Morgunblaðið - 24.09.2018, Side 2

Morgunblaðið - 24.09.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt i 595 1000 Frá kr. 89.995 ing aá slí ku .A th. að ve rð Agadír 25. OKTÓBER Í 9 NÆTUR Frá kr. 99.695 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Í tilefni af alþjóðlega bangsadeginum voru bangsaspítalar opnaðir á þremur heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Börn komu þangað með veika og slasaða bangsa en læknanemar tóku á móti þeim og veittu böngsunum þá að- hlynningu sem þeir þurftu á að halda. Tilgangur verkefnisins er að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og að gefa læknanemum tækifæri til að æfa samskipti við börn. Eins og sést á myndunum höfðu allir gagn og gaman af bangsaspít- alanum, börnin, læknanemarnir og auðvitað bangsarnir. Bangsaspítalar á þremur heilsugæslustöðvum Morgunblaðið/Hari Læknanemar hlúðu að veikum og slösuðum böngsum Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir vinnu við endurskoðun stjórnarskrárinnar vera í fullum gangi og á áætlun. Formenn stjórn- málaflokkanna sem eiga fulltrúa á Alþingi funduðu í fyrsta sinn eftir sumarfrí sl. föstudag. „Við erum lengst komin með um- hverfismál, auðlindamál, ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslu, framsal valdheimilda og breytingarákvæði stjórnarskrárinnar,“ segir Katrín og bætir við að auðlinda- og umhverf- isákvæðin hafi einkum verið mikið rædd. „Þessi mál hafa mest verið rædd á vettvangi stjórnmálanna undanfarin ár og það er mest búið að vinna í þeim af öllum ákvæðum á undanförnum ár- um. Við fórum yf- ir þau í vor og settum í ferli, en erum ekki komin á þann stað að skrifa upp á ein- hver ákvæði,“ segir Katrín. „Heildarendur- skoðunin er sett upp á tveimur kjör- tímabilum og ég vona að við munum sjá áfanga á þessu kjörtímabili. Ég er hóflega bjartsýn á það, mér finnst þessir fundir hafa gengið vel.“ Í byrjun þessa árs kynnti Katrín fyrirkomulag stjórnarskrárvinnunn- ar en það felur í sér aðkomu allra flokka á Alþingi að vinnu sem skilar af sér breytingartillögum sem lagðar verða fyrir Alþingi hverju sinni að undangengnu víðtæku samráði. „Það er fyrirhugað að leita eftir sýn almennings á einstök atriði og erum við að skoða aðferðir í því,“ segir Katrín og nefnir skoðanakann- anir og að efna til rökræðukönnunar síðar á tímabilinu en hún bindur von- ir við að hægt verði að sýna ein- hverja áfanga á leiðinni og setja þá í opið samráð. Dagana 27.-29. september nk. mun Edda rannsóknarsetur í sam- starfi við forsætisráðuneytið, Stofn- un Vigdísar Finnbogadóttur, Nor- ræna félagið og Stjórnarskrárfélagið standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um stjórnarskrármál. Stjórnarskrárvinna á áætlun  Forsætisráðherra segir vinnu við endurskoðun stjórnarskrár í fullum gangi  Vonast eftir áfanga á þessu kjörtímabili  Formennirnir funduðu fyrir helgi Katrín Jakobsdóttir Endurskoðun stjórnarskrár » Umhverfis- og auðlinda- ákvæðin hafa verið rædd mest meðal formanna flokk- anna. » Ákvæði um þjóðaratkvæða- greiðslu, framsal valdheimilda og endurskoðunarákvæði stjórnarskrár hafa einnig verið rædd. » Forsætisráðherra kveðst bjartsýn á að fyrsti áfangi vinnunnar verði kynntur á þessu kjörtímabili. Maður var handtekinn á laugardag- inn í Borgarnesi eftir harðan árekstur, en hann var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Áreksturinn varð þegar Land Cruiser-jeppa, sem hinn hand- tekni ók, var sveigt inn á öfugan vegarhelming, þar sem hann hafn- aði framan á lítilli fólksbifreið, en jeppinn hafði fyrst keyrt utan í aðra bifreið. Hinn handtekni var einn í jepp- anum en þrír erlendir ferðamenn voru í fólksbifreiðinni. Þeir voru fluttir á slysadeild í kjölfar árekstr- arins en engan sakaði alvarlega. Jónas Hallgrímur Ottósson, varð- stjóri hjá lögreglunni í Borgarnesi, sagði við mbl.is í gærkvöldi að manninum hefði verið sleppt eftir að búið var að taka úr honum blóðsýni en rannsókn málsins væri enn í full- um gangi. Niðurstöðu úr blóðrann- sókninni er að vænta eftir 12 vikur. Handtekinn eftir harðan árekstur í Borgarnesi Von er á miklu rigningarveðri víðast hvar um landið í dag með hvassri suðvestanátt, einkum suðvestan til á landinu. Þorsteinn V. Jónsson, veð- urfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að mestu gusurnar gangi hratt yfir en veðrið nær hámarki um há- degi. „Það verður hvassviðri yfir öllu landinu. Þetta er hressilegt haust- veður og maður vonar að fólk sé búið að taka inn sumarhúsgögnin og trampólínin,“ segir Þorsteinn og ráðleggur fólki að hreinsa frá nið- urföllum lauf og annað sem kann að valda stíflu. Umhleypingar í vikunni Í kvöld mun hægja á vindinum en næsta lægð kemur inn á landið snemma á morgun og rignir þá enn meira. „Það er svolítið vatnsveður í kortunum. Á miðvikudag er von á kólnandi norðvestan- og vestanátt, einkum norðaustan til. Það eru umhleypingar í vikunni og skiptist á hlýtt og kalt með svolít- ið hvössu á köflum. Það rignir dálítið í dag og á morgun og kólnar og hlýn- ar á víxl. Dálítið dæmigert haust- veður.“ Mikil rigning um allt land  Spáð er hvössu veðri og rigningu um allt land í dag  Von á annarri lægð á morgun  Kólnar og hlýnar á víxl Morgunblaðið/Hari Haust Fyrsta vika eftir haustjafndægur hefst með kröftugri suðvestanátt .

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.