Morgunblaðið - 12.10.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 12.10.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018 Til í mörgum stærðum og ge Nuddpottar Fullkomnun í líkamlegri vellíðan rðum Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177 Það skortir ekki áhugaverðarkosningar í Evrópu þetta haustið. Í Svíþjóð varð pólitískur jarðskjálfti með sigri Svíþjóð- ardemókrata. Skjálftinn varð þó nokkru minni en leit út fyrir um hríð, en dugði þó til að ýta forsætisráð- herranum úr sínum sessi. (Leiðir nú starfsstjórn).    Í Bæjaralandi hef-ur CSU, systurflokkur CDU, flokks Merkel kanslara, borið æg- ishjálm yfir aðra flokka. Fékk í seinustu kosningum 47,7 % fylgi. Þá fengu Sósíaldemókratar 20,6% og urðu næststærsti flokkurinn.    Spár segja að CSU tapi miklufylgi nú, fari úr 47% niður í 32%. Flokkurinn verði áfram stærstur flokka en ófær um að mynda stjórn einn.    Flokkur Krata gæti fallið úröðru sæti í það fjórða með 11- 12% fylgi. AfD, sem komst ekki á þing seinast, mælist nú örlítið stærri en SPD en þó innan skekkju- marka.    Hinn hástökkvarinn samkvæmtspám er flokkur Græningja sem mælist næststærsti flokkur fylkisins með rúm 18% en hafði tæplega 9% fylgi síðast.    Kosningaspárnar hafa valdiðsundurþykkju í bandalagi CSU og CDU, en Seehofer, innan- ríkisráðherra Þýskalands, helsti leiðtogi CSU, kennir fljótfærnis- stefnu kanslarans í innflytjenda- málum um hvort tveggja, hrun fylgis CSU og uppgang AfD í Bæj- aralandi. Veikir það mjög stöðu frú Merkel. Angela Merkel Enn einar kosn- ingar valda ólgu STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Framkvæmdir voru stöðvaðar tíma- bundið við níu hæða fjölbýlishús í Pósthússtræti 5 í Reykjanesbæ. Jón- as Már Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Mannverks sem reisir húsið, vonast til að framkvæmdir geti haldið áfram fljótlega. „Við erum búnir að uppfylla allt sem skipulagsráð sveit- arfélagsins bað um,“ sagði Jónas. Víkurfréttir greindu frá því í fyrra- dag að íbúar í Pósthússtræti 3 hefðu mótmælt nálægð á milli húsa og fjölda íbúða og bílastæða í niður- stöðum grenndarkynningar vegna lóðanna númer 5, 7 og 9. Grenndar- kynningin var í tengslum við breyt- ingar á skipulagi. „Við unnum samkvæmt eldra deili- skipulagi við þetta hús. Það eru þarna þrjár lóðir sem þurftu að fara í nýtt deiliskipulag. Mér skilst að það sé að ganga í gegn,“ sagði Jónas. Hann sagði að þeir hefðu fengið heimild til að reisa undirstöður og kjallara á lóð númer 5. Framkvæmdir við 1. hæð voru svo stöðvaðar á meðan unnið var í skipulagsmálunum. „Það veldur okkur vandræðum og tjóni að þurfa að stoppa fram- kvæmdir og fara svo inn í veturinn með þetta,“ sagði Jónas. Hann sagði að búið væri að gera útreikninga vegna vindálags og það væri innan marka. Húsinu var snúið og hafa íbúðirnar 34 sjávarútsýni. gudni@mbl.is Framkvæmdir við blokk stöðvaðar  Verktaki vonar að bygging Pósthússtrætis 5 í Keflavík haldi fljótlega áfram Víkurfréttir/Hilmar Bragi Keflavík Nágrannar mótmæltu. Kröfugerð félaga í Rafiðnaðarsam- bandi Íslands fyrir komandi kjaravið- ræður er að stórum hluta frágengin. ,,Við erum þó ekki farin að nefna tölur um launaliðinn en hinsvegar höfum við skýra sýn á hvernig menn vilja fara í þetta,“ segir Kristján Þórður Snæ- bjarnarson, for- maður RSÍ. Þó kröfurnar hafi ekki verið op- inberaðar segir Kristján að áhersla verði lögð á hækkun lægstu launa, að farið verði betur yfir menntaþætti kjarasamn- inganna, taxtar skilgreindir og farið yfir launatöfluna. ,,Stytting vinnuvik- unnar er stórt atriði hjá okkur og við- bætur í orlofið. Þetta eru þyngstu þættirnir,“ segir Kristján. Í fyrradag birti Starfsgreinasam- band Íslands kröfugerð fyrir hönd 19 aðildarfélaga þar sem þess er m.a. krafist að lágmarkslaun hækki í 425 þúsund kr. á þremur árum, lægstu laun verði skattfrjáls með tvöföldun persónuafsláttar og stefnt að 32 stunda vinnuviku. Spurður hvort kröfur RSÍ sam- rýmist kröfugerð SGS segir Kristján að vissulega séu atriði í kröfum raf- iðnaðarmanna sem eigi samhljóm í kröfugerð SGS, ,,þó það séu ekki allt- af sömu áherslurnar.“ Rafiðnaðarmenn hafa átt samtöl við önnur iðnaðarmannafélög fyrir undirbúning kjaraviðræðnanna og ætla að vera samstiga með kröfurnar, að sögn Kristjáns. Þing ASÍ fer fram eftir tvær vikur og hefur verið þrýst á Kristján að gefa kost á sér til forseta ASÍ. Hann útilokar ekkert í því sambandi. ,,Ég hef alla vega ákveðið að gefa kost á mér í sæti varaforseta. Það liggur al- veg fyrir,“ segir hann. Áhersla á hækk- un lægstu launa  Gefur kost á sér í æðstu forystu ASÍ Morgunblaðið/Kristinn RSÍ Hátt í 6.000 manns eru í aðildar- félögum Rafiðnaðarsambandsins. Kristján Þórður Snæbjarnarson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.