Morgunblaðið - 24.09.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.09.2018, Blaðsíða 23
Music and Drama í Glasgow og lauk þaðan meistaragráðu sumarið 1998. Hann var fyrsti fastráðni söngvarinn við Íslensku óperuna 2001-2004. Ólafur Kjartan er sjálfstætt starf- andi óperusöngvari og býr ásamt eiginkonu sinni og yngri dóttur í Þýskalandi. Á undanförnum miss- erum hefur hann komið fram víða í Evrópu, Bandaríkjunum, Ástralíu og í Japan. Hann hefur skapað sér sess sem dramatískur barítón og helstu hlutverk hans eru úr óperum Verdi, Wagners, Strauss og Puccini. Ólafur Kjartan er þekktastur fyrir túlkun sína á Rigoletto, Falstaff, Hollend- ingnum fljúgandi og Telramund svo fáein hlutverk séu nefnd. Ólafur Kjartan er enn veikur fyrir tölvum og tæknilega sinnaður. Svo hefur hann afar gaman af því að taka ljósmyndir: „Ég ferðast svo mikið í mínu starfi að ég bý nánast í ferðatösku. Áhugi minn á ljós- myndun heldur mér á hreyfingu á þessum ferðalögum, fær mig til að rölta um, gefa umhverfinu gaum og reyna að fanga nærumhverfið, hversdagslífið og augnablikið, í stað þess að hanga sífellt inni á hótel- herbergjum og glápa á sjónvarps- skjá.“ Ólafur Kjartan hefur hlotið marg- víslegar viðurkenningar fyrir störf sín, m.a. Grímuverðlaunin fyrir túlk- un sína á Rigoletto og Íslensku tón- listarverðlaunin fyrir Scarpia í óperunni Toscu. Fjölskylda: Eiginkona Ólafs Kjartans er Sigurbjörg Bragadóttir, f. 24.4. 1968, kjólaklæðskeri og húsmóðir. For- eldrar Sigurbjargar eru Bragi Ósk- arsson, f. 25.9. 1938, fyrrv. starfs- maður Jarðborana ríkisins, og Guðný Hákonardóttir, f. 11.10. 1943, d. 7.11. 2008, húsmóðir. Börn Ólafs Kjartans og Sigur- bjargar eru Fjölnir Ólafsson, f. 8.5. 1990, söngvari og nemi í lögfræði, búsettur í Reykjavík en eiginkona hans er Vala Bjarney Gunnarsdóttir háskólanemi; Ásgerður Ólafsdóttir, f. 28.6. 1994, viðskiptafræðingur í Reykjavík en sambýlismaður hennar er Bjarmi Hreinsson, tónlistarmaður og nemi, og Brynja Ólafsdóttir, f. 11.8. 2000, nemi. Barnabörn Ólafs Kjartans og Sig- urbjargar eru Bragi Fjölnisson, f. 25.2. 2010, og Sigríður Salka Fjölnisdóttir, f. 8.9. 2016. Foreldrar Ólafs Kjartans eru Sig- urður Rúnar Jónsson (Diddi fiðla), f. 19.1. 1950, tónlistarmaður, og Ásgerður Ólafsdóttir, f. 12.2. 1950, sérkennari. Ólafur Kjartan Sigurðarson Þóra Jóhannsdóttir húsfreyja á Jarðbrú Jón Baldvin Hallgrímsson b. á Jarðbrú í Svarfaðardal Filippía Jónsdóttir húsfreyja á Akranesi Ólafur Kjartan Guðjónsson kaupmaður á Akranesi Ásgerður Jensdóttir húsfreyja í Hnífsdal, bróðurdóttir Halldórs, langafa Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi ráðherra Guðjón Ólafsson sjómaður í Hnífsdal, af Eyrarætt Jóhanna Linnet söngkona Bjarni Linnet póstmeistari á Egilsstöðum, í Hafnarfirði og Kópavogi Vernharður Linnet djass-sögufræðingur Henrik Linnet læknir í Rvík Ásgerður Ólafsdóttir sérkennari Guðjón Baldvin Ólafsson forstjóri SÍS Halldór Jónsson oddviti og dýralæknir á Jarðbrú Jón Baldvin Halldórsson upplýsingafulltrúi við LSH Atli Rúnar Halldórsson blaðamaður í Rvík Jón Jónsson b. á Jarðbrú í Svarfaðardal Mjallhvít Margrét Linnet húsfreyja í Rvík, systurdóttir Játvarðar Jökuls rithöfundar Ásta Erlingsdóttir grasalæknir Gissur Erlingsson umdæmisstj. Pósts og síma og þýðandi (lést 104 ára) Úr frændgarði Ólafs Kjartans Sigurðarsonar Jón Sigurðsson (Jón bassi) kontrabassaleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Þingeyri Bjarni Benediktsson frá Hofteigi, rithöfundur í Rvík Kolbeinn Bjarnason tónlistarmaður Bergþóra Benediktsdóttir húsfreyja í Kópavogi Benedikt Sveinbjörnsson aðalbókari Norð- lenska á Akureyri Gunnar Ben. tónlistarmaður, m.a. í Skálmöld Sigurður Z. Gíslason prestur á Þingeyri, systursonur Þórarins, föður Jóns tónskálds Sigurður Rúnar Jónsson (Diddi fiðla) tónlistarmaður Jóhanna Unnur Erlingsson þýðandi í Rvík Leiklist Það vantar ekkert á leik- ræna tjáningu hjá Ólafi Kjartani. ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is OMPONIBILI rslur 3ja hæða – fleiri litir erð frá 17.900,- BATTERY Borðlampi – fleiri litir Verð frá 19.900,- LOUIS GHOST Stóll – fleiri litir Verð 36.900,- stk. CINDY Borðlampi – fleiri litir Verð 32.900,- GHOST BUSTER Náttborð – fleiri litir Verð 47.900,- stk. TAKE Borðlampi – fleiri litir Verð 10.900,- Glæsileg gjafavara frá PLANET CRYSTAL Borðlampi – fleiri litir Verð 54.900,- BOURGIE Borðlampi – fleiri litir Verð frá 34.900,-C Hi V Óli J. Blöndal fæddist á Siglu-firði 24. september 1918.Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Guðmundsdóttir og Jósep Lárusson Björnssonar Blöndal. Þau Guðrún og Jósep eignuðust 10 börn. Framan af ævinni vann Óli við verslunarstörf í Aðalbúðinni á Siglu- firði, en þar sáu þau fjögur systkinin, Lárus, Óli, Anna og Bryndís, um fjölbreyttan verslunarrekstur. Óli trúði á einkaframtakið í atvinnu- uppbyggingu á Siglufirði, var ástríðufullur sjálfstæðismaður og gegndi trúnaðarstörfum fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í áratugi. Samhliða verslunarrekstrinum rak hann saumastofu sem saumaði m.a. hina frægu Hagkaupssloppa og síldar- mjölspoka. Óli sat í stjórnum fjölda fyrirtækja og kom víða við í félagsmálum Sigl- firðinga, kom m.a. að stofnun og var fyrsti formaður Lionsklúbbs Siglu- fjarðar, fyrsta klúbbs utan Reykja- víkur. Síðustu 20 ár starfsævinnar var hann svo forstöðumaður Bóka- safns Siglufjarðar. Þar undi hann sér vel og vann að verkefnum sem féllu vel að hæfileikum hans og áhuga- málum. Safnið naut þess að hann var víðlesinn, listrænn og menning- arlega sinnaður, því var falið að hýsa Héraðsskjalasafn Siglfirðinga og hann kom upp tónlistardeild. Óli var frumkvöðull í að hefja minningu séra Bjarna Þorsteins- sonar tónskálds til vegs og virðingar með stofnun sérstakrar minningar- stofu um hann í bókasafninu. Þar með lagði hann fyrstu drögin að þjóðlagasafni og þjóðlagahátíð Siglu- fjarðar. Honum var málið skylt enda Bjarni kvæntur föðursystur hans. Óli var mjög músíkalskur, hafði fallega tenórrödd, söng um tíma með Karlakórnum Vísi og lék á ýmis hljóðfæri. Hann var hnyttinn og skemmtilegur og oft fenginn til að tala á mannamótum. Eiginkona hans var Margrét Björnsdóttir, sem einnig var Sigl- firðingur. Þau kynntust ung og sam- búð þeirra stóð í 65 ár. Þau eign- uðust fimm börn; Ólöfu Birnu, Jósep Örn, Ásbjörn, Sigurð og Guðrúnu. Óli andaðist 26. nóvember 2005. Merkir Íslendingar Óli J. Blöndal 90 ára Áslaug Valdemarsdóttir 85 ára Gísli Björnsson Ingvar Hallgrímsson Lára Benediktsdóttir Lydía Edda Thejll Sigríður Sigurðardóttir 80 ára Tryggvi Pálsson 75 ára Gísli Þorsteinsson Jónína Ólafsdóttir Margrét Anna Þórðardóttir Matthildur Óskarsdóttir Þorfinnur Júlíusson 70 ára Davíð B. Guðbjartsson Eva H. Vilhelmsdóttir Eysteinn Ágúst Helgason Hallgrímur Gíslason Helgi Agnarsson Mercedes Nocos Gonzales Sigurjón Stefánsson Þorlákur Helgi Helgason 60 ára Auðunn G. Guðmundsson Birna Bjarnþórsdóttir Daniel Allan Pollock Emilía Sveinbjörnsdóttir Garðar Sigurðsson Grétar Pétur Geirsson Hannes Siggason Jón Hlynur Sigurðsson Kristinn Ingason Kristín Helga Harðardóttir Pétur Guðjónsson Ragnar Ragnarsson Sigríður Ásmundsdóttir Sigríður Herdís Ólafsdóttir Steinunn L. Sigurðardóttir Sveinbjörn Blöndal Þóra Birna Pétursdóttir 50 ára Björn Gísli Erlingsson Boguslaw Orlikowski Hrefna Björk Ólafsdóttir Jóhanna María Sigurjóns- dóttir Jóhannesína Svana Jónsd. Jóhann Frímann Álfþórsson Jón Gestur Sörtveit Magnús Halldórsson Maria Alva Roff Olga Mörk Valsdóttir Soffía Heiða Hafsteinsd. Ægir Jóhannsson 40 ára Björk Baldvinsdóttir Eydís Elva Guðmundsdóttir Haakan Patrik Eriksson Hafsteinn Gunnar Sigurðss. Ingibjörg Elín Þorvaldsd. Jóhanna Helga Þorkelsd. Katrín Erlingsdóttir Kolbrún Sveinsdóttir Matthildur M. Björgvinsd. Reynir Halldórsson Pálsson Siguróli Sigurðsson Sólveig Guðmundsdóttir 30 ára Dagný Dís Magnúsdóttir Daníel Júlíusson Daníel Poul Purkhús Freydís Aðalsteinsdóttir Heiðrún Harðardóttir Hildur Gunnarsdóttir Hreiðar Már Árnason Kristbjörn Hilmir Kjartanss. Kristinn Óli Kristbjörnsson Rebecca Anna Neely Rebekka Maren Þórarinsd. Sævar Pálmarsson Til hamingju með daginn 40 ára Eydís er Akureyr- ingur og leikskólakennari á Hulduheimum Koti. Maki: Anton Ingi Þor- steinsson, f. 1975, prent- ari hjá Ásprenti Akureyri. Börn: Lárus Ingi, f. 2002, og Kara Líf, f. 2005. Foreldrar: Guðmundur Stefánsson, f. 1950, fv, verslunarmaður, og Hrefna Svanlaugsdóttir, f. 1958, skrifstofumaður hjá Roðasteini og Verkstjóra- félagi Ak. og nágrennis. Eydís Elva Guðmundsdóttir 40 ára Reynir ólst upp í Vestmannaeyjum en býr í Hafnarfirði. Hann er mál- ari hjá KC málun en er menntaður stýrimaður. Dóttir: Tara Sól, f. 2006. Systur: Arndís, f. 1982, og Aldís Eva, f. 1991. Foreldrar: Páll Arnar Georgsson, f. 1958, d. 2012, verkamaður í Vest- mannaeyjum, og Guðrún Jóna Reynisdóttir, f. 1960, fiskvinnslukona á Rifi á Snæfellsnesi. Reynir Hall- dórsson Pálsson 30 ára Margrét er Reyk- víkingur, hjúkrunarfr. og flugfreyja hjá WOW air. Maki: Kristinn Alex Sig- urðsson, f. 1988, flug- maður hjá Icelandair. Börn: Telma Svava, f. 2011, og Haukur Darri, f. 2018. Foreldrar: Skúli Þór Alex- andersson, f. 1960, strætóbílstjóri í Rvík, og Sigríður Gísladóttir, f. 1960, vinnur hjá Sýslu- manninum á Ísafirði. Margrét Helga Skúladóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.