Morgunblaðið - 05.10.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Traust og fagleg
starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum
fyrirtækjum í áraraðir
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
NannaBriemgeðlæknir
á 50 ára afmæli í
dag. Hún er yfir-
læknir á Laugar-
ásnum, í geð-
hvarfateymi og á
sérhæfðu
endurhæfingar-
geðdeildinni á
Landspítala, en á
öllum þessum
þremur einingum
er verið að sinna
ungu fólki með al-
varlegri geðrask-
anir.
„Einingarnar mínar leggja áherslu á að sinna ungu fólki með al-
varlega geðrofssjúkdóma í upphafi veikindanna og koma þeim út í
lífið aftur. Þar vinn ég með frábæru starfsfólki sem sinnir starfi
sínu af mikilli ástríðu. Það er mikilvægt að grípa snemma inn í geð-
sjúkdómana. Það eykur batahorfur verulega svo að ungt fólk geti
haldið lífi sínu áfram, verið í námi og farið að vinna. Laugarásinn
er dagdeild fyrir ungt fólk með geðrofssjúkdóm á byrjunarstigi.
Sérhæfða endurhæfingargeðdeildin er lokuð legudeild. Geðhvarfa-
teymið er göngudeildarteymi, þar er lögð áhersla á að kenna fólki á
sinn eigin sjúkdóm og að bregðast við einkennum þegar þau koma,
og leggst fólk þá síður inn.“
Erlendar rannsóknir benda til þess að ungu fólki með geðrofs-
sjúkdóma hefur fjölgað og hefur kannabisreykingum verið m.a.
kennt um. „Við erum að hefja rannsókn á tíðni geðrofssjúkdóma
hér á Íslandi svo við vitum ekki enn hvort þeim fer fjölgandi hér en
það kæmi mér ekki á óvart.“
Þegar Nanna er ekki að sinna sjúklingum sínum þá sinnir hún
fjölskyldunni, manni, börnum og hundi, en svo finnst henni gaman
að ferðast, lesa bækur og fara í leikhús. „Ég fer með saumaklúbbn-
um, en við erum með ársmiða, og svo dreg ég stundum manninn
minn með mér.“ Sá heitir Jóhann Viggó Jónsson og er varðstjóri
hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Börn þeirra eru Daníel
Eggert 18 ára, Tómas Gísli 13 ára og Kirsten Margrét, kölluð Mía,
og er tíu ára. Svo eru tvö barnabörn, synir Jóns Húna, stjúpsonar
Nönnu.
„Ég ætla að bjóða nánustu fjölskyldu í mat í kvöld og síðan fer ég
í næstu viku til Rómar með vinkonum mínum sem allar eru fimm-
tugar á þessu ári líka. Ég hef komið til Rómar einu sinni áður og
hún er alveg dásamleg borg og gaman að koma þangað.“
Ásamt börnunum Daníel, Mía, Nanna og Tómas.
Mikilvægt að grípa
snemma inn í
Nanna Briem er fimmtug í dag
L
ára Halla Maack fædd-
ist í Reykjavík 5.10.
1948 og ólst upp fyrstu
12 árin í Reykjavík,
Kaupmannahöfn og í
Álaborg. Í Reykjavík bjó fjöl-
skyldan í Sörlaskjóli, Skúlaskála
(Kveldúlfshúsunum) og Selvogs-
grunni. Faðir hennar hafði umsjón
með skipasmíði Eimskipafélagsins í
Burmeister og Wain í Kaupmanna-
höfn og í skipasmíðastöð Ála-
borgar.
Lára Halla settist í 12 ára bekk
Laugarnesskóla tveimur dögum
fyrir fullnaðarpróf og dúxaði við
skólann, en foreldrar hennar sáu
aldrei ástæðu til að setja hana í
skóla í Danmörku. Hún lauk lands-
prófi frá Kvennaskólanum: „Þar
var útsaumur átta tíma í viku og
fatasaumur aðra átta tíma, enda
besta menntun sem ég hef notið.“
Lára Halla stundaði nám í
stærðfræðideild MR, lærði þar
frönsku, þýsku, ensku, dönsku og
latínu og bætti við sig spænsku í
Málaskólanum Mími: „Tungumála-
kunnáttan hefur ætíð verið mér
hvorutveggja, gagn og gaman.“
Lára Halla fékk 10 milljóna
króna námsstyrk eftir stúdents-
próf, við Mills College í Kaliforníu
1968, lærði þar sálfræði, listasögu,
tónlistarsögu og Fortran 4 forritun
á Stanford-tölvuna, tók þátt í mót-
mælagöngum gegn Víetnamstríðinu
og hnýtti blóm á gaddavírinn
kringum bandarísku hermennina
sem gættu útgöngubannsins í
Berkeley.
Lára Halla ætlaði að verða sál-
fræðingur en skipti um skoðun í
Bandaríkjunum, lauk embættisprófi
í læknisfræði við HÍ 1976, bresku
læknaprófi (PLAB) 1981, stundaði
nám og þjálfun í geðlæknis- og
réttargeðlæknisfræði í London,
Institute of Psychiatry, Maudsley
Hospital og lauk prófi í almennum
geðlækningum 1984. Hún hóf síðan
störf á geðdeild Landspítala, en
hefur síðustu árin rekið læknis-
stofu í Mosfellsbæ: „Mín mest gef-
andi störf hafa þó verið kennslu-
störf við LSH.“
Lára Halla var í sveit á Ferju-
bakka í Borgarfirði og í Varmahlíð
undir Eyjafjöllum. Hún bar út blöð
sem barn og læknanemi, var skips-
þerna um borð í MS Gullfossi á
menntaskólaárum, skúraði gólf og
þvoði bekken á Landspítala og var
starfsstúlka á Kleppi.
Lára Halla starfaði í Rauðsokka-
hreyfingunni, Garðyrkjufélaginu,
Ferðafélagi Íslands, Íbúasamtökum
Lára Halla Maack læknir – 70 ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Maack-systur Afmælisbarnið með systrum sínum á frumsýningu, þeim Ástu Hrönn og Maríu Hildi.
Hætt að fóðra andans
spekt og vísdóminn
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Gullbrúðkaup eiga í dag
Gylfi Guðmundsson raf-
vélavirki og Indíana Sigfús-
dóttir húsfreyja.
Séra Árelíus Níelsson gaf
þau saman í Langholts-
kirkju 5. október 1968. Börn
þeirra eru Þóra Björg og
Gylfi Jens.
Gylfi og Indíana halda upp á
daginn með fjölskyldunni.
Sigtryggur Þor-
láksson, fyrrver-
andi bóndi á Sval-
barði í Þistilfirði,
er níræður í dag.
Hann er nú stadd-
ur í Reykjavík og
tekur á móti gest-
um í Skagaseli 6,
laugardaginn 6.
október á milli kl. 15.00 og 18.00.
90 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Björn Jónsson,
Akranesi, er 80
ára í dag, hann
mun eyða deg-
inum með
fjölskyldunni.
80 ára