Morgunblaðið - 24.09.2018, Síða 32
Fáir hafa notið betur
bónda síns en ég er yf-
irskrift erindis sem
Dagrún Ósk Jónsdóttir
þjóðfræðingur heldur í
Borgarbókasafninu í
Spönginni í tengslum
við veggspjaldasýninguna Skessur
sem éta karla sem nú stendur yfir.
Þar segir Dagrún frá rannsóknum
sínum á mannáti í íslenskum þjóð-
sögum, en það birtist einkum í
tröllasögum, þar sem átök kynjanna
leika stórt hlutverk.
Þar segir oftast frá tröllskessum
sem leggja sér karlmenn til munns.
Hvað geta þessar sögur sagt okkur
um samfélagið sem þær eru sprottn-
ar úr? Af hverju éta skessur menn
og hvernig getur maður sloppið frá
mannætunum?
Skessusagnakaffi um
mannát og skessur
MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 267. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Þrjú lið eiga enn
möguleika á titlinum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Ragnheiður Júlíusdóttir og stöllur
hennar í Íslandsmeistaraliði Fram í
handknattleik eru eina taplausa lið-
ið í Olís-deild kvenna þegar tveimur
umferðum er lokið. Fram vann góð-
an sigur á grönnum sínum í Val um
helgina. Nýliðar deildarinnar, HK og
KA/Þór, unnu óvænta sigra.
Í Olís-deild karla sitja FH-ingar á
toppnum þegar
tveimur leikjum er
ólokið í deildinni.
FH vann Gróttu
naumlega í
gærkvöld á
heima-
velli sín-
um. Fram
batt enda á sig-
urgöngu nýliða
KA. »2, 6
Fram-konur eru einar
efstar og taplausar
DUCA Model 2959
L 215 cm Leður ct. 20 Verð 469.000,-
L 241 cm Leður ct. 20 Verð 495.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY Model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 415.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 559.000,-
TRATTO Model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 295.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,-
MENTORE Model 3052
L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 299.000,-
L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 329.000,-
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Það er svo ótrúlega mikið annað í
boði en þessar hefðbundnu greinar
sem eru vinsælar. Það þarf lítið til
að kynna sér skemmtilega og
öðruvísi hreyfingu og finna sér
þannig einhverja skemmtilega
grein,“ segir Hrönn Guðmunds-
dóttir, sviðsstjóri almennings-
íþróttasviðs hjá Íþrótta- og ólymp-
íusambandi Íslands, ÍSÍ. Í gær
hófst evrópsk hreyfivika með
„BeActive“-deginum í Laugar-
dalnum.
Vatns-zumba og frisbígolf
Í Laugardalnum var fólki boðið
upp á að spreyta sig í ýmsum
íþróttagreinum. Til að mynda var
hægt að prófa vatns-zumba, rat-
hlaup, frisbígolf og stafgöngu.
Hrönn var stödd í Laugardalnum
þegar blaðamaður tók hana tali í
gær.
„Það er búið að vera fjör á öll-
um vígstöðvum í dag. Það var
sérstaklega gaman að sjá fótbolta-
mót Íslandsleika Special Olympics
en þar spiluðu ótrúlega flottir
krakkar og fólk á öllum aldri fót-
bolta og tókst mjög vel.“
Sporna við hreyfingarleysi
Evrópska íþróttavikan er haldin
í yfir 30 löndum í Evrópu. ÍSÍ
hlaut styrk frá Evrópusambandinu
í gegnum Erasmus+-styrkjakerfið
til verkefna sem munu tengjast
vikunni. Hrönn segir markmið vik-
unnar að fá fólk til að hreyfa sig
og finna sér hreyfingu sem því
þyki skemmtileg.
„Með vikunni viljum við sporna
við hreyfingarleysi og hvetja fólk
til að leita sér að hreyfingu við
hæfi. Íþróttir þurfa ekki alltaf að
vera afreks- og keppnismiðaðar.
Hreyfing má líka vera innan hæfi-
legra marka og það er hægt að
finna dásamlegan félagsskap með
því að vera með fólki í hreyfingu.“
ÍSÍ er ekki beinn skipuleggjandi
hreyfivikunnar en vinnur að því að
kynna íþróttafélög í vikunni.
„Við höldum utan um þetta og
komum félögunum á framfæri. Til
að mynda verða opnar körfubolta-
æfingar í Keflavík, Ferðafélagið
býður upp á lýðheilsugöngur og
rathlaupið verður með kynningar-
viðburð um næstu helgi,“ segir
Hrönn.
Viðburðir hreyfivikunnar verða
auglýstir á fésbókarsíðu „BeActive
Iceland“ og á vefsíðunni beacti-
ve.is. „Í vikunni verður eitthvað í
boði fyrir alla, á öllum aldri og af
öllum stærðum og gerðum. Við
einblínum á sem breiðastan hóp,“
segir Hrönn að lokum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjölbreytni Á „BeActive“ deginum stóð þátttakendum til boða að spreyta sig í ýmsum íþróttagreinum.
Fjör á öllum vígstöðv-
um í Laugardalnum
Fá fólk til að hreyfa sig og finna sér hreyfingu við hæfi
Ekki réðust úrslitin á Íslandsmóti
karla, Pepsi-deildinni, í gær þegar
næstsíðasta umferðin var leikin.
Staðan er sú fyrir lokaumferðina
sem fram fer á laugardaginn að þrjú
lið eiga enn möguleika á Íslands-
meistaratitlinum. Ríkjandi Íslands-
meistarar, Valur, standa best að vígi
en Breiðablik og Stjarnan eiga
ennþá von þótt veikari sé. »4-5