Morgunblaðið - 24.09.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.09.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018 Ásdís Kristjánsdóttir, for-stöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, skrifar grein í Viðskiptablaðið í liðinni viku og bendir þar á að í fjárlaga- frumvarp- inu sé gert ráð fyrir að ríkis- útgjöld aukist um 57 millj- arða króna á næsta ári, eða rúmlega einn millj- arð króna á viku. Og hún bendir á að þessi útgjaldaaukning sé „ekki nóg að mati margra þingmanna, auka þurfi útgjöld enn frekar“.    Ásdís heldur áfram: „Alþingi líð-ur ekki fyrir skort á tals- mönnum aukinna útgjalda en tals- menn skattalækkana má telja á fingrum annarrar handar. Það er undarlegt í ljósi þess að ríkisútgjöld á hvern Íslending hafa aldrei verið meiri og Ísland orðið háskattaríki í alþjóðlegum samanburði.“    Óhætt er að taka undir þessi orð.Hér er iðulega talað eins og bæta þurfi verulega í ríkisútgjöldin vegna óhóflegs niðurskurðar, en staðreyndin er sú að heilt yfir hafa ríkiútgjöld vaxið gríðarlega, umsvif hins opinbera eru orðin allt of mikil og skattar háir eftir því, jafnt á fólk sem fyrirtæki.    Í þeirri fjárlagavinnu sem framundan er þarf að vinna að lækk- un skatta og setja hömlur á út- gjöldin.    Það er til dæmis engin ástæða tilað Ríkisútvarpið fái ríflega hálfan milljarð til viðbótar á næsta ári. Danska ríkisútvarpið þarf að skera niður kostnað um 20% og 400 störf á næstu fimm árum. Hvers vegna skyldi íslenska ríkisútvarpið ekki þurfa að gera hið sama? Það mundi spara á annan milljarð á ári. Rúv. getur sparað háar fjárhæðir STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Nettoline fær 5 stjörnur frá dönskum gagnrýnendum styrkur - ending - gæði allar BaÐHErBErGISINNrÉTTINGar oG ÞVoTTaHÚSINNrÉTTINGar fáSTmEÐ 20%afSlæTTI ÚT SEpTEmBEr 2018 GÓÐ KaUp NÚ Er laG aÐ GEra Við gerum þér hagstætt tilboð í innréttingar, vaska og blöndunartæki - afSláTTUr - 20% íSEpTEmBEr 2 018 Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is opIÐ: Mán. - fim. kl. 09 til 18 Föstudaga kl. 09 til 17 Laugardagar kl. 11 til 15 Ólíklegt er að Vísir hf. í Grindavík geri út á túnfisk- veiðar í haust, en skipið fékk leyfi til veiðanna frá sjávarútvegsráðuneytinu í sumar. Að sögn Péturs H. Pálssonar framkvæmdastjóra hefur gögnum verið safnað um göngur túnfisks á norðlægar slóðir og að hans sögn gefa þau ekki ástæðu til að fara til túnfiskveiða. Þá hefur ekkert verið skráð um að túnfiskur hafi fengist sem meðafli á makrílveiðum íslenskra skipa í sumar, eins og gerst hefur undan- farin ár. Fyrirtækið fór heldur ekki á túnfiskveiðar í fyrra og í hittifyrra var veiðum hætt snemma þar sem ekki þótti grundvöllur fyrir þessum veiðiskap. Veið- arnar á vegum Vísis gengu hins vegar þokkalega haustin 2014 og 2015 og stundaði Jóhanna Gísla- dóttir GK þá túnfiskveiðar. Ekki efni á ævintýramennsku „Þessi ár töldum við okkur trú um að við hefðum fengið upp í kostnað. Núna eru litlar fréttir af tún- fiski og það þarf meira til svo þetta sé áhættunnar virði. Staðan er ekki þannig í bolfiskveiðum og -vinnslu núna að menn hafi efni á að stunda ein- hverja ævintýramennsku,“ sagði Pétur. aij@mbl.is Ólíklegt að farið verði á túnfisk  „Það þarf meira til svo þetta sé áhættunnar virði“ Morgunblaðið/Þórður Túnfiskur Veiðar gengu þokkalega 2014 og 2015. Lýðháskólinn á Flateyri var settur í fyrsta sinn á laugardaginn sl. í íþróttahúsinu að viðstöddu fjöl- menni. Skólinn er fullsetinn þetta fyrsta skólaár en 30 nemendur stunda nám við skólann og voru þeir valdir úr hópi 50 umsækjenda. Skólinn er byggður á norrænum lýðháskólahefðum og hafa nemendur frelsi til menntunar út frá einstak- lingsbundnum forsendum. Þannig byggir skólinn ekki á prófum, ein- kunnum eða gráðum heldur skapar hann nemendum aðstæður og um- gjörð til náms og menntunar. Kennt er í tveimur deildum, í ann- arri þeirra er lögð áhersla á örugga nýtingu auðlinda í náttúru, menn- ingu og samfélagi en í hinni er lögð áhersla á listræna hugmyndavinnu og sköpun. Nemendur, starfsfólk, makar og börn sem flytja á Flateyri vegna skólans eru á fimmta tug og fjölgar íbúum á Flateyri um 30 pró- sent. Skólinn er rekinn fyrsta skóla- árið fyrir sjálfsaflafé sem aflað var með styrkjum og framlögum. Lýðháskólinn hefur göngu sína á Flateyri  Íbúum á Flateyri fjölgar um 30% Ávarp Guðni Th. Jóhannesson for- seti flutti ávarp við skólasetningu. Rangt starfsheiti Í frétt blaðsins sl. laugardag um steinlistaverk á Austfjörðum var ranglega sagt að Sigrún Ágústs- dóttur væri forstjóri Umhverfis- stofnunar. Hið rétta er að Sigrún er sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. LEIÐRÉTT Matur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.