Lækjarbrún- inni þrátt fyrir það, allt þar til 31. ágúst sl. er Lauga fór á hjúkrunarheimilið Ás í Hvera- gerði og lést þar eftir einungis tveggja vikna dvöl. Útför Guðlaugar fer fram frá Hveragerðiskirkju í dag, 22. september 2018, klukkan 14. förum. Þá dvaldi Guðlaug um hríð hjá afa sínum Eyj- ólfi á Þurá í Ölfusi. Guðlaug og eftir- lifandi eiginmaður hennar, Egill Guð- mundsson frá Ólafsvík, bjuggu sér heimili í Ólafs- vík árið 1950, fyrst í Móabæ og þaðan fluttu þau í Heklu. Lengst af bjuggu þau í Vallholti 9 þar sem þau voru þar til leiðin lá til Spánar. Varð þeim hjónum margra barna auðið, þau eru: Elísabet Eygló, f. 16.1. 1951, Sveinn, f. 29.6. 1952, Elín Þur- íður, f. 18.9. 1953, Guðmundur Gísli, f. 14.5. 1955, Sigurður, f. 15.5. 1956, Guðbjörg, f. 14.12. Nú skilur leiðir um sinn, elsku mamma, tengdamóðir og besti vinur. Um hugann fljúga falleg minningabrot á leiftur- hraða, minningar sem ylja og kalla fram ljúfar minningar um einstaka konu, lágvaxna en með hjarta risans. Þú varst klettur í hafi, ótrú- leg afrek þín á lífsins göngu verða ávallt fyrirmynd okkar til orðs og æðis. Það hefur ekki verið létt verk né tekið með annarri hendi að koma tíu börn- um til manns, en það var alltaf í orðum þínum frekar léttvægt talið, gleðin og ánægjan yfir gimsteinunum þínum tíu var það sem þú minntist og talaðir um. Í minningunni koma upp í hugann dagarnir þegar ég hljóp í Lárubúð eftir nýjum Andrésar Andarblöðum og Fart og Tempo á dönsku og þú last og þýddir fyrir allan hópinn og þorpið ef svo bar við. Þú varst flakkari í eðli þínu og alltaf tilbúin að fara út fyrir þægindarammann sem við setj- um okkur svo oft, en ramminn þinn náði út fyrir jarðkringluna, þér voru engin takmörk sett. Það var heldur enginn bilbugur á þér, þá 68 ára gamalli, þegar þú taldir að nú væri kominn tími til að þið hjónakornin pruf- uðuð að búa á Spáni. Þú lagðir verkefnið upp sem sex mánaða tilraun og þegar gamli var nú ekki alveg á því svaraðir þú: „Ég ætla að prufa, þú ræður hvort þú kemur með.“ Prufutíminn var nú ekki liðinn þegar hringt var heim og fjöl- skyldan beðin að selja Vallholt- ið, þið voruð búin að finna ykk- ur húsnæði á Spáni. Þau vöfðust ekki fyrir þér húsnæðiskaupin á Spáni og þú bjargaðir þér á spænsku eins og öðrum þeim tungumálum sem þú lagðir metnað þinn í að ná tökum á. Þessi ákvörðun var ykkur mikið gæfuspor í lífinu, þið nutuð ykk- ar vel á Spáni, ströndin heillaði, göngutúrar, ferðalögin, samver- an með vinum og fjölskyldu urðu gæðastundir eins og þú sagðir, engin klukka, ekkert stress, lífið var í núinu. Faðmur þinn var stór og rúmaði allt og alla, hlýja þín, ást og kærleikur umvafði okkur fjölskylduna, dætur okkar og barnabörn nutu umhyggju þinn- ar og samveru, amma Lauga átti alltaf stórt knús og faðmlag. Fyrir þessar stundir og sam- veru þökkum við öll, þær verða alltaf til í fjársjóði minninganna sem við munum varðveita og leita í. Nú við leiðarlok þökkum við þér, elsku mamma og yndislegi vinur, fyrir dásamlega sam- fylgd, megi góður guð og guðs englar geyma þig að eilífu, bestu þakkir fyrir allt. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Þinn sonur og tengdadóttir, Sigurður og Herdís. Elsku yndislega Spánarkerl- ingin mín er farin í síðustu sigl- inguna. Mamma var hetjan mín og fyrirmynd. Ég er mjög þakk- lát fyrir tímann sem við áttum saman, og dáðist ég að dugn- aðinum og þolinmæðinni sem hún átti ótakmarkaða fyrir allan skarann sinn. Það voru allir vel- komnir á Vallholtið og ég man ekki heimilið öðruvísi en fullt af fólki. Ef ekki börnin þeirra þá vinkonur hennar að koma og fá þýddar prjónauppskriftir úr dönsku blöðunum eða taka upp snið eða bara í kaffi. Alltaf var verið að baka brauð, skúffu- köku, heila skúffu af snúðum, skonsum og fleira. Á meðan sátum við krakk- arnir við eldhúsborðið með lær- dóminn og hún sagði ávallt „þú þarft að skilja til að læra“ t.d. skilja textann í ljóðinu til að læra hann. Mamma klippti okk- ur, saumaði, prjónaði og heklaði á okkur. Vinir okkar komu í klippingu og Tony-permanent þegar það var í tísku. Það var alltaf fundinn einhver blettur í húsinu til að við gætum leikið okkur í Barbí eða einhverju öðru. Tónlist var mikið spiluð á heimilinu, það var sungið alla daga. Ég dáðist alltaf að afstöðu mömmu þegar átti að taka hana í bakaríið í pólitík, aldrei talaði hún niður til fólks eða valtaði yfir það með sínum skoðunum heldur ræddi málin og skemmti sér við að kynda undir æsing svo fólk varð oft ansi hávært og mikið fjör. Það var alltaf hægt að ræða við mömmu um öll heimsins mál, hún var inni í öllu. Mamma missti mömmu sína 8. desember 1942, þá 13 ára, og fór þá til afa Eyjólfs sem þá bjó á Þurá í Ölfusi en amma hennar og nafna Guðlaug Hann- esdóttir lést árið 1935. Mamma fór þaðan til Reykja- víkur að klára skólann. Þar bjó hún hjá Sigríði Stefánsdóttur sem hún minntist ævinlega sem mömmu Siggu og elskaði mikið sem og börn hennar. Mamma og Elsa systir hennar voru í þjón- ustustarfi hjá fjölskyldu í Reykjavík og ýmsum öðrum störfum þar til hún kynntist pabba og flutti til Ólafsvíkur. Ég fékk þann heiður að vinna með mömmu í frystihúsi Ólafs- víkur og var hún skörungur í því eins og öðru. Systur mömmu komu í „Stígvélavík“ eins og sagt var í gamni og kölluðum við Hveragerði „Gúrkugerði“ en þar bjó Hulda systir mömmu. Hún og Hilmir eiginmaður hennar komu með gúrkur og tómata til okkar. Elsa systir mömmu var alltaf fína frúin í Garðabæ og kom í heimsókn með bjútíboxið sitt. Þegar þær komu saman allar þá sungu þær og Hulda spilaði á gítarinn. Afi Sveinn bjó hjá okkur á Vallholtinu frá 1965 til ca. 1972. Mamma tók þá ákvörðun að prófa að fara til Spánar og var það ákvörðun sem þau sáu ekki eftir, þau yngdust um mörg ár á Spáni og eignuðust marga vini. Þegar þau voru flutt í Hvera- gerði varð það ættaróðalið og oft ansi margt um manninn. Þegar mamma kvaddi var hún umvafin ást margra afkomenda sinna. Elsku mamma mín, takk fyrir allar samverustundirnar, öll faðmlögin og alla ástina sem þú gafst mér. Minning þín lifir. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér þinn kærleikur í verki er gjöf sem gleymist eigi og gæfa var það öllum er fengu að kynnast þér (Ingibjörg Sigurðardóttir) Sigurlaug Egilsdóttir. Eftir erfið veikindi hefur elsku mamma kvatt. Fyrir tæpu ári tjáði læknir hennar okkur að hún ætti ekki langt eftir, við mættum búast við að hún færi að rugla og geta dottið út. Með látum kom ég til landsins til að kveðja hana meðan hún enn væri „með viti“. Þær urðu þó fleiri ferðirnar sem veittu mér gleði við að hitta hana, þó að sárt hafi verið að sjá henni hraka. Hugur og heyrn voru þó ætíð skýr og tær til dauðadags. Mamma var einstök mann- eskja á svo margan hátt. Hún hafði einstakt lag á að hlusta og ræða við fólk hvort heldur börn, unglingar, fullorðnir eða þýskur nágranni áttu í hlut. Þennan eiginleika læt ég barnabörnum hennar eftir að lýsa í öðrum greinum, en þau áttu hug henn- ar og hjarta. Nýjungagirni og námfýsi var henni í blóð borin. Með brosi á vör minnist ég örbylgjuofnsins sem hún komst upp á lag með að nota, þó ekki öllum til ánægju. Bakaði og sauð, og voru uppi kenningar um að sósan kæmi þaðan líka. Þá tók hún sig til einn daginn og fór að læra innanhúss arkitektúr í erlendum bréfaskóla og sjálfmenntuð var hún að mestu í ensku, dönsku og gat borið fyrir sig þýsku í einföldum samskiptum. Mamma var kímin og hafði oft gaman af að kasta einhverju fram sem hún vissi að myndi valda ólgu. Leyfði sér jafnvel að skálda inn í sannleikann til að kveikja enn frekari umræðu. Svo þegar hitna fór í umræðunni og borin var á hana ósannsögli sagði hún með prakkarasvip: „Já, þetta er nú kannski ekki alveg rétt.“ Á Vallholtinu var oft mikið fjör í 10 barna hópi og síðar komu börnin með barnabörnin. Einstök minning úr æsku er þegar mamma á sjónvarpslausa deginum las upp úr Søndags BT sakamálasögur. Eða minningin að vakna á laugardagsmorgnum og finna kökuilminn af nýbökuðum kök- um sem bakaðar voru í miklu magni og úrvali. Og að hugsa til baka um þolinmæðina að að- stoða hvert og eitt barn með heimalærdóminn. Svo voru það vinkonur og nágrannakonur sem eyddu dágóðum tíma við eldhúsborðið, jafnvel meðan hún sinnti verkefnum þessa stóra heimilis. Mamma, litla konan með stóra hjartað, sem hafði óbilandi trú á öllu sínu fólki og stóð með því í hverju sem það tók sé fyrir hendur. Hlustaði á vandamál þess og stappaði í það stálinu. Í þeim anda taldi hún okkur á að flytja til Spánar, þar sem þau höfðu komið sér fyrir, og var það ein sú besta ákvörðun sem við höf- um tekið. Árin sem við áttum saman á Spáni gáfu okkur svo mikið. Morgungöngurnar með- fram ströndinni, að dýfa tánum í sjóinn á vetrardögum, kvöld- verðirnir saman að ógleymdum morgunkaffibollanum. Á Spáni fóru mamma og pabbi að njóta sín og lifa lífinu, eftir að hafa komið upp tíu börnum og hjálp- að til með ófá barnabörnin. Þau nutu þess að fá fólkið sitt og vini í heimsókn og alltaf var jafn gaman að ræða við hana um allt milli himins og jarðar. Elsku mamma, með tárum mun ég kveðja þig, þú gafst mér svo mikið og varst alltaf til stað- ar. Það verður erfitt að hugsa framtíðina án þín, en hlýja þín og innileiki mun verma sál mína og styrkja. Guð geymi þig, elsku mamma mín. Agla Egilsdóttir. „Sáuð þið hana systur mína“. Þetta er lagið okkar ömmu. Ég sit uppi á eldhúsbekk, kannski um fjögurra ára gömul, og amma stendur hjá mér, heldur í hendurnar mínar og syngur fyr- ir mig. Svo fallega. Hún er að kenna mér textann. Ég lærði hann fljótt og fannst lagið svo fallegt, sérstaklega þegar hún söng það. Ég sá fyrir mér sög- una og ímyndaði mér alltaf að lagið væri um ömmu þegar hún var ung því hún geymdi stóran kuðung í herberginu inn af eld- húsinu á Vallholti 9 sem ég ruglaði saman við hörpudiskinn í laginu. En hún söng mikið og sagði okkur bróður mínum oft sögur. Sagnalistin var henni auðveld og hún hefur alla tíð skáldað mikið, hvort sem það hafa verið sögur fyrir okkur barnabörnin eða ýmsar stað- reyndir, fréttir eða skoðanir annarra. Svo hló hún bara, smit- andi hlátri, þegar maður mót- mælti og sagði hana vera að rugla eitthvað, þetta gæti ekki staðist. En það vorum ekki bara við barnabörnin sem græddum á umgengninni við ömmu. Hún gat platað mann til að greiða sér og nudda á sér hausinn. Hún settist þá í hægindastólinn og ég stóð fyrir aftan hana, gróf tásurnar á milli hennar og stól- armanna og greiddi, fiktaði, klóraði og nuddaði á henni haus- inn. Þegar ég nennti ekki að fikta meira gat hún platað mig til að halda áfram með hárfroðu. Og hér var ekkert til sparað. Að fá að leika sér með hárfroðu í hárinu á ömmu var toppurinn. Amma þurfti alltaf í sturtu á eftir, ekki gat hún látið sjá sig með hanakamb eða óleysanlega flækju í hnakkanum enda var hún alltaf smekkmanneskja og vel tilhöfð. Amma og afi bjuggu lengi í Vallholti 9 og það á stóran stað í hjarta mínu. Mitt annað heimili. Ég sagðist myndu flytja til ömmu og afa ef mamma og pabbi myndu einhvern tímann skilja. Ástríkara heimili er vandfundið og ég get rétt vonað að ef ég eignast barnabörn sjálf muni þeim líða eins vel og mér leið hjá ömmu og afa. Þar var alltaf líf og fjör. Einskonar fé- lagsmiðstöð. Mín kynslóð barna- barna (því þær eru nokkrar) mátti oft horfa á litla sjónvarpið í svefnherberginu hjá afa og ömmu og þar lágum við öll í kös. Við máttum meira að segja borða ís uppi í rúmi, en kannski afi hafi ekki vitað af því. Það var augljóst hvað ömmu þótti vænt um okkur og fannst gaman að taka þátt í fíflalátunum. Amma var stolt af fjölskyldunni sinni og nefndi oft við mig hversu heppin hún væri. Þvílíkur fjár- sjóður sem hún bjó sér til. Við sem eftir stöndum fáum svo að njóta þessa fjársjóðs því stórfjölskyldan er einstök eins og amma var sjálf. Hún var mikil fyrirmynd, með stærsta hjarta, hlýjasta faðm, mýkstu hendur og bestu nærveru sem ég veit um. Ég elska þig amma, og mun alltaf sakna þín. Þú varst engri lík. Þín Dagný. Elsku amma, ég var búin að vera að kvíða fyrir þessum degi lengi, deginum sem pabbi myndi hringja með slæmu fréttirnar. En það kom samt sem áfall, það var svo erfitt að hafa ekki getað komið til Íslands og kvatt þig. Við áttum saman góðar stundir fyrr á árinu og voru þær ómet- anlegar. Þú varst ein besta amma sem nokkur gæti beðið um, hjartahlý, umhyggjusöm og skemmtileg. Frábærar æskuminningar á ég frá Ólafsvík, þegar ég kom til ykkar afa úr Reykjavík ótal- mörg sumur. Það fyrsta sem maður gerði var að venjast há- vaðanum sem óneitanlega fylgdi heimili ykkar, skari af barna- börnum var alltaf til staðar og þessi smásteytingur milli ykkar afa sem ég endaði auðvitað bara á að hlæja að. Enda fattaði ég það fljótt að þar voru engin ill- indi, bara ást. Þú vissir hve mikinn áhuga ég hafði á því yfirnáttúrlega og ýttir vel undir þann áhuga með því að segja mér sögur af geim- verum á Snæfellsjökli og sýndir mér myndina sem þú tókst af geimskipinu svífandi yfir jökul- inn. Ég sagði öllum sem vildu heyra þessar sögur og var stolt af ömmu sem tók myndina góðu. Einnig sagðir þú mér að þú og uppáhaldsleikstjórinn minn, Steven Spielberg, hefðuð verið í bréfaskiptum í langan tíma og ég var kolfallin. Þú vissir hvern- ig átti að lífga upp á tilveruna og ímyndunarafl mitt fór alltaf á fullt eftir spjall við þig. Allt var mögulegt, frá því að geta talað við idolið sitt til geimvera. Það skiptir engu máli hvort þetta var satt eða ekki, möguleikinn var til staðar og það var frábær tilfinning sem þú skildir eftir hjá mér og hefur bara vaxið yfir árin. Þegar ég var komin á ung- lingsárin og vildi helst bara hanga fyrir framan sjónvarpið var ég velkomin að hafa það kósí í rúminu ykkar afa á dag- inn og horfa á Simpsons í litla sjónvarpinu fyrir ofan rúmið. Man alltaf eftir því hve vel mér leið þarna og þú vildir bara að ég hefði það gott og það lýsti þér vel. Þú varst alltaf svo góð og umhyggjusöm. Þegar þið voruð flutt til Spánar var yndislegt að koma í heimsókn til ykkar og sjá hve vel ykkur leið þar. Þú naust þín sérstaklega í sólinni og við af- komendurnir vorum ekki ódug- leg að koma og njóta hennar með ykkur. Þetta voru ógleym- anlegir tímar með þér og afa. Þessi minningabrot eru ómet- anleg, ég mun halda þeim fast í hjarta mér og deila þeim með öðrum við mörg tækifæri í framtíðinni. Þú varst viskubrunnur og ávallt tilbúin að hlusta og gefa góð ráð. Það brást ekki að manni leið alltaf vel eftir spjall við Laugu ömmu. Það var svo gefandi að tala við þig, elsku amma, og ég á eftir að sakna þess mikið. Ég á eftir að sakna þín, takk fyrir alla ástina, ég elska þig. Auður Elín Sigurðardóttir. Elsku amma okkar. Þú varst alltaf svo yndisleg og góð. Við munum sakna þess að geta ekki komið í kaffispjall til þín og rætt heimsmálin. Það er óraun- verulegt að hafa þig ekki lengur hjá okkur. Til ömmu minnar: Hvernig er hægt að þakka, það sem verður aldrei nægjanlega þakkað. Hvers vegna að kveðja, þann sem aldrei fer. Við grátum af sorg og söknuði en í rauninni ertu alltaf hér. Höndin sem leiddi mig í æsku mun gæta mín áfram minn veg. Ég veit þó að víddin sé önnur er nærveran nálægt mér. Og sólin hún lýsir lífið eins og sólin sem lýsti frá þér. Þegar að stjörnurnar blika á himnum finn ég bænirnar, sem þú baðst fyrir mér. Þegar morgunbirtan kyssir daginn, finn ég kossana líka frá þér. Þegar æskan spyr mig ráða, man ég orðin sem þú sagðir mér. Vegna alls þessa þerra ég tárin því í hjarta mínu finn ég það, að Guð hann þig amma mín geymir á alheimsins besta stað. Ótti minn er því enginn er ég geng áfram lífsins leið. Því með nestið sem amma mín gaf mér, veit ég að gatan hún verður greið. Og þegar sú stundin hún líður að verki mínu er lokið hér. Þá veit ég að amma mín bíður og með Guði tekur við mér. (Sigga Dúa) Við munum sakna þín og allar góðu stundirnar munu lifa í minningu okkar. Elsku afi, missir þinn er mik- ill og við biðjum Guð að styrkja þig á þessari erfiðu stundu. Guðlaug, Kolbrún, Sigrún Heiða og Ágústa Sveins- dætur. Elsku amma mín, mér þykir það svo leiðinlegt að þú sért nú búin að kveðja þennan heim. Það er tómarúm sem fylgir þeirri tilfinningu, því að af þér stafaði ávallt svo mikil hlýja og ótakmörkuð ást. Mér hefur alltaf þótt það svo magnað að finna hversu vel þú lést manni líða með engu öðru en nærveru þinni og að sjá það í augum annarra sem þú talaðir við að þeim leið eins. Hvernig fórstu að því að vera svona dásamleg manneskja, sem fékk mann alltaf til að líða eins og maður væri sérstakur og ein- stakur? Ég vona að ég verði þess aðnjótandi að verða amma einn daginn og geti sýnt af mér sömu hlýju og þú hefur veitt mér. Það var ávallt svo notalegt að ræða við þig um alla heima og geima. Sérstaklega fannst mér gaman að heyra sögur af ykkur afa. Ég vildi óska þess að ég hefði skrifað niður sögurnar eft- ir hvert skipti sem ég hitti þig, því það er sorglegt hvað minni manns er hverfult og nær ekki að varðveita almennilega þær lýsingar. Þú hefðir pottþétt Guðlaug Sveinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.