Morgunblaðið - 12.10.2018, Page 16

Morgunblaðið - 12.10.2018, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018 12. október 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 115.79 116.35 116.07 Sterlingspund 152.29 153.03 152.66 Kanadadalur 89.32 89.84 89.58 Dönsk króna 17.83 17.934 17.882 Norsk króna 14.089 14.171 14.13 Sænsk króna 12.717 12.791 12.754 Svissn. franki 116.63 117.29 116.96 Japanskt jen 1.0222 1.0282 1.0252 SDR 161.09 162.05 161.57 Evra 133.03 133.77 133.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 160.0505 Hrávöruverð Gull 1186.4 ($/únsa) Ál 2028.0 ($/tonn) LME Hráolía 84.98 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Stjórnarfundi HB Granda sem fram átti að fara í gær var frestað til mánudagsins 15. október nk. Til stendur að ræða þar bréf frá Útgerðarfélagi Reykjavíkur til stjórnar HB Granda þar sem fram- kvæmdastjóri ÚR lýsti yfir vilja til þess að hætta við fyrirhugaða sölu á hlutafé Ögurvíkur til HB Granda. Stjórn HB Granda hefur nú þegar samþykkt að kaupa alla hluti í Ögurvík og tillaga um að staðfesta þá ákvörðun er á dagskrá hluthafafundar HB Granda sem fer fram þriðjudaginn 16. október. Ástæðan fyrir sinnaskiptum ÚR í málinu er tillaga Gildis lífeyrissjóðs um að fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka leggi mat á viðskiptin með Ögurvík áður en þau verða samþykkt á hluthafafundi. HB Grandi frestaði stjórnarfundi Stjórnarfundi frest- að til mánudags. STUTT BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfis- ins hefur ákveðið að hefja endurskoð- un lagaumgjarðar um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit. Í tilkynningu frá forsætisráðuneyt- inu segir meðal annars að miða skuli að því „að sameina Seðlabanka Ís- lands og Fjármálaeftirlitið með þeim hætti sem eflir traust og tryggir skil- virkni við framkvæmd þjóðhagsvar- úðar og fjármálaeftirlits.“ Drög að lagafrumvörpum verða send til ráð- herranefndar eigi síðar en 28. febrúar 2019. Einfalda þarf umgjörð Nokkuð hávær umræða hefur ver- ið um sameiningu þessara tveggja ríkisstofnana allt frá hruni og hafa fjölmargar skýrslur á vegum inn- lendra og erlendra sérfræðinga bent á þá leið. „Þetta er metnaðarfullt verkefni en það er heilmikil vinna framundan hjá öllum þessum aðilum sem eru kallaðir til að útfæra þetta. Passa þarf upp á að við náum að gera þetta á sem bestan mögulegan hátt fyrir land og þjóð,“ segir Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeft- irlitsins, í samtali við Morgunblaðið. Aðspurð hvort þessar aðgerðir hafi verið orðnar tímabærar segir Unnur að mikil umbótavinna hafi nú þegar átt sér stað en hún segir að gagnlegt sé að einfalda umgjörðina í kringum þjóðhagsvarúðarverkefnin. „Það var búið að stofna formlegan og ansi góð- an vettvang fyrir þjóðhagsvarúðar- verkefnin. En það er eitt af markmið- unum þarna að einfalda þetta svolítið,“ segir Unnur sem bendir á að útfærslumöguleikarnir séu ýmsir en mikilvægt sé að vanda til verka og hafa þurfi skilvirkni og hagræðingu verkefna að leiðarljósi ásamt áherslu á fagmennsku og traust. Samþætting mikilvæg Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði segir mikilvægt að einn aðili beri al- farið ábyrgð á fjármálastöðugleika. „Þetta er það sem við lögðum til í skýrslunni. Að vísu lögðum við ekki til að FME yrði sameinað Seðlabank- anum í heilu lagi. Við sjáum alveg fram á það að FME gæti áfram sinnt eftirlitshlutverki á fjármálamarkaði. T.d. að skoða hluti eins og innherja- viðskipti og markaðsmisnotkun,“ segir Ásgeir. Hann bendir einnig á að þessar aðgerðir séu nauðsynlegar svo að Seðlabankinn geti sinnt sínu hlut- verki sem lánveitandi til þrautarvara en grundvöllur fyrir því er að bank- inn hafi upplýsingar um eignagæði fjármálafyrirtækja, svo dæmi sé tek- ið. Ásgeir dregur fram að mikilvægt sé að starfsemi þessara tveggja stofn- ana verði samþætt. „Það er mikil- vægt að þessar tvær stofnanir renni raunverulega saman í eina. Að þetta verði ekki tvær stofnanir undir sama þaki,“ segir Ásgeir. Sameina á Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið Sameining Mikilvægt er að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið renni raunverulega saman í eina stofnun. Sameining SÍ og FME » Bent hefur verið á mikilvægi aukinnar samþættingar á milli stofnananna tveggja í fjölmörg- um skýrslum allt frá hruni. » Skila á drögum að laga- frumvarpi til ráðherranefnd- arinnar eigi síðar en 28. febrúar 2019. » Sérfræðingur segir mikil- vægt að stofnanirnar renni raunverulega saman í eina.  Lagaumgjörð um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit endurskoðuð Sænski netverslunarsérfræðingur- inn Pelle Pettersen, sem var aðal- fyrirlesari á morgunverðarráðstefnu Samtaka verslunar og þjónustu um íslenska netverslun, segir að hann hafi hvergi fengið meiri viðbrögð frá áheyrendum en hér við erindi sínu. „Áhuginn var meiri en ég er vanur á öðrum stöðum þar sem ég hef verið að halda kynningar,“ segir Pelle í samtali við Morgunblaðið. Pelle segir aðspurður að reynsla hans af því að vinna með ólíkum smá- sölum að innleiðingu netverslunar hafi líklega verið meginástæða þess að hann var fenginn til að tala á ráð- stefnunni. Hann segir að í erindi sínu hafi hann bæði rætt almennt um hvernig hægt sé að auka netverslun til annarra landa og einnig innan Norðurlandanna sérstaklega. „Þró- un í stafrænni tækni er á fleygiferð, og netverslun eykst hröðum skrefum á Norðurlöndum.“ Skipaflutningar áskorun Spurður um stöðu mála hér á landi segir Pelle að sér virðist sem helsta áskorunin sé fólgin í grunngerðinni (e. infrastructure). Dýrt og tíma- frekt sé t.d. að flytja vörur með skip- um til og frá landinu. Þá eigi Íslend- ingar enn eitthvað í land hvað tækniinnleiðingu varðar. „Það standa flest lönd nokkuð að baki löndum eins og Bandaríkjunum og Kína í þróun í netverslun, en af nor- rænu löndunum þá er Svíþjóð fram- arlega. Ástæðan fyrir vextinum er einfaldlega sú að þetta er hentugt verslunarform.“ tobj@mbl.is Morgunblaðið/Hari Verslun Uppselt var á fund SVÞ um íslenska netverslun. Hvergi meiri áhugi en hér  Tækni og grunngerð net- verslunar má bæta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.