Morgunblaðið - 22.09.2018, Side 41
DÆGRADVÖL 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018
Aukin lífsgæði
án verkja og eym
Nutrilenk vörurnar fást í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
„Ég er búin að æfa mikið síðustu ár; hlaupa, stöðvarþjálfun, tabata
ofl. og varð alltaf þreytt og aum í liðum og beinum eftir æfingar.
Mér var bent á að prufa Nutrilenk Gold og byrjaði ég á að taka 6
töflur á dag í nokkrar vikur. Ég fann ótrúlega fljótt mun til hins betra
svo ég ákvað að prufa að taka líka 1 töflu af Nutrilenk Active því ég
var enn með verki og eymsl í höndum. Active virkar eins og
smurning fyrir liðina en ég fann mikinn mun á mér og eru verkirnir
nú horfnir.
Í dag tek ég 4 Gold og 1 Active og ekki má gleyma Nutrilenk gelinu
sem ég nota á axlir og hné en það kælir og dregur úr bólgum.
Ég get því hiklaust mælt með öllum Nutrilenk vörunum, án þeirra
gæti ekki hreyft mig eins mikið og ég geri í dag, verkjalaus.“
Erna Geirlaug Árnadóttir, 42 ára innanhúsarkitekt
NUTRILENK
ACTIVE
sla
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú verður þú að hrökkva eða
stökkva því ekkert annað getur þokað mál-
um þínum áfram. Ef þú þarft að skamma
einhvern skaltu gera það í einrúmi.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú vinnur af þolinmæði að mark-
miðum sem munu nást í framtíðinni. Skoð-
anir vinar munu koma þér mjög á óvart.
Reyndu að láta ekki á neinu bera.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vinur gæti komið þér á óvart í
dag. Vertu þú sjálf/ur og settu persónulegt
mark þitt á það sem þú gerir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gerðu draum þinn að veruleika og
leitaðu á vit ævintýranna. Flýttu þér samt
hægt. Leggðu spilin á borðið í ákveðnu
máli.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Eitthvað óvænt og snúið gæti komið
upp í samræðum við fólk á förnum vegi,
maka eða nána vini í dag. Vertu varkár í
næsta skrefi og viðbúin/n breytingum á
seinustu mínútum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Varastu flókinn málatilbúnað því ein-
faldleikinn er oft áhrifamestur. Það dregur
ský fyrir sólu í stuttan tíma hjá þér. Þú
færð góðar fréttir af ættingja.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hæfileiki þinn til að komast að hinu
sanna getur leitt til óvæntrar en traustrar
niðurstöðu sem getur skipt máli í framtíð-
inni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sumum finnst þú hinn besti
ráðgjafi. Það skiptast á skin og skúrir í líf-
inu. Þú ert sólarmegin núna og þarft ekki
að óttast komandi tíma.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert óvenju kraftmikil/l og
þarft að fá útrás fyrir orkuna. Hafðu þetta
hugfast þegar þú íhugar framtíðina og hvað
þú velur þér sem framtíðarstarf.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Dagurinn hentar vel til að kenna
ungmennum nokkrar grundvallarreglur um
lífið. Þú ert sátt/ur í eigin skinni, það eru
ekki allir sem ná þeim áfanga.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Öllu máli skiptir að mæta vel
undirbúin/n til leiks því þá þarftu ekki að
hafa áhyggjur af úrslitunum. Ef þú þarft að
kaupa eitthvað kauptu þá vandað.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú verður ekki lengur undan því vik-
ist að ganga frá þeim leiðindamálum sem
þú hefur verið að humma fram af þér. Ef þú
ýtir of mikið á aðra er líklegast að þeir ýti á
móti.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Vopn í hendi veiðimanns,
Veggur þakinn röndum.
Strokið yfir streng með glans.
Straumlaga í höndum.
Guðrún Bjarnadóttir leysir gát-
una þannig:
Með boga og örvar arkar
Artemis regnbogann,
skaut fiðluboga Bjarkar.
Úr bognum lófa rann.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Vopn er bogi veiðimanns.
Veggur regnboginn.
Strýkur bogi streng með glans.
Streymir vatnsboginn.
Þessi er lausn Helga Seljan:
Banvæn ör af boga fer,
bogadreginn veggur er.
Boga um strengi strokið var,
streyma í boga æðarnar.
Helgi R. Einarsson svaraði og
sagði: „Við Táta mín röltum með-
fram Leirvoginum í morgun og velt-
um gátunni fyrir okkur:
Af sólinni lifnar loginn,
sem lífgar ströndina’ og voginn,
samt margur fuglinn er floginn,
er frjáls, en lausnin er boginn.
Táta vildi botna vísuna öðruvísi:
Arnfinnsson út er smoginn,
samt ekki’ eins og lausnin, boginn.“
Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna
þannig:
Veiðimaður boga ber.
Bogi regns í skýjum er.
Fiðluboga beitum hér
Bogalína í hendi þér.
Þá er limra:
Bogi, sem býsn hefur logið
og brekóttur jafnan smogið
inn um það gat,
sem enginn mat,
eitthvað er við hann bogið.
Og ný gáta eftir Guðmund:
Drýpur regn í dropum stórum,
drauma léttir þungum órum,
flestir brátt úr fleti skríða,
fús ég nýja gátu smíða:
Fylki sínum fylgir glaður.
Flokknum trúr er þessi maður.
Býr í þínu brjósti og mínu.
Breytir jafnan skapi sínu.
Að síðustu eftir Sigurð Breiðfjörð:
Kennir einhver kaunin sín,
kvarta gera linir.
Skal ég bera meinin mín
miklu verr en hinir?
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enginn skyldi
boga ofmjög toga
Í klípu
„FYRST ÞARFTU AÐ AFSALA ÞÉR
SKAÐABÓTARÉTTINDUM.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ VERÐUR AÐ BÍÐA EFTIR SÚPUNNI. ÉG
GET EKKI GERT ALLT HÉRNA!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... villt!
ÉG SÉ ENGAN
TOLLHEIMTUMANN!
FÖRUM YFIR! KUNNIÐ ÞIÐ EKKI AÐ LESA? ÉG HEIMTA
AÐ ÞIÐ BORGIÐ MÉR!
HVERNIG FER ÉG AÐ
ÞVÍ? SPYRJIÐ ÞIÐ
ÉG SKAL SEGJA
YKKUR ÞAÐ
EFTIR
BLUND Í upphafi mánaðar velti Víkverji fyr-ir sér hvort orðið sýndarfé væri
vanhugsað. Nokkrum dögum síðar
birtist færsla á vef Fjármálaeftirlits-
ins.
x x x
Víkverji fullyrðir ekki að hún hafibirst vegna skrifa hans, en lætur
hana fylgja: „„Rafeyrir“ (e. electronic
money) og „sýndarfé“ (e. virtual cur-
rency) eru meðal þeirra nýyrða sem
tækninýjungar og framþróun hafa
fært okkur. Sumir velta jafnvel fyrir
sér hvort um sé að ræða tvö nöfn á
sama fyrirbrigði. Þótt almennur mál-
skilningur bendi til þess er um að
ræða tvö aðskilin hugtök samkvæmt
íslenskum lögum. Rafeyrir er, sam-
kvæmt skilgreiningum laga um út-
gáfu og meðferð rafeyris, „pen-
ingaleg verðmæti, í formi kröfu á
útgefanda sem er geymd í rafrænum
miðli, þ.m.t. á segulformi, gefin út í
skiptum fyrir fjármuni, í þeim til-
gangi að framkvæma greiðslu í skiln-
ingi laga um greiðsluþjónustu og
samþykkt er sem slík af öðrum að-
ilum en útgefandanum sjálfum“. Raf-
eyrir er m.ö.o. þeir fjármunir sem
fólk notar á hverjum degi með fyr-
irframgreiddum kortum, en þá
standa seðlar og myntir að baki raf-
rænu fjármununum. Sýndarfé er hins
vegar, samkvæmt skilgreiningum
laga um aðgerðir gegn peningaþvætti
og fjármögnun hryðjuverka, „hvers
konar stafrænt fé sem er hvorki raf-
eyrir í skilningi laga um útgáfu og
meðferð rafeyris né gjaldmiðill“.
Samkvæmt sömu lögum er gjaldmið-
ill: „seðlar, mynt og aðrir gjaldmiðlar
sem seðlabankar eða aðrir til þess
bærir opinberir aðilar gefa út og er
viðurkenndur lögmæltur gjaldmiðill“.
Að baki „rafeyri“ standa því ávallt
fjármunir eða peningaleg verðmæti,
en „sýndarfé“ telst hvorki vera slíkur
rafeyrir né viðurkenndur lögmæltur
gjaldmiðill almennt.“
x x x
Víkverji er þá kominn með á hreintað rafeyri og sýndarfé sé ekki
hægt að nota jöfnum höndum, en er
engu að síður þeirrar hyggju að
„virtual“ sé ekki hægt að þýða með
forskeytinu „sýndar“ og lýsir enn
eftir öðru orði fyrir sýndarfé.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég hef elskað yður eins og faðirinn
hefur elskað mig. Verið stöðug í elsku
minni
(Jóh: 15.9)