Morgunblaðið - 12.10.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018
Norræna húsið
Sæmundargötu 11
Aðgangur ókeypis
Sýnd til 30. apríl 2019
Ferðalag um furðuheim
barnabókmenntanna
Ævintýraleiðangur fyrir allskonar krakka
Barnabókaflóðið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Auðvitað finnur fólk fyrir þessu.
Hækkun um 20 krónur á lítrann
getur þýtt 30-40 þúsund krónur á
hvern bíl á ári,“ segir Runólfur
Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra bifreiðaeigenda.
Bensínverð hefur hækkað tals-
vert að undanförnu. Er nú svo kom-
ið að algengasta verð á bensíni í
sjálfsafgreiðslu hjá N1 og Olís var
235,3 krónur í gær.
Á vefnum gasvaktin.is, þar sem
fylgst er með verðbreytingum á
bensíni dag hvern, mátti sjá í gær
að algengt verð hjá Atlantsolíu,
Orkunni og ÓB var tæpar 232 krón-
ur á lítrann. Hjá OrkunniX og Dæl-
unni má fá bensínlítrann allt niður í
tæpar 222 krónur. Sem fyrr skera
bensínstöðvar Costco og Atlantsolíu
við Kaplakrika sig úr. Hjá Costco
kostaði bensínlítrinn í gær 197,9
krónur og hjá Atlantsolíu í Kapla-
krika 200,9 krónur.
Dísellítrinn kostaði í gær 196,9
krónur hjá Costco. Algengt verð hjá
N1 og Olís, án afsláttar, er hins veg-
ar rúmar 233 krónur.
Bensínverð hefur ekki verið svo
hátt hér síðan síðla árs 2014. Hæsta
meðalverð í mánuði sem skráð er
nam 272,90 krónum í apríl 2012,
samkvæmt upplýsingum frá FÍB.
Þótt verðið í dag sé enn langt frá
þeim hæðum hefur það hækkað stíft
undanfarið. Hækkunin nemur 15,5
krónum á hvern bensínlítra í sjálfs-
afgreiðslu frá því í maí síðastliðnum.
Ef horft er lengra aftur nemur
hækkunin tæpum 45 krónum á lítra
frá sumri 2017. Sumarið 2017 fór
verðið á bensínlítranum niður í
190,7 krónur í sjálfsafgreiðslu og
díselverð í 177,2 krónur. Þá bauð
Costco bensínið á 164,9 krónur lítr-
ann og dísilolía fór þar lægst í 155,9
krónur.
Runólfur Ólafsson segir að ekki
séu horfur á því að verð lækki á
næstunni. Heimsmarkaðsverð hefur
hækkað. „Nei, markaðurinn er okk-
ur ekki beint í vil. Það er órói á elds-
neytismarkaði og margt sem hefur
orðið til að ýfa verðið upp. Svo
stendur einnig til að hækka álögur
hér heima. Ríkið seilist sem fyrr
djúpt í vasa bíleigenda.“
Bensínlítrinn yfir 235 krónur
Hækkað um 15,5 krónur frá því í maí og 45 krónur frá sumri 2017 Ekki horfur á verðlækkunum á
næstunni Costco enn með lægsta verðið, 197,9 kr. „Ríkið seilist sem fyrr djúpt í vasa bíleigenda“
Morgunblaðið/Hari
Bensínstöð Verð á bensíni hefur hækkað mikið undanfarið. Verð í sjálfs-
afgreiðslu án afsláttar er komið yfir 235 kr. Engar lækkanir í kortunum.
„Það er léttir að þetta er búið. Þetta
voru virkilega erfið mál.“ Þetta sagði
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lög-
reglustjóri á höf-
uðborgarsvæð-
inu, í gær eftir að
tveir dómar féllu í
Hæstarétti þar
sem ríkið var
dæmt til að
greiða tveimur
lögreglumönnum
hjá embættinu
bætur. Annars
vegar var um að
ræða Aldísi Hilm-
arsdóttur aðstoðaryfirlögregluþjón
vegna breytinga sem gerðar voru á
störfum hennar árið 2016. Henni
voru dæmdar 1,5 milljónir króna í
miskabætur vegna tilfærslu í starfi
og eineltis sem hún taldi sig hafa
orðið fyrir af hálfu lögreglustjóra og
366.720 krónur, sem svara kostnaði
hennar vegna innlagnar á Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hveragerði, sem
fallist var á að væri bein afleiðing af
þeirri ákvörðun sem hún sætti. Alls
greiðir ríkið henni því tæpar 1,9
milljónir króna.
Hins vegar er um að ræða lög-
regluþjón sem sakaður hafði verið
um brot í starfi og var veitt tíma-
bundin lausn frá störfum. Honum
voru dæmdar 1,5 milljónir í bætur.
„Mér þótti mál Aldísar sérstak-
lega erfitt, það hefur tekið á, ekki
síst vegna mikillar opinberrar um-
ræðu. En ég verð að segja að dómur
Hæstaréttar í því máli kom á óvart
vegna þess að Héraðsdómur var svo
afdráttarlaus,“ sagði Sigríður Björk.
„En staðfest hefur verið að Aldísi
hefði aldrei verið sagt upp, eins og
haldið hefur verið fram, enda hefur
ekki verið ráðið í starfið hennar,
heldur hefur verið leyst af í því með
tímabundnum ráðningum.“
Sigríður sagði að eitt af því sem
skoða yrði í framhaldinu væri skrán-
ing mála innan embættisins. Ljóst
væri að við meðferð þessara mála
þyrfti nú að taka upp nýtt verklag.
„Þetta er eitt af því sem við verðum
að vega og meta.“
Lögreglufulltrúinn sem um ræðir
kom strax aftur til starfa hjá emb-
ættinu eftir að ljóst var að hann hafði
ekki brotið af sér í starfi. Aldís hefur
ekki starfað þar frá árinu 2016. Sig-
ríður segir að á þeim tíma sem liðinn
sé síðan þá hafi verið skorað á Aldísi
að snúa aftur til starfa. Það muni
einnig verða gert núna þegar dómur
liggur fyrir.
Hefur þú, eða einhver annar hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,
haft samband við Aldísi eftir að dóm-
urinn féll? „Nei, það hefur ekki verið
gert. En ég býst við að hafa samband
við Aldísi á morgun [í dag] og hvetja
hana til að snúa aftur til starfa.“
Hafa þessir dómar og/eða umfjöll-
un um þá áhrif á þína stöðu? „Ég á
ekki von á því.“ annalilja@mbl.is
Þörf á nýju verklagi
Sigríður Björk segist ekki eiga von á að dómar Hæsta-
réttar hafi áhrif á sína stöðu „Voru virkilega erfið mál“
Sigríður Björk
Guðjónsdóttir
Í gær var lokahönd lögð á undirbúning fyrir opnun
tveggja verslana sænsku verslunarkeðjunnar H&M
sem verða opnaðar á hinu nýja Hafnartorgi í miðborg
Reykjavíkur í dag. Um er að ræða fataverslun og hús-
búnaðarverslun og verður þetta þriðja fataverslun
H&M hér á landi. Þetta er fyrsta verslunin sem opnuð
er á Hafnartorgi, en innan tíðar fylgja fleiri í kjölfar-
ið. Í dag verða Hafnartorg og göngugatan Reykj-
arstræti, sem verður helsta gönguleiðin á svæðinu,
opnuð.
Hið nýja Hafnartorg í miðborg Reykjavíkur verður opnað í dag
Morgunblaðið/Eggert
Skúrað og skrúbbað fyrir opnun H&M
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfs-
son, er bjartsýnn á að VR og Lands-
samband íslenskra verslunarmanna
geti átt sam-
starf við Starfs-
greinasamband
Íslands í kom-
andi kjaravið-
ræðum við at-
vinnurekendur.
Hann segist
ekki sjá neinar
óyfirstíganlegar
hindranir á
þeirri leið og lít-
ur þá til þess
samhljóms sem er í kröfugerð félag-
anna.
Stjórn VR samþykkti kröfugerð
félagsins í komandi viðræðum á
fundi í fyrradag og var hún kynnt í
gærkvöldi á fundi fulltrúa félagsins
sem fara á þing ASÍ síðar í mánuðin-
um. Kröfugerðin verður kynnt eftir
helgi, eftir að trúnaðarmannaráð fé-
lagsins hefur gengið frá henni á
fundi á mánudag.
Ragnar Þór segist ekki geta
greint frá einstökum atriðum úr
kröfugerðinni fyrr en hún hafi verið
samþykkt innan félagsins.
„Ég get staðfest að ekki eru sjáan-
legar neinar meiriháttar hindranir
fyrir samvinnu við Starfsgreinasam-
bandið miðað við kröfugerð okkar og
þeirra. Ég er mun bjartsýnni en áð-
ur um að við getum farið sameinuð
fram,“ segir Ragnar Þór.
Meiri slagkraftur
Hann segir samvinnuna mikil-
væga. „Við erum stærsta félagið með
um 35 þúsund félagsmenn en með
samvinnu við Starfsgreinasamband-
ið erum við með rúmlega 100 þúsund
félaga á bak við okkur. Slagkraftur-
inn eykst sem þessu nemur sem og
þær aðgerðir sem við getum farið í ef
á þarf að halda. Þetta er einnig lík-
legra til að skila árangri gagnvart
ríkisvaldinu,“ segir Ragnar Þór.
Það sem hefur frést út úr stjórn-
inni um kröfugerðina er að hún sé að
mörgu leyti samhljóma kröfugerð
SGS. Það ætti ekki að koma á óvart í
ljósi þess að forystumenn nokkurra
félaga, þar á meðal þeirra fjölmenn-
ustu, hafa rætt mikið saman frá því
þeir komust til valda í sínum fé-
lögum. Í drögum að kröfugerð VR er
þess krafist að lágmarkslaun hækki
um rúmlega 40 þúsund á ári og verði
425 þúsund í lok þriggja ára samn-
ingstíma. Það er sama fjárhæð og
fram kemur í kröfugerð SGS.
Bjartsýnn á sam-
flot í viðræðum
VR kynnir kröfugerð eftir helgi
VR Félagar og fjöl-
skyldur skemmta sér.