Morgunblaðið - 14.11.2018, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2018
14. nóvember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.72 123.3 123.01
Sterlingspund 157.57 158.33 157.95
Kanadadalur 92.89 93.43 93.16
Dönsk króna 18.514 18.622 18.568
Norsk króna 14.484 14.57 14.527
Sænsk króna 13.442 13.52 13.481
Svissn. franki 121.43 122.11 121.77
Japanskt jen 1.0764 1.0826 1.0795
SDR 169.11 170.11 169.61
Evra 138.11 138.89 138.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.3404
Hrávöruverð
Gull 1207.05 ($/únsa)
Ál 1963.5 ($/tonn) LME
Hráolía 70.69 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Eftir 0,8%
hækkun í Kauphöll-
inni í fyrradag
héldu bréf Ice-
landair Group
áfram að hækka í
gær. Hækkun á
verði á bréfum fé-
lagsins nam 4,35%
í 400 milljóna
króna viðskiptum
og stendur gengi
félagsins í 12. Gengið á bréfum félags-
ins hefur ekki verið jafn hátt síðan í júlí
síðastliðnum og hefur tæplega tvöfald-
ast frá því að tilkynnt var um kaup Ice-
landair Group á WOW air í byrjun síð-
ustu viku. Velta viðskipta í
Kauphöllinni í gær nam 2 milljörðum
króna. Mesta lækkunin var á bréfum
fasteignafélagsins Reita sem lækkaði
um 2,33% í 124 milljóna króna við-
skiptum. Verð á bréfum HB Granda
lækkaði um 2% í 95 milljóna króna við-
skiptum. peturhreins@mbl.is
Gengi Icelandair Group
hækkaði um 4,35%
Gengi Icelandair
hækkaði um 4,35%.
STUTT
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Franski ferðarisinn Lagardère Travel
Retail er stærsti veitingastaður lands-
ins á lista Creditinfo yfir framúr-
skarandi fyrirtæki í ár en velta fyr-
irtækisins fyrir rekstrarárið 2017 nam
3,8 milljörðum króna. Hagnaður Lag-
ardère nam 248 milljónum króna árið
2017 og er 80% hærri en hjá KFC sem
skilaði næstmestum hagnaði þessara
veitingastaða, eða upp á 138 milljónir
króna. Úttektin á þessum stærstu
veitingastöðum landsins er hluti af
umfjöllun Morgunblaðsins sem í sam-
starfi við Creditinfo gefur út 96 síðna
sérblað um framúrskarandi fyrirtæki
á morgun.
Lagardère rekur sex veitingastaði
á Keflavíkurflugvelli en um er að ræða
Kvikk Café, Loksins bar, Mathús,
Nord, Pure Food Hall og Segafredo.
Fyrirtækið rekur verslanir og þjón-
ustu í 240 flugstöðvum víða um heim.
280 milljónum meira en næsti
Velta Lagardère var tæpum 280
milljónum hærri en hjá Foodco sem
var með veltu upp á rúma 3,5 milljarða
króna árið 2017 en Foodco rekur veit-
ingastaðina Roadhouse, American
Style, Saffran, Aktu taktu, Eldsmiðj-
una og Pítuna. Velta KFC nam rúm-
um 3 milljörðum króna, velta Múla-
kaffis nam 2,4 millljörðum og velta
Stjörnunnar ehf., sem rekur Subway-
staðina, nam 2,2 milljörðum. Velta
veitingastaðar IKEA nam 1,6 millj-
örðum króna samkvæmt upplýsingum
fyrirtækisins sem Morgunblaðið afl-
aði.
Sé litið til hagnaðar nokkurra af
stærstu veitingastöðum landsins, sem
Creditinfo tók saman, kemur í ljós að
hagnaðurinn hjá Lagardère var sá
eini sem jókst frá fyrra ári ef frá er
talinn hagnaður Kaffibaunarinnar
sem jókst um 66%. Eins og fyrr segir
nam hagnaður Lagardère 248 millj-
ónum árið 2017, en hann var 182 millj-
ónir árið 2016 og jókst því um 37%.
Hjá 15 öðrum stöðum minnkaði hagn-
aðurinn minnst um 10%, hjá Tokyo
veitingum, en mest um tæp 90%, hjá
Stjörnunni ehf. sem rekur Subway.
Þann mun má að mestu rekja til af-
komu dótturfélaga Stjörnunnar ehf.
sem var neikvæð um 66 milljónir.
1.000 manns á klukkustund
Ljóst er að Lagardère hefur notið
góðs af fjölgun ferðamanna hér á
landi en um Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar árið 2017 streymdu tæplega 8,8
milljónir flugfarþega. Það samsvarar
tæplega 24 þúsund farþegum á dag
eða 1.000 manns á klukkustund. Lag-
ardère tók þátt í forvali ásamt fleiri
innlendum og erlendum fyrirtækjum
um leigu á aðstöðu undir verslunar-
og veitingarekstur í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar vorið 2014. Franska
fyrirtækið varð að lokum fyrir valinu
ásamt Joe Ísland, sem rekur Joe &
Juice. Fyrirtækið Kaffitár var eitt
þeirra fyrirtækja sem ekki urðu fyrir
valinu í forvalinu en fyrirtækið hefur
átt í harðvítugum deilum við Isavia
um hvernig staðið var að gerð samn-
inga um veitingaþjónustuna árið
2014.
Franskur ferðarisi stærsti
veitingastaður landsins
Morgunblaðið/Ómar
Velta Það virðist alltaf vera nóg að gera hjá Lagardère og röðin á þessari mynd er ágætur vitnisburður um það.
Lagardère Travel Retail
» Varð hlutskarpast í útboði
vegna veitingasölu í Leifsstöð
árið 2014.
» Velta fyrirtækisins nam 3,8
milljörðum króna árið 2017.
» Hagnaður fyrirtækisins
jókst um 37% á milli ára og
nam 248 milljónum króna.
» Hagnaður fyrirtækisins var
80% meiri en hjá KFC sem
skilaði næstmestum hagnaði
framúrskarandi fyrirtækja.
Velta Lagardère Travel Retail nam tæpum 4 milljörðum króna árið 2017
Yfirstandandi ár, 2018, er nú þegar
orðið besta rekstrarár í sögu Skelj-
ungs, að því er fram kemur í máli
Hendrik Egholm, forstjóra félagsins
í afkomutilkynningu til Kauphallar,
en félagið birti afkomu sína fyrir
þriðja ársfjórðung eftir lokun mark-
aða í gær.
Egholm segir að ársfjórðungurinn
hafi komið mjög vel út, líkt og fyrri
fjórðungar ársins, en fyrstu níu mán-
uði ársins nam hagnaður félagsins
tæplega 1,6 milljörðum króna, og
jókst um 34,4% milli ára.
Hagnaður félagsins á þriðja árs-
fjórðungi nam 724 milljónum króna,
en á sama tíma á síðasta ári nam
hagnaður tímabilsins 444 milljónum.
Eigið fé félagsins 30. september
sl. nam tæpum níu milljörðum króna,
og var eiginfjárhlutfallið 35,3% í lok
tímabilsins.
Í tilkynningu félagsins kemur
fram að EBITDA-spá verði óbreytt
frá tilkynningu 21. ágúst og áætlar
nú að EBITDA ársins verði á bilinu
3.100-3.300 milljónir króna.
Selja áfram til Costco
Egholm segir í tilkynningunni að
selt magn haldi áfram að aukast í öll-
um tegundum utan flugvélaeldsneyt-
is. „Einnig höldum við áfram tiltekt-
inni í rekstrinum, til þess að geta
mætt kostnaðarþrýstingi bæði í
Færeyjum og á Íslandi […].“
Þá segir Egholm að sölu- og þjón-
ustusamningur við Costco hafi verið
endurnýjaður á dögunum. „Mun
Skeljungur því þjónusta Costco
áfram á næsta ári.“ tobj@mbl.is
Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon
Olía Selt magn eykst í öllum teg-
undum nema flugvélaeldsneyti.
Besta rekstrarár
í sögu Skeljungs
EBITDA-spá
ársins endurskoðuð