Morgunblaðið - 05.10.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.10.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018 Guðrún Óla Jónsdóttir gudruno@mbl.is „Það kemur fram greinileg vanlíðan í textanum og augljóst að hún hefur fylgt viðkomandi fram á fullorð- insár,“ segir Már Jónsson sagnfræð- ingur, einn þeirra sem flytja munu erindi á málþingi í Þjóðminjasafni Ís- lands í dag. Þingið er haldið til heið- urs Guðrúnu Ásu Grímsdóttur og hefst klukkan 13.30. Erindi Más ber titilinn Kynferðis- legt ofbeldi í Skálholtsskóla árið 1769 og byggist á æskuminningum nem- anda úr skólanum sem Már segir gefa til kynna að viðkomandi hafi ver- ið beittur kynferðislegu ofbeldi af samnemanda sínum. Vanlíðan og sterk tilfinning Í Skálholti var biskupssetur frá árinu 1056 og var þar stofnaður Skál- holtsskóli en hlutverk hans var fyrst og fremst að mennta menn til að gegna prestsembættum. Már segist hafa verið að grúska í gögnum um mann sem stundaði nám í Skálholtsskóla, þegar hann rakst á frásögn sem maðurinn hafði sjálfur skrifað og bendir til kynferðislegrar misnotkunar. Már neitar að nafn- greina manninn en segist vitaskuld ætla að gera það í erindinu og bætir við að hann sé nokkuð þekktur. „Þetta er í rauninni mjög sorglegt. Það er vanlíðan í textanum og sterk tilfinning á bak við þetta. Hann lýsir þessu nokkuð ná- kvæmlega og lýs- ingarnar eru hrollvekjandi.“ Már segir við- komandi tala um einn geranda og nokkur nöfn komi til greina í þeim efnum en hann ætlar í erindi sínu að velta vöngum um mögulega sökudólga. Rímar við nútímann Már segist ekki hafa séð neitt líkt þessari frásögn áður. „Spurningin er þá hvort til séu fá dæmi um svona nokkuð, alveg eins og fá þekkt dæmi eru um nauðganir á konum, af því að það var svo lítið um þetta eða af því að svona lagað var þaggað niður. Ég efast í sjálfu sér ekkert um að þetta hafi verið algengara en vitað er í dag. Það hafa örugglega verið einhverjir einstaklingar sem voru erfiðir, ágengir og frekir við minnimáttar og svo framvegis, rétt eins og nú.“ Hann bætir við að textinn, sem skrifaður var fyrir rúmum tvö hundruð árum, rími við nútímann að því leyti að við- komandi taki fram að hann hafi ekki getað sagt neinum frá þessu. „Það er sama sjálfsþöggunin og nú. En með þessum texta bætist smá bútur inn í umræðuna og styrkir það að auðvitað hafi ýmislegt verið í gangi sem við bara vitum ekkert um.“ Sama sjálfsþöggunin og nú  Talað um einn geranda en nokkrir koma til greina  Nokkuð nákvæmar lýs- ingar  Gat engum sagt frá  Bútur í umræðuna  Veltir vöngum um sökudólga Morgunblaðið/Árni Sæberg Kirkja Skálholt er einn merkasti sögustaður landsins, samtvinnaður sögu kristni á Íslandi og þar var löngum rekinn skóli, en svæðið er afar fjölsótt. Már Jónsson Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Júlíusi Vífli Ingvarssyni, fyrr- verandi borgarfulltrúa, vegna meints peningaþvættis fer fram fimmtudag- inn 29. nóvember. Þetta var ákveðið við fyrirtöku málsins í gær, en þar kom einnig fram að verjandi Júlíusar fengi frest til 1. nóvember til að skila greinargerð í mál- inu. Í málinu er Júl- íus ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa geymt á erlendum bankareikningi sínum fjárhæðir að andvirði 131 til 146 milljónir króna, sem voru að hluta til ávinningur refsiverðra brota, og ráðstafað þeim á banka- reikning hjá vörslusjóði í Sviss. Í ákæru málsins kemur fram að Júlíus hafi geymt fjármagnið í Bandaríkja- dölum, evrum og sterlingspundum, á bankareikningi sínum hjá bankanum UBS á aflandseyjunni Jersey í Ermarsundi á árunum 2010 til 2014. 49 til 57 milljóna vextir Þá er hann sagður hafa ráðstafað umræddum fjármunum inn á banka- reikning sem tilheyrði vörslusjóðnum Silwood Foundation í bankanum Juli- us Bär í Sviss. Rétthafar vörslusjóðs- ins voru Júlíus, eiginkona hans og börn. Um var að ræða tekjur sem honum höfðu hlotnast nokkrum árum fyrr en ekki talið fram til skatts. Því greiddi hann ekki tekjuskatt, útsvar eða vexti af fjármununum. Í ákærunni segir að fjárhæð hins ólögmæta ávinnings sem Júlíus kom sér undan að greiða og vextir af því fé hafi verið á bilinu 49 til 57 milljónir króna. Í ákærunni segir að við rannsókn málsins hafi Júlíus viðurkennt að fjármagnið væri tekjur sem hann hefði ekki gefið upp til skatts. Þar segir þó að Júlíus neiti að gera nánari grein fyrir því hvenær tekn- anna var aflað. Mál Júlíusar verður í nóvember Júlíus Vífill Ingvarsson  Greiddi hvorki tekjuskatt né útsvar Þórarinn G. Pétursson, aðalhag- fræðingur Seðlabanka Íslands, hefur dregið til baka og beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á fundi hjá Félagi atvinnurekenda 11. september. Þar ályktaði hann út frá mikl- um arðgreiðslum síðustu ár að ríkið sem eigandi tveggja kerfis- lega mikilvægra banka væri að beita þrýstingi til að lækka eigið fé bankanna. Í leiðréttingu segir hann að um- mælin hafi ekki byggst á kynning- arefni hans eða skrifuðum texta og að þau hafi ekki verið í samræmi við neitt sem Seðlabankinn hefur látið fara frá sér um þessi mál, og ekki heldur fjármálastöðugleikaráð. Leiðréttingin í heild sinni „Á fundi mínum hjá Félagi at- vinnurekenda 11. september sl. hafði ég í frammi ummæli þar sem ég ályktaði út frá miklum arðgreiðslum undanfarinna ára að ríkið sem eig- andi tveggja kerfislega mikilvægra banka væri að beita þrýstingi til að lækka eigið fé bankanna. Þessi um- mæli byggðust ekki á kynningarefni mínu eða skrifuðum texta. Þau voru heldur ekki í samræmi við neitt sem Seðlabankinn hefur látið frá sér fara um þessi mál né fjármálastöðug- leikaráð sem fjármála- og efnahags- ráðherra er formaður í. Ég dreg þessi ummæli því til baka og biðst af- sökunar á þeim,“ segir í tilkynningu sem Þórarinn sendi frá sér. Biðst afsökunar á ummælum sínum  Féllu á fundi Félags atvinnurekenda Þórarinn G. Pétursson Morgunblaðið/Ómar Banki Ummæli aðalhagfræðings féllu á fundi 11. september sl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.