Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 25
Hann vissi alltaf upp á hár
hvað hann var að gera og
hvernig hann gat beitt tækj-
unum og ekki síst hvernig átti
að framkvæma verkið og ljúka
því.
Í dag kveðjum við góðan
dreng sem í huga mínum og
margra annarra er hinn eini
sanni Geiri góði.
Hvíl í friði, kæri vinur,
Árni Jóhannsson.
Á þessari stundu lít ég yfir
vináttu okkar og rifja upp
stundirnar sem við áttum sam-
an. Elsku Geiri, það er skrítið
að þú sért farinn svona fljótt,
við sem ætluðum að fara í
ferðalag þegar þú værir orðinn
hress.
Það líkaði öllum vel við
Geira, hann vildi allt fyrir alla
gera. Geiri vann mjög mikið og
tók sér sjaldan frí.
Ég kynntist Geira fyrir 25
árum í Þórsmörk þar sem hann
bauð mér far heim úr Mörkinni
og upp frá þeim tíma hófst vin-
átta okkar og byrjuðum við að
ferðast saman innanlands sem
utan.
Fyrsta utanlandsferðin okk-
ar var til Benidorm árið 1997
um vorið og svo aftur um
haustið. Á þeim tíma var ég
orðin barnshafandi að dóttur
minni, Daníu. Þegar ég sagði
Geira frá því að ég ætti von á
barni var hann fljótur að tala
um að kaupa fyrir hana barna-
vagn.
Ferðirnar voru margar eftir
það. Ein af okkar ferðum var til
Barcelona þegar Geiri varð
fimmtugur. Danía var 10 ára
þarna og vildi fara í Tívolí.
Ekki stóð á Geira að verða við
ósk hennar enda hafði hann
aldrei farið í Tivólí áður.
Skemmtum við okkur konung-
lega þennan dag. Geiri og
Danía þræddu öll tæki sem þau
komust yfir.
Margar eru stundirnar sem
við áttum saman og alltaf var
Geiri að passa upp á hana Dan-
íu. Hann reyndist henni sem
faðir og leit hún á hann sem
slíkan.
Við náðum að fara í smáferð
í lok ágúst. Fórum austur að
Jökulsárlóni. Þar komum við
við og heimsóttum hjón sem við
kynntumst á Kanarí fyrir
þremur árum.
Gistum eina nótt á Svínafelli.
Daginn eftir fórum við og skoð-
uðum Skaftafell, Reynisfjöru og
Skógafoss og enduðum í kvöld-
verði á Fjöruborðinu á sunnu-
deginum. Ekki grunaði mig þá
að þetta yrði síðasta ferðin okk-
ar.
Hvíldu í friði, elsku Geiri,
minningin um þig mun lifa með
okkur og hafðu þökk fyrir allt
sem þú gafst okkur.
Ég vil gjarnan lítið ljóð
láta af hendi rakna.
Eftir kynni afargóð
ég alltaf mun þín sakna.
(Guðrún V. Gísladóttir)
Þín
Sigrún.
Elsku Geiri minn. Aldrei
hefði ég búist við því að þú
myndir kveðja okkur svona
snemma.
Ég náði bara að hitta þig
einu sinni áður en þú fórst en
fyrir það er ég óendanlega
þakklát. Þú áttir svo erfitt með
að tala en þú náðir að segja
okkur að þú yrðir alltaf hjá
okkur og það er svo gott að vita
það.
Þegar ég kvaddi sagði ég þér
að ég myndi svo sjá þig á morg-
un en því miður var það ekki
raunin.
Þegar mamma sagði mér svo
að þú værir farinn frá okkur
var ég sorgmædd en fann þó ró
í hjartanu því ég veit að þú ert
kominn á betri stað og þurftir
ekki að þjást lengi.
Líf mitt hefði svo sannarlega
ekki verið hið sama án þín því
þú gerðir það svo margfalt
betra. Þú kenndir mér svo
margt sem ég mun aldrei
gleyma.
Allar minningarnar mínar
um þig eru góðar og sama
hversu lengi ég myndi reyna þá
myndi ég ekkert slæmt finna.
Það sem einkenndi þig er að
það var ekki til neitt sem hét
vandamál því það voru einungis
lausnir. Það segir svo margt
um það hvernig manneskja þú
varst. Þú skiptir ekki skapi
sama hvað og nærvera þín hafði
góð áhrif á fólkið í kringum þig.
Ég minnist þess þegar við
horfðum á Næturvaktina saman
ótal sinnum og kunnum brand-
arana nánast utanbókar. Það
var samt ekki auðvelt að halda
þér við efnið og þurfti ég að
pota í þig annað slagið eða
klípa í nefið þitt því þú varst
farinn að hrjóta.
Takk fyrir að vera alltaf til
staðar fyrir mig sama hvað.
Þú ert og verður alltaf í mínu
hjarta.
Ég elska þig að eilífu.
Þín
Danía.
Útivistarfélagar kveðja í dag
góðan félaga til fjölda ára, Ás-
geir Steinarsson, sem kvaddi
okkur alltof snemma. Það er
einkennilegt til þess að hugsa
að þessi kraftmikli maður hafi
þurft að lúta í lægra haldi fyrir
heilsubresti, en lífið er ekki
alltaf útreiknanlegt.
Meðal félagsmanna í Útivist
gekk hann alltaf undir nafninu
Geiri góði. Sú nafngift gat haft
fleiri en eina skírskotun. Ann-
ars vegar vann hann mörg góð
verk fyrir félagið og lagði mikið
af mörkum í starfi félagsins.
Fyrir það eitt var þessi nafnbót
fyllilega verðskulduð. Ofan á
það bættist að við sem kynnt-
umst Geira og hans innri manni
skynjuðum fljótt að þarna fór
góður drengur með hjartað á
réttum stað.
Flestir sem hafa eitthvað
komið nálægt verkefnum við
uppbyggingu á vegum félagsins
vissu hver Geiri góði var. Þó
verður að teljast líklegt að ekki
séu margir sem viti hversu
mörg stórvirki hann vann fyrir
félagið því Geiri var ekkert sér-
staklega fyrir það að hreykja
sér af verkum sínum. Hann
hafði aðgang að öflugum tækj-
um sem nýttust til ýmissa
verka og ekki síður kunnáttu til
að beita þeim. Ef leggja þurfti
varnargarða til að verja eigur
félagsins fyrir flóðum, flytja
hluti milli staða eða koma
brennuefni inn í Bása, þá var
það gjarnan hlutur Geira í
framkvæmdinni sem réð úrslit-
um.
Margir þátttakendur í ár-
legri Jónsmessugöngu félagsins
muna eftir Geira á BSÍ með
gám til að flytja farangur inn í
Bása. Verk hans voru mörg og
stór og oft þess eðlis að aðrir
félagsmenn fara ekki í hans
spor.
Við syrgjum þó fyrst og
fremst góðan félaga, vinalegan
og skapgóðan mann sem kom
með jákvæðni að hverju verki.
Hann var skemmtilegur félagi
sem var gott að hafa í hópnum,
hvort heldur var í vinnu við
verkefni eða á kvöldvökum að
vinnu lokinni.
Það eru margar stundirnar í
Básum sem koma upp í hugann
núna þegar komið er að kveðju-
stund.
Hann dró vissulega sín mörk
og stóð á sínu þegar það átti
við, en í gróskumiklu starfi get-
ur það verið nauðsynlegt og má
telja til mannkosta.
Ferðafélagið Útivist þakkar
Ásgeiri góða samfylgd í gegn-
um árin. Aðstandendum hans
vottum við okkar innilegustu
samúð.
Ferðafélagið Útivist,
Skúli Haukur Skúlason.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 25
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Notice of Annual General Meeting
JPMorgan Funds
The meeting will be held at the location and
time stated in the right-hand column.
Agenda for Meeting and Shareholder Vote
1. Presentation of the report from Auditors
and Board for the past fiscal year.
2. Should shareholders adopt the Audited
Annual Report for the past fiscal year?
3. Should shareholders agree to discharge
the Board for the performance of its
duties for the past fiscal year?
4. Should shareholders approve the Directors’
fees for the year ended 30 June 2018?
5. Should shareholders approve the
Directors' fees for the accounting year
ending 30 June 2019? It is proposed that
this will be €86,000 for the Chairman and
€68,000 for each independent Director.
6. Should shareholders confirm the
appointment of Ms Susanne van Dootingh,
co-opted by the Board of Directors
with effect from 15 December 2017, in
replacement of Mr Jean Frijns, and her
election to serve as a Director of the
Company?
7. Should Susanne van Dootingh,
Peter Schwicht and Iain Saunders
be re-appointed to the Board for 1 year?
8. Should John Li and Dan Watkins be re-
appointed to the Board for 2 years?
9. Should Massimo Greco and Jacques
Elvinger be re-appointed to the Board for
3 years?
10. Should shareholders re-appoint
PricewaterhouseCoopers Société cooperative
as Auditors of the Fund and authorise
the Board to agree on their terms of
appointment?
11. Should shareholders approve the payment
of any distributions shown in the Audited
Annual Report for the past fiscal year?
To vote by proxy, use the proxy form
at jpmorganassetmanagement.com/ extra.
Your form must arrive at the registered office,
via post or fax, by 1800 CET on Monday,
19 November 2018.
To vote in person, attend the meeting in
person.
T H E M E E T I N G
Location Registered office of the Fund
(see below)
Date and time Wednesday,
21 November 2018 at 15:00 CET
Quorum None required
Voting Agenda items will be resolved by
a simple majority of the votes cast
T H E F U N D
Name JPMorgan Funds
Legal form SICAV
Fund type UCITS
Auditors PricewaterhouseCoopers
Société coopérative
Registered office
6, route de Trèves
L-2633 Senningerberg, Luxembourg
Fax +352 2452 9755
Registration number (RCS
Luxembourg) B 8478
Past fiscal year 12 months ended
30 June 2018
Félagsstarf eldri borgara
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristniboðs-
salnum. Ræðumaður Jón Ómar
Gunnarsson. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
KRISTALS LJÓSAKRÓNUR
í Glæsibær
Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir
falleg heimili. Handskornar kristals-
ljósakrónur, veggljós, matarstell,
kristalsglös til sölu.
BOHEMIA KRISTALL, Glæsibær
Sími 7730273
Til sölu
mbl.is
alltaf - allstaðar
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Foreldramorgnar kl. 9.30-
11.30. Jóga 60+ kl. 12.30-13.30. Söngstund kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30.
Bókaspjall með Hrafni kl. 15, Þórunn Valdimarsdóttir kemur og les úr
bók sinni um Skúla fógeta og nýrri ljóðabók sinni.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður
á eftir gegn vægu gjaldi. Opið Hús, félagsstarf fullorðinna, í safnaðar-
heimili kirkjunnar kl. 13 til 16. Erla Mist Magnúsdóttir syngur við
undirleik Krisztinar Kalló organista. Stólaleikfimi fyrir þá sem vilja og
verkefnið Jól í skókassa enn í fullum gangi. Kaffi og með því undir lok
stundar. Allir hjartanlega velkomnir.
Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa
kl. 9-16. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Opið hús, t.d. vist og brids kl.
13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl.
15-15.45. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 9-15. Harmonikkuspil og söngur
kl. 13.30. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-
15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Bústaðakirkja Starfið byrjar kl. 12.05 með tónleikum í kirkjunni, þar
flytja Rósalind Gísladóttir og Jónas Þórir valin lög. Boðið uppá súpu
og brauð á eftir í safnaðarsal. Félagsstarfið heldur svo áfram fram til
kl. 16, með ýmsu skemmtilegu m.a. kynningu á keramikmálun. Kaffið
góða á sínum stað, hugleiðing og bæn. Hlökkum til að sjá ykkur.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.10. Botsía kl. 13.30.
Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10, bókband kl. 9-13,
postulínsmálun kl. 9-12, tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10-11, bókband
kl. 13-17, frjáls spilamennska kl. 13-16.30, myndlist kl. 13.30-16.30.
Dansleikur með Vitatorgsbandinu kl. 14-15. Söguhópur kl. 15.30-16.15.
Allir velkomnir með. Uppl. í síma 4119450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Kvennaleikfimi Sjálandi
kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13. Leir í
Kirkjuhvoli kl. 13. Smiðja Kirkjunni, opnað kl. 11, allir velkomnir.
Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Kaffiveitingar í Jónshúsi lokar kl. 14.30 í
dag vegna Kvennafrís 2018.
Gerðuberg Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. tskurður með leið-
beinanda kl. 9-12. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-11.30. Útskurður/ pappa-
módel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist kl. 13-16. Velkomin.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 byrjenda-botsía, kl. 9.30 glerlist, kl.
13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Grensáskirkja Samverustund eldri borgara í Grensáskirkju kl. 14.
Helgistund, upplestur o.fl. Kaffiveitingar. Verið hjartanlega velkomin.
Guðríðarkirkja Félagsstarf eldri borgara ÓVISSUFERÐ. Mæting í
kirkjuna kl. 12.30, komið til baka kl. 16 til 17. Tökum með okkur góða
skapið, kostar 1.000 kr. Hlökkum til að sjá ykkur.
Gullsmári Haustfagnaður Gullsmára verður í dag, miðvikudaginn 24.
október kl. 14, allir velkomnir. Myndlist kl. 9. Postulínsmálun / kvenna-
brids / silfursmíði kl. 13. Línudans fyrir lengra komna kl. 16. Línudans
fyrir byrjendur kl. 17.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12, 500 kr. skiptið, allir velkomnir.
Opin handavinna kl. 9–14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hraunsel Bókmenntaklúbbur kl. 10 aðra hverja viku. Línudans kl. 11.
Bingó kl. 13. Handverk kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10 og
hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun
með Önnu kl. 13.15, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50. Við hringborðið kl.
8.50, boðið upp á kaffi. Ljóðahópur Soffíu kl. 9.45-11.45, línudans kl.
10-11, hádegismatur kl. 11.30. Zumbaleikfimi með Auði kl. 13-13.50,
eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, tálgun með Valdóri kl. 14.30-17. Allir vel-
komnir, óháð aldri. Nánari upp. í s. 411-2790.
Korpúlfar Glerlistanámskeið með Fríðu kl. 9 í Borgum, gönguhópar
kl. 10, gengið frá Borgum og inni í Egilshöll. Keila í Egilshöll kl. 10 í
dag. Logy tískusýning hefst kl. 13. í Borgum, allir velkomnir og fleiri
módel mega skrá sig til leiks, þau mæti kl. 12.30. Gleði og gaman,
með söng og skemmtun. Qigong kl. 16.30 í dag í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik-
fimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11,
félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40.
Heimildarmyndasýning kl. 16.
Seltjarnarnes Gler og glerbræðsla á neðri hæð Félagsheimilisins
við Suðurströnd kl. 9 og 13. Leir Skólabraut kl. 10. Botsía Skólabraut
kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.
Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna Skólabraut kl. 13.
Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.40. Á morgun fimmtudag verður
félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt-
ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Velkomin.
Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Brottför ferðalanga í Færeyjaferð kl. 7. Göngu-hrólfar
ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10. ENSKA talað mál kl. 14, leið-
beinandi Margrét Sölvadóttir. Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30,
stjórnandi Gylfi Gunnarsson.