Morgunblaðið - 24.09.2018, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2018
Ekkert varð af því að Sænska aka-
demían (SA) veldi inn nýja meðlimi á
seinasta fundi sínum á fimmtudaginn
var eins og Anders Olsson, starfandi
ritari SA, hafði gefið í skyn að til
stæði að gera. „Við munum halda
áfram að ræða val á nýjum með-
limum. Ég vona að ég geti tilkynnt
niðurstöðu,“ skrifaði Olsson í tölvu-
pósti til SVT fyrir fundinn. Að fundi
loknum sagði hann enga niðurstöðu
komna og óljóst hvenær búast mætti
við henni. Jafnframt neitaði hann að
upplýsa hversu margir meðlimir SA
hefðu sótt fundinn.
Fyrr í mánuðinum kynnti Olsson
nútímatúlkun á stofnsáttmála SA frá
1786 sem bæði gerir meðlimum kleift
að greiða atkvæði skriflega í stað
þess að sækja fundi SA og opnar fyrir
þann möguleika að Svíakonungur,
sem er æðsti verndari SA, geti veitt
undanþágu þannig að hægt sé að
velja inn nýja meðlimi með færri en
12 atkvæðum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Margaretu Thorgren, upp-
lýsingafulltrúa sænsku hirðarinnar,
hefur enn engin ósk um undanþágu
borist kónginum.
Samkvæmt heimildum SVT telur
SA ákjósanlegast að velja inn einn
löglærðan einstakling og þrjá rithöf-
unda eða bókmenntafræðinga. Meðal
þeirra sem talin eru koma til greina
eru höfundarnir Lena Andersson og
Lars Norén og lögfræðingurinn Fre-
drik Wersäll.
Í dag er þriðji og síðasti dagurinn í
réttarhöldum yfir Jean-Claude
Arnault, sem kvæntur er Katarinu
Frostenson sem tók sæti í SA 1992 en
hætti þar störfum í vor eftir að Ar-
nault var sakaður um kynferðislegt
ofbeldi og óeðlileg fjárhagsleg tengsl
við SA gegnum eiginkonu sína og vin,
Horace Engdahl. Arnault er ákærður
fyrir að hafa nauðgað sömu konunni
tvisvar undir lok árs 2011. Í fyrra
skiptið mun hann hafa neytt hana til
munnmaka áður en hann nauðgaði
henni. Í seinna skiptið var konan sof-
andi þegar Arnault kom fram vilja
sínum. Alls sjö einstaklingar bera
vitni fyrir dómi, en þolandinn fór þeg-
ar árið 2013 að íhuga það að kæra
Arnault til lögreglunnar. Meðal
gagna sem stuðst er við eru lækna-
skýrslur, en konan ræddi árásirnar
við lækni sinn á sínum tíma.
silja@mbl.is
Enn ekki fullmannað
Anders
Olsson
Jean-Claude
Arnault
Lokadagur
réttarhalda yfir
Arnault í dag
» Fjölskyldumyndirnefnist sýning sem opn-
uð var í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur á laugardag
en á henni má sjá ljós-
myndir hjónanna Guð-
bjarts Ásgeirssonar og
Herdísar Guðmundsdóttur
auk verka nokkurra af-
komenda þeirra en þeirra
á meðal eru Ólafur Elías-
son og systkinin Ari og
Silja Magg. Systkinin Ari
og Silja stigu sín fyrstu
skref undir handleiðslu
föður síns Magnúsar Hjör-
leifssonar sem er barna-
barn Guðbjarts og Her-
dísar en faðir Ólafs, Elías,
var bróðir Magnúsar.
Sýningin Fjölskyldumyndir var opnuð um helgina í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Morgunblaðið/Hari
Fjölskyldumynd Magnús Hjörleifsson með börnunum sínum, Ara Magg og Silju Magg.
Listvinir Ingibjörg Pálmadóttir viðskiptakona og Ármann Reynisson
vinjettuskáld spjölluðu saman um daginn og veginn við opnunina.
Spjallað Barði Jóhannsson
tónlistarmaður og Björn Stef-
ánsson, leikari og tónlistar-
maður, voru á meðal gest-
anna á sýningaropnuninni í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur
og tóku tal saman um mál
sem vert er að ræða.
Góðir gestir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og skyldmenni sýnenda.
ICQC 2018-20
Tíska & förðun
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
Fjallað verður um tís
förðun, snyrtingu, fa
fylgihlutum auk umh
húðarinnar, dekur og
Sérblað um Tísku og förðun fylgir
Morgunblaðinu föstudaginn 5. október
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 1. október
SÉRBLAÐ