Morgunblaðið - 03.11.2018, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 03.11.2018, Qupperneq 33
Elsku yndislega og góða Fjóla systir, ég kveð þig með ljóði sem langömmu- og langagafabróðir kvaddi systur sína með fyrir all- löngu síðan og geri það að mínu. Þó að við systur kynntumst ekki fyrr en þú fluttir aftur heim á Seyðisfjörð og ég þá orðin ungling- ur urðum við góðar vinkonur, það var mikill heiður að fá að fara út að labba með þriðja barnið þitt, ég var svo montin með það. Seinna þegar ég eignaðist mín börn varstu alltaf til staðar fyrir mig og börnin mín, fyrir það verð ég þér alltaf þakklát Takk fyrir alla kjólana sem þú saumaðir á Guðrúnu mína, þig munaði ekki um að sauma fjórða kjólinn þegar þú varst að sauma á dætur þínar enda var myndar- skapurinn þinn í hannyrðum ótrú- legur, það lék allt í höndum þínum. Takk fyrir okkar samveru eftir að báðar urðum fullorðnar og náð- um mjög vel saman og urðum vin- konur þrátt fyrir aldursmuninn sem ég fann ekki fyrir með aldr- inum. Elsku kæra systir, nú ertu kom- in til Mumma þíns og allra þeirra sem farnir eru frá okkur, efast ég ekki eitt augnablik um að það hef- ur verið tekið vel á móti þér af þeim öllum, berðu þeim öllum kveðju mína. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Augun þreyttu þurftu að hvíla sig. Það er stundum gott að fá að sofa. Armar drottins umlykja nú þig, okkar er að tilbiðja og lofa. Við þér tekur annað æðra stig, aftur birtir milli skýjarofa. Enginn fær flúið örlögin sín aldrei ég þér gleymi. Nú ert þú sofnuð systir mín sæl í öðrum heimi. Hlátra og hlýju brosin þín í hjarta mínu geymi. (Haraldur Haraldsson) Ástarkveðja frá Lillu systur og fjölskyldu. Ástrún Lilja Sveinbjarnardóttir. Ég vil með örfáum orðum kveðja kæra systur mína. Síðustu ár Fjólu voru henni mjög erfið. Óhætt er að segja að lausn sé þá lokið er þungum þrautum. Það er margs að minnast og margs að sakna eftir meira en áttatíu ár. Okkar samband var allt- af gott og traust eins og okkar allra systkinanna. Fjóla var alltaf kát og hress þrátt fyrir þá fötlun sem hún bjó við allt frá fæðingu, lét það síður en svo hefta sig í leik eða starfi. Ekki hef ég orð þessi fleiri. Allt það sem ósagt er, allar samveru- stundir og minningar geymi ég í hjarta mér. Ég sendi fjölskyldum Fjólu innilegar samúðarkveðjur og bið þeim guðs blessunar. Sem kona hún lifði í trú og tryggð; það tregandi sorg skal gjalda. Við ævinnar lok ber ást og dyggð sinn ávöxtinn þúsundfalda, og ljós þeirra skín í hjartans hryggð svo hátt yfir myrkrið kalda. Sem móðir hún býr í barnsins mynd; það ber hennar ættarmerki. Svo streyma skal áfram lífsins lind, þó lokið sé hennar verki. Og víkja skal hel við garðsins grind, því guð vor, hann er sá sterki. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson) Ljóðlínur þessar er hér fylgja veit ég að eiga vel við hana systur mína. Ég kveð þig með miklum sökn- uði, elsku systir, og ég veit að Mummi stendur á ströndinni og tekur á móti þér þegar þú leggur að landi á eilífðar ströndinni. Þín saknandi systir, Inga Hrefna. MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018 ✝ Birgi Pálsson,vélstjóri frá Stóruvöllum í Bárðardal, fæddist 1. desember 1939. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 19. október 2018. Foreldrar hans voru Páll Sveinsson frá Stórutungu, f. 24.12. 1911, d. 15.6. 1994, og Sigríður Jónsdóttir frá Stóruvöllum, f. 1.1. 1920, d. 2.11. 2005. Systkini Birgis eru: Geir- þrúður, f. 8.5. 1941, og Sveinn, f. 17.5. 1953. Birgir giftist 1. janúar 1961 Sigurbjörgu Ólafsdóttur frá Odda í Vestmannaeyjum, fædd 29. maí 1943, hún lést 9. júní 2017. Foreldrar hennar voru Þorsteina Sigurbjörg Ólafs- dóttir, húsmóðir frá Oddhóli í Vestmannaeyjum, f. 4. septem- ber 1920, d. 15. nóvember 2012, og Ólafur Árnason, olíubílstjóri frá Odda í Vestmanna- eyjum, f. 31. júlí 1917, d. 26. febrúar 1997. Börn þeirra eru: 1) Guðbjörg Sigur- veig, f. 22.7. 1958, sambýlismaður hennar er Guð- mundur G. Norðdahl. 2) Sævar, f. 31.7. 1965, sambýliskona hans er Gerður Sævarsdóttir. 3) Brynja, f. 7.3. 1968, eiginmaður hennar er Bjarni Kristinsson. 4) Árni, f. 6.3. 1972, eiginkona hans er Ásta Hólm Birgisdóttir. 5) Sigurbjörg, f. 13.9. 1981. Barnabörn þeirra eru 19 og barnabarnabörnin fimm. Útförin fer fram frá Hvera- gerðiskirkju í dag, 3. nóvember 2018, klukkan 14. Elsku pabbi, Margt er það og margt er það sem minningarnar vekur, og þær eru það eina sem enginn frá mér tekur. (Davíð Stefánsson) Mig óraði ekki fyrir því, elsku pabbi minn, þegar ég kvaddi þig á spítalanum aðfaranótt 16. október að það yrði okkar síðasta samtal. Strax morguninn eftir áttaði ég mig á því í hvað stefndi. Það er erf- itt að horfa til þess að þú sért nú farinn, þú, þessi yndislegi maður sem mér þótti svo vænt um. Þú varst alltaf reiðubúinn að gera allt fyrir mig, það varst þú sem kennd- ir mér að þekkja stafina, það varst þú sem kenndir mér að reikna og þú kenndir mér líka margt annað sem mun nýtast mér í lífinu. Ósjaldan fórum við saman í bíl- túr og þú þvældist með mig hing- að og þangað, þar sem það var alltaf nóg að gera. Fáeinar línur á blaði segja svo lítið frá þeim minningum sem eftir sitja, og er erfitt að lýsa manni eins og pabba, sem fyrir mér var stórbrotinn persónuleiki. Elsku pabbi, þín verður sárt saknað og það tómarúm sem eftir er getur enginn fyllt. En þakklætið fyrir að hafa átt þig að og að við munum hittast aft- ur stendur eftir og huggar. Ég mun aldrei gleyma þér, ég mun ávallt geyma minninguna um þig í brjósti mínu, minninguna um ástkæran föður minn. Skilaðu kveðju til mömmu frá mér. Guð blessi þig. Með þökk ég kveð þig, kæri pabbi minn. Ég kann víst ekki að skrifa um feril þinn. En allt það góða er þú kenndir mér mun ávallt sýna rétta mynd af þér. Nú færðu hvíld og hvíldin sú er góð, þó hverfi spor sem vitna um langa slóð. Nú sveipast blessun sál og andi þinn og sofðu í friði elsku pabbi minn. (R.K.) Ég elska þig, þinn Árni. Mig langar að minnast Birgis Pálssonar, mágs míns, með nokkr- um orðum. Birgir var myndarleg- ur maður, hávaxinn og dökkur yfirlitum. Hann vakti athygli þar sem hann kom, gat verið hvass en var mjúkur fyrir innan skelina. Hann var 78 ára þegar hann féll frá en það telst ekki hár aldur í dag. Hann hafði átt við veikindi að stríða í nokkur ár en síðastliðið ár hrakaði heilsu hans ört með þeim afleiðingum að hann lést föstudag- inn 19. október 2018. Birgir fæddist í Bárðardal í Suður-Þingeyjarsýslu og ólst þar upp. Hann flutti ungur maður til Vestmannaeyja þar sem hann kynntist eiginkonu sinni, henni Sibbu. Það sem eftir lifði ævinnar bjó hann á Suðurlandinu en Bárðar- dalur var þó alltaf dalurinn hans. Okkar kynni hófust þegar ég fór að venja komur mínar í Hvera- gerði fyrir 47 árum. Honum fannst ég óttalegur krakki, sem ég auðvitað var, og mér fannst hann næstum því karl en 16 ár skildu okkur að. Okkur varð þó vel til vina og alltaf tók hann mér með hlýju. Það var alltaf gott og gaman að koma til þeirra og samgangur á milli heimilanna var töluverður. Birgir átti til að birtast jafnt að degi sem kvöldi, þiggja kaffisopa og svolítið spjall, og var það ánægjulegt. Alltaf var hann að velta ýmsu fyrir sér sem hann vildi ræða og segja frá. Ófáum áramótum höfum við eytt saman, bæði í upphafi bú- skaparára okkar Svenna og einn- ig hin síðari ár. Birgir hafði alltaf gaman af því að sitja í góðum hópi og spjalla um allt milli himins og jarðar. Hann hafði mikla ánægju af því að ferðast og elskaði dalinn sinn og þangað voru ferðirnar ófáar. Þau hjónin áttu þessa ferðagleði sameiginlega og gaman var að ferðast með þeim. Aldrei taldi Birgir eftir sér að keyra, nánast hvert á land sem var og þurfti fyrirvarinn ekki að vera langur. Minnist ég m.a. ógleymanlegr- ar helgarferðar í Ólafsfjörð. Sú ferð var ákveðin með nær engum fyrirvara og var hin ánægjuleg- asta. Á síðasta ári missti Birgir sinn lífsförunaut þegar Sibba féll frá eftir fremur skammvinn veik- indi. Þá var eins og lífsneisti hans færi að dofna. Mig langar að þakka fyrir sam- fylgdina með þessum ljóðlínum: Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Sigrún Arndal (Sirrý). Í dag verður ástkær frændi minn, Birgir Pálsson, borinn til grafar. Því miður get ég ekki kvatt hann í dag með nærveru minni, en ég mun kveðja hann í huganum og kveikja á Stóruvalla- kerti hér í Sviss í minningu hans. Dagurinn í dag er skrítinn, þar sem ég kveð frænda minn í dag um leið og ég held upp á 60 ára af- mæli mitt. Birgir var mikill Bárðdæl- ingur, unnandi hálendis og víðáttu Íslands. Hann elskaði að ferðast um landið og það var alltaf greini- legt að hann var á heimaslóðum þegar hann kom í dalinn sinn eða til óbyggða. Birgir var einnig mik- ill dýravinur og átti alltaf erfitt að upplifa eymd dýra. Ég held satt að segja að hann hafi til dæmis átt fá gæludýr, því hann átti svo erfitt með að sjá á eftir þeim þegar þeirra dagar voru taldir. Það er oft sagt að sumir séu svo miklir veiðimenn að þeir geti dorgað fisk úr drullupolli. Það var nú kannski ekki alveg svo með Birgi frekar en aðra, en hann var ótrúlega lunkinn við að veiða fisk hvar sem hann kastaði línu. Ég sjálfur hef aldrei verið heppinn veiðimaður og því miður dró ég það að spyrja Birgi hvert leyndar- málið væri þar til ég var sjálfur hættur að veiða. En nú veit ég sannleikann. Ein af uppáhaldstómstundum Birgis var að spila bridge og ég held að mér hafi fyrst fundist Birgir byrja að vera gamall þegar ég heyrði að hann væri hættur að spila, en á hans yngri árum gat hann auðveldlega setið við spila- borðið næturlangt. Þrátt fyrir mikla ást Birgis á gömlu heima- sveitinni, hálendinu og ferðalög- um, þá komst sú ást aldrei nálægt ást hans á börnum sínum, barna- börnum og langafabörnunum. Það kom alltaf mjúkur glampi í augu hans þegar hann ræddi um eitt- hvert þeirra. Kæru Guðbjörg, Sævar, Brynja, Árni, Sigurbjörg, barna- börn og langafabörn, ég og Björk sendum ykkur öllum okkar inni- legustu samúðarkveðjur og megi Guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu dögum. Nú mun hann liggja við hlið sinnar heittelskuðu Sibbu, sem hann hefur deilt nánast allri sinni ævi með. Hvíl í friði, kæri frændi, ég mun heilsa upp á ykkur hjónin næst þegar ég verð á Íslandi. Jón Páll Haraldsson. Birgir Pálsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir og amma, AGNES GEIRSDÓTTIR, Stekkjargötu 21, Reykjanesbæ, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja 28. október. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju, föstudaginn 16. nóvember klukkan 13. Guðjón Guðmundsson Geir Rúnar Birgisson Laufey Ólafsdóttir Hrafnhildur Birgisdóttir Aðalsteinn Sigurðsson Kristín Guðjónsdóttir Gísli Stefán Sveinsson Hildur Guðjónsdóttir Arnar Snæberg Jónsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÖGMUNDUR H. STEPHENSEN, Hörðukór 1, Kópavogi, lést á Landakoti þriðjudaginn 30. október. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 9. nóvember klukkan 15. Guðrún Finnbogadóttir Margrét Ö. Stephensen Sigríður Ögmundsdóttir Jón Björgvin Garðarsson Valgerður Ögmundsdóttir Eggert Arnar Kaaber barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir afi og langafi, ARNÓR HARALDSSON frá Þorvaldsstöðum, Langanesströnd, Víðilundi 24, Akureyri, lést á öldrunarheimilinu Hlíð 31. október. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 12. nóvember klukkan 13.30. Júlía Friðriksdóttir Þórunn Björg Arnórsdóttir Almar Björnsson Unnur Helga Arnórsdóttir Eydís Arnórsdóttir Ingimar Tryggvason afa og langafabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, RAGNAR ÞORSTEINSSON, Berjavöllum 2, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 31. október. Útför hans fer fram frá Víðistaðakirkju Hafnarfirði fimmtudaginn 8. nóvember klukkan 11. Steinvör Bjarnadóttir Sigurveig H. Hafsteinsdóttir Guðmundína Ragnarsdóttir Viggó Valdemar Sigurðsson Guðbjörg Elín Ragnarsdóttir Bragi Þorsteinn Bragason Ragnheiður Ragnarsdóttir Þorsteinn K. Ragnarsson Paula A. Sánchez barnabörn og fjölskyldur þeirra Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, JÓHANNA G. VALDIMARSDÓTTIR, áður til heimilis í Gnoðarvogi 28, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík, þriðjudaginn 30. október. Útför hennar fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 8. nóvember klukkan 13. Sigurður Þorsteinsson Lilja Dóra Michelsen Ingunn Þorsteinsdóttir Guðjón Valdimarsson barnabörn og fjölskyldur Ástkær pabbi okkar, tengdapabbi og afi, GUÐMUNDUR H. NORÐDAHL tónlistarmaður, Hrafnistu, áður til heimilis í Jökulgrunni 2 í Reykjavík, lést miðvikudaginn 31. október. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 9. nóvember, klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á góðgerðarfélög sem tengjast börnum og dýravelferð. Brynhildur Þ. Engen Bernhard Engen Garðar G. Norðdahl Ingibjörg Jóna Gestsdóttir Vilborg Norðdahl Þórhallur Ágúst Ívarsson María Norðdahl Þórir Örn Garðarsson Guðmundur Þór Norðdahl barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Elskuleg systir okkar, SIGURLAUG ÁSGERÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR, fv. gjaldkeri, Rauðalæk 30, lést fimmtudaginn 11. október á Grund. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 5. nóvember klukkan 13. Fyrir hönd vandamanna, Gísli Þorsteinsson Guðmundur Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.