Morgunblaðið - 05.10.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.10.2018, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018 25 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Skuggagil 2, Akureyri, fnr. 225-7128, þingl. eig. Aðalbjörn Sigurður Fi- lippusson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 9. október nk. kl. 10:30. Brekkugata 5, Akureyri, fnr. 215-6263, þingl. eig. Arnar Gústafsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., fimmtudaginn 11. október nk. kl. 12:00. Hafnargata 13B, Langanesbyggð, fnr. 217-0846, þingl. eig. Toppfiskur ehf, gerðarbeiðandi Langanesbyggð, miðvikudaginn 10. október nk. kl. 13:30. Hafnargata 4, Langanesbyggð, fnr. 217-0888, þingl. eig. Toppfiskur ehf, gerðarbeiðandi Langanesbyggð, miðvikudaginn 10. október nk. kl. 13:20. Hafnargata 4, Langanesbyggð, fnr. 217-0887, þingl. eig. Toppfiskur ehf, gerðarbeiðendur Langanesbyggð og Icelandic Sustainable Fishe ehf, miðvikudaginn 10. október nk. kl. 13:10. Hafnargata 2, Langanesbyggð, fnr. 217-0839, þingl. eig. Toppfiskur ehf, gerðarbeiðandi Langanesbyggð, miðvikudaginn 10. október nk. kl. 13:00. Arnarsíða 11, Akureyri, fnr. 227-5910, þingl. eig. Björk Árnadóttir og Sigurður Indriði Vatnsdal, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóður verslunarmanna, þriðjudaginn 9. október nk. kl. 10:45. Skarðshlíð 14, Akureyri, fnr. 215-0283, þingl. eig. Drífa Sól Sveins- dóttir, gerðarbeiðandi Skarðshlíð 14-16-18, húsfélag, þriðjudaginn 9. október nk. kl. 11:00. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 4. október 2018 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Þverholt 28, Reykjavík, 50% ehl., fnr. 201-1301 , þingl. eig. Andrés Ásmundsson, gerðarbeiðandi Sófus Berthelsen, þriðjudaginn 9. október nk. kl. 10:00. Lynghagi 20, Reykjavík, fnr. 202-8782 , þingl. eig. Halla Hjartardóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 9. október nk. kl. 10:30. Ánanaust 15, Reykjavík, fnr. 229-4783 , þingl. eig. Ásta Karen Ágústsdóttir, gerðarbeiðendur Borgun hf., 365 miðlar hf., Háskólinn á Bifröst ses., Íbúðalánasjóður, Húsfélagið Ánanaustum 15, Reykja- víkurborg, Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf. og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 9. október nk. kl. 11:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 4. október 2018 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba 60+ kl. 10.30- 11.30. Bingó kl. 13.30-15.30, 250 kr. spjaldið. Kaffi kl. 14.30-15.20. Árskógar Botsía með Guðmundi kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bóka- bíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700. Áskirkja Safnaðarfélag Áskirkju verður með vöfflukaffi að aflokinni messu sunnudaginn 7. október kl. 12. Vaffla með sultu og rjóma og kaffi/djús 500 kr. Vonumst til að sjá sem flesta, allir velkomnir, Safn- aðarfélag Áskirkju. Boðinn Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 15.30. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10. Föstudagshópur- inn kl. 10-11.30. Heilsuefling kl. 10-11.15, farið er í þjálfun / gönguferð/ botsía / æfingatæki. Handaband, skapandi vinnustofa með leiðbein- endum kl. 13-15.30, ókeypis vinnustofa sem er öllum opin óháð aldri. Bingó kl. 13.30-14.30, 250 kr. spjaldið og góðir vinningar í boði. Okkar rómaða vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Verið velkomin á Vitatorg, Lindar- götu 59, sími 411-9450. Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10- 10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Qigong kl. 10.30-11.30 Bók- band með leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 bosía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist FEBK. Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Gleðigjafarnir kl. 13.30. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9–12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og nýliðar velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13. Hraunsel Föndur í vinnustofu kl. 9-12. Brids kl. 13. Botsía kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16 blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, kaffihúsaferð kl. 14 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Opnað kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp á kaffi. Frjáls tími í Listasmiðju, thai chi með Guðnýju kl. 9-10. Botsía kl. 10.15-11.20, hádegismatur kl. 11.30 (panta þarf fyrir kl. 9 samdæg- urs). Myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasd. kl. 12.30-15.30. Zumba-dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 13-13.50,eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir, óháð aldri. Nánari uppl. í s. 411-2790. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9. í Borgum, sundleikfimi kl. 9. i Grafarvogssundlaug, BRIDS kl. 12.30 í Borgum og hannyrðahópur kl. 12.30 í Borgum. Vöfflukaffi frá 14.30 til 15.30 og tréútskurður á Korp- úlfsstöðum kl. 13 í dag. Skráning liggur frammi á ýmis námskeið s.s. glerlist og keramiknámskeið. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln- um á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri 30 kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Íslendingasögu-námskeið, Hávarðarsaga Ísfirðings, kennari Baldur Hafstað, uppl. og skráning netfang feb@feb.is eða í síma 588-2111. Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23. Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Árið 1961 með augum háskólanema mánudaginn 8. október kl. 13.15 í Stangarhyl 4, bara mæta og vera með. Tónlist, tískusýning og umfjöllun. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og á mbl.is ✝ Sigurður HelgiJóhannsson fæddist á Tjörn á Vatnsnesi í Vestur- Húnavatnssýslu 10. febrúar 1930. Hann lést á Vífilsstaða- spítala 15. septem- ber 2018. Sigurður Helgi ólst upp í Vestur- hópi og Víðidal. Foreldrar hans voru Margrét Anna Guðmunds- dóttir, fædd 1905, og Jóhann Jónasson, fæddur 1989, bóndi í Hrísum í Víðidal. Sigurður var elstur fjögurra systkina, næst honum Sigríður, fædd 1933, látin, Jónas, fæddur 1935, látinn, og yngstur er Guð- mundur Ingvi, fæddur 1942, bú- settur á Egilsstöðum. Sigurður kvæntist Sigrúnu Jóhannsdóttur frá Hjörsey á Mýrum, fædd 1933, látin, versl- unarstjóra hjá Hagkaup, þau slitu samvistum. Sigurður og Sigrún eignuðust þrjú börn: Þórunn, fædd 1951, látin 1994, var búsett í Keflavík. Þórunn var gift Sigurði Gunnari Bene- diktssyni, þau áttu fjögur börn, Sigrúnu Helgu, Benedikt Inga, Gunnar og Maríu, Þórunn og Sigurður slitu samvistum. Mar- grét Þyri, fædd 1955, gift Jónasi Eydal Ármannssyni, búsett í Garði, Margrét var gift Svani Laurence Herbertsyni, látinn, þau áttu tvö börn, Sigríði Jenný og Patrick Herbert. Síðar giftist Margrét Robert James Speagle, látinn, þau átti einn son, Robert James. Margrét og Robert slitu samvistum. Jóhann Haukur, fæddur 1957, sambýliskona Guðrún Leósdóttir, þau eiga einn son, Leó. Barnsmóðir Hauks er Sigrún Edda Björnsdóttir og eiga þau eina dóttur, Guðrúnu Birnu. Barnabarna- börnin eru 14 og barnabarnabarna- barn eitt. Sambýliskona Sigurðar til margra ára er Ásta Guðmunds- dóttir, þau slitu samvistum. Sigurður gekk í Íþróttaskól- ann í Haukadal, lærði járnsmíði í Iðnskólanum í Reykjavík en starfaði í Landsbanka Íslands frá 1956 uns hann fór á eftir- laun. Sigurður æfði íslenska glímu og hnefaleika hjá Glímu- félaginu Ármanni frá 1946. Hann var Íslandsmeistari í hnefaleikum í léttvigt 1953 auk þess að vera Ármannsmeistari. Sigurður var einn af brautryðj- endum júdóíþróttarinnar hér á landi, fyrst með stofnun Júdó- deildar Ármanns 1957 og síðar Júdófélags Reykjavíkur 1965, jafnframt var hann fyrsti ís- lenski júdóþjálfarinn. Sigurður sótti ótal námskeið og skóla í júdó erlendis og var 4. dan í júdó. Sigurður átti sæti í stjórn Júdósambands Ísland er það var stofnað og var síðar gerður að heiðursformanni JSÍ. Útför Sigurðar Helga fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 5. október 2018, og hefst athöfn- in klukkan 15. Þegar Sigurður H. Jóhannsson kynnti júdóíþróttina hér á landi byrjaði hann að þjálfa hjá Ár- manni í íþróttahúsi Jóns Þor- steinssonar, Lindargötu 7 í Reykjavík. Ein af okkur undirrit- uðum vann þar sem sturtukona. Hún fór að æfa með strákunum og sá að þarna gæti hún lært að verja sig ef hún yrði áreitt. Fljótlega komu tvær í viðbót. Við kynntum íþróttina 17. júní 1960 á Laugar- dagsvellinum, í gamla Glaumbæ og í Breiðfirðingabúð. Þess má geta að það bauð okkur enginn upp á ballinu um kvöldið eftir sýn- ingarnar. Við þökkum Sigurði innilega fyrir samfylgdina og kennsluna þennan tíma og fyrir að hafa kynnt íþróttina hér á landi. Hulda Guðmundsdóttir, Margrét Albertsdóttir, Edda Arnholz. Kveðja frá Júdófélagi Reykjavíkur Sigurður H. Jóhannsson, fyrr- um formaður Júdófélags Reykja- víkur, lést laugardaginn 15. sept- ember síðastliðinn 88 ára að aldri. Sigurður var upphafsmaður og brautryðjandi að júdóíþróttinni á Íslandi en það var hann sem kom með hugmyndina að byrja júdó- æfingar í stað hnefaleika þegar þeir voru bannaðir á Íslandi árið 1956. Ásamt fyrrverandi hnefa- leikamönnum Glímufélagsins Ár- manns stofnaði Sigurður Júdó- deild Ármanns árið 1957 og var þjálfari deildarinnar en 1965 gekk hann úr Ármanni og stofnaði Júdófélag Reykjavíkur ásamt nokkrum fyrrverandi Ármenn- ingum. Sigurður fór bæði til Dan- merkur og Englands til að nema júdó og æfði meðal annars í elsta og þekkasta júdóklúbbi Evrópu, Budokwai í London sem er meira en hundrað ára gamall. Þar kynntist hann mörgum af bestu júdómönnum heims á þeim tíma og heimsóttu nokkrir þeirra Ís- land fyrir tilstuðlan Sigurðar og leiðbeindu og aðstoðuðu við upp- byggingu íþróttarinnar. Sigurður var ekki bara þjálfari hjá JR, hann var einnig formaður félags- ins fyrstu árin og kom því einnig mikið að félagsmálum og upp- byggingu félagsins sem við njót- um enn í dag. Það er ekki víst að júdóíþróttin á Íslandi ætti yfir sextíu ára sögu ef Sigurðar hefði ekki notið við. Sigurður sem var með svart- belti, gráðuna 4. dan, var sæmdur gullmerki Júdósambands Íslands árið 2003 og gerður að heiðursfor- manni sambandsins 2015. Júdóm- enn þakka Sigurði H. Jóhanns- syni að leiðarlokum hans ómetanlega starf og áralanga samveru og kveðja vin og félaga með söknuði og virðingu og senda ástvinum hans hugheilar sam- úðarkveðjur. Fyrir hönd Júdófélags Reykja- víkur, Bjarni Friðriksson. Sigurður H. Jóhannsson Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningar- greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minn- ing@mbl.is og láta umsjónar- menn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.