Morgunblaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Galdrar voru alþýðuvísindi síns tímaog kirkjan taldi galdra vera hættu-lausa á miðöldum, nema þeir gætuvaldið sálarskaða hjá þeim sem þá
stunduðu. En seinna smíðuðu þýskir munkar
þá kenningu að galdrar gætu skipt raunveru-
legu máli, að þeir gætu valdið slysum og veik-
indum. Menn sem stund-
uðu galdra voru þá álitnir í
beinu sambandi við djöful-
inn. Þess vegna bar að leita
að, afhjúpa, rannsaka,
dæma og taka af lífi galdra-
fólk, til að hreinsa það illa
frá samfélagi mannanna,“
segir finnski rithöfundur-
inn Tapio Koivukari, en
hann sendir nú frá sér
skáldsögu um Galdra-Möngu og byggir hana á
máli sem átti sér stað í raunheimum á 17. öld.
Þá bjó Manga, Margrét Þórðardóttir, í Mun-
aðarnesi á Ströndum, ung heimasæta, en faðir
hennar var brenndur á báli fyrir galdra í Tré-
kyllisvík árið 1654.
„Munaðarnesfólkið var talið kunna ýmis-
legt fyrir sér og saga mín fylgir Möngu á flótt-
anum eftir að faðir hennar var brenndur, en
hún var útskúfuð og ásökuð um fjölkynngi af
sveitungum sínum. Samfélagið var stéttskipt
og það ræður fyrir vikið miklu um réttinda-
stöðu fólks í hvaða stöðu það er fætt. Kotungs-
sonur hefur ekki sama rétt og sonur sjálfs-
eignarbónda, og ég tel þetta misrétti hafa alið
á öfund og gremju, sem hefur kraumað undir
yfirborðinu. Þórði föður Möngu gekk vel í líf-
inu, hann var flinkur og klár og komst vel af,
og þá var stutt í öfundina. Öfundin er eitt
þeirra afla sem ég tel að geti hafa legið að baki
því að fólk vildi knésetja Þórð og að allt fór úr
böndunum,“ segir Tapio, sem kynnti sér sögu
Þórðar og Möngu dóttur hans vel.
„Þetta fólk var til og þessir atburðir áttu
sér stað. Það eru til heimildir um þessa múg-
sefjun sem fór af stað norður í Árneshreppi.
Konur féllu í öngvit í messum og Þórði var
kennt um öll hin óútskýrðu atvik. En saga mín
er þó skáldsaga sem byggist á heimildum.“
Þurfti að hafa fyrir því að lifa sig inn í
heim trúar á áhrifamátt djöfulsins
Tapio heyrði fyrst af Galdra-Möngu þeg-
ar hann bjó á Ísafirði fyrir 25 árum ásamt ís-
lenskri konu sinni, Huldu Leifsdóttur mynd-
listarkonu.
„Þegar ég var að safna efni í bókina mína
um morðin á hvalföngurunum, Ariasman, þá
flaug mér í hug að ég gæti kannski líka gert
bók um Galdra-Möngu. Mér fannst hún
áhugaverð þessi múgsefjun og krampaköst
kvenna í kirkjunni, hvað hefði átt sér stað og
hvað lægi að baki. Manga slapp að lokum, en
aftur á móti var vinnukona í Selárdal brennd á
báli, eina konan sem brennd var fyrir galdra á
Íslandi. Hún var að öllum líkindum blásaklaus.
Ég kaus að hafa Möngu sem aðalpersónu
bókarinnar, af því hún er sigurvegari, hún
sleppur undan ranglætinu og það gefur les-
endum von.“
Tapio segir að sér hafi fundist erfitt að
setja sig inn í þennan heim galdra og oftar en
einu sinni efaðist hann um að nokkuð yrði úr
bókinni.
„En ég gat ekki slitið mig frá þessu. Mér
finnst gaman að kynna mér það sem er ólíkt
því sem ég þekki, ég er guðfræðingur og þurfti
virkilega að hafa fyrir því að lifa mig inn í
þennan heim trúar á áhrifamátt djöfulsins og
trúar á galdra. Pælingar Matthíasar Viðars
Sæmundssonar heitins í bókunum hans um
galdra hjálpuðu mér mikið, því þar fer hann
inn í þennan heim og hvað þetta merkti hjá
þeim mönnum sem voru að kukla. Ég las mér
líka til um þann tíma sem galdraofsóknir voru
í öðrum löndum, heima í Finnlandi og á megin-
landi Evrópu, því ég vildi setja mig inn í
heimsmynd þess tíma,“ segir Tapio, sem m.a.
komst að því að miklu færra fólk var brennt
fyrir galdra á Íslandi en í öðrum löndum.
„Það er líka séríslenskt að nánast ein-
vörðungu voru karlmenn brenndir hér, og
sama átti við um finnskumælandi sveitir í
Finnlandi, þar var meirihluti þeirra sem
dæmdir voru fyrir galdra karlmenn.“
Tapio segist líka hafa kynnt sér vel ís-
lenska þjóðtrú, fyrirboða og drauma, drauga-
gang, álfa og huldufólk.
„Manga fær til dæmis vitni um það í
draumi að hún verði að láta sig hverfa úr sókn-
inni. Ég er sannfærður um að heimsmynd
venjulegs fólks á þessum tíma var þess eðlis
að fólk tók virkilega mark á draumum. Og álf-
ar og huldufólk voru hluti af veruleika fólks. Á
þessum tíma efuðust prestar almennt heldur
ekki um tilvist álfa, þó sumir þeirra hafi litið á
álfa sem djöfla í dulargervi. Alþýðumenning
innihélt álfatrú og slíkt, sérstaklega í dreifðari
byggðum þar sem fólk var í nánum tengslum
við náttúruna, en það fólk var fyrir vikið næm-
ara, ég fer ekki ofan af því. Líf í nútímablokk-
um með rafmagnsljósum og tölvum gerir okk-
ur mannfólkið daufara og ónæmara.“
Blikur á lofti í heiminum og nú er
uppgangur fasískra hugsana
Þegar Tapio er spurður að því hvaða er-
indi bók um galdraofsóknir frá sautjándu öld
eigi við okkur nútímafólk, segir hann það vera
bjög brýnt erindi.
„Því þó að við höldum almennt að allt
stefni til hins betra, þá er tilfellið að margt
getur farið versnandi. Mér finnst núna blikur
á lofti í heiminum og mörgu fer mjög svo
aftur. Til dæmis að æ fleiri fyrirlíta vísindi,
fyrirlíta rökhyggju, lýðræði og mannréttindi.
Þetta er allt meira og minna í hættu, af því
margir halda að það sé ekki mikilvægt að
halda þetta í heiðri. Nú er líka uppgangur fas-
ískra hugsana, en til þess að gerast alvöru fas-
isti þarf einmitt að sniðganga lýðræði, mann-
réttindi og vísindi, eða láta eins og það skipti
ekki máli, heldur aðeins það eitt að hafa sterka
leiðtoga sem hafa vit fyrir almenningi og segja
almúganum hvernig á að gera hlutina. Og
hlusta ekkert á rök. Það er full ástæða fyrir
okkur nútímafólk að líta til baka og sjá afleið-
ingar nornaveiða, þær birtast með ýmsum
hætti í nútímanum. Til dæmis getur fólk verið
dæmt í fésbókarumræðum og tapað þar mann-
orðinu. Sögupersónurnar í bókinni minni um
Galdra-Möngu eru venjulegt fólk, bæði þeir
sem dæma og þeir sem eru dæmdir. En það er
harmleikur okkar mannanna að venjulegt fólk
getur gert hræðilega hluti. Hræðilegt fólk
gerir líka venjulega hluti. Ekkert er svart/
hvítt eða fyrirsjáanlegt í samfélagi mann-
anna.“
Tapio tekur fram að hann sé einstaklega
ánægður með þýðingu Sigurðar Karlssonar á
bókinni, en þeir tveir hafa unnið saman lengi
og Sigurður hefur þýtt allar bækur Tapio á ís-
lensku.
„Það er mikill kostur að Sigurður er lærð-
ur leikari, hann leikur í raun textann, hann fer
alveg ofan í saumana.“
Venjulegt fólk getur gert hræðilega hluti
„Það er full ástæða fyrir okkur
nútímafólk að líta til baka og sjá
afleiðingar nornaveiða, þær
birtast með ýmsum hætti í nú-
tímanum,“ segir Tapio Koivuk-
ari um hvaða erindi saga hans
frá 17. öld um galdra eigi við
nútímann. Þar segir frá Galdra-
Möngu sem bjó á Ströndum og
þurfti að leggja á flótta eftir að
faðir hennar var brenndur á
báli fyrir galdra.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tapio Telur öfund eitt þeirra afla sem lágu að baki því að fólk vildi knésetja Þórð, föður Möngu.
Í fjölskylduleiðsögn sem verður á
morgun, sunnudag, kl. 14 um sýn-
inguna Sjónarhorn, ferðalag um ís-
lenskan myndheim, í Safnahúsinu
við Hverfisgötu í Reykjavík verða
þjóðsögur og kynjaskepnur dregnar
fram í dagsljósið. Sagðar verða þjóð-
sögur sem tengjast munum á sýn-
ingunni, til dæmis álfkonudúknum
og málverkinu Nátttröllið á gluggan-
um eftir Ásgrím Jónsson. Gluggað
verður í bók Jóns Baldurs Hlíðberg
og Sigurðar Ægissonar um íslenskar
kynjaskepnur, galdrakver skoðuð og
furðulegur verndargripur. Leiðsögn-
ina leiðir forneskjuleg álfkona sem
heitir Steinlaug. Í lokin geta gestir
stigið inn í veröld kynjaskepnanna í
gegnum margmiðlunarefni sem
hannað er af nemendum á þriðju
önn í Margmiðlunarskóla Tækniskól-
ans.
Leiðsögnin er miðuð við börn á
aldrinum 5-12 ára. Gullið tækifæri
fyrir fjölskylduna að upplifa og rýna
í íslenska menningu og myndlist. All-
ir velkomnir og enginn aðgangseyrir.
Eftir leiðsögnina er tilvalið að fá sér
kaffi og köku á veitingastaðnum
Julia & Julia sem er í sama húsi.
Fjölskylduleiðsögn í Safnahúsinu á morgun
Þjóðsögur og kynjaskepnur
dregnar fram í dagsljósið
Skepna Hvaða saga býr að baki þessum hlut og skepnunni sem skreytir?
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
V E R S L U N i n E R L O K U ð l a u g a r d a g i n n 3 . n ó v
V E G N A Á R S H Á T Í Ð A R S T A R F S F Ó L K S