Morgunblaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551 3033 Flo
ttir í fötu
m
Frímúrarar – Oddfellowar
Frábæru
kjólfötin okkar
komin aftur
Verð 76.900,-
með svörtu vesti
ÚR BÆJARLÍFINU
Óli Már Aronsson
Hellu
Nýlega var birt skýrsla sem Rang-
árþing ytra lét gera um komur og
dvöl ferðamanna í sveitarfélaginu.
Skýrslan tekur til áranna frá 2008 til
2017. Áætlað er í skýrslunni að 230
þúsund erlendir ferðamenn hafi kom-
ið í Rangárvallasýslu árið 2008 en
1.381 þúsund árið 2017, sem er sex-
földun á ársgrundvelli. Það vekur at-
hygli að yfir sumarmánuðina þrjá er
fjölgunin aðeins 3,4-föld en 13-föld yf-
ir vetrarmánuðina.
Brúarframkvæmdir yfir Þverá
neðan við Odda ganga fremur rólega
vegna mikilla anna hjá brúarverktök-
um, en nú sést fyrir endann á fjár-
mögnun verksins og áætlað er að því
ljúki að fullu á næsta ári. Brúin mun
m.a. stórauka öryggi íbúa sunnan
Þverár sem flóttaleið ef til hamfara-
flóðs kemur á svæðinu.
Nýtt deiliskipulag fyrir Land-
mannalaugasvæðið tók gildi fyrr á
þessu ári og Rangárþing ytra fékk út-
hlutaðar 60 millj. kr. úr Fram-
kvæmdasjóði ferðamannastaða til að
lagfæra og endurbyggja framtíð-
arbílastæði við Námakvísl. Fram-
kvæmdir hafa tafist vegna leyfisveit-
inga, en vonast er til að því verkefni
ljúki á næsta ári. Öll þessi mál Land-
mannalauga eru unnin í nánu sam-
starfi við Umhverfisstofnun sem hef-
ur yfirumsjón með framkvæmdum.
Verslunin Mosfell á Hellu hætt-
ir starfsemi upp úr áramótum ef eng-
inn tekur við af núverandi eiganda,
Einari Kristinssyni, sem hefur ákveð-
ið að láta gott heita. Mosfell hefur
verið rekin í vel yfir 50 ár og nú ný-
lega auglýsti Einar að hann hygðist
hætta rekstrinum þar sem hann er að
komast á níræðisaldur. Óskar hann
eftir að áhugasamir gefi sig fram sem
vilja halda rekstri verslunarinnar
áfram.
Rangárþing ytra hefur fest kaup
á húseign Fannbergs ehf. við Þrúð-
vang 18. Lóðin stendur við hlið leik-
skólans Heklukots og verður húsið og
lóðin nýtt til stækkunar leikskólans.
Reiknað er með að ný deild verði í
húsinu og hún verði komin í gagnið
um eða upp úr áramótum. Samningar
standa nú yfir um að Fannberg fast-
eignasala og skrifstofa KPMG muni
flytja á efri hæðina í húsnæði Arion
banka við Þrúðvang 5 á Hellu.
Neslundur ehf. er félag sem var
stofnað á sínum tíma til að byggja
hentugar íbúðir fyrir 60 ára og eldri í
nágrenni við Dvalar- og hjúkrunar-
heimilið Lund á Hellu. Nú er hafist
handa við undirbúning að því að
byggja fyrstu 4 íbúðirnar og verður
væntanlega byrjað á þeim fljótlega.
Íbúðirnar verða u.þ.b. 80 fermetrar
að stærð hver og fjárhagsáætlun ger-
ir ráð fyrir ca. 100 milljónum króna í
verkið allt. Ef fjármögnun tekst eins
og áætlað er, verða þetta leiguíbúðir.
Það byggist á að hagstæð lán og
framlög til leiguíbúða fáist frá ríki og
sveitarfélagi. Takist það ekki verða
þær seldar.
Lionsklúbburinn Skyggnir mun
núna í nóvember standa fyrir syk-
ursýkismælingum meðal almennings
í Rangárvallasýslu eins og gert hefur
verið af og til undanfarin ár. Mæling-
arnar fara fram við verslanir á Hellu
og Hvolsvelli um miðjan nóvember,
með aðstoð hjúkrunarfræðinga á
heilsugæslustöðvunum. Lionsklúbb-
urinn greiðir þann kostnað sem fellur
til, en mælingin er ókeypis.
Íbúðablokk í eigu Rangárþings
ytra að Þrúðvangi 31 var nýlega seld
Glób ehf. sem hyggst leigja íbúðirnar
áfram á almennum markaði. Sölu-
verðið var 108 milljónir króna.
Sveitarfélagið er með allar íbúðirnar
á leigu út árið 2019 eða þar til það
hefur eignast nýjar félagslegar íbúðir
í stað þeirra sem seldar voru. Húsið á
sér langa og merkilega sögu enda
hýsti það eitt sinn m.a. Kaupfélagið
Þór og Skattstofu Suðurlands. Í
framhaldi af sölunni á Þrúðvangi 31
gerði sveitarfélagið samkomulag við
þrjá byggingarverktaka á svæðinu
um kaup á 6 nýjum íbúðum sem nýtt-
ar verða til félagslegrar útleigu.
Byggingaframkvæmdir á
Hellu hafa farið ört vaxandi síðasta
árið og má sjá fram á talsvert fram-
boð af nýjum fullbúnum raðhúsa-
íbúðum næstu 1-2 árin, fyrir utan
nokkur einbýlishús sem einstaklingar
eru að byggja. Þar má t.d. nefna tvö
4ra íbúða raðhús sem Naglafar ehf.
er komið af stað með og önnur tvö 4ra
íbúða raðhús sem eigandi Stracta
hótels er að reisa og eru nú þegar
komin upp úr jörð. Fleiri raðhúsa-
lóðum hefur verið úthlutað þar sem
framkvæmdir eru ekki hafnar enn þá.
Í öllu sveitarfélaginu munu alls vera
um 50 íbúðir í byggingu.
Karlakór Rangæinga heldur
uppi öflugu starfi og framundan eru
stórtónleikar hjá kórnum þar sem
fram koma með honum tenórinn Ósk-
ar Pétursson og Valgeir Guðjónsson
Stuðmaður. Tónleikarnir verða í
íþróttamiðstöðinni í Þykkvabæ 10.
nóvember og hefjast kl. 15.
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Vetur Hekla í vetrarbúningi virðist gnæfa yfir þéttbýlið á Hellu, en aðdráttarlinsa breytir fjarlægðum.
Ferðamenn sexfalt fleiri
Árlegt kótilettukvöld Samhjálpar
var haldið í Súlnasal Hótel Sögu sl.
fimmtudagskvöld. Forsetahjónin,
Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannes-
son, voru heiðursgestir og fóru
fyrst að hlaðborðinu ásamt Verði L.
Traustasyni, framkvæmdastjóra
Samhjálpar. Forsetinn ávarpaði
gesti, skjólstæðingar Samhjálpar
sögðu frá reynslu sinni og flutt var
fjölbreytt tónlist. Veislustjóri var
Guðni Ágústsson, fv. ráðherra.
Kærleikur og kótilettur
Morgunblaðið/Hari
„Þetta er ein af okkar stærstu fjár-
öflunum ár hvert. Allar Hrings-
konur leggja sitt af mörkum en bas-
arnefndin ber hitann og þungann af
undirbúningnum. Hennar vinna
stendur yfir allt árið,“ segir Anna
Björk Eðvarðsdóttir, formaður
Hringsins, en hinn árlegi jólabasar
félagsins verður haldinn á morgun,
sunnudag, á Grand Hótel Reykjavík
og hefst kl. 13.
Á basarnum, sem á sér orðið
nærri 60 ára sögu, er boðin til sölu
handavinna Hringskvenna, mest
jólavara, og ekki má gleyma öllu
bakkelsinu. „Það myndast alltaf ör-
tröð við terturnar, þær rjúka út og
nánast klárast fyrstu tvo klukkutím-
ana,“ segir Anna.
Um 400 konur eru í Hringnum og
allt fé sem þær safna, ásamt gjöfum
og áheitum, rennur óskipt í Barna-
spítalasjóð Hringsins.
„Við vinnum þetta allt í sjálfboða-
vinnu, yfirbygging félagsins er eng-
in og félagið rekið með félagsgjöld-
um Hringskvenna,“ segir hún.
Hringskonur ætla að þessu sinni
að taka þátt í átakinu gegn plast-
mengun. Engir plastpokar verða
undir jólavörurnar heldur einungis
umhverfisvænir fjölnota pokar sem
Hringur lét framleiða.
Það sem af er þessu ári hefur
Hringurinn veitt styrki upp á 29
milljónir króna. Anna segir þá upp-
hæð fara vel yfir 30 milljónir þegar
árið er á enda.
Terturnar rjúka út
á tveimur tímum
Árlegur jólabasar
Hringsins á morgun
Föndur Sýnishorn af fjölbreyttum
jólavörum Hringskvenna.
Ljósmynd/Landspítalinn
Gjöf Stjórn Hringsins í heimsókn á skurðstofur Landspítalans en þar eru
mörg tæki sem félagið hefur gefið. Anna Björk er lengst til vinstri.
Karlmaður á sextugsaldri, sem var
handtekinn í síðustu viku og úr-
skurðaður í gæsluvarðhald vegna
rannsóknar á meintu peninga-
þvætti, hefur verið látinn laus úr
haldi. Lögregla lagði hald á veru-
lega fjármuni í tengslum við rann-
sókn málsins, sem og fasteign
mannsins, bankareikninga og öku-
tæki, að andvirði tuga milljóna kr.
Laus úr haldi