Morgunblaðið - 24.09.2018, Síða 9

Morgunblaðið - 24.09.2018, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Sími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Ég lifði af Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála hefur hafnað kröfu félags leigutaka hjólhýsastæða í landi Skriðufells í Þjórsárdal um að ógilda ákvörðun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps um breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Stendur því ákvörðun landeiganda, Skógræktar ríkisins, um að hjólhýsin þurfi að vera á hjólum þannig að hægt sé að færa þau til skoðunar og koma þeim í burtu með stuttum fyrirvara ef nauðsynlegt er vegna elds eða nátt- úruhamfara. Í rökstuðningi félags hjólhýsaeig- enda kemur fram það álit að svæðið hafi verið leigt undir varanlega stað- sett hjólhýsi félagsmanna og það sé því frístundabyggð. Hjólhýsin séu varanlega staðsett og því ekki á skráningarnúmerum og við þau hafi verið skeytt varanlegum pöllum og stöku geymslum. Sum hafi verið þar í 30 ár. Brugðist við alvarlegum slysum Skógrækt ríkisins bendir á að ákveðið hafi verið að grípa til breyt- inga á fyrirkomulagi útleigu og skipulagi svæðisins í kjölfar mjög al- varlegra slysa á hjólhýsasvæðinu. Fulltrúar löggæslu, brunavarna og skipulagsmála hafi talið nauðsynlegt að öll hjólhýsi væru skráð, tryggð og í ástandi til að draga mætti þau af stæðum með litlum fyrirvara ef upp kæmi hættuástand á svæðinu. Þá hafi verið lagt bann við því að selja hjólhýsi á leigustæðunum til að minnka líkur á slysum. Í kjölfar breytinganna hafi tölu- vert af gömlum hjólhýsum og „trail- erum“ sem eru breiðari en hjólhýsi, horfið af svæðinu. Breytingin hafi valdið hluta leigjenda óþægindum en markmiðið hafi verið að gera svæðið að öruggari dvalarstað fyrir alla gesti. Úrbætur varðandi flótta- leiðir, merkingar og fleira hafi verið gerðar í kjölfar niðurstöðu verk- fræðistofu í mati á brunahættu. Íþyngjandi kröfur Félag leigjenda segir að kröfur Skógræktarinnar hafi verið mjög íþyngjandi. Þess hafi meðal annars verið krafist að hjólhýsin væru skráð og færð til skoðunar annað hvert ár. Leigusamningar séu aðeins gerðir til eins árs í senn og séu skilmálar landeigenda algerlega á skjön við þau réttindi og skyldur sem lög um frístundabyggð feli landeiganda og umráðamönnum lóða að fara eftir. Félagið krafðist þess að hjólhýsa- hverfið í Skriðufelli yrði skilgreint sem frístundabyggð og til vara að tilteknum skilmálum hins kærða deiliskipulags yrði breytt. Úrskurð- arnefndin tók fram að það væri ekki á hennar færi að breyta ákvörðunum sem til hennar væri skotið. Hún komst að þeirri niðurstöðu að lög- mæt og málefnaleg sjónarmið hefðu legið að baki breytingu á deiliskipu- laginu. Henni hefði ekki verið áfátt, hvorki að efni né formi, og því var kröfu hjólhýsaeigenda um ógildingu hafnað. Hjólhýsin þurfa að vera færanleg  Hertar öryggiskröfur í hjólhýsa- hverfinu í Þjórsárdal  Kæru félags leigutaka hefur verið hafnað Morgunblaðið/Sigurður Bogi Í Þjórsárdal Hjólhýsi hafa verið varanlega staðsett og því ekki á skráning- arnúmerum og við þau skeytt varanlegum pöllum og stöku geymslum. Reikningi í eigu Samtaka hernaðar- andstæðinga var lokað hjá Arion banka vegna þess að afrit vantaði af persónuskilríkjum allra stjórnar- manna. Stefán Pálsson, sagn- fræðingur og hernaðar- andstæðingur, vakti athygli á þessu á facebook- síðu sinni um helgina: „Þetta mun vera hluti af baráttunni gegn peningaþvætti. Ruglið í eftirlits- iðnaðinum ríður ekki við einteym- ing,“ skrifaði hann á facebooksíðuna. Í samtali við Morgunblaðið segir Stefán að komið hafi upp úr krafsinu þegar samtökin leituðu skýringa á lokun reikningsins að afrit vantaði af gildum persónuskilríkjum nokkurra stjórnarmanna samkvæmt reglum um peningaþvætti. „Þetta er pínku- lítið hvimleitt þegar menn fara í svona sýndareftirlit,“ segir Stefán. „Það liggur fyrir að við erum með tólf manna stjórn og fjórir í hópnum voru annaðhvort ekki viðskiptavinir Arion banka eða búnir að skila þessu inn annars staðar út af öðru. Ég hef lítið verið að stunda alþjóðlegt pen- ingaþvætti en mig brestur ímynd- unarafl hvernig þetta getur verið vettvangurinn fyrir það, hvað menn séu að stoppa og hverju það skilar,“ segir Stefán en hann segir veltuna á reikningnum hafa verið um 80 þús- und á ári hverju. „Við nennum ekki að fara að hlekkja okkur við einhverjar fjár- málaeftirlitsstofnanir út af þessu,“ segir Stefán. Hann segir stjórnar- mennina einfaldlega ætla að fram- vísa skilríkjum í bankanum. Morgunblaðið/Golli Lokað Reikningnum var lokað vegna aðgerða gegn peningaþvætti. Hissa á sýndar- eftirliti bankanna  Reikningi hernaðarandstæðinga lokað Stefán Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.