Morgunblaðið - 22.09.2018, Síða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018
Morgunblaðið/Eggert
Sérfróð Jennifer Farrell er ein af sýningarstjórum prent- og teiknideildar Metropolitan-listasafnsins í New York.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Listasafn Íslands stendur fyrir
pallborðsumræðum um grafík og
prent í dag frá kl. 11 til 13 og
verður Jennifer Farrell, ein af
sýningarstjórum prent- og teikni-
deildar Metropolitan-listasafnsins
í New York, gestafyrirlesari.
Aðrir sem taka þátt í umræðun-
um eru Harpa Þórsdóttir,
forstöðumaður Listasafns Íslands,
Sólveig Aðalsteinsdóttir myndlist-
armaður, Helgi Þorgils Friðjóns-
son myndlistarmaður, Þóra Sig-
urðardóttir myndlistarmaður og
Ingibjörg Jóhannsdóttir, annar
sýningarstjóra sýningarinnar Ým-
issa kvikinda líki – íslensk grafík,
sem stendur nú yfir í safninu og
lýkur á morgun.
Á sýningunni má sjá grafíkverk
eftir íslenska listamenn sem eru
þekktari af annarri list en grafík
og einnig erlenda sem hafa dvalið
og starfað á Íslandi til lengri eða
skemmri tíma. Fundarstjóri verð-
ur Pari Stave, listfræðingur og
sýningarstjóri við Metropolitan.
Meðal þeirra spurninga sem
varpað verður fram er hver sé
saga prentverka, hvernig þeim sé
safnað í söfnum og hvar þau séu
sýnd, seld og markaðssett.
Hlutverk grafíklistar
Farrell hlær þegar blaðamaður
spyr hana hvort hún ætli í fyrir-
lestri sínum að fara yfir langa og
merkilega sögu grafíklistarinnar í
listasögunni. „Það er námsefni
fyrir heila önn í háskóla, hið
minnsta,“ segir hún og hristir höf-
uðið. Hún muni hins vegar fjalla
um hlutverk grafíklistarinnar í
samtímamyndlist. „Í Metropolitan-
safninu einbeitum við okkur ekki
eingöngu að listamönnunum held-
ur líka prentmeisturunum og út-
gefendum verkanna, grafíkverk-
stæðunum. Grafík er samvinnu-
listsköpun,“ útskýrir Farrell.
Hún virðir fyrir sér verk eftir
Dieter Roth á sýningunni í Lista-
safni Íslands, verk sem hlýtur að
heilla alla þá sem hafa áhuga á
grafíklist og þá sem hafa lært og
lagt stund á hana. Verkið er flókið
og marglaga, í bókstaflegri merk-
ingu, silkiþrykk í 15 litum, hvorki
meira né minna.
Farrell er eðlilega hugfangin af
verkinu, enda sérfræðingur þegar
kemur að þessu aldagamla list-
formi. Roth hafði mjög mikil áhrif
á íslenskt myndlistarlíf á sínum
tíma og þá líka í grafíkinni, eins
og Farrell bendir á. „Áhrif hans
og nálgun á listsköpun, þessi til-
raunagirni í bland við mjög mikla
tæknilega færni,“ segir hún um
hæfileika Roth og bætir við að
sjálfur Richard Hamilton hafi lof-
að Roth fyrir sterk tök hans á
miðlinum og sagt engan honum
fremri þegar kæmi að grafíklist-
inni. „Dieter tókst líka að fylla
marga prentmeistara gremju með
færni sinni,“ bætir Farrell við
kímin.
Metropolitan keypti verk
eftir Rúrí og Guðjón
Metropolitan hefur keypt tvö
verk á sýningunni, annars vegar
verk eftir Rúrí og hins vegar röð
ætinga eftir Guðjón Ketilsson og
segist Farrell ætla að kynna sér
íslenska grafíklist og bókverk á
meðan á dvöl hennar stendur hér
á landi. Metropolitan er eitt
stærsta listasafn heims og safn-
eignin eftir því umfangsmikil.
Blaðamaður spyr Farrell að því
hversu mörg grafíkverk safnið eigi
og svarar hún því til að þau séu
yfir milljón. Ágætissafn það. „Í
minni deild er ansi stór hluti safn-
eignarinnar,“ segir Farrell og að
verkin séu bæði einstök, þ.e. stök
prent og í upplögum.
Mikill áhugi
– Hver heldur þú að staða graf-
íklistarinnar sé í dag í samtíma-
myndlist? Er þetta sterk og sýni-
leg listgrein?
„Já, ég held það, virkilega,“
svarar Farrell og nefnir sem
dæmi að í New York sé mikill
áhugi á grafík og bókverkum. „Og
hvað stafræna grafík varðar eru
margir að vinna með miðilinn en
líta þó ekki á sig sem grafíklista-
menn,“ segir hún og nefnir sem
dæmi listamanninn Damien Loeb
sem geri verk í tölvu heima hjá
sér og prenti út með bleksprautu-
prentara. Þá blandi margir saman
stafrænni tækni og gamaldags
grafíktækni á borð við dúkristu,
svo dæmi sé tekið. Aðrir lista-
menn, t.d. Glen Baldridge, bræði
saman marga miðla í verkum sín-
um, t.d. teikningu, ljósmyndun og
grafík. Farrell kallar þetta blend-
ingsverk, „hybrid“, og segir mögu-
leikana ótal marga þegar kemur
að slíkum bræðingi.
Miklir möguleikar
Farrell er spurð að því hvort
hún telji vinsældir grafíkurinnar
vera að aukast, t.d. meðal ungra
listamanna og listnema, hvort
grafíkin sé í sókn líkt og vínyl-
platan í tónlistarútgáfu og segist
hún telja svo vera. Miðillinn bjóði
enda upp á tilraunastarfsemi og
mikla möguleika. „Eins og þú seg-
ir þá eru líkindi með þessu og
vínylplötunni, það er ákveðin
sveifla aftur í tímann, fólk sækist
eftir mjúkri línu þurrnálarinnar
eða flæði og frelsi einþrykksins,“
segir Farrell.
Þeir sem vilja vita meira um
grafík eru hvattir til að mæta á
pallborðsumræðurnar í Listasafni
í Íslands í dag. Umræðurnar
munu fara fram á ensku og gildir
aðgangseyrir að safninu á þær.
Miðill með mjög
mikla möguleika
Sýningarstjóri við prent- og teiknideild Metropolitan
tekur þátt í pallborðsumræðum um grafík og prent
Morgunblaðið/Einar Falur
Grafíkverkstæði Þetta grafíkverkstæði er hluti af sýningunni í Listasafni
Íslands og þrykkja þar ungir listamenn grafíkverk meðan á sýningunni
stendur, undir nafninu Prent & vinir. Sýningunni lýkur á morgun.
Ronja Ræningjadóttir (None)
Sun 23/9 kl. 13:00 4. s Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Sun 25/11 kl. 17:00 22. s
Sun 23/9 kl. 16:00 5. s Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka
Sun 30/9 kl. 13:00 6. s Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s
Sun 30/9 kl. 16:00 7. s Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka
Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s
Sun 7/10 kl. 13:00 8. s Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 9/12 kl. 14:00 Auka
Sun 7/10 kl. 16:00 9. s Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 30/12 kl. 13:00 26. s
Sun 14/10 kl. 13:00 10. s Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s
Sun 14/10 kl. 16:00 11. s Sun 18/11 kl. 13:00 20. s
Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Sun 18/11 kl. 16:00 21. s
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Fös 28/9 kl. 19:30 Frums Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s
Sun 30/9 kl. 19:30 2. s Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s
Lau 6/10 kl. 19:30 3. s Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Lau 3/11 kl. 19:30 13. s
Sun 7/10 kl. 19:30 4. s Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s
Fös 12/10 kl. 19:30 5. s Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Ég heiti Guðrún (Kúlan)
Fös 5/10 kl. 19:30 Frums Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Fös 19/10 kl. 19:30 Auka
Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Lau 13/10 kl. 19:30 5. s Lau 20/10 kl. 17:00
Sun 7/10 kl. 17:00 2. s Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Sun 21/10 kl. 17:00 9. s
Mið 10/10 kl. 19:30 3. s Þri 16/10 kl. 19:30 Auka Þri 23/10 kl. 19:30 10. s
Fim 11/10 kl. 19:30 4. s Mið 17/10 kl. 19:30 7. s
Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fim 27/9 kl. 19:30 12. s
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 22/9 kl. 19:30 39. s Fös 5/10 kl. 19:30 41. s
Lau 29/9 kl. 19:30 40. s Fös 19/10 kl. 19:30 42. s
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s
Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Lau 10/11 kl. 19:30 5. s Lau 24/11 kl. 19:30 8. s
Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6. s
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Insomnia (Kassinn)
Fös 9/11 kl. 19:30 Frums Fös 16/11 kl. 19:30 3. s Fös 23/11 kl. 19:30 5. s
Lau 10/11 kl. 19:30 2. s Lau 17/11 kl. 19:30 4. s
Brandarinn sem aldrei deyr
Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 6/10 kl. 13:00 Lau 13/10 kl. 13:00 Lau 20/10 kl. 13:00
Lau 6/10 kl. 15:00 Lau 13/10 kl. 15:00 Lau 20/10 kl. 15:00
Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim
Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 28/9 kl. 22:00
Daður og dónó
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 3/10 kl. 20:00 Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00
Mið 10/10 kl. 20:00 Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00
Mið 17/10 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 29/9 kl. 20:00 59. s Fim 11/10 kl. 20:00 61. s
Fös 5/10 kl. 20:00 60. s Fös 12/10 kl. 20:00 62. s
Besta partýið hættir aldrei!
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 22/9 kl. 20:00 4. s Fös 28/9 kl. 20:00 7. s Sun 7/10 kl. 20:00 10. s
Sun 23/9 kl. 20:00 5. s Lau 29/9 kl. 20:00 8. s Fös 12/10 kl. 20:00 11. s
Fim 27/9 kl. 20:00 6. s Lau 6/10 kl. 20:00 9. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Lau 22/9 kl. 20:00 2. s Lau 29/9 kl. 20:00 6. s Sun 7/10 kl. 20:00 9. s
Sun 23/9 kl. 20:00 3. s Sun 30/9 kl. 20:00 aukas. Mið 10/10 kl. 20:00 aukas.
Fim 27/9 kl. 20:00 4. s Fös 5/10 kl. 20:00 7. s Fim 11/10 kl. 20:00 10. s
Fös 28/9 kl. 20:00 5. s Lau 6/10 kl. 20:00 8. s
Athugið, sýningum lýkur 3. nóvember.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Sungin sagnfræði á hundavaði.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 28/9 kl. 20:00 150. s Sun 7/10 kl. 20:00 154. s
Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sun 30/9 kl. 20:00 151. s Lau 13/10 kl. 20:00 155. s
Mið 26/9 kl. 20:00 148. s Fim 4/10 kl. 20:00 152. s Sun 14/10 kl. 20:00 156. s
Fim 27/9 kl. 20:00 149. s Lau 6/10 kl. 20:00 153. s Fim 18/10 kl. 20:00 157. s
Síðasta uppklappið.
FINNA.is