Morgunblaðið - 24.09.2018, Side 12

Morgunblaðið - 24.09.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018 Ég skaust til Akureyrar í síð-ustu viku. Flaug norðurum morguninn og aftur til Reykjavíkur seinni partinn. Vinnu- ferð. Ég er búinn að fara oft norð- ur síðustu misseri og finnst það alltaf jafn gaman. Það er eitthvað töfrandi við Akureyri. Fallegur bær og umhverfi. Ef ég hef tíma labba ég frá flugvellinum inn í bæ- inn. Það er göngustígur alla leið. Þessi gönguleið er í miklu uppá- haldi hjá mér, ég fæ orku við að labba meðfram sjónum. Veðrið skiptir ekki máli. Ég tek með mér létt gönguföt ef það eru líkur á roki á rigningu, sem er nánast aldrei, því eins og alþjóð veit er alltaf sól og blíða á Akureyri. Ef vinnudagskráin leyfir labba ég líka út á flugvöll í lok dags. Stór súrefnisskammtur Þessi ganga er lítið dæmi um hvernig hægt er að koma hreyf- ingu inn í daglegt líf. Þeir sem eru mikið á ferðinni hugsa oft ekki út í þennan möguleika. Eru fastir í því að fara á milli staða í bíl eða öðrum farartækjum. Bíða frekar eftir fari heldur en að labba á milli staða. Það kom mér skemmtilega á óvart að heyra að þátttakendurnir á vinnustofunni sem ég var með á Akureyri eru duglegir að hreyfa sig. Ein til dæmis labbar alltaf til og frá vinnu, um 45 mínútna leið. Frábær byrjun á degi að hreyfa sig mjúklega og fá stóran súrefn- isskammt í leiðinni. Gangan heim úr vinnu hjálpar svo til við að hreinsa hugann. Losa vinnuverk- efnin úr hausnum og koma fersk heim í faðm fjölskyldunnar. Annar notar aldrei lyftur. Labbar alltaf upp og niður stiga, bæði í vinnu og utan. Hann vann fyrir nokkrum ár- um á sjöundu hæð og gekk þá allt- af upp og niður stigana. Fyrst í stað tóku vinnufélagar hans lyft- una, en smituðust svo af okkar manni og fóru að fylgja hans for- dæmi. Lykilþáttur í langlífi Það eru ótal leiðir til að auka við daglega hreyfingu. Við þurfum bara að líta aðeins upp úr sím- unum og koma auga á þau tæki- færi sem eru fyrir framan okkur alla daga. Dagleg hreyfing er lyk- ilþáttur í langlífi og góðri heilsu. Þeir sem nýta hreyfifæri (hreyfing + tækifæri) dagsins lifa lengur og betur en þeir sem lifa þægilegu en óhollu kyrrsetulífi. Það er bæði vísindalega sannað og heilbrigð skynsemi. Dagleg hreyfing Njóttu ferðalagsins Guðjón Svansson gudjon@njottuferdalagsins.is Guðjón Svansson er Íslendingur, ferðalangur, eiginmaður, fjögurra stráka faðir, rithöfundur, fyrirles- ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og nemandi sem heldur úti bloggsíð- unni njottuferdalagsins.is Verð frá 102.508 Vitamix blandararnir eiga sér engan jafningja. Mylja nánast hvað sem er. Búa til heita súpu og ís. Hraðastillir, prógrömm og pulse rofi sjá til þess að blandan verður ávallt fullkomin og fersk! Nýjir meistarar eru mættir Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Ascent serían frá Vitamix Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Almenningur á Íslandi værifyrir löngu búinn að til-einka sér bíllausan lífsstílværu réttu aðstæðurnar fyrir hendi. Umferðin og mengunin í Reykjavík hefur áhrif á alla, ekki síst þá sem keyra og sitja fastir í umferð sem getum öll verið sam- mála um að draga verði úr,“ segir Valgerður Húnbogadóttir, nýr varaformaður Samtaka um bíllaus- an lífsstíl. Fjallað var m.a. um áherslur stjórnvalda í loftslags- málum og fyrirhuguð orkuskipti bílaflotans á aðalfundi samtakanna í síðustu viku. Þar segir að jákvætt sé – svo langt sem það nái – að hætta skuli nýskráningu bíla knú- inna jarðefnaeldsneyti eftir tólf ár. Óleyst séu þó ýmis vandamál önnur sem bílaumferð skapar. Mun skil- virkara sé að leggja mesta áherslu á breyttar ferðavenjur. „Vistvænar samgöngur henta öllum. Þegar annar ferðamáti en einkabíllinn býðst léttist umferð og bílastæðaskortur minnkar. Ungt fólk sem er að flytja að heiman á ekki að þurfa að neyðast til að kaupa sér bíl,“ segir Valgerður sem telur innviði fyrir hjólreiða- samgöngur í Reykjavík vera mjög góða. Þó megi sitthvað bæta. Til dæmis vanti sérstök svæði fyrir hjólafólk þar sem farið er um gang- brautir yfir götur. Sömuleiðis vanti víða tengingar sem leiði til þess að hjólreiðafólk þurfi stundum að fara leiðar sinnar um götur eða gang- stíga. Þá vanti víða stæði fyrir hjól við stofnanir og verslanir. Hættur á Grandanum „Það er yndislegt að hjóla í Reykjavík og ég get ekki mælt nógu mikið með því. Sjálf tel ég að hættulegast sé verslunarsvæðið á Granda. Þar er ekki gert ráð fyrir gangandi né hjólandi vegfarendum. Þetta er eini staðurinn þar sem ég hef talið lífi mínu ógnað í umferð- inni. Að öðru leyti er aðstaðan sem reiðhjólafólki hefur verið sköpuð hér í Reykjavík frábær,“ segir Val- gerður og heldur áfram: „Þegar ég flutti til Íslands í febrúar síðastliðnum eftir níu ár er- lendis var ég mjög efins um að geta komist af án bíls. Framfarirnar sem hafa orðið hér Reykjavík meðan ég bjó erlendis komu skemmtilega á óvart. Mér finnst ég mun öruggari á hjóli í Reykjavík en í Osló og Brussel til dæmis. Ég held að við ættum að líta til London og Parísar, en þær borgir hafa tekið miklum framförum á mjög skömmum tíma. Á einungis fáum árum hefur Lond- on verið breytt í borg sem býður íbúum sínum hjólreiðar sem raun- hæfan valkost.“ Minni bílaumferð eykur öryggi Í síðustu viku sagði Vilhjálmur Ari Arason, læknir á bráðamóttöku Landspítalans, að vart liði sú vakt þar að ekki leitaði á slysadeild hjól- reiðafólk – brákað, brotið eða þaðan af verr farið. Vandinn væri þó dul- inn, enda væru slysin lítt skráð. Um þetta segir Vala að af sjálfu sér leiði að slysatíðni vegna hjólreiða aukist þegar fleiri stundi sportið – og þá sérstaklega vegna þess að hjól- reiðastígarnir anna ekki vaxandi umferð. „Ég get ímyndað mér að flest slys eigi sér stað á gatnamótum þar sem ekki er gert ráð fyrir hjólandi umferð. Og margir nota ekki hjálm. Hinsvegar hefur hjálmaskylda snú- ist upp í andhverfu sína í til dæmis Ástralíu og varð til þess að verulega dró úr hjólreiðum þar. Sjálf nota ég alltaf hjálm og hvet alla til þess líka. En þó hjólreiðar séu hættu- legar tel ég aukið öryggi fólgið í því að draga úr bílaumferð. Það verður eflaust aukning á bráðamóttöku Landspítalans en ég er fullviss um að bættar samgöngur muni draga úr lífsstílssjúkdómum eins og syk- ursýki, of háum blóðþrýstingi og fleiru,“ segir Valgerður sem kveðst í raun aldrei hafa valið sér bíllausan lífsstíl sem hins vegar rími við áhugamál sín, útivist og ferðalög. Mæti fersk til vinnu „Ég hef sinnt krefjandi störfum og ferðast mikið vegna vinnu minn- ar. Þar af leiðandi hefur líkamsrækt setið á hakanum. Með því að hjóla, skokka eða ganga til og frá vinnu næ ég að hreyfa mig daglega og mæti fersk til vinnu á hverjum morgni. Þá finnst mér mjög gaman að kynnast nýjum menningar- heimum á hjóli. Ég og maðurinn minn höfum farið í viku hjólaferð um vínhéruð Loire-dalsins í Frakk- landi. Þar getur maður leigt hjól í einum bæ og skilað í öðrum. Ég á mér draum um að þetta geti orðið að veruleika á að minnsta kosti Suð- urlandinu og í Eyjafirði,“ segir Val- gerður og heldur áfram: „Þegar ég fer í borgarferðir til útlanda nýti ég mér einnig hjólið til að kynnast borginni betur enda mun skemmtilegra en að ferðast með neðanjarðarlest. Mér hefur til dæmist aldrei liðið eins öruggri á hjóli og á Manhattan og í Brooklyn. Á Íslandi getur maður vel átt bíl án þess að nota hann á hverjum degi og það er einmitt eitt af því sem Samtök um bíllausan lífsstíl vilja berjast fyrir.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Útivera Þorvaldur Daníelsson hjá Hjólakrafti hefur boðað fagnaðarerindi hjólreiða undanfarin ár. Hér er hann með hópi á ferð í Heiðmörk í sl. viku. Yndislegt að hjóla Í Reykjavík hafa verið skapaðar góðar aðstæður fyrir hjólreiðafólk. Betur má þó gera. Valgerður Húnbogadóttir segir bíllaust líf henta sér vel. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bíllaus Með því að hjóla, skokka eða ganga til og frá vinnu hreyfi ég mig daglega, segir Valgerður Húnbogadóttir. Þegar annar ferðamáti en einkabíllinn býðst léttist umferð og bíla- stæðaskortur minnkar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.