Morgunblaðið - 03.11.2018, Síða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
3. nóvember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 120.94 121.52 121.23
Sterlingspund 155.69 156.45 156.07
Kanadadalur 92.22 92.76 92.49
Dönsk króna 18.427 18.535 18.481
Norsk króna 14.44 14.526 14.483
Sænsk króna 13.327 13.405 13.366
Svissn. franki 120.44 121.12 120.78
Japanskt jen 1.0699 1.0761 1.073
SDR 167.39 168.39 167.89
Evra 137.52 138.28 137.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.1453
Hrávöruverð
Gull 1223.25 ($/únsa)
Ál 1959.0 ($/tonn) LME
Hráolía 76.28 ($/fatið) Brent
● Icelandair hækkaði mest allra félaga
í Kauphöllinni í gær, eða um 7,48%, í
434 milljóna króna viðskiptum, og var
gengi félagsins 7,9 við lok markaða. Fé-
lagið tilkynnti í gær að formlegt ferli við
sölu Icelandair Hotels væri hafið.
Mest lækkun var á gengi bréfa Sýnar
í Kauphöllinni í gær, en félagið lækkaði
um 7,3% í 271 milljónar króna við-
skiptum. Félagið sendi frá sér afkomu-
viðvörun eftir lokun markaða á fimmtu-
daginn, þar sem sagt var að útlit væri
fyrir að EBITDA yrði undir spám félags-
ins. tobj@mbl.is
Icelandair hækkaði
mest í Kauphöll
STUTT
glæsilegri uppbyggingu á nýjum hót-
elum á mjög góðum stöðum hér í
Reykjavík og úti á landi.“
Stefnt er að því að ljúka sölunni á
fyrsta fjórðungi næsta árs, 2019.
„Við segjum samt líka að við viljum
frekar vanda okkur en flýta okkur,“
segir Bogi Nils.
Viðráðanlegri vöxtur
En í ljósi þess hvernig umræðan um
íslenska ferðaþjónustu hefur
þróast, hefði ekki verið betra að
vera fyrr á ferðinni með söluna?
„Nei, við teljum svo ekki vera. Þeir
erlendu aðilar sem eru að skoða
þetta horfa til langs tíma. Það er
áfram vöxtur í íslenskri ferðaþjón-
ustu, og sem betur fer er hann ekki
eins mikill og hann var. Hann er við-
ráðanlegri núna, og við teljum bara
jákvætt að gera þetta á þessum tíma-
punkti.“
Í tilkynningunni kemur fram að
söluferlið sé í umsjón Íslandsbanka
og HVS í London. Þá segir að í fyrr-
nefndri fjárfestakynningu komi
meðal annars fram að leigutekjur
fasteigna muni nema 700 milljónum
króna á þessu ári, og EBITDA hót-
elrekstrar muni verða 900 milljónir
króna.
Á árinu 2018 hafa bæst þrjú ný
hótel við rekstur Icelandair Hotels,
en við það jókst framboð hótelher-
bergja félagsins um 197.
Markaðshlutdeild 17%
Að sögn Boga er markaðshlutdeild
Icelandair Hotels 17% í höfuðborg-
inni, en eitthvað lægri ef horft er á
landið í heild.
Icelandair Hotels er með 23 hótel
innan sinna vébanda, þar af 10 sem
rekin eru undir nafni Hótels Eddu
sem er sumarhótelakeðja. Á þessum
hótelum eru 1.937 herbergi, 876 í
Reykjavík, 450 á landsbyggðinni
ásamt 611 herbergjum á fyrr-
nefndum Eddu-hótelum. Þá vinnur
fyrirtækið einnig að opnun nýs hót-
els við Austurvöll í samstarfi við Hil-
ton sem stefnt er að því að opna árið
2019.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Formlegt söluferli á dótturfélagi
Icelandair, Icelandair Hotels, er haf-
ið, samkvæmt tilkynningu Ice-
landair Group til Kauphallar.
Ákvörðunin um að selja félagið og
fasteignir þær sem tilheyra hótel-
rekstrinum, var upphaflega tekin í
maí síðastliðnum, en síðan þá hefur
fjöldi aðila sýnt fyrirtækinu áhuga.
Bogi Nils Bogason, starfandi for-
stjóri Icelandair, segir í samtali við
Morgunblaðið að margar fyrir-
spurnir hafi borist eftir upphaflega
tilkynningu um söluna. „Það hafa
margir haft samband, og mest aðilar
utan úr heimi. Ég geri ráð fyrir að
íslenskir aðilar muni væntanlega
líka óska eftir gögnum.“
Höfum mikla trú á
ferðaþjónustunni
Bogi segir að eignirnar sem um ræð-
ir séu góðar. „Við höfum mikla trú á
ferðaþjónustunni, þó umræðan hafi
verið heldur neikvæð upp á síðkastið
hér á landi. En af áhuganum að
dæma þá sjá útlendingar meiri tæki-
færi í fyrirtækinu en innlendir að-
ilar. Við erum búin að byggja hér
upp heils árs ferðaþjónustuland, og
það er ekki öllum löndum sem hefur
tekist það. Flugtengingar eru gríð-
arlega miklar, við Evrópu og Amer-
íku, og bráðum Asíu. Þannig að
tækifærin eru svo sannarlega til
staðar til að láta fyrirtækið vaxa og
dafna, og það er það sem útlending-
arnir sjá.“
Eru þetta atriðin sem helst er
tæpt á í fjárfestakynningunni sem
kynnt verður hugsanlegum kaup-
endum á næstunni?
„Já, ekki hvað síst, en svo eru
þetta bara frábærar eignir. Þetta
hótelfélag okkar hefur staðið að
Icelandair Hotels selt 2019
Mest erlendir aðilar sem hafa sýnt áhuga til þessa
Morgunblaðið/Ómar
Gisting Hótel Marina er ein þeirra eigna Icelandair Hotels sem til sölu eru.
Fjármálaeftirlitið er nú með fleiri en
eitt mál til skoðunar sem tengjast
mögulegri markaðsmisnotkun.
Þetta kemur fram í skriflegu svari
frá stofnuninni en Morgunblaðið
leitaði upplýsinga hjá FME um
hvaða fyrirtæki ætti í hlut í máli sem
Nasdaq OMX Iceland vísaði til
FME á þriðja ársfjórðungi. Í
Morgunblaðinu á fimmtudag var
greint frá því að Nasdaq hefði í árs-
fjórðungsskýrslu sinni um eftirlits-
mál á vettvangi kauphallarviðskipta
í Evrópu greint frá því að einu máli
er varðaði meinta markaðsmis-
notkun hefði verið vísað til frekari
skoðunar eftirlitsyfirvalda. Í svari
FME kemur fram að stofnuninni
berist reglulega „fjöldi ábendinga og
vísana, m.a. um mögulega markaðs-
misnotkun, bæði frá Kauphöll og
öðrum,“ eins og það er orðað í
svarinu. Þar segir einnig að farið sé
yfir allar ábendingar og vísanir sem
berast og metið hvort þörf sé á frek-
ari aðgerðum.
Stofnunin gefur hins vegar ekki
upp hvaða mál séu til skoðunar á
hverjum tíma eða hvaða fyrirtæki
eigi þar í hlut. ses@mbl.is
Fleiri en eitt misnotk-
unarmál til skoðunar
FME veitir ekki upplýsingar um einstök mál
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri
Marels, segir skráningu í alþjóðlega
kauphöll vera eðlilegt skref fyrir
Marel og styðja við áframhaldandi
vöxt og framþróun félagsins. Árni
Oddur segir afskráningu Marels úr
Kauphöll Íslands
hafa komið til
greina en eftir
ítarlega skoðun
og ráðleggingar
sé niðurstaðan að
stefna að tvíhliða
skráningu hluta-
bréfa í Kaup-
mannahöfn,
Amsterdam eða
London auk
áframhaldandi
skráningar hér á landi en fyrirtækið
verður áfram með höfuðstöðvar á Ís-
landi. „Við erum alþjóðlegt félag sem
er ákaflega stolt af uppruna sínum
og höfuðstöðvar Marels verða áfram
á Íslandi,“ segir Árni Oddur í samtali
við Morgunblaðið. Marel greindi frá
því við níu mánaða uppgjör fyrirtæk-
isins í vikunni að áform um skrán-
ingu í alþjóðlega kauphöll gengju
samkvæmt áætlun og búið væri að
þrengja kostina niður í kauphallirn-
ar í Amsterdam, Kaupmannahöfn og
Lundúnum.
Sammála um tvískráningu
„Við teljum að með tvíhliða skrán-
ingu tvinnum við best saman hags-
muni núverandi og framtíðar-
hluthafa,“ segir Árni Oddur.
En hvers vegna er mikilvægt að
vera skráð á Íslandi?
„Það hefur í fyrsta lagi ekkert
fyrirtæki í heiminum sem er með
mjög góðan hluthafagrunn og hefur
stutt félag til vaxtar frá sprota til al-
þjóðlegra leiðtoga tekið þá ákvörðun
að afskrá sig og skrá sig á öðrum
stað á einni nóttu. Við skulum heldur
ekki gleyma því að Marel var skráð
1992 í íslensku kauphöllina, sem hef-
ur þjónustað Marel alveg svakalega
vel. Á þessu tímabili höfum við
breyst úr 45 manna fyrirtæki í 6.000
manna alþjóðlegt fyrirtæki.
Tekjurnar hafa vaxið úr sex millj-
ónum evra í tæpar 1.200 milljónir
evra á þessu tímabili,“ segir Árni.
„Núna erum við ekki bara fram-
leiðandi á búnaði fyrir fisk í Evrópu
heldur heimsleiðtogi í lausnum og
þjónustu fyrir framleiðendur í fisk-,
kjöt- og kjúklingaiðnaði. Stuðningur
hluthafa hefur gert það að verkum
að við höfum getað vaxið með yfir-
tökum til viðbótar við kröftugan
innri vöxt. Við fjármögnuðum yfir-
töku á Stork og Scanvægt með
stuðningi hluthafa en síðustu ár höf-
um við gert það í gegnum sterkt
sjóðstreymi og ekki þurft að kalla
eftir auknu fjármagni frá hlut-
höfum,“ segir Árni.
Gengur ekki upp á Íslandi
Árni segir að Marel sé alþjóðlegt
félag með tekjustrauma frá öllum
heimsálfum en eingöngu 1% tekna
kemur frá Íslandi og því sé eðlilegt
næsta skref að finna alþjóðlegt leik-
svið fyrir hluthafa félagsins. Í fyrr-
greindum kauphöllum sé yfir 60% af
umfangi viðskipta frá alþjóðafjár-
festum en það hlutfall sé innan við
10% í íslensku kauphöllinni. Auk
þess segir Árni Oddur að Marel sé
orðið um 40% af heildarumfangi
þeirrar íslensku og því sé góð
áhættudreifing fyrir fyrirtækið að
vera hluti af stærra fjármálakerfi.
Of stórt fyrir Kauphöllina
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, segir að stærð og starfsemi fyrirtækis-
ins kalli á veru í alþjóðlegri kauphöll Afskráning á Íslandi ekki í stöðunni
Morgunblaðið/Ómar
Marel Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, segir skráningu fyrirtæk-
isins í alþjóðlega kauphöll vera tímabæra og eðlilegt skref fyrir það.
Árni Oddur
Þórðarson