Morgunblaðið - 05.10.2018, Blaðsíða 27
miðbæjar, ýmsum foreldrafélögum,
var í stjórn læknafélaga hérlendis
og erlendis og er munstruð í alla
stjórnmálaflokka: „Þar kemur
afskiptasemin og stjórnunarþörfin
við sögu.“
Hvað á svo að gera af sér á eftir-
launaárunum, Lára Halla?
„Ég hef nú þegar ákveðið að ég
ætla ekki að læra neitt fleira, ekki
þroskast meira, ekki útvíkka and-
ann, ekki borða hollan mat og alls
ekki lesa neitt uppbyggjandi.
Nú leggst ég í rauðu ástarsög-
urnar og horfi á léttmeti, t.d. allt
sem ég missti af í erfiðu læknis-
starfi allan sólarhringinn, alla daga
ársins, eins og t.d. Grenjað á gresj-
unni (The little house on the prai-
rie).
Svo má koma fram að ég elska
íslenska veðrið, storminn, slabbið
og lárétta rigningu. Ég stunda
skokk og klipperí úr pappír. En
fyrst og síðast eru barnabörnin
mín alveg sérstakt áhugamál.“
Fjölskylda
Maður Láru Höllu er Símon
Róbert Diðriksson (áður Simon Ro-
bert John), f. 18.10. 1957, frá
Wales, geðhjúkrunarfræðingur,
pípulagningamaður og nú sölumað-
ur í Húsasmiðjunni. Foreldrar hans
eru Derek John, f. 1931, fv. for-
stjóri Rolls Royce, og Margareth
Ruby John, f. 1934, húsfreyja.
Fyrri maður Láru Höllu er
Helgi Skúli Kjartansson, f. 1.2.
1949, sagnfræðingur og prófessor
við HÍ.
Sonur Láru Höllu og Helga er
Burkni Maack Helgason, f. 2.12.
1978, verkfræðingur en kona hans
er Unnur Björnsdóttir verkfræð-
ingur og eru börn þeirar Helga
Lilja, f. 2008, Dagur Einar, f. 2011,
og Alda María, f. 2016.
Systkini Láru Höllu eru Pjetur
Þorsteinn Maack, f. 14.3. 1950, fv.
prestur og framhaldsskólakennari;
Einar Viggó Maack, f. 14.4. 1952,
d. 23.7. 1979, járnsmiður og eftir-
herma; María Hildur Maack, f.
22.11. 1957, líffræðingur og um-
hverfissérfræðingur á Reykhólum,
og Ásta Hrönn Maack, f. 30.4.
1964, hagfræðingur sem rekur al-
þjóðlegt fyrirtæki á Íslandi.
Foreldrar Láru Höllu: Viggó
Einar Maack, f. 4.4. 1922, d. 20.10.
2013, skipa- og yfirverkfræðingur
hjá Eimskipafélagi Íslands, og Ásta
Þorsteinsdóttir Maack, f. 30.9.
1924, nú búsett í Mörk hjúkrunar-
heimili í Reykjavík.
Lára Halla Maack
Íris Randversdóttir
kennari á Austfjörðum
Lára Björk Steingrímsdóttir
matreiðslum. á Egilsstöðum
Hjördís
Þorsteins-
dóttir fóstra
í Rvík
Ágústa Daníelsdóttir
hjúkrunarfræðingur
í Rvík
Daníel Þorsteinsson
skipasmiður í Rvík
María B.J. Pétursdóttir Maack hjúkrunarkona,
forstöðumaður Farsóttarhússins og formaður Hvatar
Pétur Andrés Maack Pétursson
skipstjóri á Max Pemberton
Vigdís Einarsdóttir Maack
húsfreyja á Stað
Pétur Andreas Þ. Maack
prestur á Stað í Grunnavík
Úr frændgarði Láru Höllu Maack
Ásta Þorsteinsdóttir Maack
húsfreyja í Rvík
Þorsteinn Daníelsson
skipasmiður í Daníelsslipp í Rvík
Guðrún Egilsdóttir
húsfreyja í Rvík
Daníel Þorsteinsson
skipasmiður og forstjóri í Daníelsslipp í Rvík
Elísabet Maack
húsfreyja í Rvík
Ragnheiður Thorsteinsson
sjónvarpsstarfsmaður
Pétur Thorsteinsson læknir
Hallgrímur Thorsteinsson
fjölmiðlamaður
Pétur K. Maack verk-
fræðingur, flugumferðar
stjóri og prófessor við HÍ
Runólfur Maack
verkfræðingur og
bóndi í Fljótshlíð
Karl Maack
húsgagnasmíða-
meistari í Rvík
Pétur A. Maack fv.
starfsmaður VR
Sigríður Maack
arkitekt í Rvík
Aðalsteinn Maack
húsasmíðameistari
og forstöðumaður
Byggingaeftirlits
ríkisins
María Bóthildur
Jakobína Maack
verslunarmaður í Rvík
Skúli
Sverrisson
tónlistar-
maður
Guðrún
Hallfríður
Maack starfs-
kona Pósts og
síma
Pétur Maack
sjómaður í
Rvík (fórst
með Max
Pemberton)
Bjarney Guðrún Eleseusdóttir
húsfreyja í Rvík
Lára Guðmundsdóttir
húsfreyja í Rvík
Guðmundur Guðmundsson
verkamaður í Rvík
Kristján Guðmundsson
verslunarmaður í Rvík
Kristjana Kristjánsdóttir
skrifstofumaður í Rvík
Elísabet Jónsdóttir
húsfreyja á Seyðisfirði
Hallgrímur Benediktsson
söðlasmiður og bóndi á
Fremstafelli í Köldukinn, S-Þing.
Hallfríður Hallgrímsdóttir
húsfreyja í Rvík
Viggó Einar Maack
skipaverkfræðingur í Rvík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2018
Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775
Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar
til afþreyingar tryggja betri fundarhlé.
Fundarfriður áHótelÖrk
ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr
yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og
félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.Jón Thoroddsen fæddist á Reyk-hólum í Reykhólasveit fyrir200 árum. Hann var sonur
Þórðar Þóroddssonar, bónda og
beykis á Reykhólum og ættföður
Thoroddsenættar, og Þóreyjar
Gunnlaugsdóttur.
Eiginkona Jóns var Kristín Ó.
Þorvaldsdóttir, f. Sívertsen. Með
eljusemi kom hún sonum sínum til
mennta eftir lát Jóns sem skildi eftir
sig skuldugt dánarbú.
Synirnir voru Þorvaldur, einn
virtasti náttúrufræðingur Íslend-
inga; Þórður, læknir og alþm, faðir
Emils tónskálds; Skúli, sýslumaður,
ritstjóri og alþm., en meðal barna
hans var Unnur, móðir Skúla Hall-
dórssonar tónskálds; Guðmundur
læknaprófessor, Kristín yfirhjúkr-
unarkona; Katrín, yfirlæknir og
alþm., Bolli borgarverkfræðingur og
Sigurður, verkfræðingur og alþm.,
afi Katrínar Jakobsdóttur forsætis-
ráðherra, og loks Sigurður, lands-
verkfræðingur og yfirkennari MR,
faðir Gunnars forsætisráðherra.
Jón lauk stúdentsprófi frá Bessa-
staðaskóla 1840, lagaprófi frá
Hafnarháskóla 1854, og var sjálf-
boðaliði í Slésvíkurstríðinu 1848.
Hann varð sýslumaður Barða-
strandarsýslu 1850 og bjó þá lengst
af í Haga á Barðaströnd, og sýslu-
maður Borgarfjarðarsýslu og bjó á
Leirá frá 1863 til dauðadags.
Sum kvæða Jóns hafa lifað með
þjóðinni, s.s. Hlíðin mín fríða, Vor-
vísa (Vorið er komið og grundirnar
gróa) og ættjarðarljóðið Ísland (Ó,
fögur er vor fósturjörð). Hann á þó
fyrst og fremst sess í bókmennta-
sögunni fyrir fyrstu íslensku nú-
tímaskáldsögurnar, Pilt og stúlku,
1850, og Mann og konu sem kom út
ókláruð eftir andlát hans.
Thoroddsenar hafa verið áberandi
á sviði stjórnmála og í stjórnsýslu-
embættum, en í stjórnmálum hafa
þeir nánast undantekningarlaust
fylgt Sjálfstæðisflokki eða róttækum
vinstrimönnum, enda blundar í
þeim margræð, viðkvæm og stund-
um breysk listamannasál.
Jón lést 8.3. 1868.
Merkir Íslendingar
Jón
Thoroddsen
90 ára
Elínborg Þorsteinsdóttir
Hörður Rögnvaldsson
Sigtryggur Þorláksson
85 ára
Ingveldur Dagbjartsdóttir
80 ára
Ármann Sigurjónsson
Björn Jónsson
Dóra Emilsdóttir Reiners
Guðni Stefánsson
Jón Sigurður Helgason
Pálmar Ólason
75 ára
Edda Magnúsdóttir
Guðrún Þórðardóttir
Hrólfur S. Jóhannesson
Þóra Ásdís Arnfinnsdóttir
70 ára
Guðbjartur A. Björgvinsson
Hjálmfríður Valgarðsdóttir
Ingunn Ólafsdóttir
Jóna G. Guðmundsdóttir
Sigríður Sigurbjörnsdóttir
Sigríður Jóhannsdóttir
Sölvi Stefánsson
60 ára
Ársæll Kristjánsson
Berglind Anna Káradóttir
Daníel Olsen
Dóra Margrét Ólafsdóttir
Gísli Sigurðsson
Guðbjörg Árnadóttir
Guðrún A. Kjartansdóttir
Gunnar Ólafsson
Gunnar Sigurgeirsson
Halina Anna Sochan
Hólmfríður B. Pétursdóttir
Lára Þórðardóttir
Margrét Ásgeirsdóttir
Margrét G. Kristjánsdóttir
Margrét Jóna Gísladóttir
Meyvant Einarsson
Ólafur Friðrik Ægisson
Teresa Nabakowska
Valdemar G. Valdemarsson
Youngsoon Jeong
Þórdís Eyfeld Pétursdóttir
50 ára
Ásta Bærings Svavarsdóttir
Beata Sadowska
Bjarnveig B. Sverrisdóttir
Bjarnþór Hlynur Bjarnason
Björg E. Halldórsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Helga Rut Baldvinsdóttir
Ingibjörg Sigmarsdóttir
Kolbrún Kristjánsdóttir
Marion Lerner
Nanna Briem
40 ára
Arnar Þórisson
Ágúst Örn Illugason
Emma Marie Swift
Guðmundur Einarsson
Hildur Sif Kristborgardóttir
Ingibjörg Björnsdóttir
Jenný Rut Ragnarsdóttir
Linda Rut Hreggviðsdóttir
Marius Drumzlys
Marteinn Jón Ingason
Óskar Björnsson
Reynar Davíð Ottósson
30 ára
Atli Gunnar Sigurðsson
Bára Hlín Þorsteinsdóttir
Berglind Elíasdóttir
Berglind Sigurjónsdóttir
Elsa María Antonsdóttir
Guðný Sigurðardóttir
Helena G. Guðmundsdóttir
Helena Sif Magnúsdóttir
Kristín H. Gunnarsdóttir
Magdalena Gunnarsdóttir
Sigurbjörg R. Heiðarsdóttir
Victoria M. Smithson
Til hamingju með daginn
30 ára Ragnar ólst upp í
Eyjum, býr þar, fór til sjós
15 ára, er háseti á Kap VE
og gerir út eigin trillu,
Júlíu VE 163.
Maki: Bjartey Kjartans-
dóttir, f. 1990, húsfreyja.
Sonur: Óskírður Ragn-
arsson, f. 2018.
Foreldrar: Júlía Ólöf
Bergmannsdóttir, f. 1963,
d. 2006, kaupmaður, og
Jóhann Freyr Ragnars-
son, f. 1965, kokkur, bús. í
Vestmannaeyjum.
Ragnar Þór
Jóhannsson
30 ára Lilja Unnur ólst
upp á Akureyri og í Ólafs-
vík, býr á Syðri-Reykjum í
Biskupstungum.
Maki: Sævar Örn Gríms-
son, f. 1989, verktaki á
Syðri-Reykjum.
Dætur: Sara Katrín, f.
2015, og Ingibjörg Fann-
ey, f. 2018.
Foreldrar: Katrín Rögn-
valdsdóttir, f. 1963, og
Ágúst Kristófersson, f.
1960. Þau búa í Hafnar-
firði.
Lilja Unnur
Ágústsdóttir
30 ára Íris býr í Reykja-
vík, lauk BA-prófi í félags-
ráðgjöf, MS-prófi í stjórn-
un og stefnumótun,
viðskiptafræðid. HÍ og
nemur lögfræði við HR.
Maki: Guðjón Örn Ingólfs-
son, f. 1983, styrktarþjálf-
ari og rekur Toppþjálfun.
Sonur: Júlíus Ingi, f.
2015.
Foreldrar: Júlíus Vífill
Ingvarsson, f. 1951, og
Svanhildur Blöndal, f.
1957.
Íris Þóra
Júlíusdóttir