Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 38
38 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 Ég er á uppskeru-tímanum, það ertíminn eftir að launavinnu lýkur,“ segir Margrét Hrefna Sæ- mundsdóttir sem á 75 ára afmæli í dag. „Ég hef upp- lifað margt skemmtilegt í lífinu en með því skemmti- legra sem ég hef gert var að skrá mig í Háskóla Ís- lands og útskrifast þaðan með BA-gráðu í listfræði og heimspeki þegar ég var 71 árs. Það er svo gaman að læra eitthvað nýtt þeg- ar maður hefur allan heimsins tíma og er við góða heilsu. Ég hef spilað brids við skemmtilegar konur í yfir 40 ár, verið í göngu- og skemmtihóp sem kallar sig Fondurnar í álíka langan tíma og í öðrum gönguhóp sem heitir Ganglerar, allt skemmtilegt og gott fólk. Við hjónin byrjuðum að spila golf 2005 og höfum haft mikla ánægju af því bæði innanlands og erlendis.“ Margrét vann lengst af hjá Umferðarráði og hlaut viðurkenningu fyrir störf sín þar. „Ég var borgarfulltrúi Kvennalistans sem mér finnst merkilegasta stjórnmálahreyfing sem upp hefur komið á Ís- landi. Við komum miklu í verk og breyttum þjóðfélaginu á marga vegu. Síðar var ég í borgarstjórn fyrir Reykjavíkurlistann.“ Eiginmaður Margrétar er Þorkell Erlingsson verkfræðingur og börn þeirra eru Hlín sem er verkfræðingur og vinnur hjá Cowi í Osló og Erlingur sem er tæknifræðingur og vinnur hjá Marel. Maður Hlínar heitir Jörn Sollid og á börnin Eirik og Martine. Kona Erlings heitir Ásbjörg Magnúsdóttir og börn þeirra heita Þorkell Máni og Þórhildur Freyja. „Við héldum upp á 75 ára afmælið fyrirfram í sumar, öll fjöl- skyldan. Við leigðum okkur hús rétt hjá Kragerö fyrir sunnan Osló. Tengdasonur minn á skútu sem gaman var að sigla á um Oslóar- fjörð, við höfðum strönd út af fyrir okkur og þar var buslað í sjónum og siglt á kajökum og bát. Ég er núna stödd í Osló hjá dóttur minni en Eirik er að fara að fermast.“ Á skútu Margrét á siglingu í Oslóarfirði. Nýtur lífsins á uppskerutímanum Margrét H. Sæmundsdóttir er 75 ára í dag B ryndís Pétursdóttir fæddist á Vattarnesi í Fáskrúðsfirði 22.9. 1928 en flutti með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur er hún var sex ára. Bryndís gekk í Verzlunarskóla Ís- lands, fór 16 ára í Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar og útskrifaðist þaðan. Hún hafði starfað á prjóna- stofu móður sinnar og með námi starfaði hún á rannsóknarstofu Há- skóla Íslands við Barónsstíg, auk þess sem hún var sætavísa í Tjarnar- bíói og ein af fyrstu flugfreyjum Flugfélags Íslands. Bryndís steig fyrst á svið undir leikstjórn Lárusar Pálssonar sem Cecilía í Jónsmessudraumi á fátækraheimilinu 18.11. 1946. Upp frá því varð ekki aftur snúið. Hún hafði leiklistina að lífsstarfi og var í hópi fremstu leikara Þjóðleikhússins frá upphafi og fram að aldamótum.. Bryndís sté fyrst leikara á svið Þjóðleikhússins, í fyrstu vígslusýn- ingu hússins, 1950, sem Guðrún í Nýársnóttinni. Hún lék síðan í Þjóð- leikhúsinu uns hún lét af störfum fyr- ir aldurs sakir ef frá eru talin nokkur leikrit hjá LR auk þess sem hún tók þátt í leikriti hjá LA. Á yngri árum fór hún svo í fjölda leikferða um landið á sumrin. Bryndís lék einnig í kvikmyndum, sjónvarpi og útvarpi, fór m.a. með aðalhlutverk í fyrstu íslensku kvik- myndunum, Milli fjalls og fjöru, og Niðursetningunum. Meðal minnisstæðra hlutverka Bryndísar við Þjóðleikhúsið má nefna Rósalind í Sem yður þóknast; Helgu í Gullna hliðinu 1952 og 1955; Sigríði í Pilti og stúlku; Ismenu í Antígónu; Sigrúnu í Manni og konu; Maríu mey í Gullna hliðinu, Júlíu í Romanoff og Júlíu; Helenu Charles í Horfðu reiður um öxl; Völu í Lausnargjaldinu, Enuice í Sporvagninum Girnd og Mundu í Stalín er ekki hér. Síðast lék hún Helgu í Kaffi eftir Bjarna Bryndís Pétursdóttir leikkona – 90 ára Ljósmynd/Jón Svavarsson Á menningarsögulegum stað Bryndís í Iðnó er hún varð áttræð, með sonum sínum, þeim Sigurði, Eiríki og Pétri. Stórstjarna í Þjóðleik- húsinu í tæpa hálfa öld Leikkonan Bryndís í ógleymanlegu hlutverki Rósalindar í Shakespeare- verkinu Sem yður þ́óknast. Guðmar Ragnarsson, fyrrverandi bóndi á Hóli á Héraði, á 85 ára afmæli í dag. Hann hefur verið búsettur á Egilsstöðum frá 2004 en dvelur nú á hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði. Eiginkona Guðmars er Dagný Rafnsdóttir, f. 7.8. 1933. Árnað heilla 85 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Stýrðu birtunni heima hjá þér PLÍ-SÓL GARDÍNUR Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Íslensk framleiðsla eftir máli Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18 alnabaer.is Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.