Morgunblaðið - 12.10.2018, Page 15

Morgunblaðið - 12.10.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Það er í raun eitt ár sem sker sig úr, en þá var meðal annars lögð mik- il áhersla á að stytta afgreiðslutíma og hreinsa upp eldri mál,“ segir Sig- ríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar, í samtali við Morgunblaðið og vísar í máli sínu til nýgengis öryrkja á Íslandi árið 2016. Fram hefur komið hér í Morgun- blaðinu að það ár hafi nýgengi ör- orku í fyrsta skipti verið meira en náttúruleg fjölgun á vinnumarkaði. Var það Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem fyrst vakti athygli á þessu í ræðu sinni á Al- þingi. Frá 2006 hefur fjöldi nýrra ör- yrkja verið á bilinu um 1.140 til um 1.550. Árið 2016 náði fjöldinn aftur á móti nýjum hæðum, eða 1.757. Sig- ríður Lillý segir fjöldann hafa fallið mjög síðan þá og ekki sé um nýtt norm að ræða. „Það var lögð áhersla á að stytta afgreiðslutímann þetta ár. Það hafði verið mikið í umræðunni að af- greiðslutími væri langur hjá okkur og þetta virðist meðal annars vera afleiðing þess. Ég er þeirrar skoð- unar að það sé mikilvægt að skoða mál gaumgæfilega þegar tekin er ákvörðun um örorku. Ekki síst vegna hagsmuna umsækjandans. Við þurfum ítarleg vottorð og brýnt er að vinna vel úr öllum umsóknum, meðal annars að líta til möguleika á endurhæfingu og endurhæfingarlíf- eyri í stað örorkulífeyris. Af- greiðslutími vegna örorku er eftir sem áður almennt styttri hjá okkur en hjá nágrannalöndunum,“ segir Sigríður Lillý og heldur áfram: „Ár- ið 2016 rísa þessar tölur hæst í 1.757, en ári síðar eru þær strax komnar niður í 1.524. Fyrstu níu mánuði þessa árs eru svo tölur yfir nýgengi örorku 1.059. Það má gera ráð fyrir því að heildartala þessa árs verði um 1.250, líkt og undanfarin ár nema strax í kjölfar hrunsins þegar hún var rúmlega 1.500. Umsóknum fjölgar árvisst þannig að álagið á kerfið er vaxandi. Mikilvægt er að líta til þess einnig. Þá fá fleiri sam- þykkta umsókn um endurhæfingu en áður.“ Hrunið ógnaði mjög Aðspurð segir Sigríður Lillý menn hafa óttast að missa tökin á nýgengi örorku í kjölfar hrunsins haustið 2008. „Menn óttuðust mjög að við myndum missa marga inn á örorku, en þær aðgerðir sem gripið var til komu vafalítið í veg fyrir þá þróun,“ segir hún og bendir á að Finnar hafi t.a.m. á sínum tíma farið illa út úr efnahagsþrengingum og misst heila kynslóð fólks út af vinnu- markaði og á örorku. „Stjórnvöldum hér tókst aftur á móti að vinna gegn þessari þróun, meðal annars með því að breyta þeim reglum er giltu um rétt fólks til atvinnuleysisbóta auk annarra úrræða til atvinnusköpunar og virkni í námi og starfi,“ segir hún. Öryrkjatoppurinn 2016 vegna hraðari afgreiðslu  Nýgengi örorku þessa árs verður að líkindum um 1.250 Nýgengi örorku 2006 til 2018* 1.750 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018* 1.269 1.274 1.325 1.547 1.236 1.143 1.282 1.268 1.227 1.439 1.757 1.524 1.059 *Fyrstu 9 mán. 2018. Heimild: Tryggingastofnun ríkisins Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Sterkir í stálinu Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar Svört- og ryðfrí rör og fittings Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur POM öxlar • PE plötur Lokar af ýmsum gerðum Opið virka daga kl. 8-17 Skútuvogi 4, Rvk Rauðhellu 2, Hafnarfirði Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is 15% 10áraábyrgðá kolalausummótor 3 ára ábyrgð Íslenskt stjórnborð 10 ára ábyrgð á mótor Þvottavél L7FBM826E Tekur 8 kg af þvotti. 1600 snúningar. Öll hugsanleg þvottakerfi. Kolalaus mótor. Verð áður: 139.900,- Verð nú: 118.915,- 914550046 Þvottavél L7FBE840E Tekur 8 kg af þvotti. 1400 snúningar. Öll hugsanleg þvottakerfi. Kolalaus mótor. Íslensk notendahandbók. Verð áður: 119.900,- Verð nú: 101.915,- 914550043 Þvottadagar ÖLL ÞVOTTATÆKI Í ÖLLUMMERKJUM MEÐ 15% AFSLÆTTI Í NOKKRA DAGA FYRIR HEIMILIN Í LANDINU LágMúLA 8 · sÍMI 530 2800 Tilkynnt var í gær hverjir yrðu höf- undar Áramótaskaupsins 2018. Það eru þau Ilmur Kristjánsdóttir, Jón Gnarr, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Sveppi og Arnór Pálmi Arnarson sem einnig leikstýrir, annað árið í röð. Í fréttatilkynningu er haft eftir Arnóri Pálma að handritsvinnan gangi vel, hann sé hæstánægður með hópinn sem annars vegar saman- standi af reyndum máttarstólpum í gríni og svo sé nýliðinn í hópnum, Katrín Halldóra, að stíga sín fyrstu skref á þessu sviði. „Það er svo sem af nógu að taka í ár en allt tal um að Skaupið skrifi sig sjálft er ekki rétt,“ segir hann. Þá er í tilkynningunni haft eftir Skarphéðni Guðmundssyni, dag- skrárstjóra sjónvarps, að Skaup Arn- órs Pálma í fyrra hafi verið eitt best heppnaða Skaup frá upphafi. Tökur hefjast um miðjan nóv- ember og framleiðendur Skaupsins eru þau Andri Ómarsson og Arnbjörg Hafliðadóttir ásamt Herði Rúnars- syni, Baldvini Z og Andra Óttarssyni. Skrifar sig ekki sjálft  Höfundar Áramótaskaupsins 2018 eru byrjaðir að skrifa handritið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Kaupendum stendur nú til boða að fá 95% lán fyrir nýjum íbúðum á Tryggvagötu 13 í Reykjavík. Hlutur seljanda af láninu er um 10%. Böðvar Reynisson, löggiltur fast- eignasali hjá Eignamarkaðnum, seg- ir þennan lánamöguleika hafa verið í boði frá mánaðamótum. Viðbrögðin hafi verið mikil. Þrjár íbúðir séu í fjármögnunarferli með 95% láni. Þá séu þrjár íbúðir seldar með fyrirvara um fjármögnun með hefðbundnum kjörum. Þ.e. ekki með 95% láni. Að sögn Böðvars býður seljandi sömu lánakjör á viðbótarlánið og bankar. Dæmi um fjármögnun sé að 3,65% vextir séu á 40 ára verð- tryggðu grunnláni fyrir 70% kaup- verðsins. Við það bætist óverðtryggt 15% viðbótarlán til að hámarki 15 ára og svo 10% seljandalán. Alls 38 íbúðir eru á Tryggvagötu 13. Íbúðirnar komu í sölu í lok nóv- ember í fyrra. Þær eru 55 til 166 fer- metrar, þær minnstu stúdíóíbúðir en þær stærstu stórar þakíbúðir. Fjórar voru fráteknar og fimm seldust strax. Salan hefur síðan verið hægari en vonir stóðu til og voru íbúðirnar tímabundið teknar úr sölu. Þær eru nú komnar aftur í sölu með nýjum lánamöguleikum. Nú 5 milljónum króna ódýrari Þegar íbúðirnar komu á markað voru tvær 75 fermetra íbúðir aug- lýstar á 54,5 og 59,5 milljónir. Íbúðir í þeim stærðarflokki eru nú til sölu á 48,9 til 54,5 milljónir. Þær eru á 2. til 5. hæð og hækkar verðið með hverri hæð. Bendir þetta til að verðið hafi jafnvel lækkað um 5 millj- ónir. Böðvar staðfestir aðspurður að verðið hafi verið lækkað. Hann segir 95% lánin henta ungu fólki sem er með góðar tekjur en lítið eigið fé. Bjóða nú 95% íbúðalán  Seljendur nýrra íbúða á Tryggvagötu bjóða 10% aukalán  Bætist við 85% bankalán  Hafa lækkað verð á íbúðum Morgunblaðið/RAX T13 Húsið er til hægri á myndinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.