Morgunblaðið - 22.09.2018, Síða 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018
erfitt tímabil var líka stutt í
glettnina hjá honum.
Víst er fagur Vestmannaeyjabær,
vinaleg er einnig Heimaey.
Þú heillandi ert himinblái sær,
af Hásteini má greina lítið fley.
Hér ég þekki hvern hól,
hverja þúfu, hvert ból,
hér er náttúran fögur og rík.
Hér ég átthaga á, hér ég dvelja vil fá
þar til aldinn ég æviskeiði lýk.
Helgafell ég lít og Herjólfsdal,
af Hánni undurfögur útsýn er.
Ganga meðfram Skansinum ég skal,
er skyggir út í Bjarnarey ég fer.
(Valgeir Guðjónsson)
Megi minningin um bróður
minn lifa því ég mun leitast við
að muna alla góðu stundirnar
með honum. Sonum hans votta
ég mína dýpstu samúð, ég mun
alltaf verða til staðar fyrir þá.
Sigríður Ágústa Guðnadóttir.
Fregnin um andlát Victors
systursonar míns kom eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Kvöldið
áður hittumst við fyrir utan
Saltaberg í fallegu veðri og lögð-
um á ráðin um spennandi áform í
náinni framtíð. Þá amaði ekkert
að honum en 10 klst. síðar var
hann allur, 53 ára að aldri.
Hátt er reitt til höggs og
harmur margra er mikill og
maður spyr sig hver sé tilgang-
urinn. Svör við slíkum spurning-
um liggja heldur ekki á lausu.
Þannig er tilvera okkar, ekkert
er öruggt annað en það sem liðið
er og líðandi stund en framtíðin
óskrifað blað. Þess vegna er tím-
inn svo dýrmætur, enginn veit
sitt skapadægur.
Victor fór ungur að árum til
lundaveiða í Bjarnarey með afa
sínum Súlla á Saltabergi og
kynntist þá töfrum úteyjanna.
Þá var hann öllum hnútum kunn-
ugur úr sjómennskunni og ekki
ónýtt að hafa hann til taks þegar
útbúa þurfti byggingarefni til
flutnings út í Eyju.
Þá var það á sínum tíma
metnaðarmál okkar frændanna
að fara með börnin okkar sem
yngst út í Eyju „til að venja þau
við“ eins og sagt er og stærði ég
mig af því við Victor að hafa far-
ið með Sóleyju dóttur mína
þangað eins árs gamla. Victor
bætti um betur og fór með son
sinn Guðna þriggja mánaða
gamlan. Þannig voru hlutirnir
teknir með trompi og ekkert til
sparað þegar það átti við eins og
allt umstangið í kringum Þjóðhá-
tíðartjaldið.
Victor elskaði Vestmanna-
eyjar, Bjarnarey, sjómennskuna,
Þjóðhátíðina og íþróttirnar en
einn fjársjóð átti hann dýrmæt-
astan allra en það voru synir
hans fjórir. Ást hans og um-
hyggja fyrir drengjunum var
með þeim hætti að eftir því var
tekið. Missir þeirra er eins stór
og ósanngjarn sem frekast getur
verið. Hann er hins vegar stað-
reynd og verður ekki breytt. Þín
er sárt saknað en eftir stendur
minningin um góðan dreng.
Fjölskyldan á Saltabergi vott-
ar drengjunum, systkinunum og
öðrum ástvinum okkar dýpstu
samúð.
Haraldur Geir Hlöðversson.
Elsku Victor frændi minn.
Þú varst uppáhaldsfrændinn
minn og varst alltaf svo góður
við mig þegar ég kom til Vest-
mannaeyja með pabba. Þá gist-
um við oftast hjá afa Guðna og
ömmu Dúddý uppi á Smáragötu.
Það voru mörg skemmtileg jól
sem við áttum saman þegar ég
var ung stelpa í heimsókn hjá afa
og ömmu. Þú varst alltaf svo
skemmtilegur og fyndinn, það
man ég vel. Síðan eignaðist ég
fjóra góða frændur sem eru
strákarnir þínir, sem ég veit að
elska þig svo mikið og segja að
þú sért besti pabbi í heiminum.
Síðan var alltaf svo gaman að
heimsækja þig á þjóðhátíð og
mikið gaman þá í tjaldinu þínu.
Það var líka gaman að hjálpa þér
í hvíta flotta þjóðhátíðartjaldinu
og aldrei gleymi ég pylsupartí-
unum sem voru alltaf fastur liður
í tjaldinu klukkan 11 á kvöldin.
Flottasta tjaldið í Dalnum. Elsku
Victor frændi, ég elska þig og
Guð geymi þig.
Þó sólin nú skíni á grænni grundu
er hjarta mitt þungt sem blý,
því burt varst þú kallaður á örskammri
stundu
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga
og góða
svo fallegur, einlægur og hlýr
en örlög þín ráðin; mig setur hljóða
við hittumst ei aftur á ný.
Megi algóður Guð þína sálu nú geyma
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár
þó kominn sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Höf. ókunnur)
Ásta frænka.
Viktor litli eða Victor stóri?
Svona vorum við nafnarnir að-
greindir af nánustu ættingjum.
Ég veit að Victor frændi var
ánægður þegar ég var skírður
Viktor því sama hversu mikið ég
stækkaði var ég alltaf Viktor litli
og hann var alltaf Victor stóri.
Á tímabili var hann mér einn-
ig sem stóri bróðir. Þegar ég var
lítill var ég mikið hjá ömmu og
afa á Smáragötu og Victor átti
enn herbergi hjá þeim sem hann
notaði þegar hann var ekki á sjó.
Eitt kvöldið þegar Victor var að
passa mig man ég að það var
mikill stormur úti. Við vorum
með bíómynd til að horfa á en
það vantaði nammið. Við vorum
ekki með bíl en það stoppaði
hann ekki heldur labbaði hann
niður í Krá til að kaupa bland í
poka fyrir okkur þrátt fyrir að
það væri hífandi rok. Mér fannst
það hetjudáð í svona veðri.
Einu sinni spurði ég Victor
hver munurinn væri á bassa og
gítar en hann setti þá plötu með
Queen á fóninn og spilaði
„Another one bites the dust“.
Vel valið.
Ég man þegar Victor keypti
sér kjallaraíbúð á Búastaðabraut
og stofuveggurinn var rauður
eða fjólublár að lit. Þegar hann
var svo fluttur inn fannst honum
gaman að sýna mér Pink Floyd –
The Wall tónleika á gullplötu og
sérstaka segulbandstækið sitt
sem hann var stoltur af.
Þegar ég var að taka bílprófið
bauðst Victor til að taka mig í
æfingaakstur svo ég gæti æft
mig á beinskiptan bíl. Nánast
daginn sem ég fékk bílpróf
bauðst hann til að lána mér gráa
jeppann sinn svo ég gæti æft
mig. Ég hefði ekki lánað sjálfum
mér bíl á þessu stigi en Victor
treysti mér. Ég man ekki hvort
ég hafi sagt honum að ég hafi
næstum því lent í árekstri en
hann hefði líklega bara tekið því
hlæjandi.
Victor var alltaf til taks þegar
ég bað hann um aðstoð við eitt-
hvað og alltaf þegar hann keypti
sér eitthvað nýtt bauð hann mér
að eiga gamla dótið sitt, hvort
sem það var rúm, hillur, reiðhjól
eða eitthvað í þá áttina.
Þegar ég flutti frá Eyjum
minnkuðu eðlilega samskiptin
okkar á milli og hann eignaðist
fjölskyldu og hafði í nógu að snú-
ast en ég var alltaf velkominn í
heimsókn og var alltaf vel tekið.
Við fjölskyldan gáfum honum
svo snjallsíma í afmælisgjöf fyrir
tveimur árum og það fyrsta sem
hann sagði var: „Þessi verður
flottur í Dalnum.“ Hann var
sannur Eyjapeyi, alltaf spenntur
fyrir Þjóðhátíð og alltaf gaman
að rekast á hann í Dalnum.
Nýlega fundum við gamlar
spólur úr utanlandsferð sem
Victor fór í fyrir tugum ára sem
Ásgeir bróðir minn setti í tölvu-
tækt form og ég sendi honum í
tölvupósti. Svarið sem ég fékk
frá honum var einfaldlega: „Er
búinn að liggja í hláturskasti út
af myndbandinu.“
Einhvern tíma var amma að
skutla Victori til Gylfa Viðars
frænda á föstudagskvöldi og ég
líklega 7-8 ára sat í aftursætinu
og spurði hvort Victor og Gylfi
væru kærustupar? Ég held ég
hafi sjaldan heyrt Victor hlæja
svona mikið. Mér fannst þetta
eðlileg spurning því Victor fór
svo oft til hans en kom aldrei aft-
ur heim fyrr en ég var vaknaður
daginn eftir.
Ég á margar góðar minningar
af Victori hlæjandi og ég vona að
hans verði minnst þannig.
Viktor Smári.
Í dag kveð ég kæran vin minn,
Victor Friðþjóf Guðnason frá
Vestmannaeyjum, sem varð
bráðkvaddur 6. september. Vic-
tor var minn besti og nánasti
vinur, en vinskapur okkar hófst
fyrir 30 árum þegar við deildum
saman káetu í sex ár á Hugin VE
55.
Eftir að ég flutti upp á land
árið 1997 var Victor mín helsta
tenging við eyjarnar og síðustu
15 árin höfum við verið í stöðugu
sambandi. Við töluðum síðast
saman í síma kvöldið áður en
hann dó og plönuðum helgina, en
Victor hafði verið að hjálpa mér
við endurbætur á húsinu mínu í
Eyjum. Hann var alltaf tilbúinn í
smíðavinnu með mér, var mjög
handlaginn og átti vel útbúinn
bílskúr af verkfærum.
Síðustu 15 ár höfum við Stína
konan mín og krakkarnir okkar
átt Þjóðhátíðartjald með Victori
og fjölskyldu hans. Alltaf
skemmtum við okkur jafn vel við
að undirbúa og græja tjaldið,
sem skyldi sko vera það flottasta
í dalnum og oft tókst það, við
vorum t.d. fyrsta tjaldið í dalnum
sem var með rennandi vatn. Eft-
ir Þjóðhátíð í haust þegar við
tókum niður tjaldið vorum við
ákveðnir í að skipta út eldhús-
innréttingunni og smíða nýja í
vetur, fríska tjaldið aðeins upp,
en við sjáum nú til hvernig það
gengur þegar aðalsmiðinn vant-
ar. Í tjaldinu, sem heitir Ljúft
við lifum, voru ýmsar hefðir sem
Victor passaði vel upp á að
halda. Hann bakaði t.d. alltaf
nokkrar skúffukökur fyrir börn-
in og alltaf eina með grænu
kremi. Hann sauð pylsur í tjald-
inu rétt fyrir miðnætti áður en
börnin fóru heim úr dalnum og
eins gott að gleyma ekki remúl-
aðinu eins og Stínu varð á eitt
árið. Nú, svo sátum við alltaf á
sama stað, á hólnum fyrir neðan
Mylluna, beint fyrir aftan tjaldið
okkar, og horfðum á brennuna,
blysin og flugeldana.
Elsku hjartans vinur, dreng-
irnir þínir hafa misst mikið, þú
lifðir fyrir þá og þeir elska Eyja-
lífið. Við Stína lofum að passa
upp á að halda í Þjóðhátíðarhefð-
irnar þínar með þeim. Við tveir
brölluðum líka ýmislegt annað
saman, Victor var mikill Bjarna-
reyingur, hann elskaði að fara út
í Bjarnarey á lundaveiðar en
einnig líka til að slappa af og
hafa það rólegt þar með strákun-
um sínum. Ég er nýgenginn í
Bjarnareyjafélagið og hef nokkr-
um sinnum farið út í Eyju með
Victori en nú stóð til að gera
mikið meira af því. Ég keypti
nefnilega bát í sumar með öðrum
vini mínum og var Victor sér-
legur áhugamaður að hjálpa okk-
ur með bátinn sem heitir Gutt-
ormur. Hann tók bátinn í gegn
fyrir okkur og geymdi hann í
skúrnum sínum. Stefnan var að
sigla saman út í Bjarnarey við
fyrsta tækifæri en það verður
víst ekkert af því núna. Ég trúi
því samt að þegar við loksins
siglum þangað á Guttormi verði
Victor með okkur og passi upp á
að allt gangi vel.
Elsku vinur minn, hvað ég
sakna þín. Við Stína þökkum þér
samfylgdina en það var einmitt
þér að þakka að við tvö kynnt-
umst árið 2002. Sorgin nístir
hjarta okkar nú en minningin um
frábæran vin mun lifa. Við vott-
um drengjunum þínum, systkin-
um og allri stórfjölskyldunni
okkar dýpstu samúðarkveðjur
og biðjum góðan Guð að blessa
þau í sorginni. Hvíl í friði, kæri
vinur.
Gunnlaugur Úlfar og Kristín.
Veiðifélagar í Veiðifélagi
Bjarnareyinga kveðja í dag einn
okkar besta vin og félaga.
Victor Guðnason er fallinn frá,
maður á besta aldri, okkur var
virkilega brugðið við þessa
fregn. Victor var mikill Bjarna-
reyingur og vorum við nokkrum
dögum fyrir andlát hans að ráð-
gera ferð út í Bjarnarey til að
gera húsið klárt fyrir veturinn.
Úteyjarlífið og Bjarnarey átti
hug hans og það er margs að
minnast þegar okkur verður
hugsað til Victors. Það er of
langt að telja allt sem á okkar
daga hefur drifið í Úteyjarlífinu
og eru margar sögur sem hægt
er að segja en við Bjarnarey-
ingar höfum þær í minningunni.
Kostir Victors voru margir og
nýttust vel í félagsskap eins og
okkar Bjarnareyinga. Victor var
skemmtilegur, ávallt léttur í
lund, greiðvikinn og ávallt tilbú-
inn að rétta fram hjálparhönd.
Þetta eru kostir sem góðir Út-
eyjarmenn þurfa að hafa og var
Victor öllum þessum kostum bú-
inn.
Það verður öðruvísi úti í eyju
þegar það vantar einn í þennan
góða hóp. Victors Guðnasonar
verður sárt saknað og viljum við
votta fjölskyldu Victors okkar
dýpstu samúð.
Fyrir hönd félaga í Veiðifélagi
Bjarnareyinga,
Ástþór.
Í dag kveð ég þig þar sem þú
hefur nú lagst í ferðalag til Sum-
arlandsins.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
Drottinn minn faðir lífsins ljóss
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd.
Og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku fjölskylda, ykkur sendi
ég alla mína ást, samúð og styrk
á þessum erfiðu tímum.
Guðni Friðþjófur, Halldór
Páll, Kristinn Freyr og Tómas
Ingi, ykkur sendi ég mína inni-
legustu samúðarkveðju. Missir
ykkar er mikill enda elskaði
hann ykkur meira en lífið sjálft.
Hvíl í friði, elsku vinur minn.
Þín verður sárt saknað.
Þinn vinur,
Halldór Jörgen.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Við þökkum auðsýnda samúð vegna
andláts ástkærrar móður okkar, ömmu
og langömmu
GUÐRÚNAR SJAFNAR JANUSDÓTTUR.
Karen Kjartansdóttir
Valborg Kjartansdóttir
Kjartan Kjartansson
barnabörn og barnabarnabörn
Faðir minn, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
GARÐAR VÍÐIR GUÐJÓNSSON
frá Tunguhálsi,
Hásæti 9B, Sauðárkróki,
lést á HSN, Sauðárkróki, þriðjudaginn
18. september. Útför hans mun fara fram í kyrrþey.
Vala Jóna Garðarsdóttir Viðar Þórðarson
Ingibjörg Sigtryggsdóttir Gunnar Steingrímsson
Brynhildur Sigtryggsdóttir Ómar Kjartansson
Þorsteinn Ólason
barnabörn og fjölskyldur þeirra
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi, bróðir og mágur,
GUNNAR ÞORSTEINSSON
félagsliði,
Skipholti 40
lést á heimili sínu laugardaginn
15. september. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn
28. september klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Ingveldur Þorkelsdóttir
Elva Dögg Gunnarsdóttir Vagn Leví Sigurðsson
Hrannar Leví Elvuson
Þórsteinn Ingi Einarsson
Gunnar Leví Vagnsson
Una Ingveldur Vagnsdóttir
Elvar Máni Hrannarsson
Sigríður Helga Þorsteinsd. Jón Ingi Guðmundsson
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærrar móður
okkar, systur, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
INGIBJARGAR SUMARLIÐADÓTTUR
frá Viðvík á Hellissandi,
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar- og
dvalarheimilinu Brákarhlíð, Borgarnesi.
Helga Nína Svavarsdóttir Ingi Þ. Ólafsson
Svava Björg Svavarsdóttir Guðmundur V. Guðsteinsson
Eyjólfur Garðar Svavarsson Halla Dröfn Júlíusdóttir
Svana Sumarliðadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar