Morgunblaðið - 12.10.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 2018
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira en bara ódýrt!
SONAX bílavörur í miklu
úrvali á mjög góðu verði
Háþrýstidælur
1650W
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú getur aðeins sjálfum þér um kennt
ef verkefnin eru að vaxa þér yfir höfuð. Hafðu
varann á þegar kemur að samningsgerð í dag.
20. apríl - 20. maí
Naut Slepptu allri sýndarmennsku og haltu
þig við raunveruleikann. Aðrir gætu í fram-
haldinu borið meira traust til þín og leitað til
þín með spennandi tilboð.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hæfileikar þínir til þess að greina
kjarnann frá hisminu eru upp á sitt besta í
dag. Vinir og kunningjar eru til staðar og
munu fylgja þér að málum við lausn deilu-
máls.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhver þér nákominn á bágt með að
skilja framkomu þína. Frestaðu því að ræða
málin við þessa aðila ef þú mögulega getur.
Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu ekki skapið hlaupa með þig í gönur
því þá gæti illa farið. Einhverjar breytingar
standa fyrir dyrum hjá þér og þá er fyrir bestu
að anda með nefinu og fara að öllu með gát.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu ekki eirðarleysið ná tökum á þér.
Notaðu daginn til þess að setja þér langtíma-
markmið og gættu þín þegar kemur að við-
skiptum eða meiriháttar kaupum í dag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Loksins eru samstarfsmenn þínir farnir
að koma fram við þig á þann hátt sem þú átt
skilið. Taktu stjórnina í þínar hendur og þá
munu hjólin fara að snúast þér í hag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert ekki í skapi fyrir sjálfsaga
og sjálfsafneitun í dag og því langar þig meira
til að skemmta þér en vinna. Flýðu frá kæfandi
fólki og fyrirtækjum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er í góðu lagi að gefa öðrum
ráð svo framarlega sem þú lest þeim ekki pist-
ilinn því það er ekki á þínu valdi. Gleymdu því
öllum skyndilausnum í bili.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er komið að þeim tímamótum í
lífi þínu að þú hrindir í framkvæmd þeirri áætl-
un sem þú hefur svo lengi verið með í undir-
búningi. Farðu þér samt hægt því sígandi
lukka er best.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hugmyndir yfirboðara verða þér
hvatning til að gera endurbætur í vinnunni.
Það virðist eiga vel við þig að hafa mörg járn í
eldinum og þú kemur því miklu í verk.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það þarf ýmislegt að leggja á sig til
þess að halda sambandi við annað fólk gang-
andi. Settu þig ekki á háan hest gagnvart þeim
sem hafa misstigið sig né nokkrum öðrum.
Ólafur Stefánsson kallar þettaljóð „Horfur á hausti“:
Er lækkar sól á himni
og lægðir framhjá þjóta,
lífið tekur breytingum,
því nú er komið haust,
þá er fyrir öllu
næðisstunda að njóta,
nýta þennan tíma
undanbragðalaust.
Sumarið er liðið,
í hlöður komin heyin.
Heimturnar af fjalli,
svona eins og vani er.
Þó séu ekki virkilega
væn þar dilkagreyin,
er von á heimsókn Kínverja
í sláturhúsin hér.
Það hægist um í túrismanum
ferðamönnum fækkar,
– sá flutningur til landsins
kostar ófá Spor –
Þeir gætu komið aftur
ef gengi krónu lækkar,
og græðgin verður minni
í kreppu næsta vor.
Menninguna, þangað til,
þjóðráð væri að rækja.
Þykkar lesa bækur,
sem hafa gleymst um stund.
Í leikhús bæði og Hörpu,
sýningar að sækja,
– svo má líka mæta
á pólitískan fund.
Já, svona mun þá veturinn
líða líkt og hinir.
Liðast inn í eilífðina,
eins og þekkjum vér.
Þannig er því útlitið,
elskulegu vinir
ekki nærri’ eins grábölvað,
og hugsa mætti sér.
Hér yrkir Pétur Stefánsson um
Skagfirðing og Dalamann og má
ekki á milli sjá:
Léttur er minn lífsins róður.
Leik ég mér á skáldaþingi.
Mikið varstu guð minn góður
að gera mig að Skagfirðingi.
Það er á mér lítill ljóður,
lífsins bók ég held það sanni.
Mikið varstu guð minn góður
að gera mig að Dalamanni.
Sem gaf Ingólfi Ómari tilefni til
að yrkja óð til Skagfirðinga:
Risla þeir við glens og grín
glatt er oft á hjalla.
Elska hesta víf og vín
og vísnagleði snjalla.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Horfur á hausti
og mannlíf nyrðra
Í klípu
AÐ VERA MEÐ ÞÖGLAN FÉLAGA VAR
GOTT – SÉRSTAKLEGA ÞEGAR LÚR-
TÍMINN KOM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„TAKTU TVÆR AF ÞESSUM MEÐ MAT, EN
EKKI FLEIRI EN 30 Á DAG.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hin fullkomna gjöf.
JÆJA, SVO ÞÚ
ERT FERTUGUR
JAMM ÞÚ LÍTUR
VEL ÚT…
AÐ ELDAST
VEL ER BESTA
HEFNDIN
ÉG FRÉTTI AÐ NÝI KÓNGURINN
HEFÐI ENGA KÍMNIGÁFU!
EKKI
SATT!
HANN HLÓ SIG MÁTTLAUSAN ÞEGAR ÉG RANN OG
DATT Á GÓLFIÐ Í HÖLLINNI!
Víkverji er vel upplýstur og veit aðþað þarf að hugsa um heilsuna.
Víkverji hefur reynt ýmislegt í gegn-
um tíðina í þeim efnum og keypti sitt
fyrsta líkamsræktartæki fyrir tæp-
um 40 árum.
x x x
Tækið var einhvers konar ropeyoga-bönd sem binda átti við
hurðarhún og voru með handföngum
fyrir hendur og fætur. Víkverji pant-
aði böndin úr pöntunarlista frá
Freemans, ef lesendur muna eftir
honum. Nú verður Víkverji sem alla
jafna er mjög minnugur að viður-
kenna að hann man ekki alveg hvern-
ig pöntunin fór fram. En á þeim tíma
voru almenn rafræn samskipti við
umheiminn frá Íslandi ekki komin á.
Líklegast er að pöntunin hafi verið
send í umslagi til Bretlands og vænt-
anlega leyst út sem póstkrafa á póst-
húsinu. Víkverji man að ferlið tók
langan tíma og langt að bíða.
x x x
Eftir 40 ára tímabil í leit að heppi-legri heilsurækt og viðeigandi
tækjum á Víkverji í fórum sínum,
böndin frá Freeman, jógamottu, æf-
ingamottu, upphækkun til þess að
stunda jóga á, handlóð, uppblásinn
bolta fyrir jafnvægis- og styrktaræf-
ingar og teygjur í öllum regnbogans
litum og styrkleikum. Bolta til þess
að nudda undir iljum eða herðum.
Rúllu til að örva stoðkerfið, golfsett,
blómadropa og ilmolíur og eflaust
eitthvað fleira. Þar að auki átti Vík-
verji á tímabili hlaupahjól sem selt
var lítið notað ári síðar.
x x x
Víkverji hefur prófað leikfimi, lík-amsrækt í sal, hóptíma, margar
tegundir af jóga og metabolic svo
eitthvað sé nefnt. Að lokinni áratuga
tilraunastarfsemi hefur Víkverji
loksins fundið fjölina sína í líkams-
ræktinni. Göngur og sundleikfimi.
x x x
Göngur er alls staðar og nær alltafhægt að stunda og sundleikfimi
eykur styrk, þol og jafnvægi. Vík-
verji slakar hvergi betur á en fljót-
andi tignarlegur í öllu sínu veldi í
sundlaug að loknum góðum sund-
leikfimitíma. vikverji@mbl.is
Víkverji
Því að hvar sem tveir eða þrír eru
saman komnir í mínu nafni þar er ég
mitt á meðal þeirra.
(Matt: 18.20)