Morgunblaðið - 03.11.2018, Page 28

Morgunblaðið - 03.11.2018, Page 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018 Nýbygging í Dalshverfi í Reykjanesbæ. Tryggið ykkur hagstætt verð strax í dag. Áætlaður afhendingartími frá júní 2019. Þriggja og fjögurra herbergja íbúðir í 3 hæða lyftuhúsi Staðsett við nýja Stapaskóla. Verð frá kr. 34.000.000. Dalsbraut 4, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Það var góð mæting á Kötluráðstefnu í Vík í Mýrdal 12. október. Ráð-stefnan var haldin í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá gosi í Kötlu.Fjögur hundruð manns lögðu leið sína til Víkur þennan föstudag. Þar sem ég sat og hlustaði á hvert erindið á fætur öðru fór ég að velta fyrir mér öllum þeim orðum sem við Íslendingar eigum um eldgos, eða jarðelda eins og segir í eldri textum. Það eru orð eins og aska, vikur, móða, bólstrar, gufumökkur, gosmökkur, öskustrókur, gjóska, vikur og áður var talað um sand eða sandöskulag. Mor eða morbálka kalla Skaftfellingar mistur í lofti sem stafar af því að aska eða jökulleir fýkur um í þurru veðri. Lýsingar á flóði sem kom á fyrsta degi Kötlugossins voru jökulhlaup, vatnshlaup, jökulflóð og vatnsflóð. Það sem flóðið skildi eftir á sandinum var jökulborgir, jakahrönn eða jökulhrönn. Þessi orð lýsa þeim ísbjörgum sem jökullinn fleytir fram. Til að lýsa krafti flóðsins er sagt í eldri frásögn: „Einn slíkur jaki lenti á móbergsdrangi sem sagt er að hafi kurlast við áreksturinn.“ Myndir frá Gjálpargosinu 1996 sýndu hvernig jakarnir brutu steypta brúarstólpa og styðja þessa frásögn. Það er áhugavert að sjá í gömlum frásögnum af eldgosum hvernig menn leggja sig fram um að lýsa þvi sem er ólýsanlegt. Sögumennirnir vita að þeim verður ekki trúað svo ótrúlegt er margt sem gerist í náttúruhamförum. Í flestum frásögnunum er lýsing á myrkrinu sem fylgir þéttu öskufalli og notuð orð eins og niðamyrkur og sorti. Sýslumaður í Álftaverinu lýsti myrkrinu með þessum orðum: „Svo myrkt að enginn sá annan þó í hendur hjeldust og þó maður bæri höndina upp að andliti sínu sá maður hana ekki.“ Þessar lýs- ingar voru flestum framandi og varla gat þetta hafa verið alveg svona en þeir sem lentu í öskufallinu frá Eyjafjallajökli og ári síðar Grímsvötnum geta stað- fest að myrkrið í miklu öskufalli er algjört. Þekkt er myndin af Eyjafjallajökli þar sem eldingar lýsa upp öskustrókinn. Lýsingar á þessu fyrirbæri eru margar frá Kötlugosum og þá notað orðið eld- glæringar. Önnur orð eru: Ljósagangur, tindruðu eldglossar, glampar og leiftur. Orðið reiðarslag kemur oft við sögu og merkir þá högg af eldingu. Í dag notum við þetta orð um áfall, eitthvað sem kemur skyndilega og umturn- ar lífi okkar eins og eldgosin gerðu og gera enn. Katla er mjög nærri byggð og fólk heyrði hvin, bresti, stórbresti, skruggur, öskrandi þrumur og mjög margir tala um dunur og dynki. Þessi hávaði var að nóttu sem degi þannig að varla hefur fólki verið svefnsamt þessa 24 daga sem gosið stóð. Það var nefnilega þannig að gosið stóð frá 12. október 1918 til 4. nóvember. Þykir mér harla langt síðan ég fór á ráðstefnu til Víkur en hversu langur þessi tími var í hugum fólksins í Skaftafellssýslu 1918 eigum við bágt með að ímynda okkur. Eldglæringar og dynkir Tungutak Lilja Magnúsdóttir Við búum í samfélagi sem er að sundrast. Fjöl-mennir hópar í samfélaginu upplifa djúp-stæða óánægju og reiði sem veldur því aðfleiri og fleiri í hópi þeirra sem taka þátt í opinberum umræðum tala um að það séu að verða til tvær þjóðir í landinu; önnur þeirra er innan dyra og nýtir sér aðstöðu sína á kostnað þeirra sem eru utan dyra og telja sig skilda eftir. Íslenzkt samfélag hefur áður einkennzt af sundur- lyndi eins og saga þjóðarinnar í bráðum 1200 ár sýnir. En það hefur verið af öðrum ástæðum en nú. Í kalda stríðinu var þjóðin klofin í herðar niður í tvær fylk- ingar. Það var ekki einhugur um leiðir í sjálfstæðisbar- áttunni. En nú eru ástæðurnar aðrar. Nú er samfélagið að sundrast vegna þess að fámennir hópar, sem eru í að- stöðu til, hafa nýtt sér þá aðstöðu til að taka til sín stærri hlut af þjóðarkökunni en hinum sem utan við standa finnst sanngjarnt og réttlátt. Þessi upplifun of margra þjóðfélagsþegna hefur leitt til þess að það er að birtast við sjóndeildarhringinn annars konar og meiri breiðfylking hinna óánægðu og reiðu en við höfum áður séð. Við höfum áður upplifað harkalegar deil- ur á vinnumarkaði, þótt þær kynslóðir sem nú stjórna landinu hafi ekki kynnzt þeim af eigin raun, sem hlýtur að vera skýringin á því, að þær skilja ekki og skynja ekki hvað er fram- undan að óbreyttu. Þessi breiðfylking hefur myndast með verkalýðs- hreyfingunni undir nýrri forystu, stórum hópi aldraðra sem telja sig hlunnfarna, öryrkjum sem telja sig standa utan garðs og tveimur nýrri hópum, Samtökum leigjenda, sem ganga nú fram af meiri samstöðu og hörku en áður hefur sést, og Hagsmunasamtökum heimilanna, sem urðu til eftir hrun og kalla nú eftir að samfélagið horfist í augu við það tjón sem hrunið olli nálægt tíu þúsund fjölskyldum sem hafa misst heimili sín á síðustu árum, af ástæðum sem þetta fólk hafði ekkert með að gera. Þeir sem með völdin fara hverju sinni hafa alltaf til- hneigingu til að yppta öxlum og segja sem svo að það verði alltaf einhverjir óánægðir í lýðræðislegum sam- félögum. Í umræðum sem nú eru hafnar um kjarasamningana sem eru framundan má greina að sumir ráðherrar eigi erfitt með að skilja þessa óánægju og vísa til tölfræði sem sýni að kaupmáttur launa hafi aldrei vaxið jafn mikið og síðustu ár. Þeir eru í raun að taka sér í munn orð Harolds MacMillans, forsætisráðherra Breta, fyrir u.þ.b. sextíu árum, sem vann glæsilegan kosningasigur undir kjörorðinu „You have never had it so good“ eða Þið hafið aldrei haft það svona gott eins og nú. Þeir sem þannig tala virðast ekki skilja, að málið snýst ekki um þetta. Undirrót þeirra erfiðu kjarasamn- inga sem eru framundan eru alvarleg mistök þeirra sjálfra. Þeir áttu auðvitað að afnema með lögum ákvarðanir Kjararáðs fyrir tveimur árum um launakjör æðstu embættismanna, þingmanna og ráðherra, sem tvö fordæmi voru fyrir síðustu tæp 30 ár, en gerðu ekki. Á meðan stjórnmálastéttin leiðir hjá sér að ræða og skýra þessi mistök hennar sjálfrar verður lítið hlustað á tal hennar um kaupmáttaraukningu. Kjörnir fulltrúar þjóðarinnar bera margvíslega ábyrgð. Ein er sú að stuðla að einingu og samstöðu í samfélagi okkar. Það var athyglisvert að hlusta á Al- dísi Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra í Hveragerði, á fundi Samtaka eldri sjálfstæðismanna í Valhöll sl. miðviku- dag. Hún talaði töluvert um mikilvægi þess í fámennu samfélagi eins og í Hveragerði að stuðla að einingu og samstöðu og augljóst að hún lítur á það sem sitt hlut- verk að stuðla að því meðal Hvergerð- inga. Hún hefði eins getað verið að tala um Ísland allt. Sömu lögmál gilda í samfélag- inu öllu eins og í litlum hluta þess, sem heitir Hveragerði. Þeir sem þessa stund- ina sitja í ríkisstjórn Íslands og á Alþingi bera sömu ábyrgð að þessu leyti og bæjarstjórinn í Hveragerði. Þeim ber að stuðla að einingu og samstöðu meðal þjóðarinnar. Nú er komið að því að þeir geta ekki lengur ýtt því á undan sér að tala við þjóðina um þessi mál. Ráða- menn í öllum flokkum verða að útskýra fyrir fólkinu í landinu hvers vegna þeir hafi tekið til sín hlut sem margir telja að þeir hafi engin rök fyrir. Þeir verða að hætta að forðast eins og heitan eldinn að tala um þessi mál. Vegna þess að þar liggur skýringin á þeirri stöðu, sem komin er upp á vinnumarkaði. Hvernig má það vera að kjörnir fulltrúar á Alþingi telji sig geta borið ábyrgð á því að efnahagslífið fari á hvolf vegna þess að þeir stóðust ekki freistinguna? Þeirra er ábyrgðin ef svo fer. Úti við sjóndeildarhringinn má sjá breiðfylkinguna, sem áður var nefnd. Hún nálgast smátt og smátt. Hið endanlega vald í málefnum lands og þjóðar er í hennar höndum og annarra þjóðfélagsþegna. Það reynir fyrst á það vald í prófkjörum flokka og síðar að lokum í kosningum til Alþingis. Við höfum áður upplifað harkalegar vinnudeilur og við höfum líka upplifað pólitískar afleiðingar þeirra. Þeir sjálfstæðismenn sem muna svo langt aftur í tím- ann (og þeim fer fækkandi!) ættu að rifja upp kosning- arnar vorið 1978 til borgarstjórnar Reykjavíkur og til Alþingis. Þurfum við virkilega að ganga í gegnum þetta allt aftur? Breiðfylking hinna óánægðu og reiðu Samfélagið er að sundrast Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Árið 2014 sendi Styrmir Gunnars-son, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, frá sér bókina Í köldu stríði, þar sem hann sagði frá baráttu sinni og Morgunblaðsins í kalda stríðinu, sem hófst, þegar vestræn lýðræðisríki ákváðu að veita kommúnistaríkjunum í Mið- og Austur-Evrópu viðnám. Íslendingar gengu þá til liðs við aðrar frjálsar þjóðir, sem mynduðu með sér varn- arbandalag, Atlantshafsbandalagið. En hér starfaði líka Sósíalista- flokkur, sem þáði verulegt fé frá Moskvu og barðist fyrir hagsmunum Kremlverja. Hélt hann úti dag- blaðinu Þjóðviljanum og átti tals- verðar húseignir í Reykjavík. Styrmir hafði njósnara í Sósíal- istaflokknum, sem gaf honum skýrslur. Ein skýrslan hefur ekki vakið þá athygli sem skyldi (bls. 123). Hún er frá janúar 1962. Segir þar frá fundi í einni sellu Sósíal- istaflokksins, þar sem ónafn- greindur námsmaður í Austur- Þýskalandi talaði, og geri ég ráð fyrir, að hann hafi verið Guðmundur Ágústsson, sem seinna varð for- maður Alþýðubandalagsfélags Reykjavíkur. „Skýrði hann frá því að hann stundaði nám við skóla þar sem kennd væri pólitík og njósnir en hann mun hafa annað nám að yfir- varpi. Rétt er að geta þess að áður en [Guðmundur] byrjaði að tala spurði hann deildarformann, hvort ekki væri óhætt að tala opinskátt. Formaður hélt það nú vera. [Guð- mundur] skýrði einnig frá því, að í fyrra hefði ekki verið nægilegt fé fyrir hendi til þess að standa straum af kostnaði við þá Íslendinga sem dveldust í Austur-Þýskalandi á veg- um flokksins hér og þess vegna hefðu verið tekin inn á fjárlög aust- urþýska ríkisins (þó ekki þannig, að beinlínis hafi komið fram) 180 þús- und austurþýsk mörk til þess að standa straum af útgjöldum íslenska kommúnistaflokksins í Austur- Þýskalandi.“ Enn segir í skýrslunni: „Þá sagði [Guðmundur], að meðal kommúnista í Austur-Evrópu ríki mikil ánægja með Þjóðviljann, sem talið væri eitt besta blað kommún- ista á Vesturlöndum.“ Það er merkilegt, að sósíalistarnir á sellufundinum virðast hafa látið sér vel líka uppljóstranir náms- mannsins unga. Ekki er síður fróð- legt að kommúnistar í Austur- Evrópu skyldu hafa talið Þjóðviljann „besta blað kommúnista á Vestur- löndum“. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Í köldu stríði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.