Morgunblaðið - 22.09.2018, Síða 34

Morgunblaðið - 22.09.2018, Síða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 ✝ Victor Frið-þjófur Guðna- son fæddist 6. júní 1965 í Vestmanna- eyjum. Hann lést að heimili sínu að Búa- staðabraut 8 hinn 6. september 2018. Foreldrar Vict- ors voru einnig frá Vestmannaeyjum, en þau voru Ágústa Guðmundsdóttir frá Saltabergi, verslunarmaður, f. 5.1. 1937, d. 3.11. 2016, og Guðni Friðþjófur Pálsson frá Þingholti, matsveinn, f. 30.9. 1929, d. 18.2. 2005. Victor á þrjú systkini, en þau eru: 1) Hlöðver Sigurgeir, f. 23.2. Smári, f. 9.3. 1984, og Ásgeir Emil, f. 15.4. 1997. Árið 2003 hófu Victor og Hulda Sumarliðadóttir, f. 7.1. 1971, sambúð í Vestmanna- eyjum að Búastaðabraut 8. Þau gengu í hjónaband 3. október 2009 en slitu samvistum í maí 2011. Börn Victors og Huldu eru: Guðni Friðþjófur, f. 3.3. 2003, Halldór Páll, f. 8.5. 2005, Kristinn Freyr, f. 4.6. 2007, og Tómas Ingi, f. 24.7. 2009. Sonur Huldu er Róbert Emil, f. 7.9. 1996. Victor ólst upp í Vest- mannaeyjum, hann fór í Barna- skóla Vestmannaeyja og að hon- um loknum í Gagnfræðaskólann. Að loknu námi stundaði hann sjómennsku og fór síðan í Stýrimannaskóla Vestmanneyja og starfaði við sjómennsku til ársins 2005. Útför Victors fer fram frá Landakirkju í Vestmanneyjum í dag, 22 september 2018, klukkan 14. 1957, börn hans og Ernu Andreasen, f. 5.12. 1962, eru: Bjarki, f. 12.10. 1984, unnusta Rak- el Gísladóttir, f. 12.8. 1983, börn Bjarka og Rakelar eru Nóel, f. 16. 4 2008, og Máni, f. 3.9. 2009. Ásta, f.7 .2. 1991. Maki Hlöðvers er Ólöf Svava Guðmundsdóttir, f. 2.9. 1960, dóttir þeirra er Sig- ríður, f. 7.1. 1999. Synir Ólafar eru Fannar, f. 12.9. 1985 og Ísak 15.7.1989. 2) Ólafur Óskar, f. 21.5. 1959. 3) Sigríður Ágústa, f. 25.9. 1960, synir hennar eru Viktor Elsku pabbi, þú ert farinn frá mér og ég fæ aldrei að sjá þig aftur. Af hverju varstu tekinn frá mér? Þú og ég vorum alltaf að brasa eitthvað að vinna og hjálpa að smíða og taka til. Við fórum út í eyju og á bátinn, það er svo gam- an. Í sumar fórum við í gókart allir saman og svo fórum við í sumarbústað og berjamó og svo heim til að gera sultu. Það var alltaf svo gaman hjá okkur á Þjóðhátíð. Þú kallaðir mig litla meistarann þinn. Í dag kveð ég þig með sorg í hjarta og geymi minningar mín- ar um þig í hjarta mínu Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Elsku pabbi, þú ert bestur í heimi. Þinn Tómas Ingi. Elsku pabbi, ég skil ekki neitt, nú ert þú farinn og ert með afa Guðna og ömmu Dúddý. Af hverju tók Guð þig frá mér? Við áttum eftir að gera svo margt saman og þú áttir eftir að kenna mér svo margt, Þú ert ÍBVari og ég FH-ingur, þú hélst með Man- chester United en ég Liverpool og það þótti þér nú skrýtið og sagðir við mig að ég væri bara bæði. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Þinn Kristinn Freyr. Elsku pabbi minn, nú ertu far- inn frá mér og ég mun sakna þin alltaf. Ég var alltaf uppáhalds strákurinn þinn og við góðir vin- ir. Þú hvattir mig áfram í fót- bolta og handbolta hjá ÍBV. Þú kenndir mér að spranga og gafst þér góðan tíma til þess og þegar þú kenndir mér að spranga frá stígvélinu. Ég man þegar við fórum fyrst á ribsafari og báturinn fór á hlið og við fórum í hring. Þú með okkur úti á bátnum og sagði við mig að einhvern daginn færi ég á bananann og sjóskíði/sjóbretti. Ég man þegar ég kom heim af Þjóðhátíð með 6.000 kr. sem ein- hver gaf mér því ég var að safna dósum, þá varst þú stoltur. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (höf. ók.) Ég fel í sérhvert sinn sál og líkama minn í vald og vinskap þinn vörn og skjól þar ég finn (Hallgrímur Pétursson) Halldór Páll. Kæri pabbi minn, þú varst tekinn svo snöggt og engin við- vörun um að eitthvað væri að. Þú gerðir þitt besta fyrir okkur þrátt fyrir gigtina og bakveikina. Þú ert besti faðir í heimi. Þó að þú ættir til að vera strangur stundum varst þú alltaf skemmtilegur og góður. Við áttum svo skemmtilegar stundir á hverri Þjóðhátíð. Þú og mamma fóruð með mig aðeins þriggja mánaða upp í Bjarnarey og þú stimplaðir hönd mína þann dag í gestabókina út í eyju sem yngsta barnið sem hafði komið þar upp. Að fara með þér út í eyju var yndislegt og gaman, sagðir þú okkur sögur þaðan oft. Þú reyndir alltaf að fylgja mér í handbolta og fótbolta. Í dag er ég bara 15 ára og þú áttir eftir að fara með mig í æf- ingaakstur og sjá mig fá bílpróf og fara í menntaskóla en þú vild- ir að ég myndi gera mitt besta alltaf og fer ég með það í vega- nesti út í lífið. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil svo ég sofi rótt. (Foersom, þýð. Sveinbjörn Egilsson) Elsku pabbi, hvíl í friði Þínn Guðni Friðþjófur. Í dag kveð ég elskulegan bróður minn. Victor var dásam- legur og gott að alast upp með honum og mikil forréttindi að alast upp í Vestmannaeyjum sem krakkar. Sem ungbarn var hann auðvitað algjör gullmoli og fal- legur. Sem unglingur var hann ærslafullur og hafði gaman af líf- inu. Góður í fótbolta og öllum þeim íþróttum sem hann tók sér fyrir hendur. Flottasta tímabilið hans var Bruce Lee og karate-tímabilið. Stundum hélt ég að hann ætlaði ekki að hætta að vera unglingur ásamt nokkr- um öðrum frændum sínum en það breyttist allt þegar hann hitti Huldu barnsmóður sína árið 2002. Loksins orðinn fullorðinn og með henni eignaðist hann fjóra sólargeisla; Guðna, Halldór Pál, Kristin Frey og Tómas Inga. Hófu þau fljótlega sambúð á Búastaðabraut 8. Victor stundaði og elskaði sjó- mennsku. Kláraði Stýrimanna- skólann í Vestmannaeyjum og var síðan lengstum á sjó með frændum sínum á Hugin og Berg. Þar átti hann dásamlegan tíma og skemmtileg ár. Það var alltaf gaman að spjalla við hann um sjómennskuna og allt snerist þetta um góðan aðbúnað og flott- ar græjur. Sjálfur þekkti ég ágætlega til og var síðan með honum eina stutta vertíð á Hug- in og mikið spjallað. Samhliða þessu samtvinnaðist síðan út- eyjalífið, sem var lundaveiði og eggjataka í Bjarnarey. Við byrj- uðum saman sem unglingar með afa Súlla á Saltabergi og síðan komu aðrir góðir félagar með okkur í Bjarnarey. Vestmanna- eyjar og umhverfið þar er æv- intýraland, náttúruundur og Bjarnarey toppurinn að hans mati. Kvöldkyrrðin og ómurinn í berginu. Margar ævintýraferðir á tuðrunni í misgóðum veðrum út í Bjarnarey og skemmtilegar veiðiferðir og kvöldvökur. Árið 2005 varð Victor að segja skilið við sjómennskuna vegna slæms heilsufars. Bakið var orðið slæmt og illa farið eftir mikil átök. Það lagðist mjög þungt á hann að geta ekki unnið fullan vinnudag og hvað þá að þurfa að hætta á sjó. En þá komu sólargeislarnir inn í líf hans með stuttu millibili og allt snerist um þá. Það eru svo ævintýralega stórir og miklir hlutir sem hann gerði fyrir þá, ÍBV og Þjóðhátíðin. Jólin, ára- mótin og þrettándagleðin og svo allar ferðirnar út í Bjarnarey og siglingar við Vestmannaeyjar og ferðirnar upp á land. Það átti að kenna þeim réttu handtökin og leyfa þeim að upplifa náttúruna eins og Victor þekkti hana best. Victor var alltaf boðinn og bú- inn að hjálpa öðrum og var mjög handlaginn. Hann dreymdi um að verða smiður þegar hann var yngri og þau handtök voru aldrei honum ókunn. Síðustu árin bjuggu móðir okkar og bróðir hjá honum eftir að þau misstu húsið sitt í miklu fárviðri 2015. Victor sigldi ekki alltaf lygnan sjó í lífinu og þurfti að takast á við nokkra brotsjói. Ég fékk að fylgjast með og taka þátt í þeim raunum enda vorum við mjög nánir. Stundum áttum við mikið spjall og mörg símtöl sama dag- inn. Það var kominn mikill hugur í Victor og nokkur framtíðar- áform sem unnið var að hörðum höndum. Það var bjart fram und- an og tilhlökkun, og næsta sum- ar átti að taka með stæl eins og margt annað sem hann tók sér fyrir hendur ásamt vinum og strákunum sínum. Hvíl í friði, elsku vinur og bróðir. Hlöðver Sigurgeir Guðnason. Victor bróðir minn er dáinn. Ég er harmi slegin bæði vegna þess að hann er fallinn frá fjór- um ungum drengjum sem voru mjög hændir að pabba sínum og líka vegna þess að Victor var einn af bestu vinum mínum og hann var góð föðurímynd strák- anna minna og vinur. Ég á margar góðar minningar um hann sem munu ylja mér. Fyrir stuttu var ég að keyra um í Fljótshlíðinni í yndislegu veðri. Ég ákvað að stöðva bílinn og ganga aðeins um og horfa yfir til Eyja og hugsa um nýliðinn sorg- aratburð. Þá kom upp minning sem var haldin á lofti alla tíð heima hjá okkur. Victor er sex eða sjö ára gamall og fjölskyldan í sumarfríi. Við erum á leið aust- ur í Vík í Mýrdal þegar mamma og pabbi segja okkur að þarna séu Eyjarnar sem skarta sína fegursta. Þá segir Victor að þær séu ekki bara fallegar heldur eru þær eins og demantar. Þetta eru demantarnir hans. Síðan lagðist hann niður á bílgólfið og grét há- stöfum. Hann vildi fara heim til Eyja og hvergi annars staðar vera. Victor var ekki bara mikill Vestmannaeyingur. Hann var líka Þingholtari, Johnsen, ÍBV- ari, Bjarnareyingur og besti pabbi í heimi. Um fertugt greindist Victor með psoriasis-gigtarsjúkdóm og hætti hann því á sjó. Hann var heima og hugsaði um heimilið og peyjana sína fjóra, sem honum þótti mjög vænt um. Báðir drengirnir mínir litu upp til Victors og hann var ein- staklega góður við þá. Hann tók þá með sér á bryggjurúnt þegar þeir voru litlir, fór með þá um borð í bátana, tuðruferð út í Bjarnarey, pysjuveiðar og gaf þeim bíla í jólagjöf. Þegar hann eignaðist sína drengi hélt hann líka áfram að hugsa um strákana mína. Victor var mjög laghentur og var ég mjög heppin að hafa hann sem bróður minn. Hann var alltaf tilbúinn að koma og hjálpa til ef eitthvað þurfti að laga. En stundum tók það nú alveg tímana tvo að gera hlutinn og ég kannski orðin pínu pirruð yfir því hvort hann ætlaði ekki klára en það hafðist alltaf. Biðin var líka svo sannarlega þess virði því Victor var mjög vandvirkur. Móðir okkar lést fyrir tæpum tveimur árum. Það var honum þung byrði. Hún hafði verið hon- um stoð og stytta í veikindum hans og þegar hann gekk í gegn- um erfitt skilnaðartímabil átti hann öruggan stuðning hjá okk- ur mömmu. Það eru dýrmætar minningar öll samtölin sem við áttum á þeim tíma því þó að hann væri að ganga í gegnum Victor Friðþjófur GuðnasonElskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HANNES BJARNI KOLBEINS ökukennari, lést í Svíþjóð sunnudaginn 16. september. Útförin fer fram frá Bredåkra kyrka í Svíþjóð miðvikudaginn 3. október klukkan 13. Minningarathöfn á Íslandi verður auglýst síðar. Guðrún Hildur Kolbeins Atli Már Guðjónsson Jóhanna Rósa Kolbeins Kristine B. Kolbeins Arnhildur Ásdís Kolbeins Þórarinn K. Ólafsson Þorkell Kolbeins Eyrún Steindórsdóttir Kolbrún P. Hannesdóttir Eyjólfur Þór Jónsson Hera Guðrún Cosmano barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRIR GUÐMUNDSSON, Hæðarbyggð 1, Garðabæ, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu fimmtudaginn 6. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hans ósk. Guðrún Þórisdóttir Adrian Huber Steinunn Þórisdóttir Aðalheiður Þórisdóttir Kristbjörg Þórisdóttir Bragi Reynir Sæmundsson og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARÍA ERNA ÓSKARSDÓTTIR frá Brú í Biskupstungum, til heimilis í Vesturbergi 30, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut fimmtudaginn 20. september. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 26. september klukkan 13.00 Helga Marta Helgadóttir Hannes Svanur Grétarsson Þórður Ágúst Hlynsson Astou M. Hlynsson Aðalheiður Lilja Hlynsdóttir Guðjón Svanur Hermannsson og ömmubörn Ástkær móðir mín, ÁSLAUG GUÐJÓNSDÓTTIR, Safamýri 42, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 20. september. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðjón Ágúst Luther Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNNUR HALLDÓRSDÓTTIR, sem lést mánudaginn 17. september, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 27. september klukkan 13. Halldór, Bryndís, tengdabörn og barnabörn Elskulegur bróðir okkar og frændi, PÁLL AUÐAR ÞORLÁKSSON, bóndi, Sandhól, Ölfusi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi, mánudaginn 10. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Rósa Þorláksdóttir Sveinn Þorláksson og frændsystkini

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.