Morgunblaðið - 22.09.2018, Page 48
Stirni Ensemble kemur fram á tón-
leikum Hljóðanar í Hafnarborg ann-
að kvöld kl. 20. Hópinn skipa Björk
Níelsdóttir sópran, Grímur Helga-
son klarínettuleikari, Hafdís Vigfús-
dóttir flautuleikari og Svanur Vil-
bergsson gítarleikari. Frumflutt
verða verk eftir Hafdísi Bjarnadótt-
ur og Björk Níelsdóttur auk kafla úr
gítarverkum Atla Heimis Sveins-
sonar, Dansar dýrðarinnar, en Atli
Heimir varð áttræður á föstudag.
Hljóðön í Hafnarborg
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 265. DAGUR ÁRSINS 2018
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.108 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
HK og ÍA eru knattspyrnulið með
gjörólíkan bakgrunn en þau hafa
fylgst að í allt sumar og hafa nú
bæði tryggt sér sæti í efstu deild
karla fyrir næsta tímabil. Fjallað er
ítarlega um þau í opnu íþrótta-
blaðsins í dag og rætt við Ásgeir
Marteinsson úr HK og Árna Snæ
Ólafsson úr ÍA um stöðu liðanna
og möguleika. »2-3
Hvernig spjara HK og
ÍA sig í efstu deild?
Dómur völvunnar eftir Huga Guð-
mundsson er sýnd í Norræna hús-
inu í dag kl. 13. Verkið er flutt á
dönsku með íslenskum sögumanni,
tekur um 50 mínútur í flutningi og
er ætlað aldurshópnum 10 til 14
ára. Óperan fjallar um stöðu jarð-
arinnar og möguleika á að nýta
hinn mikla framkvæmdakraft og þá
samkennd sem
býr í mann-
skepnunni til
að knýja fram
jákvæðar
breytingar.
Verkið hefur
áður verið
sýnt bæði í
Osló og
Kaup-
mannahöfn.
Dómur völvunnar í
Norræna húsinu í dag
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Af hverju er himinninn blár? er ein
þeirra spurninga sem Ari Ólafsson,
dósent í eðlisfræði við Háskóla Ís-
lands, svarar í kennslunni auk þess
sem hann hefur útskýrt málið á vís-
indavefnum. Sömu spurningar var
einnig spurt í Aravísum Stefáns
Jónssonar og þá varð fátt um svör.
Ingibjörg Þorbergs samdi lag við
vísurnar, söng þær inn á hljóm-
plötu 1954 og nutu þær mikilla vin-
sælda. Þær voru ortar upp úr
seinna stríði um Ara Ólafsson verk-
fræðing, sem vann um tíma hjá föð-
ur Ara Ólafssonar eðlisfræðings.
Sá síðarnefndi segir að hann hafi
oft verið tengdur við vísurnar á
yngri árum en ekki í seinni tíð. „Ég
var heilmikið upp með mér sem
krakki þegar ég var talinn vera
þessi Ari, en það var því miður ekki
rétt.“
Erfiðar spurningar
Aravísur voru hluti af daglegu
lífi um og upp úr miðri síðustu öld
en spurningum Ara var ekki auð-
velt að svara:
Mamma, afhverju er himinninn blár?
– Sendir guð okkur jólin?
– Hve gömul er sólin?
Pabbi, því hafa hundarnir hár?
Síðan versnar í því en í lokin
leggur Ari áherslu á sannleikann.
Ari eðlisfræðingur hefur tengst
kvæðinu sterkum böndum og fyrsta
spurningin stendur honum næst
þar sem hann varð sérfræðingur í
málinu.
Eins má geta þess að Vísindavef-
urinn gaf út bók með völdum svör-
um og auðvitað heitir hún Af
hverju er himinninn blár?
Á vísindavefnum svarar Ari fyrr-
nefndri spurningu á eftirfarandi
hátt: „Ljósið sem berst til okkar
frá himninum er upphaflega hvítt
sólarljós sem hefur síðan dreifst
frá sameindum lofthjúpsins. Bláa
ljósið, sem er hluti hvíta ljóssins,
dreifist miklu meira en annað og
því er himinninn blár.“ Að sama
skapi er hann með spurninguna um
hví eldurinn er heitur á hreinu.
„Eldurinn er heitt gas. Einkenni
hans eru þessi hái hiti og svo lit-
blær sem tengist hitastiginu. Ef
gasið kólnar hverfur liturinn og þar
með loginn.“
Ari segist hafa haldið sig frá öllu
sem viðkomi stjörnufræði eða
heimsmyndafræði. „Þess vegna
þýðir ekkert að spyrja mig um
hvar heimsendi er og ég hef ekki
velt fyrir mér hvað eilífðin er,“ seg-
ir hann. Því síður segist hann hafa
hugsað um aldur sólarinnar, en
vera hennar um nætur vefst ekki
fyrir honum. „Ég þykist að minnsta
kosti vita það, hún er hinumegin
við jörðina og því sé ég hana ekki.“
Ari er orðinn heitur og segir að
hægt sé að snúa sig út úr sumum
spurningunum. „Hárin á hundinum
eru þarna til þess að honum verði
ekki kalt,“ segir hann og bætir við
að sama eigi við um skeggið á
pabba. „Hænurnar sjá um að verpa
eggjunum,“ er svar hans við eggja-
leysi hananna.
Vísindasmiðjan byrjaði aftur í
vikunni eftir sumarleyfi, en Ari er
upphafsmaður hennar, kom henni á
fót 2012 og hefur síðan stjórnað
henni ásamt Guðrúnu Bachmann,
kynningarstjóra vísindamiðlunar
hjá HÍ. Tekið er á móti átta skóla-
bekkjum vikulega og er fullbókað
út misserið. Í hverjum bekk eru 20
til 30 nemendur, einkum úr 5.-10.
bekk grunnskóla, en af og til koma
nemendur úr framhaldsskólum.
Krakkarnir fá að mestu leyti inn-
sýn í eðlisfræði en auk þess eru
stærðfræði, efnafræði, stjörnu-
fræði, jarðfræði og líffræði á dag-
skrá. „Í grunnskólanum fellur
þetta undir það sem kallast nátt-
úrufræði,“ segir Ari og bætir við að
Aravísur hafi aldrei borið á góma á
þessum vettvangi. „Krakkar nú til
dags þekkja þær almennt ekki,“
segir hann.
Auðvitað! Þess vegna
er himinninn blár
Morgunblaðið/Eggert
Vísindasmiðjan Ari Ólafsson eðlisfræðingur með nemendum í gær.
Ari Ólafsson eðlisfræðingur hefur tengst Aravísum sterkum böndum