Morgunblaðið - 14.11.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.11.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2018 Veður víða um heim 13.11., kl. 18.00 Reykjavík 4 léttskýjað Akureyri 4 rigning Nuuk -3 heiðskírt Þórshöfn 7 skýjað Ósló 8 skýjað Kaupmannahöfn 10 þoka Stokkhólmur 7 þoka Helsinki 6 skýjað Lúxemborg 10 léttskýjað Brussel 11 léttskýjað Dublin 11 skýjað Glasgow 10 léttskýjað London 12 heiðskírt París 13 skýjað Amsterdam 12 léttskýjað Hamborg 9 léttskýjað Berlín 11 þrumuveður Vín 9 skýjað Moskva -3 heiðskírt Algarve 18 heiðskírt Madríd 17 heiðskírt Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 20 heiðskírt Róm 17 heiðskírt Aþena 15 léttskýjað Winnipeg -13 skýjað Montreal 0 þoka New York 8 rigning Chicago -5 alskýjað  14. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:54 16:32 ÍSAFJÖRÐUR 10:18 16:18 SIGLUFJÖRÐUR 10:01 15:59 DJÚPIVOGUR 9:28 15:56 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á fimmtudag Austan og norðaustan 8-13 m/s og slydda eða rigning með köflum sunnanlands, en dá- lítil snjókoma austantil á landinu. Hiti um og undir frostmarki, en 0 til 4 stiga hiti sunnan heiða. Austan 5-10 m/s og lítilsháttar rigning sunnanlands, en slydda eða snjómugga á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti víða í kringum frostmark. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur heimilað umhverf- is- og skipulagssviði Reykjavíkur að halda áfram undirbúningi og fram- kvæmdum við uppbyggingu íþrótta- mannvirkja ÍR í Suður-Mjódd. Ljóst er að framkvæmdin muni fara fram úr kostnaðaráætlunum og því undirstrikar borgarráð mikil- vægi þess að áform byggingarnefnd- ar um sparnað í öðrum áfanga verk- efnisins nái fram að ganga, án þess að ganga á gæði þess. Þá áréttar borgarráð að síðari áfangi komi til kasta borgarráðs eftir að hönnun liggur fyrir, en áður en útboð kemur, með nýju og endurskoðuðu kostnað- armati. Fram kemur í minnisblaði Ámunda Brynjólfssonar, skrifstofu- stjóra framkvæmda og viðhalds, að fyrirhugaðar framkvæmdir í Suður- Mjódd séu í samræmi við samning Reykjavíkurborgar og Íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR), sem samþykktur var í borgarráði 26. janúar 2017. Í framhaldinu var skipuð byggingar- nefnd, sem unnið hefur að verkefn- inu. Heildarkostnaður við uppbygg- ingu á svæðinu er nú að óbreyttu áætlaður um 2.333 milljónir króna á verðlagi í október 2018, sem er 14% hærra en upphaflegur samningur við ÍR gerir ráð fyrir. Hækkun kostn- aðaráætlunar er 314 milljónir króna. „Byggingarnefnd mun nú skoða hvort ná megi fram raunhæfum sparnaði við verkefnið, s.s. með því að draga úr umfangi án þess að framtíðarafnot íþróttafélagins af byggingunum rýrist,“ segir í minn- isblaðinu. Tilboð voru opnuð 4. október sl. í alútboði vegna fjölnota íþróttahúss ÍR, sem er ein fyrirhugaðra bygg- inga á svæðinu. Útboðið fór fram að undangengnu forvali þar sem þrír bjóðendur tóku þátt en þeir stóðust allir uppsettar kröfur. Lægsta aðal- tilboð reyndist vera frá Munck Ís- landi ehf., krónur 1.010.530.758. Var tilboðið 13% yfir birtri kostnaðar- áætlun í útboðsgögnum, sem var krónur 892.000.000. Tilboðs Ístaks hf. og Spennt ehf. voru litlu hærri. Framkvæmdir við fjölnota íþróttahús voru boðnar út í alverk- töku. Með því er megnið af áhættu við framkvæmdina flutt yfir á verk- taka, segir í minnisblaðinu. Deili- hönnun verksins verður einnig á könnu verktaka. Húsið samanstendur af fjölnota íþróttasal, þ.e. hálfum knattspyrnu- velli auk æfingasvæðis fyrir frjálsar íþróttir í vesturenda hússins. Tveggja hæða hliðarbygging verður meðfram eystri langhlið salar. Í hlið- arbyggingu er meðal annars gert ráð fyrir búningsaðstöðu, lyftingasal, geymslurýmum, tæknirými, salern- isaðstöðu, aðstöðu fyrir áhorfendur og lyftu. Fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir að rými, sem nú er gert ráð fyr- ir í hliðarbyggingu, yrðu staðsett í tengibyggingu við væntanlegt íþróttahús. Með þessari ráðstöfun á að ná fram sparnaði. Stefnir í framúrkeyrslu í Mjóddinni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Uppbygging í Mjódd Dagur B. Eggertsson og Ingigerður Guðmundsdóttir skrifuðu undir samninginn 2017 fyrir hönd Reykjavíkurborgar og ÍR.  Uppbygging íþróttamannvirkja ÍR heldur áfram  Leitað verður allra leiða til að ná fram sparnaði Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Sveitarstjórn Rangárþings ytra hef- ur lagt til breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins til að hægt sé að koma upp flugbraut á bænum Guðnastöðum í Landeyjum. Tillaga þessi er í umsagnarferli fram að jól- um. Í tillögunni kemur fram að um er að ræða eina flugbraut, 80 x 1.100 metra á túni í landi Skækils/ Guðnastaða við Bakkaveg í Land- eyjum. „Á Guðnastöðum eru hús sem nýst geta sem flugskýli og því er staðsetning flugbrautar í landi Skækils talin hagkvæm og heppileg. Skortur er á flugskýlum á svæðinu, þ.á m. við Bakkaflugvöll. Þar sem ábúandinn á Guðnastöðum er aðili að flugfélaginu Arctic Wings og áform eru um að nota flugbrautina til að geta flogið milli lands og Eyja en Bakkaflugvöllur er í útleigu til annars flugfélags,“ segir í tillögunni. Þar segir jafnframt að fram- kvæmd þessi sé afturkræf að öllu leyti og svæðið geti því nýst sem landbúnaðarsvæði þegar fram líða stundir. Eins segir að í tengslum við flugstarfsemina verði til ný störf í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið njóti góðs af þjónustu og tekjum af starf- seminni. Undir þetta tekur Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri í sam- tali við Morgunblaðið. „Þetta styrkir stoðirnar í sveitarfélaginu,“ segir hann. Landeigandinn, Guðni Ragn- arsson, var staddur í Kína þegar Morgunblaðið náði tali af honum og baðst undan viðtali. Sveitarstjórinn segir að mál þetta hafi verið lengi í ferli en sjái loks fyrir endann á því. „Hann hefur verið að nota þetta tún til að lenda en fær ekki völlinn tryggðan nema með þessari breyt- ingu á aðalskipulagi. Ef allt gengur eftir gæti þetta verið klárt í vor,“ segir hann. Sami aðili hefur líka viðrað hug- myndir um að reisa vindorkuver á landi sínu. Anton Kári segir að áform um nýtingu vindorku í sveit- arfélaginu verði tekin inn í endur- skoðun aðalskipulags. „Við erum ekki búin að ákveða hvort við tökum kafla og kafla í þessari endurskoðun eða hvort við förum í heildarend- urskoðun. Það er að mörgu að huga; kaflanum um orkumál og þá einna helst vindorkunni, ferðaþjónustu og svo nýtingu landbúnaðarlands. Það er mikil gróska í ferðaþjónustu hér og mörg bú eru bæði með búskap og ferðaþjónustu.“ Guðni stefnir á flug milli lands og Eyja Guðnastaðir Bakkaflugvöllur L A N D E Y J A R Landeyjahöfn Kortagrunnur: OpenStreetMap Fyrirhuguð flugbraut 1 Fyrirhuguð flugbraut á Guðnastöðum  Flugbraut í landi Skækils við Bakka- veg  Styrkir stoðir sveitarfélagsins Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins hefur ákveðið að birta í heild sinni á vef sjóðsins samning við Arion banka um rekstur og eignastýringu. Kemur þessi ákvörðun í kjölfar gagnrýni Hróbjarts Jónatanssonar, hæstaréttarlögmanns og sjóðfélaga í Frjálsa, á stjórn sjóðsins fyrir að neita að birta samninginn við Arion banka, sem hefur séð um rekstur sjóðsins. Frá þessari gagnrýni Hró- bjarts var greint í Morgunblaðinu 6. september sl. en hann lagði fram beiðni til Héraðsdóms Reykjavíkur um að gera lífeyrissjóðnum skylt að afhenda samninginn. Gagnrýndi Hróbjartur að það að neita að afhenda samninginn leiddi til þess að efni hans væri aðeins kunnugt stjórnarmönnum sjóðsins, sem flestir sætu „fyrir tilskipan og með velþóknun Arion banka hf. en almennir sjóðfélagar hafa enga vitn- eskju um efni hans“. „Umræða um samstarfið“ „Stjórn Frjálsa hefur haft til skoð- unar með hvaða hætti megi auka enn frekar upplýsingagjöf til sjóðfélaga og ákvað nýverið að birta í heild sinni samning Frjálsa við Arion banka um rekstur og eignastýringu. Er þetta gert í ljósi þess að nokkur umræða hefur skapast um samstarf- ið við Arion banka. Reyndar er það svo að nokkuð veigamiklar upplýs- ingar hafa legið fyrir um samstarfið, til að mynda í ársreikningi og á vef sjóðsins, þar á meðal upplýsingar um rekstrarkostnað og umsýsluþóknun sjóðsins til bankans. En það er okkur bæði ljúft og skylt að auka enn frek- ar gagnsæi gagnvart sjóðfélögum með því að birta rekstrarsamninginn í heild sinni á vef sjóðsins,“ segir Ás- dís Eva Hannesdóttir, stjórnarfor- maður Frjálsa lífeyrissjóðins, um þá ákvörðun að birta rekstrarsamning- inn við Arion banka. Er hægt að kynna sér hann á frjalsi.is. Í frétt á vef sjóðsins segir að ákvörðunin bætist við aðra upplýs- ingagjöf vegna rekstrarfyrirkomu- lagsins og sé hluti af þeirri „vegferð að auka enn frekar gagnsæi gagn- vart sjóðfélögum“. Birta samninginn við Arion banka  Stjórn Frjálsa bregst við gagnrýni Morgunblaðið/Eggert Arion Bankinn hefur séð um rekst- ur Frjálsa lífeyrissjóðsins. Tunna af hráolíu á heimsmarkaði, eða Brent Norðursjávarolíu, lækk- aði um 6% í gær. Hefur verðið ekki verið lægra í átta mánuði, sam- kvæmt frétt Financial Times, og dagslækkunin í gær er sú mesta síð- an í júlí í sumar. Var tunnan komin niður í tæpa 66 dollara í gær en var komin í 86 dollara í síðasta mánuði. Lækkunin í gær er rakin til ótta framleiðenda og kaupenda við að framboð á markaði verði umfram eftirspurn, auk þess sem þeir hafa áhyggjur af minni hagvexti í heim- inum. Þá reikna sérfræðingar OPEC með að hægist á eftirspurn eftir olíu á næsta ári. Fram kom í umfjöllun Morgun- blaðsins sl. laugardag um olíu- markaðinn að svigrúm væri til lækkunar á eldsneyti hér heima. Í kjölfarið lækkuðu olíufélögin lítra- verð að jafnaði um þrjár krónur. Nú er spurning hvernig þau bregð- ast við frekari lækkunum, en geng- isþróun hefur einnig sitt að segja. AFP Borpallur Olíuverð á heimsmarkaði heldur áfram að lækka. Enn lækkar olíuverðið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.