Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 42
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Örvar Þóreyjarson Smárason þarf vart að kynna, en síðustu tuttugu ár hefur hann verið einn af lykilmönn- unum í íslenskri neðanjarðar- tónlist. Er Sigur Rós braust fram – og svo út – upp úr 2000 sigldi til- raunakennda raftónlistarsveitin múm þéttingsfast við hlið gull- drengjanna. Hún náði vissulega ekki sömu vinsældahæðum og Mos- fellingarnir en tónlistarlegt framlag þessara MH-inga var al- veg jafn ríkt, frumlegt og gildandi. Þessar tvær sveitir voru í forvígi aldamótaútrásarinnar ef svo mætti kalla og fyrstu þrjár breiðskífur múm, gefnar út 1999, 2002 og 2004, eru einstakir gæða- gripir. Enda kviknaði snemma mik- ill áhugi ytra, plöturnar komu út hjá erlendum fyrirtækjum, fengu fína dreifingu og aðdáendahópur, sem spannar veröld víða, mynd- aðist fljótt og örugglega. Hljóm- sveitin var samsett úr tveimur tvíeykjum; systrunum Gyðu og Kristínu Önnu ásamt þeim fóst- bræðrum Gunnari Tynes og Örvari og allt gekk einhvern veginn upp; ímynd, tónlist, plötuumslög og tón- leikaframkoma í fullkomnum sam- hljómi. Mikið vatn er runnið til sjávar síðan en upprunalegir meðlimir eru allir uppteknir við tónlistariðkun, nú sem áður. Örvar hefur t.d. leikið með FM Belfast og hefur sinnt ann- arri list einnig, t.d. bókaskrifum og myndlist. Light is Liquid er hins vegar fyrsta sólóplata hans, átta laga verk sem kemur út á Morr Music. Platan var samin á síðustu árum og lunginn af henni var klár áður en Örvar gekk í samstarfs- verkefni með þeim Sóleyju og Sin Fang, sem lýsti sér í einu útgefnu lagi í hverjum mánuði árið 2017 – og kom svo allt heila klabbið út sem breiðskífa snemma á þessu ári. Þessi þrenning hefur starfað saman af og til síðustu áratugi og kíkja Sóley og Sin Fang í heimsókn hér; Sóley syngur bakraddir en Sin Fang sá um að hljóðblanda. Tvær aðrar söngkonur koma við sögu, þær JFDR (en hennar mjög svo ein- kennandi rödd gæðir „Tiny Moon“ lífi) og Sillus, sem syngur í þremur lögum, en hún er tónlistarmaður sem vert er að fylgjast með á næstu misserum. Sumir nýta sér sólóvettvang til að gera eitthvað allt annað; pota í kántrítónlist eða svartþungarokk – fá m.ö.o. útrás fyrir allt það sem komst ekki á borð í hljómsveit við- komandi. Það er ekki svo hér. Þú heyrir glöggt að þetta er plata eftir Örvar Smárason, eins og hann er titlaður, og er hann í heilbrigðu samtali við fyrri verk sín á plöt- unni. Eitt af leiðarstefjunum er munurinn á hinu vélræna og hinu mannlega, hugmyndir sem Kraft- werk þróaði m.a. á plötu sinni Man Machine (1978). Þessi útgangs- punktur átti sumpart við múm, þar sem lífræn hljóðfæri mættu tölvu- tónlist, en hér er þetta tekið lengra. Gangurinn í sumum lögunum er nánast fjarrænn og til baka, en svo er hann mildaður meðvitað, t.d. með blíðum gestasöng. „Tiny Moon“ er þannig nánast tölvu- leikjalegt og alveg afskaplega „evrópskt“ (Air, Kraftwerk) á með- an „Flashlight“ er prýtt unninni, vélmennalegri söngrödd Örvars, uppfullt af skruðningum og hvöss- um hornum – en um leið er þarna melódíufegurð sem sker í gegnum kuldann. Örvar vandar sig við að þenja mörkin mjúklega, hann er með ræturnar í tölvupoppi sem fyrr en reynir sig um leið við eitthvað nýtt og býr til hljóðheim sem til- heyrir engu nema þessu verkefni. Ljósið sem lak » Þú heyrir glöggtað þetta er plata eftir Örvar Smárason, eins og hann er titl- aður, og er hann í heil- brigðu samtali við fyrri verk sín á plötunni. Hvar er Örvar? Okkar maður spakur á bak við regndropa fagra. Light is Liquid er fyrsta sólóplata Örvars Þóreyjarsonar Smárasonar, sem hefur helst getið sér orð sem meðlimur múm og FM Belfast. 42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Ókeypis aðgangur á greiningarsýningu í Myndasal Þriðjudagur 25.9. kl. 12 Hádegisfyrirlestur: Glæst reiðver, góður klár – Sigríður Sigurðardóttir Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Alfreð D. Jónsson – Hver er á myndinni? Greiningarsýning í Myndasal Hjálmar R. Bárðarson – Aldarminning á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR – 17.7 - 16.12.2018 Sunnudagsleiðsögn 23. september kl. 14. – Ókeypis fyrir meðlimi Selmuklúbbsins ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018 PRENTVERK - HEILLANDI HEIMUR – Pallborðumræður með sýningarstjóra laugardaginn 22. september kl. 11 FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019 SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON 21.10.2017 - 7.10.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR 15.5. - 15.9.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við lærum alltaf eitthvað nýtt á milli ára, sem er afar spennandi,“ segir Sólrún Ingimarsdóttir, konsertmeistari í Ungsveit Sinfóníu- hljómsveitar Íslands, sem kemur fram á tónleikum í Eldborg Hörpu á morgun kl. 17. Þetta er annað árið í röð sem hún gegnir stöðu konsert- meistara. Á efnisskránni eru Viatore (Hommage à Arvo Pärt) eftir Pet- eris Vasks og Sinfónía nr. 5 eftir Dmitríj Shostakovitsj undir stjórn Daniels Raiskin. Sólrún hefur spilað með Ungsveit- inni frá haustinu 2011 eða frá því hún var 13 ára. Í ár eru þátttak- endur á aldrinum 13 til 25 ára. „Það er ótrúlega gefandi að fá að vinna að svona krefjandi hópverkefni saman. Þetta er mjög stór hópur og maður þarf að sýna bæði tillitssemi og skilning. Auk þess fær maður betri innsýn í og þekkingu á hinum hljóð- færum hljómsveitarinnar.“ Daniel Raiskin stjórnar Ungsveit- inni annað árið í röð. „Við höfum oft- ast fengið nýjan stjórnanda á tveggja ára fresti. Það er mjög fróð- legt að kynnast því hvernig stjórn- endur vinna á mismunandi hátt, enda eru þeir ólíkar persónur með mismunandi áherslur í sinni nálgun. Daniel Raiskin þekkir verk Shos- takovitsj mjög vel, sem kemur sér vel í þessu verkefni,“ segir Sólrún og tekur fram að spennandi sé að fá að spila Sinfóníu nr. 5 eftir Shosta- kovitsj þar sem það sé lykilverk á ferli hans sem tónskálds og með merkilegri tónverkum sem samin hafa verið á 20. öldinni. „Verkið fjallar um seinni heimsstyrjöldina og flækjur Shostakovitsj sjálfs við Stal- ín og yfirvöld í Rússlandi.“ Draumur að spila í Eldborg Viatore eða Ferðalangur nefnist verk eftir lettneska tónskáldið Pet- eris Vasks sem flutt verður á tón- leikunum. „Þetta er verk fyrir strengjasveit. Það er mjög brothætt og tært verk sem fjallar um ferða- lag,“ segir Sólrún og bendir á að sjá megi ferðalagið hvort heldur sem ferli eða ferðalag manneskjunnar gegnum lífið. Höfundur tileinkar læriföður sínum, Arvo Pärt, verkið. „Það eru óneitanlega vísanir í tón- mál Arvo Pärt í þessu verki,“ segir Sólrún og bendir á að slíkar vísanir birtist meðal annars í einfaldleika verksins og tærleika. „Okkur finnst mjög spennandi að Peteris Vasks ætlar að mæta á tónleika okkar.“ Spurð hvernig sé að leika í Eld- borg Hörpu svarar Sólrún: „Það er náttúrlega bara draumur að fá að spila í þessum flotta tónleikasal sem við Íslendingar eigum. Maður þarf ekki að hafa mikið fyrir spila- mennskunni, því veikustu tónarnir berast ótrúlega vel og sömuleiðis þeir sterku. Það hljómar allt svo vel í Eldborg auk þess sem við heyrum svo vel hvert í öðru á sviðinu, sem er gott fyrir samspilið.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stjórnandi Rússneski hljómsveitarstjórinn Daniel Raiskin heldur um taumana á tónleikunum á morgun. „Gott fyrir samspilið“  Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands leikur verk eftir Vasks og Shostakovitsj á morgun kl. 17  Sólrún Ingimarsdóttir er konsertmeistari í Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands annað árið í röð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.