Morgunblaðið - 24.10.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Við náum vissum hápunkti á listahá-
tíðinni Cycle í ár þegar við ljúkum
tveggja ára ferli rannsóknar á fullveldi
Íslands í samhengi við nýlendusöguna,
sjálfsmyndir Íslendinga og fjölbreytni
menningar á tímum fólksflutninga og
hnattvæðingar,“ segir Guðný Guð-
mundsdóttir, listrænn stjórnandi há-
tíðarinnar, sem fram fer í fjórða sinn
25. til 28. október undir yfirskriftinni
Þjóð meðal þjóða. Guðný segir að
áfram verði haldið með verkefnið utan
Íslands með einkasýningu Huldu Rós-
ar Guðnadóttur í Berlín í janúar og
minni sýningarhátíð í Buenos Aires á
næsta ári. „Rannsóknarvinna síðast-
liðinna tveggja ára var gerð í samstarfi
við félagsfræðikonuna og sýningar-
stjórann Söru S. Öldudóttur og síðar
kom Jonatan Habib Engqvist sýning-
arstjóri inn í teymið til okkar sem hef-
ur verið mikilvæg viðbót því hann
kemur með sýn þess utanaðkomandi á
land og þjóð. Jonatan er frá Svíþjóð,
hann bjó á námsárum sínum á Íslandi,
talar góða íslensku og þekkir því vel
til,“ segir Guðný og bætir við að hátíð-
in sé notuð sem umræðuvettvangur
sem tengist inn í listir, menningu og
samfélagslega umræðu almennt.
„Það sem við sýnum á hátíðinni
verður alltaf listræn útkoma sam-
starfsins við það listafólk sem tekur
þátt í henni en við höfum reynt að
stýra efnistökum listafólksins með því
að vekja spurningar tengdar rann-
sóknarferlinu,“ segir Guðný og bætir
við að aðalspurningarnar tengist þeim
staðalímyndum sem við Íslendingar
höfum um okkur sjálf og oft og tíðum
þeirri yfirdrifnu þjóðerniskennd sem
einkennir orðræðuna. Þótt þjóðernis-
kennd sé nauðsynleg þegar þjóð á í
sjálfstæðisbaráttu sé nauðsynlegt að
líta hana gagnrýnum augum og velta
fyrir sér hvort hennar sé þörf 100 ár-
um eftir að landið varð fullveldi.
Upphafning
„Þegar litið er á hvernig aðrar þjóð-
ir sjá Ísland og Íslendinga þá einkenn-
ist sú sýn einnig af vissri upphafningu.
Það er litið á Íslendinga sem fólk sem
er í tengingu við náttúruna, trúir á
álfa og innir af hendi ótrúleg þrekvirki
miðað við höfðatölu,“ segir Guðný sem
telur að utan frá hafi þjóðin fengið litla
gagnrýni á sjálfsmynd sína. Nú þegar
hægriöflum vaxi ásmegin úti um alla
Evrópu sé mikilvægt að staldra við og
líta í eigin barm. Þessi tímamót 100
ára fullveldis séu kjörinn vettvangur
til þess.
„Hingað til höfum við verið frekar
einsleit þjóð og þurfum nú að líta fram
á veginn og ákveða hvernig þjóð við
viljum vera. Þjóð sem heldur í ein-
kenni sín en býður einnig öðrum utan-
aðkomandi að vera hluti af sínum
þjóðarlíkama. Hugmyndin um að vera
opin þjóð meðal þjóða í heimi sem tek-
ur stöðugum breytingum,“ segir
Guðný og veltir því upp hvort það sé
ekki kjarninn í rannsóknunum sem
gerðar hafa verið og listafólkið hafi
svo unnið með þann efnivið hvert á
sinn hátt í gegnum tónlist, myndlist,
gjörninga og ljóðlist.
„Listahátíðin Cycle er þverfagleg
hátíð og við vinnum með listræna
rannsókn, það má segja að Cycle sé á
einhvern hátt að reyna þolmörk þess
hvað það er að vera hátíð. Við viljum
ná undir yfirborðið og vinnum með
samfélaginu í Kópavogi auk annarra
stofnana en einnig í samvinnu við
Listaháskólann og alls kyns hópa. Við
erum á vissan hátt svæðisbundin en
alþjóðlega samhengið er einnig mikil-
vægt,“ segir Guðný sem fullyrðir að
það að geta kynnt íslenska listamenn
á erlendum vettvangi sé einstaklega
mikilvægt og setji hlutina í nýtt sam-
hengi.
Gjörningur um fordóma
Dagskrá Cycle er fjölbreytt og fer
fram á nokkrum stöðum. „Á föstu-
daginn kl. 16 hefst opin dagskrá með
umræðum um þema hátíðarinnar:
Þjóð meðal þjóða í norrænu sam-
hengi pólitíkur og lista. Þar ræða
meðal annars saman Sanna Magda-
lena Mörtudóttir, Melanie Ubando og
Aqqalu Bertelsen frá Grænlandi,“
segir Guðný og bendir á að í kjölfar
umræðnanna fari fram áhrifaríkur
gjörningur dönsku listakonunar
Jeannette Ehlers sem fjalli um hvít-
leika og fordóma sem litt fólk verði
fyrir.
„Ég bíð spennt eftir afhjúpun á úti-
skúlptúr í Reykjavíkurtjörn eftir
Steinunni Gunnlaugsdóttur, „Litlu
hafpulsunni“, en það er tveggja
metra hár skúlptúr sem mun standa í
tjörninni fram í desember,“ segir
Guðný og bendir á að eftir afhjúp-
unina verði tónleikar frá kl. 20 til mið-
nættis þar sem fram komi samísk
rappkona, danskur transmaður, DJ
Sakana, sem er íslensk, og DJ Uya-
raqk frá Grænlandi. „Á sunnudaginn
fer fram í Tónlistarskóla Kópavogs
áhugavert verkefni eftir Ólaf Ólafs-
son og Libiu Castro sem heitir Í leit
að töfrum sem byggist á tillögu að
nýrri stjórnarskrá lýðveldisins Ís-
lands. Í verkefninu fara listamenn-
irnir í samstarf við hóp af tónskáldum
og líkja eftir ferlinu sem fór fram
þegar tillaga að nýrri stjórnarskrá
var gerð eftir hrunið. Þetta verða eins
konar vinnustofur og í öllum her-
bergjum Tónlistarskóla Kópavogs
verða tónlistarmenn að búa til og
spila tónlist eftir texta úr nýju stjórn-
arskránni. Verkefnið er framhald
samvinnu listafólksins við Karólínu
Eiríksdóttur sem samdi tónlist við
verkið „Stjórnarskrá Íslands“ frá
2006,“ segir Guðný sem tekur það
fram að allir geti komið og tekið þátt í
að semja tónlist við nýju stjórnar-
skrártillöguna.
Guðný segir að dagskráin standi
frá fimmtudegi til sunnudags en sýn-
ingin Einungis allir í Gerðarsafni
standi til 6. janúar á næsta ári. Fjöl-
breytta dagskrá Cycle er að finna á
www.cycle.is. Allir eru velkomnir á
hátíðina og ókeypis er inn á flesta við-
burði hennar.
Þverfagleg hátíð og listræn rannsókn
Þjóð meðal þjóða á listahátíðinni Cycle Tveggja ára rannsókn á fullveldi Íslands í samhengi við
nýlendusöguna Þjóð í mikilli upphafningu Litla hafpulsan afhjúpuð á Reykjavíkurtjörn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Einsleitni „Hingað til höfum við verið frekar einsleit þjóð. Við þurfum nú að líta fram á veginn og ákveða hvernig þjóð við viljum vera,“ segir Guðný.
Ágengt Verk eftir Melanie Ubaldo.
Vídeó Eftirlíkingar af myndbandi Childish Gambino við „This is America“.
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Japanskt
meistaraverk
Landsins mesta
úrval af píanóum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.