Morgunblaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ef þú gerir einhverjum greiða muntu
fá það launað þúsundfalt. Smáa letrið er
vissulega þreytandi, en það borgar sig að
lesa það.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú gerir þér skýra grein fyrir því í dag
að þú verður að taka viðhorf annarra með í
reikninginn ef þú ætlar að ná markmiðum
þínum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver mun treysta þér fyrir
leyndarmáli og leita ráða hjá þér svo þú
mátt vita að orð þín hafa mikið vægi.
Næstu fjórar vikur verður þú á ferðalagi
meira og minna.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Eitthvað á eftir að koma þér svo á
óvart að þú munt hugsa að það sé of gott
til að geta verið satt. Þú gerir of miklar
kröfur til annarra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Mundu að þú hefur sjálfur mikið um
það að segja hvernig mynd aðrir fá af þér.
Fjölskyldumeðlimir bíða spenntir eftir því
hvað bíður þeirra í næsta fríi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það skiptir öllu að þú hafir það á
hreinu hvað þú vilt og hvert þú stefnir. Fólk
vill sjá þig og njóta nærveru þinnar, þess
vegna er félagslífið með hressara móti.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þín bíður óvænt ánægja í dag svo þér
er fyrir bestu að reyna að vera á réttum
stað á réttum tíma. Illu er best aflokið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Eyddu næstu vikum í að skilja
hismið frá kjarnanum. Peningar vaxa ekki á
trjánum, kenndu börnunum það strax. Þér
líkar ekki illa að vera í sviðsljósinu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt þér finnist hlutirnir aldrei
ganga nógu hratt fyrir sig verðurðu að
venja þig af eilífum aðfinnslum í garð ann-
arra. Þú ert sólarmegin í lífinu, haltu þig
þar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Dagurinn hentar vel til að grafa
upp gömul leyndarmál sem tengjast fjöl-
skyldu þinni. Þú færð símtal sem fær þig til
að hugsa hlutina upp á nýtt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér er eðlilegt að trúa því sem
fólk segir. Mundu bara að gleypa ekki allt
sem sagt er gagnrýnislaust. Farsæl lausn á
deilumáli er í höfn og þú andar léttar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vertu stöðugt á tánum og leystu þau
mál sem upp koma jafnóðum. Taktu þig
saman í andlitinu og segðu það sem þig
langar til að gera, til hvers að hika?
„Haust á Stóru- Hámundarstöðum“
er yfirskrift þessarar færslu Davíðs
Hjálmars Haraldssonar á Leirnum
og síðan; „Hugsað heim en þar býr
Baldvin skógarbóndi“:
Reynilauf og lerkibarr
létt til jarðar falla.
Er að sölna ösp og kjarr.
Upp á Stórahjalla
berst hið þunga bárusvarr.
Baldvin er með skalla.
Á laugardag orti Davíð Hjálmar
um heræfingar NATO:
NATO þjálfar horskan her
um héruð vor og sýslur.
Um Þjórsárdal nú dátinn fer
og drepur ungar hríslur.
Og þann sama dag orti Pétur
Stefánsson:
Ef ég væri ungur maður
en ekki þetta gamla skar,
sæti ég nú sæll og glaður
að sötra vín á næsta bar.
Veður hafa verið misjöfn og Ing-
ólfur Ómar mátti til með að senda
mér þessa víxlhendu, – „Sigling“
heitir hún:
Emjar Kári, ýfist lá,
yfir boði ríður.
Kvikum bárum ægis á
áfram gnoðin skríður.
„Guðrún Sigurðardóttir 27 ára,
er fyrsta konan sem hefur verið
fastráðin mjólkurbílstjóri. Hún er
ánægð og segir starfið frábært,“
skrifar Magnús Halldórsson á
Boðnarmjöð:
Þróun er á fleygiferð,
við fögnum breytta stílnum.
Bjössi heima í grautargerð
og Gunna á mjólkurbílnum.
Guðmundur Halldórsson sver sig
í ætt við hinn dæmigerða hagyrð-
ing:
Ég visku þína, Herra, hylli,
hér er veðrum stýrt sem ber,
en mætti aðeins inn á milli
einnig rigna sjeníver
Anna Dóra Gunnarsdóttir svarar:
Vínið sterka vel má þverra,
varla er það bónin stór.
Má ég biðja, hái Herra,
heldur um einn léttan bjór.
Sölvi Kjerulf rifjar upp vísu
Sigurjóns Jónssonar frá Hóli í
Bíldudal:
Ekkert dvelur oní mér,
upp ég sel um daga,
sendu pela af seniver
sem fer vel í maga.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af skógarbónda og
Gunnu á mjólkurbílnum
„ÉG ER LAUS Í KVÖLD EF ÞÚ ERT MEÐ
EITTHVAÐ ÞAR SEM BOÐIÐ ER UPP Á
OPINN BAR.“
„HALLI, JÖRÐIN ER EKKI ÞRIÐJA
REIKISTJARNAN FRÁ SÓLU, ER ÞAÐ
NOKKUÐ?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að óska þess að hægt
sé að flýta helginni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ÆTLA AÐ PANTA STÓRA PÍTSU
MEÐ ANSJÓSUM, LAUK OG HVÍTLAUK
MUNTU ÞURFA AÐ
EINANGRA HÚSIÐ
OKKAR?
HAFÐU HANA
EXTRA-STÓRA ENGINN ÓTTI,
BEIBÍ!!
KONUNGURINN ER AÐ HÓTA MÉR!
HANN SEGIST ÆTLA AÐ TAKA
HÁLSINN Á MÉR!
HLUSTAÐU
EKKI Á
HANN
ÞÚ ERT EKKI EINU SINNI MEÐ HÁLS!
Á ÞETTA AÐ
LÁTA MÉR
LÍÐA BETUR?
BRÚÐKAUPSKORT
Víkverji hefur gaman af að grúskaí plötubúðum og hefur ekki látið
af þeim sið þótt nú orðið sé hægt að
finna nánast alla tónlist á tónlistar-
veitum. Ef Víkverji sér kassa með
plötum á skranmarkaði stenst hann
ekki mátið að fletta þeim þótt hann
viti að líkurnar á því að hann finni
eitthvað sem honum líkar séu hverf-
andi. Um tíma var vínillinn eins og
hvert annað rusl og hægt var að fá
plötur á spottprís. Víkverji verður
að viðurkenna að þótt aldrei legði
hann plötuspilaranum nýtti hann þá
gósentíð ekki nógu vel.
x x x
Verslunin 12 Tónar hefur settmark sitt á bæjarlífið í Reykja-
vík um árabil. Þótt stærri verslanir
hafi lagt upp laupana hafa 12 Tónar
haldið velli, ekki síst vegna þess að
úrvalið er gott, greinilega valið í hill-
urnar af kostgæfni og umburðar-
lyndi gagnvart sérvisku.
x x x
Víkverji kann vel við sig í 12 Tón-um, en hann hafði ekki gert sér
grein fyrir að þar væri komin besta
plötubúð heims. Það er í það
minnsta niðurstaða blaða- og plötu-
áhugamannsins Marcus Barnes
samkvæmt tónlistarvefmiðlinum
NME. Í nýrri bók sinni tekur Bar-
nes fyrir 80 bestu plötubúðirnar
(sem sagt heimurinn í 80 plötubúð-
um) og setur 12 Tóna í efsta sætið.
Þar segir að úrvalið sé fyrsta flokks
og þar við bætist að búðin sé þannig
úr garði gerð að viðskiptavinir geti
slakað á og talað saman. Það sé vinn-
ingsformúlan.
x x x
Verslunin 12 Tónar var stofnuð ár-ið 1998 og er því tvítug. Nokkuð
er síðan 12 Tónar duttu inn á ratsjá
áhugamanna um plötubúðir. Fyrir
fimm árum komst vefmiðillinn Buzz-
Feed að þeirri niðurstöðu að 12 Tón-
ar væru næstbesta plötubúð heims.
Þar var tekið fram að það væri ekki
síst vegna þeirrar útgáfustarfsemi á
nýrri íslenskri tónlist sem fram færi
á vegum útgáfufélags hennar. Að því
er kemur fram á heimasíðu 12 Tóna
hafa rúmlega 70 plötur verið gefnar
út undir merkjum þeirra frá 2003.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn,
af öllu hjarta og tigna nafn þitt að
eilífu
(Sálm: 86.12)