Morgunblaðið - 03.11.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 03.11.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018 e u or , r y uo nar, st r s nv rp, m nn s nv rp, soundbarir, bassabox og ýmislegt annað. 15% afsláttur af flestum SAMSUNG vörum* í nokkra daga LÁGMÚLA 8 - 530 2800 *Athugið að afslátturinn gildir ekki af öðrum sértilboðum sem eru í gangi. Ekki er afsláttur af símum, spjaldtölvum eða úrum. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Laxinn hjá Fiskeldi Austfjarða í Berufirði hefur vaxið vel í sumar og haust. Slátrun hófst í gær eftir hausthlé, tveimur mánuðum fyrr en á síðasta ári, enda er laxinn orðinn 6,2 kg að meðaltali eftir aðeins 16 mánaða eldi í sjókvíum. Guðmundur Gíslason, stjórnarformaður Fisk- eldis Austfjarða, segir að aldrei áður hafi náðst jafn góður árangur í lax- eldi á Austfjörðum. Guðmundur segir að vaxtarskil- yrði hafi verið góð, vegna góðrar tíðar. Sumarið hafi verið einstaklega gott og ekki hafi gert óveður í haust eins og stundum áður. Þá segir hjálpi góður tækjabúnaður til við að auka vöxt fisksins. Fiskeldi Aust- fjarða hafi til dæmis fengið nýtt myndavélakerfi í febrúar. Með því sé hægt að fylgjast nákvæmlega með því hvernig fiskurinn tekur fóður, hvort sem hann er ofarlega eða neðarlega í sjókvíunum. Það hjálpi til við að hafa fóðrunina ná- kvæma. Laxinn frá Fiskeldi Austfjarða er vottaður af AquaGap og á aðgang að einni virtustu matvörukeðju Banda- ríkjanna. Guðmundur segir að geng- ið sé að lagast og því fáist gott verð fyrir afurðirnar. „Laxinn okkar fær eingöngu hágæða fóður sem búið er til úr náttúrulegum hráefnum. Við fylgjum ströngustu stöðlum um bún- að og öryggi. Ekki hefur orðið vart við lús á laxinum eða sjúkdóma og laxinn hefur enga meðhöndlun feng- ið við slíku fyrir slátrun. Ástand sjávar og botns við kvíar hefur verið vaktað frá því fyrir útsetningu seiða og á hámarks álagi og niðurstöð- urnar sýna að sjálfbærni er tryggð,“ segir Guðmundur. Nýjasta tækni í laxavinnslu Unnið hefur verið hörðum höndum við breytingar á Búlands- tindi á Djúpavogi í eldishléinu en þar eru afurðirnar unnar. Sett hafa verið upp ný tæki. Notuð er nýjasta tækni í laxavinnslu, meðal annars róbótar og ofurkæling til að tryggja gæði og gott vinnuumhverfi starfsfólks. Af- kastageta vinnslunnar eykst við þetta úr 30 tonnum á sólarhring í 100 tonn. Afköst á heilu ári geta því orðið um 22 þúsund tonn. Guðmundur segir að vinnslan sé að komast í gang eftir breytingar og hún sé orðin fyllilega sambærileg og samkeppnishæf við álíka laxa- vinnslur í Noregi. Búlandstindur er í eigu heimamanna í Ósnesi og Laxa fiskeldis, auk Fiskeldis Austfjarða. Þar verður unninn fiskur frá báðum laxeldisfyrirtækjunum auk þess sem Búlandstindur gerir út og vinnur þorsk. Þar eru um 50 starfsmenn. Fiskurinn frá Fiskeldi Austfjarða er síðan flakaður að miklu leyti hjá Eðalfiski í Borgarnesi og fluttur með flugi frá Keflavíkurflugvelli til áfangastaða flugfélaganna um öll Bandaríkin. Afurðir fara raunar alla leið til Asíu. Lax er einnig fluttur með skipum frá Austfjarðahöfnum til Evrópu. Þrjú skipafélög eru með vikulegar áætlanaferðir þangað og hefur Guðmundur hug á að nýta alla möguleika til að þjóna markaðnum. Ekkert gagn að hindrunum Guðmundur gerir sér vonir um að geta hafið útflutning til Rússlands að nýju en Færeyingar hafa setið einir að þeim markaði. „Er ekki kominn tími á þessar viðskipta- hindranir? Þær hafa ekkert gagn gert og mér finnst að menn ættu að setjast niður og leysa þetta mál,“ segir hann. Kostnaður við umbúðir er tvöfalt meiri hér á landi en í samkeppnis- löndum. Guðmundur vonast til að með auknu eldi verði hægt að hefja framleiðslu á umbúðum á Aust- fjörðum. Hann segir þó ekki alveg komið að því. Laxinn vex betur en þekkst hefur eystra  Slátrun hafin hjá Fiskeldi Austfjarða  Afkastageta Búlandstinds þrefölduð Ljósmynd/Fiskeldi Austfjarða Berufjörður Þjónustubátur Fiskeldis Austfjarða við sjókvíar fyrirtækisins. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Við verðum að ákveða það sem þjóðfélag að við ætlum að lifa í framtíðinni, öllum heim- inum til hagsbóta,“ segir Guðmundur Haf- steinsson, frumkvöðull, stjórnandi hjá Google og nýskipaður formaður stýrihóps um mótun nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. Guðmundur hélt erindið „Framtíð Íslands“ í gær í nýrri fyrirlestaröð Háskóla Íslands, Nýsköpun – hagnýtum hugvitið. Guðmundur lagði áherslu á að íslenskt þjóðfélag ætti að taka þá stefnu að vera fimm árum á undan samtíðinni í stað þess að vera fimm árum á eftir. „Við erum 350.000 manna þjóðfélag, sem er kjörin stærð til þess að prófa ýmsar tækni- nýjungar,“ segir Guðmundur og nefnir sem dæmi sjálfkeyrandi bíla eða aðrar tækni- nýjungar. Hann segir að fyrir utan smæð þjóðarinnar hafi Ísland upp á að bjóða græna orku, hæft fólk og sérfræðinga úr öllum greinum sem hægt sé að leiða saman á ein- faldan og fljótlegan hátt. „Við þurfum að gæta hagsmuna allra en það er aðlaðandi sýn fyrir þjóðfélagið að taka þátt í einu tímabundnu verkefni og sjá hvern- ig til tekst án þess að opna allar dyr upp á gátt. Það þarf hugrekki þjóðar til þess að taka slíkt skref og því fylgir áhætta,“ segir Guðmundur og bendir á að það þurfi að vinna hratt og vel. Fyrsta skrefið væri að skapa vinveitt og stuðningsríkt umhverfi nýsköpunar og sú vinna sé nú í gangi. Annað skrefið væri að finna hentugt verkefni og koma því í gang áð- ur en við missum af lestinni. Guðmundur segir að ekki megi láta hræðsluna við það sem við þekkjum ekki ráða för en hann skilji að fólk sé hrætt við það sem ekki sér fyrir endann á hvert leiði. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sagði hug- myndir Guðmundar áhugaverðar og mikill fengur væri að því að hafa hann í forsvari fyr- ir stýrihópinn um mótun nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. „Guðmundur hugsar stórt og við Íslend- ingar eigum að vera óhrædd við að hugsa stórt. Það á við í þessu sem öðru, hvort sem er einstaklingar eða samfélag, að þú kemst aldrei lengra en þú ætlar þér,“ segir Kolbrún og bætir við að hugmyndir Guðmundar setji aðra hluti í samhengi og tiltekur markmið Ís- lands um orkuskiptin sem margir mikli fyrir sér. Hún segir skiljanlegt að fólk geri það og ekki geri hún lítið úr því. Einblína á styrkleikana „Við verðum alltaf að spyrja okkur: Hvern- ig getum við verið gerendur í öllum þeim breytingum sem fram undan eru en ekki ein- göngu þiggjendur? Guðmundur lagði fram hugmynd, í raun einhvers konar hugvekju, sem ég vona að sé tilefni fyrir fleiri að segja sína skoðun á og ræða frá alls konar sjónar- hornum. Mér fannst jákvætt hvernig hann einblíndi á hvar styrkleikar okkar liggja og það eigum við að gera. Því sama hvaða leið verður fyrir valinu eigum við að byggja hana á sérstöðu okkar og styrkleika,“ segir Þórdís og tekur undir með Guðmundi að það sé mannlegt að hræðast tæknina, sérstaklega þegar svarið við því hvert breytingar leiði samfélagið liggi ekki fyrir. Tilraunaland með tækninýjungar  Kjörið land fyrir sjálfkeyrandi bíla  Eigum að vera fimm árum á undan samtíðinni  Hugrekki í stað hræðslu  Smæð þjóðarinnar styrkur  Íslendingar eiga að vera gerendur frekar en þiggjendur Morgunblaðið/Árni Sæberg Framsýnn Guðmundur Hafsteinsson ræddi framtíð og tækifæri Íslands í nýsköpun og tækni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.