Morgunblaðið - 12.10.2018, Page 11

Morgunblaðið - 12.10.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018 SKECHERS ON THE GO DÖMUVETRARSKÓR. STÆRÐIR 36-41 DÖMUSKÓR KRINGLU OG SMÁRALIND 12.995 Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Vorum að taka upp NÝJAR VÖRUR Hilmar Rósmundsson, fyrrverandi skipstjóri og útgerðarmaður, lést á Hraunbúðum í Vest- mannaeyjum 10. októ- ber, tæplega 93 ára að aldri. Hilmar fæddist á Siglufirði 16. október 1925 og var sonur hjónanna Rósmundar Guðnasonar sjómanns og Maríu Jóhanns- dóttur húsfreyju. Hann lauk gagn- fræðaprófi frá Gagn- fræðaskólanum á Siglu- firði og fiskimannaprófi hinu meira frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1950. Hilmar var skipstjóri á fiskiskipum frá 1955 og útgerð- armaður frá árinu 1959. Hilmar fór árið 1960 í útgerð með þáverandi mági sínum Theódóri Snorra Ólafssyni. Þeir keyptu Sig- rúnu, 50 tonna bát, og nefndu hann Sæbjörgu. Bátinn misstu þeir 1964 þegar óstöðvandi leki kom að honum í róðri. Þá keyptu þeir Sigurfara frá Akranesi og nefndu hann einnig Sæ- björgu. Hilmar var aflakóngur Vest- mannaeyja árin 1967 og 1968. Árið 1969 var Sæbjörg VE aflahæsti bátur landsins með 1.655 tonn. Hilmar var alla tíð öt- ull félagsmálamaður. Hann sat í stjórn Skip- stjóra- og stýrimanna- félagsins Verðandi í Vestmannaeyjum, var í Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja og framkvæmdastjóri þess um árabil. Einnig sat hann í stjórn Lands- sambands íslenskra út- vegsmanna (LÍÚ) og var varamaður í banka- ráði Útvegsbanka Ís- lands hf. Þá sat Hilmar í stjórn Norðlendingafélagsins í Vest- mannaeyjum. Hann var varaþing- maður Framsóknarflokksins í Suður- landskjördæmi og tók sæti á Alþingi haustið 1978. Hilmar var heiðraður ásamt fleiri öldruðum sjómönnum af Sjómannadagsráði Vestmannaeyja á sjómannadeginum 1998. Hilmar kvæntist Rósu Snorradótt- ur (f. 1927, d. 2015) árið 1950. Þau slitu samvistir 1986. Eftirlifandi dæt- ur þeirra eru Hafdís Björg og Sædís María. Útför Hilmars fer fram frá Landa- kirkju í Vestmannaeyjum 27. október klukkan 13.00. Hilmar Rósmundsson skipstjóri Bjarni Sighvatsson, fyrrverandi skipstjóri og útgerðarmaður, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 9. októ- ber, 85 ára gamall. Bjarni fæddist 2. des- ember 1932 í Vest- mannaeyjum og var sonur Sighvatar Bjarnasonar, skipstjóra og framkvæmdastjóra, og Guðmundu Torfa- dóttur húsfreyju. Hann ólst upp í Ási í Vest- mannaeyjum og var einn af ellefu systk- inum. Bjarni byrjaði til sjós 14 ára og var sjómaður um árabil. Hann starf- aði sem háseti, kokkur, stýrimaður og skipstjóri. Bjarni fór í Stýrimanna- skólann í Reykjavík og lauk þaðan skipstjórnarnámi árið 1954. Hann stofnaði og rak fiskverk- unina Fjölni í félagi við aðra. Auk þess gerði hann út Hamraberg VE, Kristbjörgu VE og Sig- urfara VE í samvinnu við fleiri. Bjarni var stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum hf. 1986-1994 að hann seldi hlut sinn og gerðist tómstundabóndi í Þor- laugargerði með hesta og kindur. Bjarni var ötull stuðningsmaður Heil- brigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum og stóð fyrir fjársöfnunum til tækjakaupa og keypti einnig tæki og gaf spítalanum. Bjarni kvæntist Dóru Guðlaugs- dóttur (f. 1934, d. 2007) hinn 23. maí 1953. Þau eignuðust fimm börn sem lifa föður sinn, Sigurlaugu, Guð- mundu Áslaugu, Sighvat, Ingibjörgu Rannveigu og Hinrik Örn. Útför Bjarna fer fram frá Landa- kirkju 20. október klukkan 13.00. Bjarni Sighvatsson útgerðarmaður Úlfar Eysteinsson mat- reiðslumeistari lést sl. miðvikudag á Landspít- alanum, 71 árs að aldri. Úlfar fæddist 23. ágúst 1947 í Hafnar- firði, sonur hjónanna Eysteins Ó. Einars- sonar bókbindara og Þórunnar Björnsdóttur hárgreiðslukonu. Hann stundaði nám í mat- reiðslu í Leikhúskjall- aranum og á Hótel Holti og útskrifaðist sem mat- reiðslumeistari 1967. Úlfar starfaði á Hótel Loftleiðum og í flugeldhúsi Flugleiða á Keflavíkurflugvelli til 1978, á veitingastaðnum Laugaási 1978-81, stofnaði þá, ásamt Sigurði Sumar- liðasyni og Tómasi Tómassyni, veit- ingastaðinn Pottinn og pönnuna en þeir ráku staðinn saman til 1985. Síð- ar stofnaði Úlfar veitingastaðina Sprengisand, Úlfar og ljón og Þrjá frakka, sem Stefán sonur hans rekur nú. Úlfar var einn þekktasti mat- reiðslumaður þjóðar- innar og eftir hann liggja margar bækur um matreiðslu. Þá sá hann um matreiðslu- þætti í sjónvarpi. Úlfar sat í stjórn Fé- lags matreiðslumeist- ara og var varafor- maður þess um skeið. Þá var hann formaður Lionsklúbbsins Njarð- ar 1995-96. Hann keppti um tíma í rallakstri. Eiginkona Úlfars var Sigríður Jónsdóttir. Þau skildu. Börn þeirra eru Stefán matreiðslumeistari og Guðný Hrönn snyrtifræðingur. Sam- býliskona Úlfars er Ingibjörg Ólöf Magnúsdóttir. Andlát Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari Borgarráð hefur samþykkt tillögumeirihlutaflokkanna um að fela innri endurskoðun borgarinnar að ráðast í heildarúttekt á endurgerð herbragg- ans við Nauthólsveg. Fulltrúar flokk- anna felldu breytingartillögu sjálf- stæðismanna um að fela utanað- komandi aðila verkið. Fulltrúar meirihlutans samþykktu tillögu sína en sjálfstæðismenn sátu hjá. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og VG létu bóka að þeir teldu málið grafalvarlegt og vildu allar upplýsingar upp á borðið þannig að hægt yrði að hefjast handa við úr- bætur á kerfinu til að koma í veg fyrir að slíkt endurtæki sig. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins rök- studdu tillögu um utanaðkomandi að- ila með því að innri endurskoðun væri störfum hlaðin, meðal annars við um- fangsmikla úttekt á Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélögum. Braggamálið væri þess eðlis að mik- ilvægt væri að fá niðurstöðu í það sem fyrst. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins minnti á að borgarfulltrúi flokksins hefði lagt til óháða rannsókn vegna braggans en meirihlutinn hafnað henni. Sú niðurstaða væri fáránleg í ljósi þess hvernig málin hefðu þróast undanfarin misseri. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins mótmælti því að innri endurskoðun væri falið að ráðast í úttektina. Hún gæti varla talist óháður aðili við þetta verkefni vegna tengsla og upplýsinga um endurbyggingu braggans sem hún hefði haft allan tímann. helgi@mbl.is Ráðist í úttekt á braggamáli  Meirihlutinn hafnaði kröfum um óháða rannsókn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.