Morgunblaðið - 22.09.2018, Síða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2018
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Í flugstöðvum landsins er jafnan
hátt til lofts og vítt til veggja – oft-
ast galtómra veggja, sem enginn
nennir að horfa á. Þessu vildi mynd-
listarmaðurinn Tolli breyta og viðr-
aði því í byrjun árs þá hugmynd við
forsvarsmenn Isavia að prýða og
nýta húsakostinn betur en ella.
„Sem menningarhús,“ stakk hann
upp á og hlaut góðar undirtektir.
Þannig var aðdragandi þess að í
vikunni ók Tolli frá Reykjavík til
Egilsstaða með troðfullan bíl af mál-
verkum eftir sjálfan sig. Í gær opn-
aði hann svo sýningu í stöðvarhúsi
Egilsstaðaflugvallar. „Ég ákvað að
ryðja brautina, en síðan er mein-
ingin að gefa öðrum listamönnum,
einkum ungu fólki, kost á að halda
málverkasýningar í flugstöðvum,
sem Isavia rekur, eða að minnsta
kosti þeim stærstu. Þar eru kjör-
aðstæður fyrir listsýningar og hvers
kyns menningarviðburði ef því væri
að skipta. Stöðugur straumur fólks
og alltaf einhverjir sem sitja bara
og bíða og hefðu ábyggilega gaman
af að njóta listarinnar á meðan.
Birta og lýsing eru yfirleitt með
miklum ágætum og veggirnir bera
stór verk eins og til dæmis mín sem
mörg eru 2 metrar á kant,“ segir
Tolli.
Splunkuný verk
Sýningin samanstendur af 23
stórum og smáum splunkunýjum
landlagsmálverkum sem einungis
hafa komið fyrir sjónir almennings
á netinu. „Frumsýning,“ segir hann
og kveðst hafa valið málverkin að
hluta með hliðsjón af því að sýning-
arstaðurinn er á Austurlandi. „Dyr-
fjöllin og Snæfellið eru þarna og
bara sitt lítið af hverju.“
Tolli segir að sér hafi alltaf þótt
gaman að stefna á mannamót og
sérstaklega eftirsóknarvert að halda
málverkasýningar úti á landi. Þótt
hann hefji leikinn og sýning á flug-
stöðinni á Akureyri sé næst á dag-
skrá bendir hann á að hugmyndin
að listsýningum á flugstöðvum
landsins í framtíðinni hafi aldrei átt
– og eigi ekki, að snúast um hann og
verk hans. „Alls ekki,“ áréttar hann.
„Framtakið er nokkurs konar
brúarsmíð því í samstarfi við Isavia
er markmiðið að gefa ungum lista-
mönnum tækifæri til að sýna verk
sín í öllum landsfjórðungum. Ekki
síst listafólki úr henni Reykjavík því
tilhneigingin hefur stundum verið
að búa til andstæður úr hópunum,
annars vegar úr 101 Reykjavík og
hins vegar dreifbýlinu,“ segir hann
en bætir við að þeir sem hæst hafi
séu bara leiðindaaðilar í þjóðfélag-
inu. Hrepparígur var það víst kallað
í eina tíð.
Tækifæri fyrir unga listamenn
„Mér finnst góð pólitík að kynna
verk ungs fólks með þessum hætti,
verk sem yfirleitt eru ekki sýnd ut-
an borgarmarkanna, og einnig að
gefa listamönnum hvaðanæva af
landinu tækifæri til að sýna verk sín
í björtum og rúmgóðum sölum.“
Tolli hefur í áranna rás skipulagt
listsýningar með ungliðum í listinni
og kynnst starfi þeirra, aðallega þó í
gegnum dóttur sína, Kristínu Mort-
hens sem nýverið útskrifaðist frá
Listaháskólanum í Torontó. Hann
hefur oft lagt hönd á plóg við að
skipuleggja og setja upp sýningar
ungra listamanna og er mjög áfram
um að leggja þeim lið sem eru að
stíga sín fyrstu skref á listabraut-
inni.
Óhefðbundið sýningarými er eng-
in nýlunda fyrir honum. „Ég hef
lagt mig fram um að sýna á slíkum
stöðum, fara út á torg með listina til
almennings,“ segir Tolli, sem í tví-
gang hefur haldið sýningar í Kringl-
unni, einnig í Smáralind og víðar
þar sem fólk er mikið á ferli.
Sýningin í flugstöðinni á Egils-
stöðum stendur til októberloka og
er aðeins byrjunin, nokkurs konar
prufukeyrsla, að sögn Tolla. Áform
eru uppi um að ein listsýning taki
við af annarri í flugstöðvum lands-
ins árið um kring.
Engum þarf að leiðast
„Hjá Isavia eru menn að minnsta
kosti mjög spenntir,“ segir hann og
heldur áfram: „Mér finnst fyr-
irtækið sýna ákveðna menning-
arlega samfélagsábyrgð með fram-
takinu. Við erum bara rétt að byrja
og heilmikið verk framundan við
skipulagningu og þess háttar. Raun-
ar mun ég stíga til hliðar þegar frá
líður og ráðinn verður ráðgjafi til að
vinna verkefnið áfram með Isavia,
enda finnst mér sniðugra að einhver
af ungu kynslóðinni verði tengiliður
við listamennina. Verklega fram-
kvæmdin við uppsetningu málverka
í flugstöðvum er einföld og að sama
skapi ætti að vera hægt að koma
þar inn með tónlist og bókmenntir
og efna til ýmissa viðburða. Þá
þyrfti enginn að láta sér leiðast að
bíða eftir flugi,“ segir Tolli og lýkur
lofsorði á hann Jörund stöðvar-
stjóra. „Hann tók heimsókn minni
fagnandi enda hefur hann boðið
myndlistar- og handverksfólki sem
og tónlistarfólki af Héraði og víðar
að sýna list sína í flugstöðinni.“
Listabrautin rudd á Egilsstöðum
Tolli í samstarfi við Isavia um listsýningar í flugstöðvum landsins Sýnir 23 splunkuný olíumál-
verk Tækifæri fyrir unga, upprennandi listamenn Áform um að ein sýning taki við af annarri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
List á ferð og flugi Tolli hóf leikinn með sýningu í flugstöðinni á Egilsstöðum en markmiðið er að bjóða listamönn-
um, einkum ungu fólki, tækifæri til að sýna verk sín í flugstöðvum. Hann ræddi í gær við gesti á sýningunni.
» Stöðugur straumurfólks og alltaf ein-
hverjir sem sitja bara
og bíða og hefðu ábyggi-
lega gaman af að njóta
listarinnar á meðan.
ICQC 2018-20
NÝ
R
Hyundai I10
Comfort Navi
7“snertiskjár og íslenkst leiðsögukerfi ofl.
Eigum til sjálf- og beinskipta. 100 % lán mögulegt.
5 ára ábyrgð, margir litir í boði. Verð frá kr. 1.790.000
562 1717
Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is
bilalif.is
Eigum mikið úrval af nýjum og nýlegum bílum á staðnum
Sýning Gústavs Geirs Bollasonar og
Clémentine Roy, Carcasse, verður
opnuð í dag kl. 15 í Listasafninu á
Akureyri, Ketilhúsi. Carcasse er
klukkustundar löng kvikmynd sem
myndlistarmennirnir unnu að í sam-
einingu á árunum 2012-2017 og er nú
sýnd í fyrsta sinn í listasafni á Íslandi
en hefur áður verið í Berlinische Ga-
lerie í Berlín í Þýskalandi og á nokkr-
um kvikmyndahátíðum, að því er
fram kemur í tilkynningu.
Um Carcasse skrifar Sjón meðal
annars að hún sé með merkilegri
kvikmyndum sem gerðar hafi verið á
Íslandi. „Þegar hugsað er um fall sið-
menninga, liðinna, núverandi og
ókominna, er það yfirleitt hrikaleiki
hruns þeirra sem birtist okkur í
myndverkum og söguljóðum, á tjaldi,
lágmynd eða bók.
Við sjáum skýja-
kljúfa nútímans
brotna eins og
leikfangakastala,
hraunöldur
gleypa höfuðstaði
fortíðar, skipa-
flota gleymdra
heimsvelda þakta
hrúðurkörlum og
þangi á hafsbotni,
yfirgefin virkismusteri á sand-
blásnum fjallstindum, óvinnandi
verkfræðiundur komandi tíma mölv-
uð af þrautseigum örmum nýrra
skóga. Næst dettur okkur í hug fólk-
ið sem var statt í hringiðu eyðilegg-
ingarinnar. Þau sem voru á staðnum
þegar smæð mannsins varð ljós.“
Carcasse sýnd í Ketilhúsi
Gústav Geir
Bollason
Sýning leikhópsins RaTaTam,
Ahhh..., verður sýnd aftur í kvöld í
Tjarnarbíói eftir langt hlé og svo
aftur 5. og 14. október. Sýningin
hlaut góðar viðtökur og jákvæða
gagnrýni á síðasta leikári og sagði
m.a. í fjögurra og hálfrar stjörnu
gagnrýni Morgunblaðsins að undir
stjórn Charlotte Bøving leikstjóra
skapaði leikhópurinn röð smá-
mynda sem birtust eins og litríkir
flugeldar sem springa út hver á
fætur öðrum. Leikhópurinn vann
verkið út frá prósa og ljóðum El-
ísabetar Jökulsdóttur og leikarar í
verkinu eru Albert Halldórsson,
Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Hall-
dóra Rut Baldursdóttir og Laufey
Elíasdóttir.
Ástin Úr leiksýningu RaTaTam, Ahhh...,
sem fjallar um ástina á ýmsan hátt.
Ahhh... snýr aftur
í Tjarnarbíó
Ljósmynd/Saga Sig