Morgunblaðið - 12.10.2018, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018
mánudaginn 15. október, kl. 18
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–16, sunnudag kl. 12–16
og mánudag kl. 10–17
TryggviÓ
lafsson
Listmunauppboð nr. 112
Forsýning á verkunum föstudag til mánudags
ygg
H
el
gi
Þo
rg
ils
Fr
ið
jó
ns
so
n
g
g
j
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Tveir voru sagðir látnir í gær eftir
að fellibylurinn Mikael skall á
ströndum Flórídaríkis í fyrradag og
hélt áfram í norðausturátt yfir í
Georgíuríki. Mikael, sem skilgreind-
ur var sem 4. stigs fellibylur þegar
hann kom á land, minnkaði að afli og
var í gær sagður hitabeltisstormur.
Stefndi hann þá yfir Norður- og
Suður-Karólínu og voru íbúar þar
beðnir að vera á varðbergi gagnvart
storminum. Á Mikael svo að halda
út yfir Atlantshafið í dag.
Embættismenn í Flórída sögðu að
vindhraði Mikaels hefði verið um
250 kílómetrar á klukkustund, og er
hann öflugasti stormur til þess að
lenda á vesturhluta Flórída frá því
mælingar hófust árið 1851. Er Mika-
el jafnframt talinn einn öflugasti
fellibylur í sögu Bandaríkjanna.
Mikael kom á land nálægt bænum
Mexico Beach, en þar búa um 1.000
manns. Skildi fellibylurinn eftir sig
langa slóð eyðileggingar, þar sem
tré voru rifin upp með rótum og allt
lauslegt fauk. Víða flæddi yfir vegi.
Einn einstaklingur lést í Flórída-
ríki og virðist sem hann hafi orðið
fyrir fljúgandi braki. Þá lést ellefu
ára stúlka í Georgíuríki þegar bíl-
skýli losnaði af festingum sínum og
flaug inn í heimili hennar.
Mun halda til Flórída bráðum
Donald Trump Bandaríkjaforseti
sinnti kosningabaráttu í Pennsylv-
aníuríki fyrir þingkosningarnar í
nóvember í gær. Sagði hann þar á
fundi að „hugur sinn og bænir“
væru hjá þeim sem hefðu orðið fyrir
Mikael og tók fram að hann myndi
heimsækja hamfarasvæðin við
fyrsta tækifæri.
Trump var þegar búinn að skil-
greina Flórída sem hamfarasvæði,
sem heimilaði bandarísku almanna-
varnastofnuninni FEMA að veita
aðstoð og sækja í sérstakan viðlaga-
sjóð alríkisins til þess að aðstoða við
uppbyggingu eftir Mikael. Áætlað
er að fjárhagslegt tjón gæti numið
allt að 13,4 milljörðum bandaríkja-
dala, um 1.500 milljörðum íslenskra
króna.
Olli umtalsverðu tjóni
Tveir létust af völdum fellibylsins Mikaels Hélt áfram för sinni norður í
gegnum Karólínuríkin Öflugasti stormur í Flórída frá upphafi mælinga
AFP
Mikael Fellibylurinn Mikael olli
umtalsverðum eignaspjöllum.
Geimfararnir Nick Hague frá
Bandaríkjunum og Aleksey Ovch-
inin frá Rússlandi sluppu heilir á
húfi þegar Soyuz-eldflaug þeirra,
sem átti að bera þá að alþjóðlegu
geimstöðinni, bilaði rúmlega tveim-
ur mínútum eftir flugtakið frá Bai-
konur-geimstöðinni í Kasakstan.
Var geimfarið komið um sjö og
hálfan kílómetra frá jörðu þegar
bilunin kom upp í hliðareldflaug.
Tókst að skilja farið frá eldflaug-
inni og náðu fallhlífar að hægja á
því við komuna til jarðar.
„Guði sé lof að geimfararnir eru
á lífi,“ sagði Dmítrí Peskov, tals-
maður Vladimírs Pútíns Rússlands-
forseta, eftir atvikið. Júrí Borisov,
aðstoðarforsætisráðherra Rúss-
lands, tilkynnti seinna um daginn
að öllum mönnuðum geimferðum
Rússa hefði verið frestað þar til bú-
ið væri að rannsaka óhappið.
Þetta er fyrsta atvikið af þessu
tagi í geimferðasögu Rússlands eft-
ir fall Sovétríkjanna. AFP
Nauðlentu
stuttu eftir
flugtak
Verk götulista-
mannsins
Banksy, „Stúlka
með blöðru“,
gæti jafnvel ver-
ið enn meira
virði nú, þegar
hann hefur látið
tæta það eftir
uppboð Sothe-
bys í síðustu viku. Verkið hafði
selst á rúmlega eina milljón
punda, þegar það tætti sig sjálft
óvænt. Kom í ljós að Banksy hafði
komið fyrir tætara í ramma
myndarinnar, með það að mark-
miði að eyðileggja hana ef hún
yrði einhvern tímann seld á upp-
boði.
Sérfræðingar í verðmati á lista-
verkum sögðu hins vegar við
AFP-fréttastofuna í gær að þetta
hrekkjabragð Banksys hefði lík-
lega frekar aukið verðmæti verks-
ins en hitt. Áætlaði einn þeirra að
það væri nú hugsanlega virði
meira en tveggja milljóna punda.
Listaverkið jafnvel
enn meira virði tætt
BRETLAND
Kírill, patríark-
inn í Moskvu,
gagnrýndi í gær
þá ákvörðun
æðstaráðs rétt-
trúnaðarkirkj-
unnar, sem hefur
aðsetur í Istan-
búl, að viður-
kenna úkraínsku
rétttrúnaðarkirkjuna sem sjálf-
stæða einingu frá þeirri rússnesku.
Sagði fulltrúi hans við fjölmiðla að
ákvörðunin gæti ýtt undir trúar-
deilur innan rétttrúnaðarkirkj-
unnar.
Petró Porosjenkó, forseti Úkra-
ínu, fagnaði ákvörðuninni og sagði
hana „sigur góðs á illu“ og að Úkra-
ínumenn hefðu beðið eftir þessu í
330 ár.
Grunnt hefur verið á því góða
milli stjórnvalda í Úkraínu og Rúss-
landi frá árinu 2014 og eru deilur
rétttrúnaðarkirkjanna tveggja
taldar liður í þeim átökum.
Gagnrýnir stofnun
rétttrúnaðarkirkju
RÚSSLAND
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Tyrknesk og bandarísk stjórnvöld
þrýstu í gær enn frekar á yfirvöld í
Sádi-Arabíu að þau gæfu útskýring-
ar á því hvað hefði orðið um blaða-
manninn Jamal Khashoggi, sem
hvarf 2. október síðastliðinn. Hann
sást síðast fara inn í ræðismannsbú-
stað Sádi-Araba í Istanbúl þann dag
og hafa komið upp kenningar um að
Khashoggi hafi annaðhvort verið
tekinn þar af lífi, eða að hann hafi
verið fluttur gegn vilja sínum til
Sádi-Arabíu.
Jeremy Hunt, utanríkisráðherra
Breta, sagði sömuleiðis að það myndi
hafa „alvarlegar afleiðingar“ í för
með sér fyrir samskipti Breta og
Sádi-Araba, ef það reyndist rétt að
Khashoggi hefði verið myrtur, en
ríkin tvö eiga í umtalsverðum við-
skiptum.
Myndu sjá flugu á mynd
Recep Tayyip Erdogan, forseti
Tyrklands, blandaði sér í málið í gær
þegar hann skoraði á stjórnvöld í
Sádi-Arabíu að sýna myndir úr ör-
yggismyndavélum, sem rennt gætu
stoðum undir þá kenningu að Khas-
hoggi hefði yfirgefið sendiráðið heilu
og höldnu. „Er mögulegt að engar
myndavélar hafi verið í bústaðnum?“
spurði Erdogan og sagði svo að Sádi-
Arabar myndu geta séð það ef
minnsta moskítófluga flygi framhjá
sendiráðum þeirra. Sádi-Arabar
segja hins vegar að myndavélarnar í
bústaðnum hafi verið bilaðar daginn
sem Khashoggi hvarf.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
lýsti því einnig yfir í gær að Banda-
ríkjastjórn væri að vinna með bæði
Tyrkjum og Sádi-Aröbum til þess að
reyna að varpa ljósi á málið.
Krefja Sádi-
Araba um svör
Bretar vara
við „alvarlegum
afleiðingum“
AFP
Hvarf Myndavélar við ræðis-
mannsbústaðinn í Istanbúl.