Morgunblaðið - 14.11.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 14.11.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2018 Hreinar hendur með nýjum Voltaren Gel nuddhaus 3. BERA Á1. RJÚFA 2. TOGA NÝTT Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Morgunblaðið/Árni Sæberg Grafarvogskirkja Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur til vinstri og Kristín Gunnlaugsdóttir listakona með verkið Móðurina á baksýn. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Þ etta er óvenjulegt verk í helgirými. Ég tel þá kvenlegu orku sem það ber með sér mikilvæga fyrir kirkjuna og kirkjulistina. Við sjáum ekki öll það sama í þessu verki. Sum sjá kvensköp á meðan önnur sjá Maríu guðsmóður, rós eða engil,“ segir séra Guðrún Karls Helgudóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju í Reykjavík. Þar var fyrr í vikunni kynning á listaverkinu Móðirin eft- ir Kristínu Gunnlaugsdóttur mynd- listakonu sem sett hefur verið upp á hliðarvegg í kapellu kirkjunnar Kvenlægt sé sýnilegt „Móðirin er í mínum huga dæmi um hugrakka list. Kvenork- an teygir sig í alla áttir, en það er mikilvægt að hið kvenlega ekki síð- ur en hið karllæga sé vel sýnilegt í kirkjum landsins,“ segir sr. Guð- rún ennfremur. Listaverk Kristínar er saumað veggteppi og með því er vísað til margra alda hefða kvenna og hannyrða. Alsiða var fyrr á tíð að konur saumuðu og sýndu stétt sína og stöðu með handíðum hvort sem var, eins og listakonan segir sjálf, að vefa veggteppi fyrir hallarveggi, taka gullsaum fyrir kirkjuna, staga í sokka og sauma allt sem þurfti fyrir heimilið. „Við þekkjum flest klukku- strenginn, útsaumaða mynd sem gjarnan er sett í þröngt bil milli dyra. Móðirin fjallar um þann jarð- neska veruleika sem við þekkjum og æðri veruleika sem við leitumst við að finna. Jarðbrúni liturinn vís- ar til ilmandi moldarinnar, það er jörðin sem við komum frá og hverfum til. Gullsaumurinn og upphafin blómsköpin eru eins og línur milli stjarna á himinfesting- unni um hánótt og breiða úr sér. Þannig sameinar verkið himin og jörð, hið andlega og hið verald- lega,“ segir listakonan í kynningu á verkinu. Umræðan mikilvæg í nútímasamfélagi Aðalatriðið í þessu verki Kristínar, Móðirin, eru kvensköp. Kristín segir fátt hafa valdið jafn mikill hneykslun eða verið jafn misnotað gegnum tíðina, bjagað og bælt og þetta mikilvæga líffæri kvenna. Fyrir sér sé verkið hins vegar tilraun til afbælingar sem um leið vísi til andlegs og verald- legs veruleika. Myndmál verksins krefst allrar þeirrar stærðar sem möguleg er, en það er að ummáli 3,03 m x 3,53 og var hluti af sýn- ingu Kristínar í Listasafni Íslands árið 2013 sem bar yfirskriftina Sköpunarverkið. „Verkið tekur sér stórt pláss því umræðan sem það skapar er mikilvæg í nútímasamfélagi. En það býr einnig yfir mýkt andlegra sanninda, jafnvægi, sátt og kær- leika. Mér finnst líka mikilsvert og er þakklát fyrir það þor sem séra Guðrún og hennar fólk í Grafar- vogskirkju sýnir með því að taka þetta verk til sýninga, að minnsta kosti í nokkra mánuði hvað sem síðar verður,“ sagði Kristín í sam- tali við Morgunblaðið. Kvensköp. María guðs- móðir, rós eða engill. Listaverkið Móðirin í Grafarvogskirkju eftir Kristínu Gunnlaugs- dóttur var kynnt í vik- unni. Það hefur margar víddir og vekur eftirtekt. Kvenorka í kirkjunni og listin er hugrökk Systkinin Sigrún Eldjárn og Þórarinn Eldjárn lesa fyrir börn á öllum aldri í stofunni á Gljúfrasteini – Húsi skáldsins í Mosfellsdal næstkomandi laugardag, 17. nóvember, kl. 15. Til- efnið er Dagur íslenskrar tungu sem haldinn er hátíðlegur 16. nóvember ár hvert á fæðingardegi Jónasar Hall- grímssonar. Af þessu tilefni les Sigrún úr bók sinni Silfurlykillinn sem fjallar um Sumarliða og Sóldísi sem eru nýflutt með pabba sínum í skrítið og skemmtilegt hús sem heitir Strætó númer 7. Þórarinn ætlar að flytja ljóð úr bók sinni Ljóðpundari en í henni búa ýmsar verur sem skáldið hefur skapað af skemmtilegheitum sínum. Til dæmis vinirnir Urgur og Surgur, klár klár, fíll í postulínsbúð og beinn banani. Þar eru líka nöfn sem má lesa aftur á bak og áfram, en fáir hafa jafn sterk tök á íslensku máli eða geta leikið á hin ýmsu blæbrigði þess eins og Þórarinn Eldjárn gerir. Ókeypis er á þennan viðburð á Gljúfrasteini og allir eru velkomnir. Upplestur á Gljúfrasteini á laugardag Sigrún Eldjárn Þórarinn Eldjárn Silfurlykillinn og Ljóðpundari Í dag, 14. nóvember, er dagur al- þjóðlegra samtaka gegn sykur- sýki. Lions á Íslandi sinnir mál- inu með forvörnum gegn áunninni sykursýki. Lionshreyfingin vill með átaki sínu vekja at- hygli á þessum vágesti og bjóða, í sam- vinnu við heil- brigðisstarfs- fólk, upp á blóðsykursmælingu á ýmsum fjöl- förnum stöðum, svo sem í versl- unum, þjóðnustumiðstöðvum ým- iskonar og víðar þar sem fólk á leið um. Á síðasta ári þáðu á bilinu 5.000-6.000 manns slíka mælingu og var tugum fólks úr þeim hópi ráðlagt að leita til læknis án tafar, vegna of hárra gilda. „Þetta segir að starf okkar er mikilvægt, enda vita um 50% þess fólks sem gengur með sykursýki 2 ekki af sjúkdómnum sem oftast er afleiðing af röngum lífsstíl og óhollu mataræði. Með því að borða skynsamlega og hreyfa sig reglu- lega má halda sjúkdómnum í skefj- um,“ segir Björn Guðmundsson, kynningarstjóri Lions á Íslandi. Nýlega var hleypt af stokkunum söfnun á vegum alþjóðlegu Lions- hreyfingarinnar vegna baráttu við sykursýki sem er ein mesta heil- brigðisógn í heiminum núna. Söfn- unin tekur til þriggja ára. Á þinginu var kynnt að nú þegar hafa safnast rúmlega 50 milljónir bandaríkjadala vegna söfnunar- innar en stefnt er að því að safna 300 milljónum dala á næstu þrem- ur árum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hlaup Með reglubundinni hreyfingu og skynsamlegu mataræði er hægt að halda áunninni sykursýki sem margir þurfa að glíma við í skefjum. Lions leggur baráttu gegn sykursýki lið Björn Guðmundsson Blóðsykursmælingar víða í boði þessa dagana

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.