Morgunblaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 skrifa um þau heila bók. Húm- orinn okkar lá vel saman en ekki væri við hæfi að prenta hann hér en sannarlega var oft glatt á hjalla hjá okkur. Að öllum öðrum ólöstuðum er Úlfar langbesti maður sem ég hef kynnst um ævina og algjör for- réttindi að fá að vera samferða- maður hans. Hans er sárt saknað en það kæmi mér þó ekki á óvart að hann væri byrjaður að skipu- leggja sjóstangveiðimót og vænt- anlega byrjaður að skrá inn keppendur, ég ætla mér hins veg- ar að mæta eins seint og ég mögulega get. Ingu Ló, börnum og aðstand- endum vottum við Sigga okkar dýpstu samúð. Þorsteinn Már Aðalsteinsson. Ég kynntist Úlfari Eysteins- syni sumarið 2001 þegar sam- vinna okkar vegna Fiskidagsins mikla hófst, ég sem fram- kvæmdastjóri og Úlfar sem yfir- kokkur dagsins. Hann sinnti því starfi af alúð og samviskusemi í 15 ár, frá 2001 til 2015. Það var Þorsteinn Már Aðalsteinsson sem hafði samband við Úlfar í upphafi og lýsti fyrir honum hug- myndinni að hátíðinni og Úlfari varð að orði: „Nú, þetta er bara Fiskidagurinn mikli,“ og þar með var heitið komið á hátíðina. Elsku vinur. Það er best að ég skrifi þér nokkrar línur þar sem erfitt er að ná á þér í símann þinn núna. Þú sendir kannski nýtt númer þegar þú ert kominn í samband hinum megin. Ég var staddur á Spáni með ískaldan bjór á kantinum þegar ég fékk þau tíðindi að þú hefðir kvatt okkur, tíminn stoppaði um stund og minningarnar runnu í gegnum hugann en svo skálaði ég við þig í huganum og fékk mér bjórsopa í þínum anda og gladd- ist yfir því að hafa fengið að kynnast þér. Það var einstakt að vinna með þér og þínu fólki að uppbyggingu Fiskidagsins mikla, sem er ein stærsta og sérstakasta hátíð landsins. Þú sagðir að það væri gott að vera brautryðjandi og það vorum við sannarlega því margar af hugmyndum fiskidagshópsins eru notaðar með einum eða öðr- um hætti víðs vegar um landið. Það var alltaf mikið líf og mikið fjör í undirbúningi hátíðarinnar og sérstaklega á lokasprettinum. Það var ekki sofið mikið og ef það var sofið þá var hraðsofið að hætti formannsins og frum- kvöðulsins Steina minks. Það var alltaf gott að koma á Þrjá frakka, móttökurnar ein- stakar svo ekki sé nú minnst á matinn. Einn besta mat sem ég hef fengið um ævina fékk ég hjá þér. Þú hringdir í mig norður á Dalvík og sagðir mér að nú væri ástæða til að stökkva upp í flug- vél og koma til að smakka túnfisk sem þú hefðir náð í. Ég var á ferðinni tveimur dögum síðar og fékk frábæra túnfisksteik hjá þér. Það var alltaf gleðiríkt og gef- andi að vera í kringum þig, Úlfar, aldrei leiðindi, margir brandarar voru sagðir og sumir oft. Ég ætla ekki að láta þá fylgja hér með í þessum skrifum og veit að það skilur þú vel. Á öllum þessum árum man ég aðeins einu sinni eftir að þú hafir sett upp smásvip og ekki verið sáttur, en það var þegar þið vor- uð á kafi í ævintýrinu um saltfisk- svöffludeigið mikla, en mikið var það fljótt að gleymast eða ca eftir eina „samloku“ í baukaformi. Og eitt að lokum: „Þakka þér aftur fyrir!“ Það var brandarinn sem við notuðum alltaf þegar við hittumst; skelltum hendinni aftur fyrir bak og komum með þessa setningu: „Þakka þér aftur fyrir“ og hlógum alltaf báðir jafnmikið að þessu. Kæri mannvinur, meistara- kokkur og yfirkokkur stærstu matarhátíðar í Evrópu, takk fyr- ir allt. Fyrir hönd stjórnar Fiski- dagsins mikla, styrktaraðila, sjálfboðaliða og samfélagsins í Dalvíkurbyggð þakka ég þér fyr- ir allt sem þú og þitt fólk lagði af mörkum til samfélagsins og Fiskidagsins mikla, megi allar góðar vættir heiðra minningu þína. Ég votta eiginkonu, fjölskyldu og vinum mína dýpstu samúð. Júlíus Júlíusson. Úlfari vini mínum kynntist ég þegar við vorum báðir á besta aldri á síðustu öld. Skemmst er frá því að segja að með okkur myndaðist góður vinskapur sem hélst alla tíð. Eitt sinn nokkru eftir að Úlfar opnaði sinn rómaða veitingastað, Þrjá frakka, hringdi hann í mig eldsnemma að morgni Þorláks- messu vegna þess að hann vant- aði uppvaskara á vaktina eftir að einhverjir höfðu helst úr lestinni á versta tíma. Ég vann sem bílamálari og hafði nokkru áður sagt Úlfari að ég ætlaði að haga málum mínum þannig að ég yrði í fríi á Þorláks- messu. Þegar neyðarkallið kom frá vini mínum var mér ekki til setunnar boðið. Konan mín skutlaði mér á Þrjá frakka þar sem ég vann við uppvaskið frá því snemma dags og fram undir miðnætti. Hafði ég ánægju af at- inu sem þessum stóra degi fylgdi á veitingahúsinu. Aldrei var dauð stund, hvorki í eldhúsinu né frammi í sal. Toppurinn hjá mér var þó að borða þrjár tegundir af skötu hjá meistaranum, hverja annarri betri, eins og hans var von og vísa. Leigubílstjóri nokk- ur hafði ekki húmor fyrir mér á heimferðinni upp í Mosfellsbæ eftir eftir vaktina. Allar rúður bílsins voru opnar með von um að bjarga bílnum frá skötulyktinni, sem ég angaði af, en ekki síður viðskiptum sínum sem eftir var nætur. Sá var þurr á manninn. Þegar heim kom henti konan mín fötunum sem ég var í. Svo megn var lyktin að ekki þótti ástæða til að reyna að bjarga þeim með þvotti. Reyndar fékk ég að halda skónum. Eftirminnilegri Þorláksmessu hef ég vart lifað. Oft var dagur- inn rifjaður upp þegar leiðir okk- ar Úlfars lágu saman. Og alltaf hlógum við jafn dátt að. Um aldarmótin var komið á laggirnar gönguhópi hjá MS- setrinu. Fljótlega vaknaði áhugi hjá mér og Brynjari Erni Braga- syni, vini mínum úr hópnum, að taka þátt í Reykjavíkurmaraþon- inu. Úlfar var fljótur að grípa um stýrið og styðja við bakið á okkur og þeim hópi félagsmanna MS- setursins sem tóku þátt hverju sinni. Gamli rallkappinn vildi glaður aðstoða okkur í hjóla- stólaralli eins og uppátækið var kallað. Rausnarskapur Úlfars var einstakur. Öll þau ár sem ég var með, í um hálfan annan ára- tug, bauð Úlfar öllum MS-hópn- um í mat endurgjaldslaust og mátti hver og einn velja það af matseðlinum sem hugur stóð til. Alltaf fékk ég mér plokkfisk. Enginn var jafnoki Úlfars við matreiðslu á plokkfiski frekar en öðru. Að leiðarlokum þakka ég vini mínum margfaldlega fyrir mig með von um að hann taki vel á móti mér þegar ég kem til móts við hann einn góðan veðurdag. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Fjölskyldu Úlfars votta ég innilega samúð. Lárus Haukur Jónsson. Njörður Lionsklúbbur, kveður góðan félaga. Sláttumaðurinn slyngi boðar ekki alltaf komu sína. Þannig heimsóknir koma öllum í opna skjöldu. Þó vissum við vinir Úlf- ars að hann átti ekki auðvelt að komast á fundi nú síðustu árin sökum veikinda. Samt var okkur brugðið við andlátsfregn hans þann 10. október sl. Úlfar hafði þá verið Lionsfélagi í 37 ár eða frá október árið 1981. Úlfar var einstaklega skemmtilegur félagi, léttur í lund, jákvæður, hnyttinn í til- svörum og viðræðugóður. Hann var ávallt reiðubúinn að taka að sér hin ýmsu verkefni Njarðar, mörg krefjandi. Hann virkjaði ekki bara okkur Lionsfélaga sína þegar atburðir voru framundan hjá Nirði, heldur mætti hann með alla fjölskylduna, börn, barna- og tengdabörn, hvort heldur var á sjóstöng, í keilu eða á jólaböllin. Þá mætti hann með góðan vina- hóp á fjáraflanir Njarðar, bæði í árlegu Sviðaveisluna og Herra- kvöldin sem er aðal-fjáröflunar- leið Njarðar til velferðarmála. Tvö þau síðastnefndu voru vart haldin nema hann með sínum fag- félögum sæi um að útbúa síldina og sviðin og setja saman matseðil fyrir Herrakvöldin. Þá bætti Úlf- ar heldur betur í Lionshópinn með því að mæla með vinum sín- um til inngöngu í Njörð, auk þess að bæta þar við Stefáni syni sín- um og meðeiganda að Þrem frökkum sem hefur verið ötull fé- lagi okkar frá árinu 2008. Úlfar var formaður Njarðar 1995-1996 auk þess að gegna störfum í hinum fjölmörgu nefnd- um Njarðar. Fyrir þessi störf sín var hann heiðraður og gerður að Melvin Jones-félaga árið 2000, sem er æðsta viðurkenning Lionshreyfingarinnar á heims- vísu. Úlfar var vinmargur, hjálp- samur, ætíð jákvæður og úrræða- góður með mörg áhugamál og stórt tengslanet. Aðrir vinir hans munu eflaust minnast veitinga- mannsins og meistarakokksins, veiði- og einkum sjóstanga- veiðimannsins, bílaáhugamanns- ins sem keppti í akstursíþróttum á þriðja áratug, bridsspilarans sem er ættarsjúkdómur í hans ætt, frímúrarans úr Hamri svo eitthvað sé nefnt. Því læt ég þeim það eftir sem betur þekkja til. Við Njarðarfélagar minnumst hans sem einstaklega góðs vinar og félaga sem alltaf lagði gott til í öllum málum jafnt í meðbyr sem mótbyr. Njörður hefur misst einn af sínum öflugu félögum. Með þessari kveðju viljum við þakka Úlfari fyrir gengin spor og biðj- um hinn Hæsta höfuðsmið að halda verndarhendi sinni yfir eft- irlifandi sambýliskonu, Ingi- björgu Ólöfu, börnum hennar sem og börnum Úlfars, þeim Stefáni og Guðnýju, barnabörn- um, barnabörnum og systkinum Úlfars, meðan við Njarðarfélagar hans höldum ótrauðir áfram því góða starfi sem Lionshreyfingin stundar. Guð blessi minningu Úlfars. Fyrir hönd Lionsklúbbsins Njarðar, Arnar Hauksson, dr. med. Úlfar Eysteinsson, félagi í EFSA Íslandi (European Feder- ation of Sea Anglers – Section Iceland), lést miðvikudaginn 10. október 2018 í Reykjavík eftir erfið veikindi. Úlli eins og hann var að jafnaði kallaður af sjóstangaveiðifélög- um sínum var einn af tíu félögum EFSA Íslands sem endurreistu félagið í janúar 1998. Hann var fyrsti gjaldkeri félagsins og voru stjórnarfundir fyrstu árin jafnan haldnir á heimili hans við Bakka- braut í Kópavogi. Seinni árin, allt fram á þennan dag, lánaði Úlfar undir starfsemi félagsins hús- næði sitt á 2. hæð við Baldurs- götu 14 Reykjavík þar sem á fyrstu hæð er veitingastaðurinn Þrír frakkar. Úlfar tók þátt í fjölmörgum sjóstangaveiðikeppnum á vegum félagins þar sem hann var hrókur alls fagnaðar og var unun að vera með honum um borð. Kímnin, glaðværðin og vinahót voru ætíð í fyrirrúmi hjá honum og var hann ekki tapsár þótt næsti veiðimað- ur fengi stærri eða fleiri fiska en hann í það skiptið, mestu máli skipti að hafa gaman af veiði- skapnum og una sér í hópi góðra félaga. Minnisstætt er Íslandsmeist- aramótið í sjóstangaveiði í byrjun apríl árið 2005. Siglt var frá Kópavogshöfn á bátnum Jóni for- seta ásamt öðrum báti þar sem höfuðáherslan var lögð á að veiða steinbít enda bann við þorskveiði vegna hrygningar í byrjun apríl. Báturinn Jón forseti var gamall trébátur í eigu Úlfars og gekk einungis sjö sjómílur að hámarki. Úlfar var skipstjórinn á bátnum og píndi hann vél bátsins sem frekast hann gat enda ætlaði hann ekki að verða langt á eftir hinum bátunum á steinbítsmiðin á miðjum Faxaflóa. Mikill og svartur reykur steig upp frá strompi bátsins og svo mikill var reykurinn að veiðimönnum stóð ekki á sama enda kom hinn bát- urinn upp að Jóni forseta til að aðgæta hvort kviknað væri í bát- unum. Svo reyndist ekki vera en Úlfar sló af ferðinni og kom öllum um borð heilum í höfn á ný eftir ánægjulegan veiðidag. Úlfar og fyrrverandi sambýlis- kona hans skipulögðu fyrstu meiriháttar ferð félaga í EFSA Íslandi á mjög fjölmennt Evrópu- mót í sjóstangaveiði sem haldið var á Írlandi í september árið 2001. Margur félaginn fór þar í sína fyrstu Evrópukeppni sem við minnumst enn með hlýhug. Úlfars verður sárt saknað af veiðifélögum hans. EFSA Ísland vottar börnum og fjölskyldu Úlfars Eysteins- sonar dýpstu samúð og þakkar honum nú að leiðarlokum ára- langt samstarf og þátttöku í fjöl- mörgum mótum félagsins. Helgi Bergsson, formaður EFSA Íslands. Þórir Sveinsson, ritari EFSA Íslands. Skarphéðinn Ásbjörnsson, stjórnarmaður í EFSA. Kæri vinur, mikið á ég eftir að sakna þín. Við höfum verið vinir í rúmlega 40 ár og saman átt skemmtilegar stundir tengdar áhuga okkar á góðum mat og bíl- um. Við kynntumst þegar við unnum báðir hjá Loftleiðum á Keflavíkurflugvelli fyrir rúmlega 40 árum. Ég var að vinna í hlaðdeildinni og á næturvaktinni gafst oft tími til að dunda við bílinn sinn í friði og ró. Úlfar kíkti oft yfir til mín og við spjölluðum saman um heima og geima meðan ég bónaði bílinn. Úlfar var tíu árum eldri en ég en alla tíð kom hann fram við mig eins og jafningja. Á tímabili vann ég við að keyra ferðamenn um landið og ætíð í lok ferðar fór ég með hópinn til hans í mat á veitingastaðinn hans, Þrjá frakka. Alltaf var mat- urinn jafn góður. Oft benti ég er- lendum ferðamönnum á að besti fiskurinn á Íslandi væri hjá Úlf- ari vini mínum. Eitt sinn hitti ég aftur ferða- mann sem ég hafði bent á að fara til Úlfars, nú rauk hann á mig og skammaði mig. Ég spurði: Hvað, ertu ósáttur? Já, þú laugst að mér. Nú? sagði ég. Ferðamaður- inn hélt ákafur áfram: Þú sagðir að þetta væri besti fiskistaðurinn á Íslandi. Já, hann er það. Nei. Þetta er besti fiskiveitingastaðurinn í heiminum! Ég fór mikið til Bandaríkjanna á tímabili og keypti bíla. Í þeim ferðum var iðulega hringt í Úlfar þegar ég sá fallegan bíl. Yfirleitt sagði hann: Já, kauptu hann fyrir mig. Úlfar vildi helst ameríska eðalbíla. Helst vildi hann Cadillac eða Lin- coln. Fyrir rúmu ári fórum við Úlfar saman til Blönduóss og heimsóttum góðan vin okkar sem yfirleitt er kallaður Kiddi Cadil- lac (Kristján Pálsson). Við áttum góðar stundir, heimsóttum bíla- safnið hans Kidda, sem er sneisa- fullt af eðalbílum sem Úlfar naut að skoða. Þetta var síðasta ferðin hjá okkur félögunum og hún lifir í minningunni. Plokkfiskurinn hjá Úlfari er besti maturinn sem hægt er að fá. Ég fór til Úlfars í hverri viku og borðaði plokkfisk. Síðan þegar ég fór heim fékk ég oft stórt box með sem ég geymdi í frystinum til seinni tíma. Þegar Úlfar hafði tíma til að borða með mér fékk ég yfirleitt aldrei að borga, sama hvað ég reyndi. Sannur höfðingi. Ég votta fjölskyldu Úlfars innilega samúð. Minningin um góðan dreng lifir. Þinn vinur, Eyjólfur Sverrisson (Eyfi bón). Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HILMAR RÓSMUNDSSON frá Siglufirði, fyrrverandi skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, lést á Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra í Vestmannaeyjum 10. október. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 27. október klukkan 13. Hafdís B. Hilmarsdóttir Gottskálk Á. Guðjónsson Sædís M. Hilmarsdóttir Guðlaugur Sigurgeirsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HREFNA BJÖRNSDÓTTIR Skagaströnd, lést á Héraðshælinu á Blönduósi mánudaginn 8. október. Jarðsungið verður frá Hólaneskirkju Skagaströnd laugardaginn 27. október klukkan 14. Þökkum auðsýnda samúð. Gunnar Albertsson Björn Bragi Sigmundsson Ingibjörg Magnúsdóttir Egill Bjarki Gunnarsson Hrönn Bergþórsdóttir Bessi Gunnarsson Jóhanna G. Karlsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, JÓN HAFSTEINN JÓNSSON stærðfræðingur, lést á Droplaugarstöðum 17. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 29. október klukkan 13. Guðmundur Karl Jónsson Olga Björg Jónsdóttir Nanna Ingibjörg Jónsdóttir Jón Ingvar Jónsson Brigitte M. Jónsson Ingvar Gýgjar Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR Suðurlandsbraut 62, Mörkinni, lést á Vífilsstöðum fimmtudaginn 18. október. Útförin verður gerð frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 25. október klukkan 15. Hjördís Jóna Sigvaldadóttir Hjalti Már Hjaltason Grétar Jóhannes Sigvaldas. Róslinda Jenný Sancir Hjörtur Sigvaldason Sigrún Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.