Morgunblaðið - 12.10.2018, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Nøsted Kjetting as
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Ný
hönnun
Jón Skírnir Ágústsson, doktor í eðlisfræði, á 40 ára afmæli í dag.Hann stýrir í félagi við samstarfskonu sína rannsóknahópi hjáfyrirtækinu Nox Medical.
Nox Medical býr til lækningatæki til að greina svefnraskanir. Það
hefur selt vörur sínar út um allan heim til heilbrigðisstofnana og er
leiðandi í heiminum á sínu sviði. „Við hjá Nox Medical höfum verið
rosa heppin með að hafa fengið styrki frá tækniþróunarsjóði og Evr-
ópusambandinu til að stunda rannsóknir. Út úr þeim hafa orðið til
tæki og aðferðir til að framkvæma miklu fleiri svefnmælingar með
minni tilkostnaði og fyrirhöfn og líka til að greina orsakir kæfisvefns
þannig að hægt sé að beina meðferðinni frekar að orsökinni.“
Jón er fjölhæfur með afbrigðum og státar af Íslandsmeistaratitli
bæði í kajakróðri og gömlu dönsunum. Hann er þó hættur að dansa og
hefur minnkað róðurinn en snúið sér meira að fjallareiðhjólum og
fjallaskíðum. Hann er einnig liðtækur í eldhúsinu og ætlar í dag að
baka kökur fyrir kökuboð sem hann verður með á morgun. „Ég er
reyndar meira í matargerð en bakstri en ég reyni að grautast í þessu
öllu. Matur, hreyfing og svefn, er það ekki það sem þetta snýst allt
um?“
Sambýliskona Jóns er María Lovísa Ámundadóttir verkfræðingur
en fyrir mánuði stofnaði hún fyrirtæki sem snýst um að þróa aðferð til
að meta áhrif dagsljóss á heilbrigði og líðan fólks. Foreldrar Jóns eru
Ágúst Jónsson og Edda Erlendsdóttir.
Á göngu Jón og María stödd í Laufskörðum við Móskarðshnjúka.
Stýrir rannsóknum
á svefnröskunum
Jón Skírnir Ágústsson er fertugur í dag
S
turla fæddist í Reykjavík
12.10. 1958 og ólst þar
upp. Hann var í Mela-
skóla, lauk landsprófi
frá Hagaskóla, stúd-
entsprófi frá MR 1979, BA-prófi í
ensku og sagnfræði frá HÍ 1983,
og cand.mag.-prófi í enskum bók-
menntum frá sama skóla 1985.
Sturla var í sveit nánast öll
sumur frá fimm ára aldri og þar
til hann varð 16 ára: „Ég var fyrst
í sveit í Skagafirðinum en á ung-
lingsárunum var ég hestasveinn
fyrir laxveiðimenn í Kjarrá sem er
efri hluti Þverár í Borgarfirði. Þá
var enginn vegur þangað upp eftir
og veiðihúsið ansi frumstætt. Við
fórum því þangað á hestum. Þetta
var skemmtilegur og eftirminni-
legur tími.
Í Vesturbænum man ég vel eftir
braggahverfinu Kamp Knox sem
var heimur út af fyrir sig, og kyn-
legum kvistum eins og Þórbergi
Þórðarsyni og Vilhjálmi frá Ská-
holti.“
Sturla var kennari 1984-85 og
blaða- og fréttamaður 1985-87.
Hann hóf störf í utanríkis-
ráðuneytinu 1987, var sendiráðs-
ritari á varnarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins 1987-88, starfs-
maður í stjórnmáladeild alþjóða-
starfsliðs höfuðstöðva NATO,
Brussel 1988-91, sendiráðsritari á
alþjóðaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins 1991-94, ræðismaður í
Sturla Sigurjónsson ráðuneytisstjóri – 60 ára
Stór og myndarlegur hópur Sturla og Elín með börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum.
Vesturbæingur sem
veiðir lax og fugla
Virðulegur Sturla Sigurjónsson.
Reykjavík Kristrún
Brynja Halldórsdóttir
fæddist 28. febrúar
2018 kl. 18.44. Hún vó
4.468 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar
eru Sólrún Bragadóttir
og Halldór Atli
Þorsteinsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is