Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 4

Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 fyrir öll tölvurými og gagnaver Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Við tökum út og þjónustum kæli- og loftræsti- kerfi Veður víða um heim 23.10., kl. 18.00 Reykjavík 3 alskýjað Akureyri 1 skýjað Nuuk -5 heiðskírt Þórshöfn 6 súld Ósló 11 heiðskírt Kaupmannahöfn 11 skýjað Stokkhólmur 4 léttskýjað Helsinki 6 skúrir Lúxemborg 11 heiðskírt Brussel 13 heiðskírt Dublin 13 skýjað Glasgow 12 alskýjað London 14 heiðskírt París 15 heiðskírt Amsterdam 14 skýjað Hamborg 12 súld Berlín 11 súld Vín 12 rigning Moskva 4 súld Algarve 22 léttskýjað Madríd 11 skýjað Barcelona 20 heiðskírt Mallorca 22 heiðskírt Róm 20 heiðskírt Aþena 18 skýjað Winnipeg 1 léttskýjað Montreal 7 skýjað New York 14 skýjað Chicago 8 skýjað Orlando 26 léttskýjað  24. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:46 17:39 ÍSAFJÖRÐUR 9:01 17:34 SIGLUFJÖRÐUR 8:44 17:17 DJÚPIVOGUR 8:18 17:06 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á fimmtudag Norðlæg átt 5-13 og él, einkum norð- antil á landinu. Hiti um og undir frostmarki. Á föstudag Norðan 8-13 en 13-18 við austurströnd- ina. Dálítil él á Norður- og Austurlandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 10-18 og slydda eða snjókoma norðvestantil á landinu. Hægari suðvestanátt og dálítil væta annars staðar, en þurrt austanlands. Hiti 0 til 8 stig. Kólnandi veður. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Breytum ekki konum – breytum samfélaginu. Þetta er yfirskrift kvennafrídags- ins sem haldinn er í dag. Þetta er sjötti kvennafrídagurinn, hann var fyrst haldinn 24. október 1975, en allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hafði helgað áratuginn 1975-’85 mál- efnum kvenna. Ýmis samtök tóku sig þá saman og skipulögðu þennan dag þar sem konur lögðu niður vinnu og sýndu þannig fram á mikilvægi vinnuframlags íslenskra kvenna. Áætlað hefur verið að um 90% kvenna hér á landi hafi gengið út af vinnustöðum sínum og heimilum þennan dag, það vakti talsverða at- hygli víða um heim og er íslenski kvennafrídagurinn talinn einn af hornsteinunum í alþjóðlegri jafnrétt- isbaráttu. Í tilefni kvennafrídagsins í dag verður haldinn baráttufundur á Arn- arhóli klukkan 15:30 og víðar um land þar sem krafist verður jafnra kjara og öryggis á vinnustöðum. Fundurinn er skipulagður af fjöl- mörgum samtökum kvenna og launafólks. Konur eru hvattar til að leggja niður störf klukkan 14:55 og sú tímasetning er byggð á nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launa- mun kynjanna sem sýna að meðal- atvinnutekjur kvenna eru 74% af meðalatvinnutekjum karla. Sam- kvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir fimm klukku- stundir og 55 mínútur sé miðað við fullan vinnudag á milli klukkan 9 og 17. Dagurinn var síðast haldinn árið 2016, þá töldust tekjur kvenna vera um 70% af tekjum karla og hættu konur því að fá greitt fyrir vinnu- framlag sitt klukkan 14:38. Þar áður var dagurinn haldinn 2010, þá var þessi tímasetning 14:25, og þar á undan, árið 2005, var tímasetningin 14:08. Einnig var kvennafrídagurinn haldinn 24. október 1985. 3,6 mínútur á ári Sá tími sem konur eru hvattar til að leggja niður vinnu hefur þannig færst fram um 47 mínútur síðustu 13 ár. Það eru 3,6 mínútur á ári og með þessu áframhaldi út frá sömu for- sendum munu laun karla og kvenna verða jöfn sumarið 2053. „Í mínum huga er þetta að hluta til táknrænn dagur,“ segir Katrín Björg Ríkharðsdóttir, framkvæmda- stjóri Jafnréttisstofu, um kvenna- frídaginn. „Við eigum þennan sterka dag árið 1975 þar sem gríðarlegur fjöldi kvenna gekk út af vinnustöð- um og heimilum til að benda á ójafn- réttið sem þá var. Sumt af því var af allt öðrum toga en í dag, en ennþá er launamunur kynjanna að mælast. Og á meðan svo er, þá er nauðsyn- legt að vekja athygli á því og benda á leiðir til að bæta þar úr.“ Meðal verkefna Jafnréttisstofu er að fylgja því eftir að fyrirtæki yfir tiltekinni stærð setji sér jafnréttis- áætlun, en í henni felst m.a. að tekið sé á launamisrétti. Gerð slíkra áætl- ana hefur verið lögbundin í tíu ár en Katrín segir að misbrestur hafi orðið á því að fyrirtæki hafi sett sér þessa áætlun. Að undanförnu hefur Jafn- réttisstofa einblínt á stærstu fyrir- tæki landsins, meirihluti þeirra hef- ur nú skilað jafnréttisáætlun og flest þeirra sem ekki hafa gert það eru með hana í vinnslu. Katrín segist binda miklar vonir við jafnlaunavottunina sem varð að lögum nýverið og fyrirhuguð er á næstu árum. Með því að samþykkja hana hafi Alþingi sent sterk skilaboð út í samfélagið um að greiða eigi körlum og konum sömu laun fyrir sömu vinnu. „Auðvitað stefnum við í rétta átt. En við þurfum að gera bet- ur,“ segir Katrín. „Við ætlumst til að konum og körl- um séu borguð sömu laun fyrir sam- bærileg störf. Við höfum ítrekað rætt þetta opinberlega og bent stjórnendum á nauðsyn þess að nýta krafta allra starfsmanna sinna,“ seg- ir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins. Holl og þörf áminning Að mati Halldórs eru helstu ástæður launamunar kynjanna kyn- skiptur vinnumarkaður og yfirvinna. Hann segir að hlutur yfirvinnu- greiðslna sé um 40% af launum fólks hér á landi, karlar vinni gjarnan störf með miklu meiri yfirvinnu- greiðslum og það skýri að hluta til lægri laun kvenna. Yrði kjarasamn- ingum breytt og launakostnaður vegna yfirvinnu færður inn í dag- vinnulaun, eins og SA leggur til í áherslum sínum fyrir komandi kjarasamninga, myndi launamunur kynjanna því minnka. Halldór segir kvennafrídaginn holla og þarfa áminningu um það sem hljóti að vera sameiginlegt markmið; jafnrétti kynjanna. Hann hvetur atvinnurek- endur til að sýna sveigjanleika þann- ig að starfsfólk geti tekið þátt í fundahöldum vegna dagsins kjósi það svo. Er þörf á kvennafrídegi? „Já, það tel ég. En það væri auðvitað óska- staðan að þessi launamunur fyrir- fyndist ekki.“ Verða launin jöfn sumarið 2053?  Kvennafrídagurinn haldinn í sjötta skiptið í dag  Áherslan á jöfn kjör og öryggi á vinnustöðum  Vonir bundnar við jafnlaunavottun  Yfirvinna meðal helstu sökudólga að mati framkvæmdastjóra SA Kvennafrídagur í sjötta sinn Heimild: Kvennafri.is 24. október Talið er að um 90% kvenna á Íslandi hafi lagt niður vinnu. 25.000 konur sóttu fund á Lækjartorgi og einnig víða um land. 24. október Samstöðufund- ur á Lækjartorgi í lok áratugar kvenna. 18.000 konur sóttu fundinn. 24. október kl. 14:08 Konur hvattar til að leggja niður vinnu kl 14:08. 50.000 söfn- uðust saman á útifundi á Ingólfstorgi. 24. október kl. 14:25 Konur hvattar til að leggja niður vinnu kl 14:25. 50.000 sóttu útifund við Arnarhól. 24. október kl. 14:38 Konur hvattar til að leggja niður vinnu kl 14:38. Útifund- ur haldinn á Austurvelli og á 20 stöðum víða um landið. 24. október kl. 14:55 Konur hvattar til að leggja niður vinnu kl 14:55. Útifund- ur fyrirhugaður við Arnarhól. 1. júlí kl. 17:00 Með sama áframhaldi munu konur ná sömu launum og karlar í júlí árið 2053 1975 1985 2005 2010 2016 2018 2053 Miðað við launahlutfall kvenna og karla og vinnudag frá kl. 9 til 17 verður vinnuframlagi kvenna lokið kl. 14:55 í dag, á kvennafrídaginn og verður vinnudagur kvenna því 125 mínútum styttri. Frá 2005 hefur þessi tími styst um 3,6 mínútur að meðaltali á ári. Morgunblaðið/Hari Kvennafrídagurinn 2018 Undanfarnar vikur hefur undurbúningur staðið yfir, m.a. með því að mála skilti með ýmsum slagorðum. Í dag verður dagurinn haldinn í sjötta skiptið og fundir verða víða um land, m.a. við Arnarhól. Kvennafrídagurinn 24. október 1975 var að sjálfsögðu forsíðu- frétt Morgunblaðsins daginn eftir, enda einstakur viðburður. Þar kom sérstaklega fram að konur væru tæpur helmingur fastráðinna starfsmanna blaðs- ins og flestar þeirra hefðu lagt niður störf. „Er þetta blað sér- stakt framlag til jafnréttis- baráttunnar,“ stóð í blaðinu. Á forsíðunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.