Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 31

Morgunblaðið - 24.10.2018, Side 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2018 Kortlagning á ákveðnum líf-færum og svæðum í lík-amanum gegnum dá-leiðslu eru meðal við- fangsefna Eyglóar Harðardóttur á sýningunni Annað rými í Nýlistasafn- inu. Eygló notar gjarnan fundið efni í verkum sínum svo sem gler og pappa í bland við nýtt efni, eins og t.d. hand- gerðan japanskan pappír. Verkin á sýningunni eru flest frá þessu ári; skúlptúrar, teikningar, silkiþrykk og bókverk sem raðað er á gólfið í miðju sýningarrýminu auk nokkurra verka sem hanga á vegg. Eygló lauk námi í málaradeild á Íslandi og síðar fram- haldsnámi í Hollandi og hefur unnið með miðilinn með fjölbreyttum hætti æ síðan, þar sem glíman við efnivið- inn er ávallt í forgrunni ásamt rann- sóknum á skynjun og rými lita. „Fjögur“ (2015) er lítill málverka- skúlptúr úr pappa sem hangir á vegg og lætur ekki mikið yfir sér í fyrstu. Sé horft beint framan á hann blasir við grár og hvítur flötur með örfínni blýantsteikningu. Verkið tekur breytingum eftir stöðu áhorfandans og þegar horft er á það frá hlið opnast fyrir nýja sýn inni í rými verksins sem er hlaðið þeirri vinnu sem lista- maðurinn hefur verið að fást við um langa hríð. Málaðir viðarbútar og nú- ansar í þvældu efni koma í ljós, „Fjögur“ er því eins og millistykki frá eldri verkum Eyglóar yfir í nýju verkin á sýningunni, eins konar brú yfir í hreyfanlegt litarými bókverks- ins „Annað rými“ (2018) og svo yfir í innra rými líkamans sem listamað- urinn hefur kallað fram með dáleiðslu á undanförnum árum undir hand- leiðslu geðhjúkrunarfræðings og hluti verkanna á sýningunni hverfist um. Markmið dáleiðslunnar var að kortleggja nokkur svæði líkamans; maga, háls, hjarta, rófubein, andlit og heila, sem listamaðurinn teiknaði síð- an með tússlit á pappa að dáleiðslunni lokinni. Afrakstur fyrstu dáleiðsl- unnar var til sýnis á sýningunni Leiðsla í Listasafni ASÍ árið 2007, en hálsinn var fyrsta líkamlega rýmið sem hún rannsakaði með þessum hætti og Eygló lýsir sjálf sem þver- skurðarmynd eða grunnplani af hálsi. Síðan hefur hún markvisst bætt fleiri svæðum við. Þessum frumteikn- ingum hefur verið stillt upp á spýtur á gólfinu og mynda einskonar teikni- skúlptúr. Teikningarnar útfærir Eygló svo á ýmsan hátt, meðal ann- ars í marglaga silkiþrykki á fíngerðan japanskan pappír sem festur er með viðarfestingum á vegg. Í öðru verki hefur Eygló hand- skrifað með grafítklumpi texta á sex stórar pappírsarkir sem festar eru saman. Textinn er um ákveðin svæði líkamans sem skrásettur var í dá- leiðslustímunum. Verkið er unnið af listamanninum í þreytuástandi eftir langa vinnudaga, gjörningur þar sem endurtekin skrift þekur nánast allan flötinn. Í sumar arkirnar hafa verið saumuð með hvítum silkiþræði og plasti abstrakt form sem eiga teng- ingar við drauma og persónulegar upplifanir listamannsins. Áhorfand- inn stendur frammi fyrir ólæsilegum texta, leifum af merkingu sem er óm- ur dáleiðslunnar. Hann verður vitni að draumkenndu ástandi í anda súr- realismans, tengingu yfir í annan heim óheftrar hugsunar, sjálfvirkri tjáningu þar sem opnað hefur verið fyrir flæði hugsana og drauma. Sjálf- virknin var eitt af lykilhugtökum súr- realista þar sem þeir leituðust við að tjá raunverulega starfsemi hugsunar- innar í dulvitundarástandi, án stjórn- unar af hálfu skynseminnar og losna þar með undan fagurfræðilegum og siðferðislegum ramma rökhyggj- unnar og opnuðu með því á flæði ósjálfráðrar skriftar. Gleri með mismunandi áferð og lit og pappírsörkum hefur verið lauslega stillt upp á tréstoðir á gólfi í verki sem heitir einfaldlega „Gler skúlp- túr“ (2018). Efniviðurinn í verkinu er viðkvæmur, fíngerður pappír og brot- hætt gler sem gæti hæglega runnið fram af stoðunum. Í þessu verki verð- ur áhorfandinn meðvitaður um tog- streitu milli sýningarrýmis, áhorf- anda og verksins og veltir ósjálfrátt fyrir sér hvað gerist ef glerið rennur fram af. Verkin á sýningunni bera með sér stöðuga athugun á eiginleikum efni- viðarins sem Eygló er að vinna úr hverju sinni, útfærslan einkennist af léttleika og gagnsæi, hin maleríska nálgun er minna áberandi en áður og áherslan er á efniviðinn og mót hins huglæga og hlutlæga rýmis. Rými efnis, lita, líkama og hugar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nýleg Verkin á sýningunni eru flest frá þessu ári; skúlptúrar, teikningar, silkiþrykk og bókverk. Nýlistasafnið Annað rými bbbmn Verk eftir Eygló Harðardóttur. Sýningin stendur til 28. október 2018. Opið alla daga, nema mánudaga, milli kl. 12 og 18 og til kl. 21 á fimmtudögum. ALDÍS ARNARDÓTTIR MYNDLIST Athugun Verkin á sýningunni bera með sér stöðuga athugun á eiginleikum efniviðarins sem Eygló er að vinna úr hverju sinni, segir m.a. í gagnrýni. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Fly Me To The Moon (Kassinn) Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s Fös 23/11 kl. 19:30 20.sýn Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Ég heiti Guðrún (Kúlan) Mið 24/10 kl. 19:30 Auka Lau 27/10 kl. 17:00 Auka Sun 28/10 kl. 17:00 13.sýn Fim 25/10 kl. 19:30 11.s Lau 27/10 kl. 20:00 12.s Fös 26/10 kl. 17:00 Auka Sun 28/10 kl. 14:00 Auka Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi Slá í gegn (Stóra sviðið) Lau 3/11 kl. 16:00 Aukas. Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 27/10 kl. 11:00 Lau 3/11 kl. 11:00 Lau 10/11 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 13:00 Lau 3/11 kl. 13:00 Lau 10/11 kl. 13:00 Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 11:00 330.s Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 13:00 331.s Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 14:30 332.s Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 11:00 333.s Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 13:00 334.s Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 14:30 335.s Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Fjallkonan fríð (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 3/11 kl. 20:00 Frum Lau 10/11 kl. 20:00 3.sýn Sun 4/11 kl. 20:00 2.sýn Sun 11/11 kl. 17:00 4.sýn Fjallkonan skoðuð á fullveldisafmæli Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 26/10 kl. 22:00 Daður og dónó leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Elly (Stóra sviðið) Fim 25/10 kl. 20:00 160. s Lau 3/11 kl. 20:00 163. s Sun 11/11 kl. 20:00 aukas. Fös 26/10 kl. 20:00 161. s Sun 4/11 kl. 20:00 aukas. Fim 15/11 kl. 20:00 aukas. Sun 28/10 kl. 20:00 162. Fim 8/11 kl. 20:00 aukas. Lau 17/11 kl. 20:00 165. s Fim 1/11 kl. 20:00 aukas. Fös 9/11 kl. 20:00 164. s Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Lau 27/10 kl. 20:00 16. s Lau 10/11 kl. 20:00 19. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s Fös 2/11 kl. 20:00 17. s Lau 17/11 kl. 20:00 20. s Gleðileikur um depurð. Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið) Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Fös 26/10 kl. 20:00 17. s Lau 27/10 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu sýningar. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Ást er einvígi. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Litrík jólasýning fyrir þau yngstu. Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 27/10 kl. 20:00 Sing-a-long Lau 10/11 kl. 20:00 66. s Fös 2/11 kl. 20:00 65. s Fös 16/11 kl. 20:00 67. s Sýningum lýkur í nóvember. BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.