Morgunblaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.11.2018, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2018 ✝ Ólafur AxelJónsson fædd- ist 15. september 1934 á Kjartans- stöðum í Skaga- firði. Hann lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 26. október 2018. Foreldrar hans voru Jón Frið- björnsson og Hrefna Jóhanns- dóttir. Bróðir Ólafs er Friðbjörn Þ. Jónsson, f. 18. júlí 1936, kvæntur Sigrúnu Ámundadótt- ur, f. 29. mars 1934. Ólafur kvæntist Báru Þ. Svavarsdóttur 29. desember 1956, dóttur Petreu Guðmundsdóttur og Svavars D. Þorvaldssonar. Þau eignuðust þrjár dætur, tvíburana Hafdísi og Guðbjörgu, f. 6. október 1956, og Ragnheiði Hrefnu, f. 30. apríl 1963. Maður Hafdísar er Jón Stefán Karls- son, f. 24.4. 1950, og eru þau bú- sett í Reykjavík. Börn þeirra eru tvö: a) Ólafur Axel, f. 29.1. 1978, hennar sonur er Máni Snær. b) Elvar Örn, f. 2.2. 1990, í sambúð með Elínu Petru Gunnarsdóttur, f. 12.2. 1993. Börn þeirra eru Birgitta Katrín og Þorvaldur Heiðar. c) Sigurður Heiðar, f. 10.9. 1991, í sambúð með Sig- urlínu Erlu Magnúsdóttur, f. 11.10. 1991. Börn þeirra eru Þórður Bragi og Fanndís Vala. d) Ólöf Bára, f. 22.9. 2004. Ólafur bjó alla tíð á Sauð- árkróki og var alltaf kallaður Óli Jóns. Hann vann í nær 30 ár hjá Bílabúð Kaupfélags Skag- firðinga og var mikill áhuga- maður um lax- og silungsveiði. Hann hafði mikla ástríðu fyrir sjósókn og samhliða störfum hjá Kaupfélaginu átti hann trillur með nokkrum félögum í gegn- um árin. Óli og Bára ráku ásamt foreldrum hans myndarlegt fjárbú á Nöfunum á Sauðár- króki til fjölda ára. Óli átti mörg áhugamál og hafði meðal annars gaman af söng og lestri góðra bóka. Á meðan heilsan leyfði söng hann með kór eldri borgara á Sauð- árkróki. Frá 47 ára aldri glímdi Óli við veikindi sem hann tókst á við með einstöku æðruleysi. Útför Óla fer fram frá Sauð- árkrókskirkju í dag, 3. nóvem- ber 2018, klukkan 14. kvæntur Birnu Guðbjartsdóttur, f. 6.6. 1978, börn þeirra eru Dagur Sölvi, Bjarki og Eva Björt. b) Thelma Marín, f. 7.1. 1987. Maður Guðbjarg- ar er Finnur Krist- insson, f. 24.4. 1953, og eru þau búsett á Skagaströnd. Dæt- ur þeirra eru þrjár: a) Guðný Kristín, f. 19.2. 1974, sonur hennar er Eldar Ágúst. b) Petrea, f. 9.11. 1980, börn henn- ar eru Gabríel Logi, Veigar Már og Lárey Yrja. c) Arnrún Bára, f. 18.3. 1989, hennar maður er Kristján Ásgeirsson Blöndal, f. 7.6. 1989, dóttir þeirra er Arney Röfn. Maður Ragnheiðar Hrefnu er Birgir Þórðarson, f. 7.6. 1960, og eru þau bændur á Ríp í Skagafirði. Börn þeirra eru fjögur; a) Birgir Örn, f. 9.10. 1980, í sambúð með Brynju Dan Gunnarsdóttur, f. 25.8. 1985, Elsku Óli minn. Ég óska þess að þér líði vel, laus við allar þrautir. Þó að fölni fögur rós og ferskur þagni blær, þó að slökkni lífsins ljós leiftrar ætíð skær, heilög minning helguð þér á harðri lífsins braut, geymd í huga og hjarta mér um horfinn förunaut. Við tengdum okkar traustu bönd með trú á sterkan þátt. Þú gafst mér bæði hjarta og hönd og hamingjunnar mátt. Hin sæla minning sefar mig er sorgin leitar að. Nú bið ég guð að blessa þig og búa nýjan stað. (Hákon Aðalsteinsson) Ég þakka þér alla okkar góðu sambúð í öll þessi ár. Þú hugsaðir alltaf um að mér liði vel hvernig sem þér leið. Þakka þér alla þá ást og umhyggju sem þú veittir mér. Þín Bára. Elsku pabbi okkar. Við kveðj- um þig með söknuði, þakklæti, ást og virðingu. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þína dætur, Hafdís, Guðbjörg og Ragn- heiður Hrefna (Hebba). Óli tengdafaðir minn hefur kvatt þessa jarðvist og er farinn að róa á önnur mið. Þessi gamla kempa og ættarhöfðingi er allur og er hans sárt saknað. Á kynni okkar Óla bar aldrei skugga. Þegar við Guðbjörg mín fórum að draga okkur saman þá tóku þau Óli og Bára mér einstak- lega vel þó að ung værum. Þegar ég sótti nám á Iðn- skólanum á Sauðárkróki fengum við að vera inni á heimili þeirra Óla og Báru þó að þröngt væri á Freyjugötunni. Heimilislífið var einstakt og gott. Samband þeirra Óla og Báru var fallegt og virð- ingin sem þau báru hvort fyrir öðru var sérstök í 63 ár. Þetta var gott veganesti fyrir okkur Guð- björgu mína gegnum okkar líf. Óli studdi okkur í einu og öllu sem við tókum okkur fyrir hend- ur, meira að segja þegar við flutt- um til Kína. „Þetta gæti verið spennandi, drengur,“ sagði hann. Ég átti það til að hrekkja Óla stundum. Á 70 ára afmæli Óla hélt ég smátölu um hrekkina sem ég hafði gert honum. „Þú getur verið dálítið hrekkjóttur drengur,“ sagði hann og tók utan um mig og skellihló að öllu saman. Svona var Óli, alltaf til í að sjá spaugilegu hlutina. Óli var afskaplega kappsamur maður. „Drífðu þig, drengur,“ sagði Óli stundum. Veikindi fóru snemma að hrjá hann. Hann gekk í gegnum fjölmargar hjartaþræð- ingar og skurðaðgerðir. Alveg sama hvað gekk á, alltaf spratt Óli upp og gekk til sinna starfa eins og ekkert hefði í skorist. „Það er ekkert að mér“ sagði hann og vildi ekkert um veikindi tala. Læknar sögðu að hann væri gangandi kraftaverk. Hugurinn var alltaf skýr þó að heilsan bilaði. Óli fylgdist vel með öllum báta- og skipaferðum. Hann átti skektur með öðrum og var einn af þessum gömlu góðu sem alltaf héldu rækt við sjó og sjó- mennsku. Þótti honum ekki slæmt að eiga tengdason sem var sjó- maður. Við Guðbjörg mín heyrð- um í útvarpinu að kvöldið áður hefði bátur sokkið á Skagafirði en mannbjörg orðið. Hringdum í Óla um leið. „Jú, þetta var svo sem ekkert. Verst að missa bátinn,“ sagði Óli og var hinn hressasti. „En ansi var kalt í björgunarbátn- um.“ Hann bætti þó við að hann saknaði gamla kaffibrúsans síns. Síðar þegar báturinn fannst á hafsbotni og var hífður upp, þá fannst kaffibrúsinn, Óla til mikill- ar ánægju. Kaffibrúsi þessi er enn í notkun í fjárhúsunum á Ríp. Í sumar fóru Rípurbræður í fiski- róður út á fjörðinn. Óli fylgdist með þeim. Komu bræðurnir seint til hafnar. Óli var hættur að aka bíl en laumaðist niður á bryggju þeg- ar þeir komu að landi. Óli snarast út fáklæddur og segir: „Eruð þið brjálaðir strákar að veiða svona mikið á þessu litla horni, hvenær haldið þið að þið verðið búnir að flaka þetta?“ Um morguninn komst upp um hann er hann fór að segja Báru sinni hvað þeir höfðu veitt. Hinn 18. ágúst síðastliðinn komum við saman allir afkomendur Óla og Báru. Mikið var gaman að sjá hve Óli skemmti sér vel. Fyrir um tveim mánuðum áttum við Óli saman afar ánægjulega stund, einlægt samtal. Þarna sá ég svo vel „Báruglampann“ í augum Óla þegar hann minntist á Báru. Þess- arar samverustundar mun ég minnast meðan ég lifi. Þakka samfylgdina gegnum árin. Finnur. Elsku afi. Hún er erfið sú hugsun að vita til þess að fá ekki að hitta þig aftur við eldhúsborðið á Fornósnum, amma að taka til kræsingar handa okkur og við að ræða um daginn og veginn eins og við gerðum vanalega, en hins vegar er ég æv- inlega þakklátur fyrir allan þann tíma sem við fengum saman. Al- veg frá fæðingu minni hefurðu haft áhrif á mitt líf, einstök fyrir- mynd sem ég hef alltaf litið svo mikið upp til, með einstaklega fal- legt hjarta og góðmennskan upp- máluð. Það var sjaldan langt í húmorinn hjá þér og minnist ég þess með bros á vör þó svo að nokkrar sprengitöflur hafi sjaldn- ar en ekki runnið niður í leiðinni. Elsku afi, í mínum huga varstu of- urhetja og þér þótti ekkert betra en að hafa fólkið þitt í kringum þig og þá sérstaklega hana ömmu, þessa einstöku manneskju sem þú sást ekki sólina fyrir. Minning þín mun lifa með mér endalaust. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens) Þinn Birgir Örn. Elsku Óli afi okkar. Það sem við erum ánægð með öll árin sem við fengum að ganga í gegnum saman. Barátta þín í gegnum lífið var ekki þrautalaus en alltaf á einhvern ótrúlegan hátt reifstu þig upp úr þínum veikind- um og mættir eldhress aftur til ömmu. Þær eru ófáar minning- arnar sem rifjast upp fyrir manni. Allar ferðirnar sem við fórum saman á sjóinn með þér og allt sem þú kenndir okkur þar er svo dýrmætt í dag. Veiðiferðirnar síð- ustu ár voru ekki samar án þín en það var alltaf hægt að hafa sam- band, fá góð veiðiráð og það var al- veg á hreinu að þú varst mættur með kíkirinn út í glugga að fylgj- ast með okkur. Áhugi þinn á sveitalífinu var mikill og það var alveg sama hvaða árstími það var alltaf varstu tilbúinn að mæta og Ólafur Axel Jónsson Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Magnús Sævar Magnússon, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURJÓN GUNNARSSON matreiðslumeistari, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 25. október. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 7. nóvember klukkan 13. Svava Bernhard Sigurjónsd. Vilhjálmur Vilhjálmsson Gunnar Halldór Sigurjónss. Guðrún Anna Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartfólginn eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR S. SVAVARSSON bókaútgefandi, lést föstudaginn 26. október. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 7. nóvember klukkan 15. Guðrún Svansdóttir Svavar Sigurðarson Virginie Cano Erna Sigurðardóttir Joseph Benjamin Johns og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, VALUR HARÐARSON, viðskiptastjóri hjá Johan Rönning, lést á heimili sínu miðvikudaginn 24. október. Hann verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 5. nóvember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið, stuðningsmiðstöð krabbameinsgreindra. Þuríður Höskuldsdóttir Sigríð Hallgrímsdóttir Sigrún K. Valsdóttir Lárus Örn Lárusson Þórdís Valsdóttir Örvar Ásmundsson Kristín Líf Örnudóttir Þórður S. Hreiðarsson Bryndís Aðalbjörg, Arna og Þórhildur Okkar ástkæri ÁRNI ÍSLEIFSSON tónlistarmaður, Æsufelli 4, lést á Landspítalanum laugardaginn 27. október. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 8. nóvember klukkan 13. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Kristín Axelsdóttir Ísleifur Árnason Kristín J. Þórarinsdóttir Áslaug Hildur Árnadóttir Hörður Már Lúthersson Soffía Árnadóttir Sigurður Karlsson Una Árnadóttir Einar Hörðdal Jónsson Axel Hilmarsson Sína S. Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín og systir, DONNA LÓA JÓHANNSSON ILUMIN, áður Óðinsgötu 11, lést á heimili sínu í Virginu Beach í faðmi fjölskyldunnar föstudaginn 28. september. Fyrir hönd fjölskyldunnar, JoJo L. Ilumin Inga Jóhannsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÓLFUR GUÐNASON, Lundi, Fnjóskadal, lést á öldrunarheimilinu Hlíð 1. nóvember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 13. nóvember klukkan 10.30. Guðni Þórólfsson Aðalheiður Pétursdóttir Aðalbjörg Þórólfsdóttir Guðlaugur Óli Þorláksson Ólafur Haukur Þórólfsson Sigríður Þórólfsdóttir Pétur Gunnar Ringsted Jón Þórólfsson Hólmfríður Rúnarsdóttir afa og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir og systir, SIGURLAUG SIGURÐARDÓTTIR, lést á Akureyri laugardaginn 20. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Benedikt Sigmar Emilsson Ester Anna Emilsdóttir Emil Þorri Emilsson Þorkell Óttar Emilsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.